Vestfirska fréttablaðið - 12.06.1984, Síða 4
Bágt ástand heilbrigðismála á Þingeyri:
Læknarnir hafa hratt á hæli
— stoppa allt niður í viku
Vandræðaástand hefur verið
ríkjandi í læknisþjónustu á
Þingeyri í vetur. Mjög illa hefur
géngið að ráða þangað lækna og
hafa þeir haft hratt á hæli,
stoppað allt niður í eina viku.
Stundum hefur hér einungis
verið um kandídata að ræða. í
vor var svo læknislaust í tvær
vikur og þjónaði þá læknirinn á
Flateyri lækniskallinu. Læknir
hefur nú verið á Þingeyri í mán-
uð og er á förum. Síðan kemur
annar og verður í tvo mánuði, en
hvað síðan verður er á huldu.
„Þetta hefur verið leiðindaá-
stand hjá okkur seinnipartinn í
vetur,“ sagði Jónas Olafsson,
sveitarstjóri. „Læknarnir segjast
ekki vilja vera hér.“
Á Þingeyri er H-1 stöð, sem
þýðir að þar á að vera læknir og
hjúkrunarkona og aðstaða fyrir
ýmsa aðra sem ekki eru þó
staðsettir í plássinu nú. Engin
hjúkrunarkona hefur verið
starfandi síðan í fyrrahaust, en
ljósmóðir hlaupið í skarðið. Þar
eð engin hjúkrunarkona hefur
fengist hefur Jónas ráðið
sjúkraliða til starfa og byrjar
hann eftir Hvítasunnu. Jónas
kvað það lagabrot, því Alþingi
hefði samþykkt að ekki mætti
ráða sjúkraliða þó hjúkrunar-
kona fengist ekki. „Þetta þýðir
það að enginn læknir vill koma,
því þeir þurfa aðstoðarmann.“
Málið er ekki útkljáð milli Jón-
asar og ráðuneytisins.
Þess má geta að á Þingeyri
eru nýjar íbúðir bæði fyrir
lækni og hjúkrunarkonu.
Húsaleiga hefur engin verið og
læknarnir hafa hvorki þurft að
borga ljós né hita.
Ekki er staðan í tannlækn-
ingamálum Þingeyringa skárri.
Þar er náttúrulega enginn tann-
læknir og verður að sækja slíka
þjónustu ti! ísafjarðar og er nú
ekki á bætandi.
„Skólabörn eiga að fá tann-
lækningar fríar,“ sagði Jónas,
„en þá kom upp spurningin
hver ætti að borga akstur þeirra
Einar
fyrstur
í víða-
vangs-
hlaupi
Um helgina fór fram víða-
vangshlaup á ísafirði. Hlaupið
var um 4 km. Þátttakendur voru
11; 2 konur og 9 karlar. Sigur-
vegari var Einar Ólafsson á
tímanum 9 mín. og 36 sek.
Næstir komu Amór Magnússon
á 10.36 og Guðjón Reynisson á
11.17.
i Hlaup þetta hefur ekki verið
haldið í mörg ár, en nú er ætl-
unin að halda það árlega og
verður farandbikar í fyrstu
verðlaun.
Bíldudalur:
Gatnagerð
upp á
5-6 millj.
Á Bíldudal er nú unnið af
fullum krafti við gatnagerð.
Framkvæmdir hófust fyrir hálf-
um mánuði og ganga vel að sögn
Guðmundar Hermannssonar
sveitarstjóra.
„Verið er að undirbyggja
hluta Dalbrautar eða um 300
metra, en Dalbraut er lengsta
gatan á Bíldudal. Hún er u.þ.b.
1800 metrar. Síðan á að steypa
þessa 300 metra að hluta í sum-
ar.“
Guðmundur sagði þessar
framkvæmdir þær viðamestu á
vegum hreppsins nú.
„Þetta er dálítið stórt verk-
efni. Ég held að kostnaðaráætl-
unin sé upp á 5,6 milljónir
þ.e.a.s. við þann hluta fram-
kvæmdarinnar, sem unnið
verður að í sumar.“
Að lokum gat Guðmundur
þess að eins og er, væri at-
vinnuástand mjög gott á Bíldu-
dal.
13 ára Bolvíkingur, Eysteinn
Guðmundsson, mun taka þátt í
Ólympíuleikum fatlaðra sem
fram fara í New York 17. júní til
3. júlí n.k. Hann mun keppa í
sundi, nánar til tekið skríðsundi
og baksundi. Fötlun Eysteins er
þannig að annar handleggur
Anna Áslaug Ragnarsdóttir
píanóleikari heldur hljómleika á
vegum Tónlistarfélags ísafjarð-
ar n.k. fimmtudag 14. júní kl.
21:00 í Alþýðuhúsinu á ísafirði.
Eru þetta fjórðu og síðustu á-
skriftarhljómleikar félagsins á
hans er snúinn og háir það hon-
um óverulega við sundið.
Eysteinn segist vera búinn að
æfa sund frá því í haust undir
stjórn Guðmundu Jónasdóttur.
Æft er fjórum sinnum í viku.
Eysteinn sagðist hafa náð lág-
markinu snemma í vor, en hefði
þessu ári.
Föstudaginn 15. júní kl. 21:00
verða hljómleikar i Bolungarvík
og leikur Anna Áslaug þar á nýja
Steinwayflygilinn í Félagsheim-
ilinu.
Á efnisskránni, sem er fjöl-
síðan bætt það töluvert. Hvort
hann væri spenntur fyrir að fara
út? — Nei, hann var ekkert sér-
staklega spenntur fyrir því, ekki
ennþá að minnsta kosti.
Eysteinn hefur áður keppt á
íþróttamóti fatlaðra erlendis.
Það var í Danmörku og þá kom
hann heim með verðlaunapen-
ing. Hann keppti þar í frjálsum
íþróttum. Æfði hann ennþá
frjálsar? —Nei, nú var hann
kominn með golfdellu.
Við óskum honum góðs
gengis á Ólympíuleikunum.
breytt, eru m.a. tónverk eftir
Haydn, Chopin, tékkneska tón-
skáldið Janácek og Sonata Pat-
hetique eftir Beethoven.
Miðasala á ísafirði er í Bók-
hlöðunni og við innganginn.
Anna Áslaug á ísafirði fimmtudag og
Bolungarvík á föstudag
vestfirska
m
á þriðjudegi
á ísafjörð. Ég taldi að ríkið ætti
að borga akstur þeirra á ísa-
fjörð. Eg taldi að ríkið ætti að
borga og skrifaði Trygginga-
ráði, en hef nú ekki fengið svar
enn.“ Ekkert hefur því gerst í
málinu enn.
Nú hefur fengist fjármagn til
að koma upp aðstöðu fyrir
tannlækni á Þingeyri og vonast
heimamenn til að geta fengið
einhvern til að koma annað
veifið að gá uppí munna.
hefur
heyrt
...AÐ Sólrún sé væntanleg til
Bolungarvíkur í endaða
næstu viku. Eftir það mun hún
halda fljótlega til veið með út-
búnað fyrir rækjuvinnslu.
Sólrún er 300 tonn og um 36
m á lengd. Áhöfnina mun
skipa 11 manns.
...AÐ lögreglan á ísafirði hafi
haft það náðugt um Hvíta-
sunnuhelgina. Um þessa
helgi var nú rólegra en und-
anfarin ár. Töluvert safnaðist
þó saman af unglingum inni í
skógi á föstudag en allt fór
þar friðsamlega fram. Það
sama er að segja um þá aðra
staði þar sem fólk safnaðist
saaan til að gera sér glaðan
dag. Sem sagt, allt með friði
og spekt.
...AÐ nú sé búið að ganga frá
samningum við Slippstöðina
á Akureyri um breytingar þær
sem fyrirhugaðar eru á Haf-
þóri. Áætlað er að þeim verði
lokið eftir mánuð og mun
Hafþór eftir þær breytingar
hafa möguleika á að stunda
veiðar við Svalbarða og á
öðrum fjarlægum miðum.
...AÐ mikið uppnám hafi orðið
innan fyrirtækja á ísafirði í
síðustu viku þegar bréf barst
frá bæjaryfirvöldum þess efn-
is að nú skyldu rukkarar fá
reikninga samþykkta hjá til-
teknum forráðamönnum
hinna ýmsu bæjarstofnana
áður en þeir kæmu með þá til
gjaldkera. Hingað til hafa
reikningar verið lagðir inn og
forráðamennirnir lagt blessun
sína yfir þá þar. Hið nýja fyrir-
komulag hefði þýtt að rukkar-
ar bæjarins hefðu orðið að
vera eins og útspýtt hunds-
skinn við að elta uppi hina 15
tilteknu forráðamenn; sem
sagt einn allsherjar eltingar-
leikur. Yfirmönnum fyrirtækj-
anna blöskraði svo uppá-
stungan aö þeir tóku að
hringja sig saman og ákváðu
síðan að tilkynna bæjarstjóra
að ekki yrði farið eftir tilmæl-
unum. Jafnframt var honum
boðið að afturkalla áðurnefnt
bréf, sem hann og gerði. Eft-
irleiðis mun fyrirtækjum hins
vegar ætlað að sundurliða
reikninga sína fyrir hverja
bæjarstofnun...