Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.08.1984, Blaðsíða 1

Vestfirska fréttablaðið - 30.08.1984, Blaðsíða 1
FRETTABLASIS Lítið útlitsgallaðar frystikistur — Frábært verð — SinarQuðfjínmzon h. £<W 1200 - lfl$ Sol uníja’iOíh Pétur Sigurðsson, forseti ASV: „Staðiö verði við samningana,, „Við erum með þá kröfu, að staðið verði við samningin frá því í febrúar. Við erum því alls ekki að brjóta upp neina samninga,“ sagði Pétur Sig- urðsson, forseti Alþýðusam- bands Vestfjarða í samtali við Vf. um kröfugerð sambandsins 1. september. „Við sömdum í febrúar og til 15. apríl um sama kaupmátt og var á síðasta ársfjórðungi ársins 1983. Við sættum okkur við þennan kaupmátt, vegna þess að fyrir lá að ríkisstjórnin og atvinnurekendur mundu standa við þennan samning. Á þetta viljum við reyna og til að þetta geti staðist, þá þurfa launin að hækka á milli 7 og 10% 1. september. Það eru okkar kröfur.“ Alþýðusambandið hefur sent Vinnuveitendafélagi Vestfjarða bréf, þar sem þessar kröfur eru settar fram. Að sögn Jóns Páls Halldórssonar, formanns Vinnuveitendafélagsins, hefur félagið ekki tekið afstöðu til þeirra. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Með fund um sjávarútvegsmál Næstkomandi þriðjudag, þann 4. september klukkan 20:30, verður haldinn fundur um sjávarútvegsmál í Félags- heimilinu í Hnífsdal. Fundur- inn er haldinn í nafni sjávarút- vegsrðauneytisins og verða frummælendur þeir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsrað- herra og Jakob Jakobsson for- stjóri Hafrannsóknarstofnunar- innar. Það hefur staðið nokkuð len- gi til að halda þrnnan fund en ráðherra sem er önnum kafinn, eins og allir vita hefur ekki séð sér fært að koma fyrr en nú. Á þennan fund eru velkomnir all- ir þeir sem láta sjávarútveg ein- hverju varða. F Iþrótta- og leikja- námskeið Nú í þessari viku og þeirri síðustu hefur staðið yfir íþrótta- og leikjanámskeið fyrir krakka á aldrinum 7—14 ára, á vegum fþrótta- og æskulýðsráðs fsa- fjarðar. Blaðamaður Vf. leit við á íþróttavellinum einn sólskins- daginn í síðustu viku og spurði fregna af námskeiðinu. Katrín Björnsdóttir kennari á námskeiðinu sagði að þátt- takendur væru komnir yfir 100 og að það kostaði 200 krónur að vera á namskeiðinu. Krakkarn- ir læra og æfa frjálsar íþróttir, boltaíþróttir og leiki. í dag stóð yfir keppni í langstökki, há- stökki, kúluvarpi og 80 metra hlaupi í öllum aldursflokkum og báðum kynjum. Á morgun verður svo farið í skógarferð og þar fer fram verðlaunaafhend- ing. Fjallamaraþon: ísfirðingar í 3. sæti Um síðustu helgi fór fram á vegum Landssambands hjálpar- sveita skáta, svonefnt fjalla- maraþon. Þetta er eins og nafn- ið gefur til kynna, keppni í hlaupi um óbyggðir og keppa 2 saman í sveit. Hver sveit þarf að hafa með sér útbúnað sem dugir í tveggja daga göngu um ó- byggðir. Leiðin sem var gengin að þessu sinni lá frá Kaldadal að Laugarvatni, m.a. með við- komu á tindi Skjaldbreiðar. Alls var leiðin talin vera um 90 km. Tveir ísfirðingar, þeir Sig- urður Jónsson og Sigurður A. Jónsson tóku þátt í keppninni og lentu í 3. sæti. 14 sveitir, 6 kvennasveitir og 8 karlasveitir, lögðu af stað en aðeins 6 luku keppni. Allt var þetta þraut- þjálfað lið úr hinum ýmsu björgunarsveitum á landinu. Samkomulag um orku- réttindi í Reykjanesi Bæjarstjórn Ísafjarðarkaup- staðar og Orkubú Vestfjarða hafa náð samkomulagi í deilu sinni um orkuréttindi í Reykja- nesi. Sem kunnugt er snerist á- greiningur þessara aðila um það hvort afsal ísafjarðarkaupstað- ar á löndum og jarðhitaréttind- um til Orkubúsins frá árinu 1978, næði til annars en orku- öflunar til raforku eða húshit- unar. Ísafjarðarkaupstaður hélt því fram að hann hefði ekki af- salað sér orkuréttindum til fisk- eldis og ylræktar, en Orkubúið var á öndverðri skoðun. Að sögn Ólafs Kristjánsson- ar, formanns stjórnar Orkubús- ins, felst í samkomulaginu, að Orkubúið hafi heimilað Isa- fjarðarkaupstað að nýta jarð- hitaréttindi í Reykjanesi til fiskeldis og ylræktar. Jafnfrpmt hafi ísafjarðarkaupstaður rétt til að framselja þessi réttinndi þriðja aðila. Síðan er ísafjarð- arkaupstað heimilt að leyfa hvers konar jarðhitarannsóknir í landi sínu í Reykjanesi að höfðu samráði við Órkubúið. í þessu samkomulagi felst einnig, að ef Isafjarðarkaup- staður fengi peningagreiðslu fyrir landgæði sín í Reykjanesi, þá er það Orkubúið, sem hefur rétt til að nýta þá peninga til rannsókna og uppbyggingar á sviði jarðhita í Reykjanesi. Ef Orkubúið fer út í virkjun á þessu svæði, þá segir í sam- komulaginu að tekið verði tillit til þeirra mannvirkja, sem þar eru fyrir. Hinsvegar munu þau greiða til Orkubúsins sam- kvæmt gjaldskrá. Að sögn Ólafs er þetta sam- komulag gert til 20 ára, en skal endurskoðast að 10 árum liðn- um, óski annar aðilinn eftir því. Ólafur sagðist halda, að allir aðilar væru ánægðir með sam- komulagið og að það yrði stefnumarkandi í viðræðum við aðrar sveitarstjórnir. i Nýtt skip fyrir | ísbergið? í - B 1 m % ■Hil ¥Á ** isPWTj Æ vsKŒmÆ 1 * J ,r- ' ^ * ' ; "" 1 • 1 í fl* u : ErflriTM 1 m ■ . .. ! 1 Útgerðarmenn fsbergsins 1 eru að hugleiða að kaupa 1 nýtt og stærra skip. Björn 1 Haraldsson forstjóri útgerð- | arinnar sagði að skipið sem 1 um er að ræða sé um 800 tonn og beri þrjátíu tuttugu feta gáma. Eins og er annar ísbergið ekki þeim flutningum sem það getur fengið og vilja þeir því fá stærra skip, en ennþá er aðeins um þreifingar að ræða, að sögn Björns.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.