Vestfirska fréttablaðið - 21.03.1985, Qupperneq 1
11. tbl. 11. árg.
vestfirska
21. mars 1985
FRETTABLASIS
TIL REYKJAVIKUR
TIL AKUREYRAR
FLUGLEIÐIR
Nýjar vörur
vikulega
VERSLIÐ HEIMA — AUKIN ÞJONUSTA
Verslunín
CpLö
ísafiröi sími 3103
Verður Isafjarðarflugvöllur
fluttur út á Arnarnes?
—Sighvatur Björgvinsson spyr samgönguráðherra hvort hann sé tilbúinn til að
láta kanna möguleika á byggingu flugvallar við Arnarnes.
Nýlega lagði Sighvatur
Björgvinsson, varaþingmaður
Alþýðuflokksins á Vestfjörðum,
svofellda fyrirspurn fyrir sam-
gönguráðherra: „Er samgöngu-
ráðherra reiðubúinn til þess að
láta fara fram frekari athugun á
nýju flugvallarstæði fyrir fsa-
fjörð við Arnarnes?“
Hugmynd þessi sem hér um
ræðir mun í fyrstu hafa komið
frá Kristjáni Jónassyni á ísafirði
en í samtali við Vestfirska þann
3. febrúar 1983 segist hann hafa
fengið hugmyndina er hann
beið eftir flugfarþega á ísa-
fjarðarflugvelli í blíðskapar-
veðri en vélin gat ekki lent
vegna óhagstæðrar vindáttar.
Gerir hugmyndin ráð fyrir að
flugvöllurinn verði hlaðinn upp
í sjónum fyrir framan Arnar-
nesið og verði þar tvær flug-
brautir, önnur með stefnu NV
— SA og hin með stefnu NA —
SV (sjá mynd).
Á þingi fylgdi Sighvatur
þessari fyrirspum úr hlaði með
nokkrum orðum þar sem m.a.
kom fram að ísafjarðarflug-
völlur er, ásamt Akureyrarflug-
velli og Egilsstaðaflugvelli, einn
þeirra þriggja flugvalla utan
Suðvesturhornsins þar sem
umferð er mest, ef mælt er í
fjölda farþega og magni flutn-
ings sem um völlinn fer. Frá því
um miðjan septemberog fram á
vor er ekki um aðrar sam-
gönguleiðir að ræða en flugið,
nema þá á sjó en farþegaflutn-
ingar með skipum hafa lagst
niður. Sighvatur sagði enn-
fremur að komið hefði fram á-
hugi hjá bæjarstjórn ísafjarðar
á því að athuga nánar um flug-
vallarstæði framan við Arnar-
nes og því legði hann þessa fyr-
irspurn frarn.
I svari sínu sagði santgöngu-
ráðherra m.a. að þegar ísa-
fjarðarflugvöllur var hannaður
árið 1958 hefðu staðhættir á
Arnamesi verið kannaðir og þá
hefðu þær niðurstöður fengist
að ekki kæmi til greina að reisa
flugvöll þar. Meðal ástæðna
sem hann tiltók voru þessar:
Ekki væri hægt að byggja
nægilega langa flugbraut á
þessum stað. hliðarhalli væri
mikill og uppfyllingar því dýr-
ar, staðurinn væri varhuga-
verður vegna misvindis og
hætta á að vindhnútar gætu
komið út Arnardal og Skutuls-
fjörð og vegalengdin frá flug-
velli til Isafjarðar og Bolungar-
víkur lengdist um 5 — 6 km og á
þann hluta gætu snjóskriður
fallið.
Matthías kvaðst telja það
verkefni brýnna í samgöngum á
þessu svæði að bæta vegasam-
göngur milli þéttbýlisstaðanna í *
V-ísafjarðarsýslu með brú og
fyllingu yfir Dýrafjörð og jafn-
framt væri það framtíðarstefn-
an að gera jarðgong í gegnum Kort Þetta sýnir hu8sanIe8a staösetningu flugvallar á Arnarnesi.
Framhald á bls. 3
Guðbjartur í slipp
Guðmundur og Daníel
sköruðu framúr
— Fáir keppendur á góðu Þorramóti
Togarinn Guðbjartur ÍS 16 er
í Slippstöðinnl á Akureyri þar
sem unnið er að gagngerum
endurbótum á skipinu.
Verið er að skipta um skrúfu,
setja stærri í stað þeirrar gömlu
og setja gír í skipið í stað beins
aflúttaks. Eftir þessar breyting-
ar verður vélin alltaf keyrð á
sama hraða, þeim mesta sem
framleiðendur telja ráðlegan en
hraða skipsins stýrt með gírn-
um. Með þessu er talið að hægt
sé að spara um 20 — 30% af oliu
og fá um 30% meiri togkraft.
Við gírinn verður svo tengdur
rafall sem á að leysa Ijósavél-
arnar af og framleiða allt það
rafmagn sem skipið þarf á
meðan það er á sjó. Ljósavél-
arnar verða áfram um borð en
aðeins til vara. Afgasketill
verður settur við vélina og er
meiningin að hann kyndi upp
íbúðirnar í stað miðstöðvar.
Síður skipsins verða hækkaðar
og reyndar byggt að hluta yfir
efra þilfar skipsins.
Guðbjartur fór í slipp 18.
febrúar og er gert ráð fyrir að
endurbótum ljúki 27. apríl.
betta er fyrsta verkefni Slipp-
stöðvarinnar við svona gagn-
gerar breytingar á togara en
þessar breytingar eru mjög í
líkingu við þær sem gerðar voru
á Júlíusi Geirmundssyni í Nor-
egi á síðasta ári.
Hið árlega Þorramót var
haldið á Seljalandsdal um síð-
ustu helgi. Þorramótið er liður í
Bikarkeppni SKÍ og komu
keppendur víða að af landinu.
Besta veður var og nægur snjór
og fór mótið í alla staði vel fram.
I Alpagreinum karla voru
landsliðsmennirnir Guðmundur
Jóhannsson og Daníel Hilmars-
son í nokkrum sérflokki og
skiptu þeir efstu sætunum á milli
sín í báðum greinum. Næstur á
eftir þeim kom svo Ólafur
Harðarson frá Akureyri og fór
hann reyndar nálægt tíma Dan-
íels í stórsviginu.
SVIG KARLA:
1. Daníel Hilmarsson, D 88.58
2. Guðmundur Jóhannsson, í 89.16
3. Ólafur Harðarson, A 93.98
4. Guðjón Ólafsson, I 94.28
5. Valdimar Valdimarsson, A 95.15
Aðrir keppendur féllu úr keppni.
STÓRSVIG KARLA:
1. Guðmundur Jóhannsson, I 138.70
2. Daniel Hilmarsson. D 141.17
3. Óiafur Harðarson. A 141.23
Keppendur voru 11 og luku 9
keppni.
I Alpagreinum kvenna voru
Akureyrsku stúlkurnar í efstu
sætum, eins og svo oft áður, á-
samt Snædísi Úlriksdóttur frá
Reykjavík sem sigraði í stór-
sviginu.
SVIG KVENNA:
1. Guðrún H. Kristjánsd., A 77.10
2. Tinna Traustadóttir, A 78.08
3. Freygerður Ólafsd., I 86.54
4. Jenný Jensdóttir, í 86.60
5. Sigrún Sigurðardóttir, I 99.27
Fleiri keppendur luku ekki keppni.
STÓRSVIG KVENNA:
1. Snædís Úlriksdóttir, R 117.84
2. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A 117.91
3. Tinna Traustadóttir, A 118.53
Keppendur voru 11 og luku allir
keppni.
ísfirsku stúlkurnar héldu á-
fram sigurgöngu sinni í göng-
unni og röðuðu sér í öll efstu
sætin í sínum flokkum. Strák-
unum gekk ekki jafn vel og
náðu þeir aðeins í tvö brons,
enda var okkar besti maður,
Einar Ólafsson, fjarri góðu
gamni.
13 — 15 ÁRA STÚLKUR 2,5 KM
1. Auður Ebenesersd., í 8.16
2. Ósk Ebenesersd., I 8.20
3. Eyrún Ingþórsd., I 9.11
4. Magnea Guðbjörnsd., Ó 9.39
5. Herdi's Pálsdóttir, Ó 9.43
6. Ólöf Einarsdóttir, Ó 10.10
7. Margrét Traustadóttir, Ó 10.42
16— 18ÁRA STÚLKUR 3,5. KM
1. Stella Hjaltadóttir, I 12.54
2. Málfríður Hjaltadóttir. Í 17.02
Framhald á bls. 6
X
%
Daníel Hilmarsson kemur í mark í
stórsviginu.