Vestfirska fréttablaðið - 09.05.1985, Blaðsíða 1
18. tbl. 11. árg.
vestfirska
9. maí 1985
FR í 'ABLASIS
EIMSKIP 1 STRANDFLUTNING Símar: Skrifstofa 4£ Vöruhús 4£ íj IAR >55 >56 i J i MS MÁNAFOSS Á ÍSAFIRÐI AÐ SUNNAN, ALLA ÞRIÐJUDAGA <VÐ NORÐAN, ALLA FÖSTUDAGA
j Mikið annríki hjá lögreglu
— útafkeyrslur, ölvun, hassneysla, árekstur, slagsmál
Sá sem velti þessum bíl slapp án meiðsla, ef frá eru taldar blóðnasir og má það teljast furðulegt, miðað við að hann
lenti undir bflnum, þar sem hann stoppaði niðri í fjöru.
F------
j Skákþing
j Vestfjarða
Skákþing Vestfjarða verð- ■
J ur í Flókalundi dagana 16. til
I 19. maí. Fyrsta umferð hefst
I fimmtudaginn 16. maí klukk-
I an 20:00.
Vonast er til að þetta mót
I verði bæði sterkt og spenn-
J andi enda eiga Vestfirðingar
■ marga sterka skákmenn. Má
| í því sambandi benda á ár-
■ angur þeirra í deildakeppn-
I inni og á skákþingi íslands
I en þar sýndu þeir að margir
I ungir menn eru á uppleið í
! skákinni hér fyrir vestan.
Þátttaka tilkynnist í síma
I 1253 og 3417.
Þingeyri:
Banaslys á
mótorhjóli
— farþegi lær-
brotnaði
Banaslys varð á Þingeyri síð-
astliðinn sunnudag. Þar höfðu
tveir piltar á mótorhjóli farið út
af veginum rétt innan við þorpið
og höfnuðu þeir niðri í fjöru.
Ökumaðurinn var látinn þegar
að var komið.
Farþeginn, sem lærbrotnaði,
náði að skríða upp úr fjörunni
og upp á veg og síðan um 300
metra áður en hann gat gert vart
við sig og tilkynnt um atburð-
inn. Hann var síðan fluttur með
flugvél til Reykjavíkur.
Hinn látni hét Leifur Dagur
Ingimarsson, 20 ára gamall með
lögheimili á í Stykkishólmi.
Mikið annríki hefur verið hjá
lögreglunni á ísafirði að undan-
fömu, að sögn Braga Beinteins-
sonar yfirlögregluþjóns. Auk
banaslyssins á Þingeyri sem sagt
er frá á öðmm stað í blaðinu var
mikið um útafkeyrslur og önnur
umferðaróhöpp þar sem í flest-
um ef ekki öllum tilfellum lék á
gmnur um ölvun ökumanna.
29. apríl var gerð skyndileit
að fíkniefnum hjá starfsfólki
Frosta h.f. í Súðavík. Fundust í
verbúð fyrirtækisins á Langeyri,
nokkur grömm af hassi, svo og
áhöld til reykinga.
Þann 1. maí var mikil ölvun í
bænum. Um kvöldið var til-
kynnt um árekstur tveggja bif-
reiða, en annar .aðilinn hafi
horfið af vettvangi. Nokkru
síðar fannst sú bifreið og öku-
maðurinn, og er hann grunaður
um ölvun við akstur.
3. maí var tilkynnt að bifreið
hafi verið stolið í Bolungarvík
og væri hún á leið til ísafjarðar.
Fannst umrædd bifreið nokkuð
innan við Skarfasker og hafði
henni verið ekið upp fyrir veg
og upp á tún, en til þess að
komast þangað þarf að fara upp
3 — 4 metra háan snarbrattan
bakka. Ökumaður er grunaður
um ölvun við akstur.
Aðfararnótt 4. maí var til-
kynnt um útafakstur og veltu
við Tunguá, þar hafði Volvo
bifreið farið útaf, eftir að
sprungið hafði á hægra aftur-
hjóli hennar. Ökumaðurinn
sem var einn í bifreiðinni, lenti
undir henni, en hann slasaðist
lítið sem ekkert, og er það nán-
ast óskiljanlegt. Hann er grun-
aður um ölvun við aksturinn.
Bifreiðin er mikið skemmd.
Aðfararnótt 5. maí var maður
handtekinn á Þingeyri, eftir að
hafa verið búinn að ota hagla-
byssu að fólki sem var að yfir-
gefa samkvæmi hjá honum.
Maðurinn hlaut gistingu í
fangageymslu, en byssan var
tekin í umsjá lögreglunnar.
Að morgni 5. maí var bifreið
ekið út af veginum á Breiða-
dalsheiði, við vegamót Súg-
andafjarðarvegar. Ökumaður-
inn er grunaður um ölvun við
akstur.
Fangageymslur lögreglunnar
á ísafirði hafa verið fullar nótt
eftir nótt og mikil afskipti þurfti
að hafa af drukknu fólki, auk
þess sem áður er talið.
Heimsfrægur
píanóvirtúós
Hlíf, íbúðir aldraðra:
Stofnar byggingar-
samvinnufélag aldraðra
Stofnfundur byggingarsam-
vinnufélags um söluíbúðir aldr-
aðra verður haldinn hinn 12. maí
n.k.
Að sögn Halldórs Guð-
mundssonar, forstöðumanns
Hlífar, er undirbúningur bygg-
ingar söluíbúða við Hlíf vel á
veg kominn. Teikningar eru til-
búnar, öll leyfi fengin og er
stefnt að því að bjóða 1. áfanga
byggingarinnar út seinni hluta
júlí í sumar. Arkitekt hússins er
Ingimundur Sveinsson. Húsið á
að vera fokhelt ári síðar og til-
búið til afhendingar í október
1987. í húsinu verður þjónustu-
miðstöð með aðstöðu fyrir fé-
lagsstarf aldraðra, bæði þeirra
sem búa í húsinu og þeirra sem
búa úti í bæ. Einnig verður þar
þjónusta fyrir alla íbúa Hlífar.
Heildarrúmmál hinnar nýju
byggingar verður 13220 rúm-
metrar. íbúðir verða 42 talsins
af fjórum stærðum: 55 ferm., 65
ferm., 70 ferm. og 79 ferm. Allar
nánari upplýsingar gefur for-
stöðumaður Hlífar.
Heimsþekktur píanóleikari,
Dag Achatz, verður gestur Tón-
listarfélags ísafjarðar á tónleik-
um í Alþýðuhúsinu n.k. laugar-
dag, þ. 11. maí kl. 17.00. Tón-
leikamir verða endurteknir á
Flateyri í matsal Hjálms sunnu-
dagskvöldið 12. maí kl. 20.30.
Dag Achatz er af sænsku
bergi brotinn, en er fyrir löngu
orðinn alþjóðlegur listamaður.
Hann hefur haldið tónleika í
meira en 20 þjóðlöndum og í
öllum helstu höfuðborgum ver-
aldar. Þá hefur hann leikið ein-
leik með mörgum af frægustu
sinfóníuhljómsveitum og
hljómsveitarstjórum austan
hafs og vestan, auk þess sem
hann hefur leikið inn á margar
hljómplötur fyrir hin heims-
þekktu útgáfufyrirtæki EMI,
CBS, BIS og Melodiya.
Dag Achatz.
Dag Achatz hefur ekki hvað
síst vakið athygli fyrir flutning
sinn á eigin útsetningum á
hljómsveitarverkum eftir Strav-
inskí, Tsjaíkovskí og Bernstein.
Er hér um að ræða verk eins og
Vorblótið, Hnotubrjóturinn og
West Side Story, sem uppruna-
lega eru samin fyrir stóra sin-
fóníuhljómsveit og venjulega
flutt þannig. Þykir t.d. ekki
veita af 100 — 120 manna
hljómsveit til að flytja Vorblót-
ið, svo að það hlýtur að teljast í
meira lagi forvitnilegt að heyra
það flutt af einum manni með
aðeins 2 hendur.
Á efnisskránni á laugardag-
inn flytur Dag Achatz auk vor-
blótsins, prelúdíu eftir De-
bussy, marskúrka eftir Chopin
og balletttónlistina Eldfuglinn
eftir Stravinskí í eigin útsetn-
ingu.
Miðasala verður í Bókaversl-
un Jónasar Tómassonar
(s.3123) og við innganginn. Á-
skriftarkort gilda.