Vestfirska fréttablaðið - 04.07.1985, Page 4
vestlirska
FRETTABLADID
Isafjarðarkaupstaður
Lausar stöður
Heimilisþjónusta. Starfsmaður óskast til
afleysinga í heimilisþjónustu sem fyrst.
Hlutastarf.
Dagmömmur. Dagmamma óskast allan
daginn fyrir átta mánaða gamlan dreng.
Leikskóli við Hlíðarveg. Aðstoðarmenn
vantar eftir hádegi. Einnig eru lausar
stöður fóstra og þroskaþjálfa.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir fé-
lagsmálastjóri í síma 3722.
Staða afgreiðslugjaldkera er laus til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 6. júlí n.k.
Staða forstöðumanns tæknideildar er
laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til
15. júlí n.k.
Staða fjármálafulltrúa er laus til umsókn-
ar. Umsóknarfrestur er til 20. júlí n.k.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir
undirritaður í síma 3722 eða á bæjarskrif-
stofunum.
Bæjarstjórínn
BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN í ÍSAFJARÐARSÝSLU
Lausar stöður
Við embættið eru lausar til umsóknar eftir-
taldar stöður:
1. Hálf staða skrifstofumanns við afgreið-
slu, vélritun o.fl. Laus strax.
2. Staða innheimtumanns. Laus 1. sepem-
ber 1985.
3. Staða féhirðis. Laus 1. október 1985.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfs-
manna ríkissins.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu minnar
eigi síðar en 1. ágúst 1985.
1. júlí 1985.
Bæjarfógetinn á ísafirði.
Sýslumaðurínn í ísafjarðarsýslu,
Pétur Kr. Hafstein.
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Stakkanesi 1 - Pósthólf 220
400 ísafjörður
UTBOÐ
Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í
byggingu annarrar hæðar kyndistöðvar-
húss í Bolungarvík. Verklok skulu vera 18.
október 1985.
Tilboðum skal skila til Orkubús Vestfjarða,
Stakkanesi 1,400 ísafjörður, fimmtudaginn
18. júhl985 fyrir kl. 14:00.
Utboðsgögn verða seld á skrifstofum O.V.
á Isafirði og í Bolungarvík og kosta þau
400,00 kr.
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Sigurveig Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfarí, brosmild f nýju húsakynnunum á jarðhæð „Aðstaðan er orðin alveg ógurlega góð”.
nýja sjúkrahússins. sjúkraþjálfari með sjúkling.
I vor var endurhæfingardeild Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði loksins
flutt í ný og fullkomin húsakynni á jarðhæð nýja sjúkrahússins. Höfðu
sjúkraþjálfarar þá kúldrast undir súð á gamla sjúkrahúsinu alllengi og reynt
að sinna sínum sjúklingum sómasamlega við frumstæðar aðstæður.
Nú er öldin önnur. Sjúkraþjálfararnir vinna sitt starf við einhverjar full-
komnustu aðstæður sem finnast í landi hér og sjúklingarnir njóta góðs af.
Blaðamaður Vestfirska fór nýlega í heimsókn á endurhæfingardeildina og
ræddi við Sigurveigu Gunnarsdóttur, sjúkraþjálfara, um starfið og þá þjón-
ustu sem þarna er boðið upp á.
Líkaminn er ekki by
— Segir Sigurveig Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari
Fyrir þá sem kynnu að hafa hug
á að leggja sjúkraþjálfun fyrir sig
skal upplýst að nám í sjúkraþjálfun
tekur fjögur ár við Háskóla Islands,
en yfirleitt þrjú ár við skóla annars
staðar á Norðurlöndum.
„Það er tiltölulega stutt síðan
byrjað var að kenna sjúkraþjálfun
hérna heima,” segir Veiga. „Fyrstu
sjúkraþjálfararnir voru útskrifaðir
1980, en fyrir þann tíma þurftu allir
að fara utan til að læra fagið.
Flestir lærðu á Norðurlöndum.
Sjálf lærði ég I Árósum í Dan-
mörku. Og vegna þess að ekki var
hægt að læra hérna heima, hefur
verið mikill skortur á sjúkraþjálf-
urum og er enn.”
— Er þetta kvennastétt?
„Ennþá,” segir Veiga og brosir.
„En sem betur fer er karlmönnum í
stéttinni alltaf að fjölga. Sem dæmi
um hve mikil kvennastétt þetta
hefur verið má nefna að árið sem
ég hóf mitt nám, 1975, var karl-
mönnum í fyrsta skipti heimiluð
innganga í þann skóla sem ég
stundaði nám við. Það þarf nátt-
úrulega ekki að taka það fram að
eins og aðrar kvennastéttir erum
við í lágmarki í launum.”
Þróaðist uppúr starfi
nuddkonunnar.
— Er sjúkraþjálfun tiltölulega
ung grein?
„Hér á landi já. Hún þróaðist
sennilega upp úr starfi nuddkon-
unnar. Þess vegna kalla okkur
margir nuddara, en af því erum við
ekkert allt of hrifnar.”
— Hvað gerir sjúkraþjálfari þá
annað en að nudda?
„Það fer mikið eftir því hvaða
vinnustað hann velur sér. Við get-
um tekið þrjú dæmi. Hann getur
valið sér stað þar sem fötluð börn
eru og sérhæfir sig þá í meðferð
bama. Hann getur unnið hjá fyrir-
tæki og sinnt þá fyrst og fremst
fyrirbyggjandi starfi. Þriðji mögu-
leikinn er að vinna á spítala eins og
við hér. Þá fær hann alls konar
sjúklinga til meðferðar. En al-
mennt talað má segja að starf
sjúkraþjálfarans byggist fyrst og
fremst á æfingum fyrir sjúka með
það að markmiði að koma þeim
sem fyrst út í atvinnulífið á ný eftir
meiðsli eða sjúkdóma, ekki síst á-
lagssjúkdóma.”
Fyrirbyggjandi aðgerðir
borga sig.
— Vinnið þið fyrirbyggjandi
starf hérna?
„Það hefur því miður ekki unnist
nógu mikill tími til þess. Ég hef
farið í einstöku fyrirtæki sem hafa
beðið mig að koma. Þá hef ég kennt
fóki að sitja rétt og stilla stóla.”
— Geta fyrirtækin þá hringt og
pantað ykkur?
„Já þá er bara spurningin hvort
við getum annað slíku svo vel sé.
Frystihúsið í Hnífsdal sýndi mjög
gott fordæmi og fékk mig til að
kenna starfsfólkinu æfingar. Það
gerði síðan þessar æfingar í nokk-
um tíma og þá fór ég aftur og at-
hugaði hvort það gerði þær rétt.
Frumkvæðið þarf að koma frá fyr-
irtækjunum sjálfum. Við höfum
einnig kennt starfsfólki sjúkra-
hússins vinnutækni, að lyfta rétt og
snúa sjúklingum.”
— Getur ekki fyrirtæki sem fær
Boðið hefur verið upp á frjálsa tfma f salnum. Þessar galvösku stúlkur mættu f „Leikfimi er ein námsgreinin f skólanum. V
leikfimi fyrír starfsfólk sjúkrahússins á dögunum. Veiga meðal annars.