Vestfirska fréttablaðið - 01.08.1985, Side 1
---------:----------------1
MIÐSUMARTILBOÐ
10% — 80% afsláttur
Athugið að síðasti tilboðsdagurinn
er á morgun
OPIÐ TIL
Verslunin á Vestfjörðum
Ekki frjáls álagning?
— Verslanir hanga í gamla álagningarkerfinu
„Verðkannanir borga sig ekki
fyrir neytendur á Vestfjörðum
vegna þess að það er engin versiun
sem rekur verðlækkunarpólitík.
Það er ekki einu sinni að verslan-
imar reki verðlækkunarpólitík á á-
kveðnum hlutum tii að fá fólk í
verslanimar. Hér er ekki til frjáls
verslun ennþá. Það er liðið hálft
annað ár síðan áiagning varð frjáls,
en verslunin er ekki búin að átta sig
á því ennþá. Hún er ennþá i gömiu
álagningunni sinni. Verslunarstjóri
Kaupfélagsins á ísafirði staðfesti
þetta á fundi hjá Neytendafélaginu í
vetur, annar verslunarstjóri Kaup-
Framkvæmdum við Óshiiðarveg
er nú að ljúka, en þær hafa staðið
yfir í allt sumar. Einungis á eftir að
setja á klæðingu að hluta og er búist
við að það verði gert í næstu viku.
Undirbygging á um 1000 m.
kafla var boðin út í vor og lauk
verkinu fyrir u.þ.b. hálfum mán-
uði. Vegagerðin sér síðan sjálf um
að undirbúa og klæða 4 km. kafla
féiagsins staðfesti þetta við mig í
símtali og þar sem verðið í hinum
búðunum er sambærilegt hljóta þær
að vera með sömu álagningu. í öll-
um verðkönnunum á ísafirði er þvi
meira og minna grís hvaða verslun
er dýmst.”
Þetta sagði Jón Jóhannesson,
formaður Neytendafélags ísafjarð-
ar og nágrennis. Jón var spurður
hvað hægt væri að gera til að fá
verslanir til að lækka vöruverð fyrst
verðk’annanir virtust hafa lítil áhrif.
„Það harkalegasta sem hægt er
að gera er að kæra verslunina hér
fyrir ólögmæta verslunarhætti. I
frá vita og inn fyrir Ófæru með
Stiga. Þegar því verður lokið verða
aðeins eftir tæpir 2 km. án slitlags á
leiðinni milli ísafjarðar og Bolung-
arvíkur.
Á næsta ári er áformað að byggja
vegþekju rétt innan við krossinn,
þá fyrstu á landinu. Búist er við að
hægt verði að leggja klæðingu á
þann kafla sem eftir er árið 1987.
hinum nýju lögum um frjálsa á-
lagningu er grein sem heimilar
viðskiptaráðherra að undanskilja
ákveðin landssvæði frá lögunum ef
frjáls samkeppni á sér ekki stað.
Það væri þannig hægt að kæra
verslunina hér fyrir samkeppnis-
leysi og sjá síðan hvort eitthvað
gerðist.”
Við bárum ummæli Jóns undir
Heiðar Sigurðsson, formann
Kaupmannafélags Vestfjarða.
Hann sagði:
„Það er ekki til neitt sem heitir að
menn séu að bera sig saman. Hins
vegar verð ég að viðurkenna að
verslanir hafa haldið alltof lengi í
gamla álagningarkerfið. Það er enn
við lýði. Segja má að afkoma
verslana á Isafirði hafi ekki gefið
tilefni til að fara út í miklar lækk-
anir. Og það er rétt að það geisar
engin stórstyrjöld milli verslana á
ísafirði.”
Hvað varðaði þá röksemd Jóns
að undanskilja mætti Vestfirði frá
reglum um fijálsa álagningu vegna
samkeppnisleysis sagði Heiðar:
„Ég held að þeir hjá Verðlags-
stofnun yrðu ekki sammála Jóni í
þessum efnum. Hins vegar gilti allt
annað ef um væri að ræða eina
verslun á svæði sem væri að not-
færa sér þá aðstöðu og væri komin
með óeðlilega hátt vöruverð í skjóli
hennar. Við hérna á Isafirði höfum
þó aðrar verslanir, bæði hér og í
Bolungarvík, sem fólk getur borið
saman.”
— Taka kaupmenn ekkert tillit
til verðkannana? Breyta þær engu?
„Það má segja að eina breytingin
sem orðið getur sé sú að verslanir-
nar tækju á sig að reka á lægri pró-
sentu, en þær geta það hreinlega
ekki. Við höfum tiltölulega lítinn
markað og þó svo við færum að
sprikla og djöflast næðum við ekki
til stærri hóps en við höfum. Stór-
markaðirnir fyrir sunnan geta náð í
fleiri kúnna með aðgerðum, en ég
vil líka benda á það að margir
þeirra eru með t.d. fatnað meðfram
matvörunni og þar eru þeir með
góða álagningu. Svo má ekki
gleyma því að orkuverðið er marg-
falt hærra hjá okkur en öðrum. Þeir
hæla sér af því hjá Orkubúinu að
hafa dýrasta skalla á landinu,
þ.e.a.s. rafmagn til verslana.”
Heiðar sagði að nú væri unnið að
því af hálfu Kaupmannafélagsins
að reyna að lækka innkaupsverðið.
Kvað hann það hafa borið þann
árangur að fleiri heildsalar væru
famir að borga undir vöruna til
þeirra og hlyti það að leiða til lægra
vöruverðs.
Framkvæmdir á
vegumQrkubusins:
Fjarvarma-
veita á Flat-
eyri
— og uppsteypa
efri hæðar kyndi-
stöðvarhúss í
Bolungarvík
Miklar framkvæmdir standa nú
yfir á Flateyri á vegum Orkubús
Vestfjarða. Það er verið að leggja
fjarvarmaveitu og er gert ráð fyrir
að vatni verði hieypt á hana ein-
hvern tima í haust, en iagningu
dreifikerfis skal vera lokið 7. októ-
ber.
Búist er við að öll olíuhituð hús
komi inn á hitaveituna. Einnig
mörg rafhituð hús sem hafa túbur,
þannig að þeir sem eru að hugsa
um að taka inn rafhitun geta
kannski fengið túbur á Flateyri.
Verktaki á Flateyri er ömólfur
Guðmundsson, Bolungarvík.
Þá auglýsti Orkubúið nýlega út-
boð í uppsteypu efri hæðar kyndi-
stöðvarhússins í Bolungarvík. Þar
eiga að vera skrifstofur, geymslur
og starfsmannaaðstaða. Lægsta til-
boðið kom frá Jóni Friðgeiri Ein-
arssyni og hljóðaði upp á 1.585.166
kr., sem er92% af kostnaðaráætlun.
Næst kom Form sf. á Isafirði með
1.730.614, síðan kom Sigurður Ól-
afsson, Bolungarvík með 1.735.572
og hæsta tilboðið kom frá Ásberg
Péturssyni, Isafirði, 1.820.178.
Kostnaðaráætlun Tækniþjónustu
Vestfjarða hljóðaði upp á
1.718.300.
Ákveðið hefur verið að taka til-
boði Jóns Friðgeirs. Verklok skulu
vera í október n.k.
Tvö vest-
firsk fyrir-
tæki fá lán
—vegnafiskeldis
Nýverið fengu 23 fyrirtæki lán
úr Byggða- og Framkvæmda-
sjóði vegna fiskeidis. I þessum
hóp eru tvö vestfirsk fyrirtæki,
Lax hf. á Tálknafirði og íslax
hf. á Nauteyri. Lax fékk 700 þús.
kr. úr Framkvæmdasjóði og fs-
lax fékk 6 milljónir úr Fram-
kvæmdasjóði og 2 milljónir úr
Byggðasjóði. Fleiri umsóknir
bárust ekki frá Vestfjörðum.
Lán þessi miðast við fjárfest-
ingar og eru Framkvæmda-
sjóðslánin í erlendri mynt. Þau
eru til 12 ára og er fyrsta af-
borgun 1989, en vextir greiðast
þangað til.
Framkvæmdum á
Óshlíð að Ijúka