Vestfirska fréttablaðið - 26.09.1985, Side 10
vestfirska
FRETTABLASIS
OPIÐ næsta
laugardag kl. 13:00 —17:00
Og alltaf eykst húsgagnaúrvalið!
QHBPPPHHH
□ □□Qippaa
■w'i' ■ ■ i■ 11 iiii irr'^rn 'i i i i 111 ■ « i" » «i
iimianmiaaiaa
ooHfíiiam
DDDDDDDD
DDDDDDDD
□
1 l'l'll'tl 1 I I I I I I' t I I I ■ « «_l’
rmpp^q^rimD
JON F. EINARSSON
B0LUNGAVIK
SIMI7353 OG 7351
Félagsheimllið í Hnífsdal:
Húsið er á hraðri
leið iindir hamarinn
Félagsheimilið í Hnifsdal á nú i
verulegum erfiðleikum. Mikill
rekstrarvandi blasir við og Ijóst er
að ef ekki verður að gert stefnir
húsið hraðbyri undir hamarinn eins
og Guðni Ásmundsson formaður
hússtjómar orðaði það i samtali við
fréttamann Vf. á dögunum.
Um það bil áttahundruðþúsund
króna halli varð á rekstri hússins á
síðastliðnu ári. Ógreiddar sölu-
skattskuldir frá fyrri árum hrannast
upp og ekkert fé er handbært til
þess að standa undir kostnaði við
nauðsynlegt viðhald og endurbæt-
ur á húsinu. Meðal þess sem bíður
uppgjörs er tekjuskattsskuld uppá
rúma milljón með dráttarvöxtum
frá 1976 en samtals nema eldri
skuldir um það bil tveimur og
hálfri milljón króna. Stjórn Félags-
heimilisins sótti um leyfi til bæjar-
yfirvalda til þess að fá að reka
greiðasölu í húsinu á nætumar. Var
erindið sent bæjarstjórn fyrr í sum-
ar og fékk jákvæða umfjöllun, en
vegna ákvæða í lögreglusamþykkt
ísafjarðar getur ekki orðið af veit-
ingu leyfisins. Félagsheimilið fær
ekki vínveitingaleyfi vegna ákvæða
í reglgerð um félagsheimili þannig
að ljóst er að samkeppnisaðstaða
þess til skemmtanahalds er mjög
erfið. Stjóm Félagsheimilisins hef-
ur sent bæjarráði bréf þar sem farið
er fram á aðstoð við að koma
rekstri hússins á réttan kjöl. Hefur
málið verið tekið fyrir á bæjar-
stjómarfundi og er nú í athugun, en
ísafjarðarkaupstaður á 50 prósent í
húsinu.
„Það er ljóst að húsið er á hraðri
leið undir hamarinn,” sagði Guðni
Ásmundsson þegar við ræddum
þessi mál við hann, „það þýðir
varla neitt að fá frest á frest ofan,
það kemur alltaf að skuldadögun-
um”. Guðni sagði að þeir hefðu
viljað fá leyfi fyrir nætursölunni
þrátt fyrir ákvæði lögreglusam-
þykktarinnar. Verið væri að athuga
hvernig þessi mál hefðu verið leyst
á Akureyri, en þar fékk svipað hús
vínveitingaleyfi fyrir nokkrum ár-
um.
„Þessi stjóm sem nú rekur fé-
lagsheimilið fékk það verkefni að
bjarga húsinu frá söluskattsskuld-
um allt frá árinu 1978.” Þetta er
miklu ljótara dæmi en frá verði sagt
í stuttu máli sagði Guðni að lokum.
Við höfðum samband við Björn
Hermannsson formann bæjarráðs,
hann sagði að verið væri að kanna
erindi félagsheimilisins. Ljóst væri
að vandræði þeirra væru veruleg og
væru menn að íhuga ýmis úrræði.
Komið hafa fram hugmyndir um
að breyta rekstrarformi hússins og
reyna að finna því nýtt hlutverk því
að ljóst væri að reksturinn í núver-
andi mynd stæði alls ekki undir sér.
Bjöm sagði að viðraðar hefðu
verið hugmyndir um að bærinn
tæki húsið undir einhverja þá
þjónustu sem er á vegum sveitarfé-
lagsins, bókasafn eða eitthvað því
um líkt kæmi að sínu áliti vel til
greina. „Ég sé ekki að það sé ger-
legt að bærinn taki á þessu nema
það verði fundinn annar rekstrar-
grundvöllur fyrir húsið.”
Miklu
fleiri
lögtök
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum undanfarið hefur orðið vart
gifurlegrar aukningar i lögtökum,
fjárnámum og nauðungaruppboð-
um. Okkur lék forvitni á að vita
hvemig þessum málum væri háttað
hjá sýslumannsembættinu á ísa-
firði.
Hjá embættinu fengum við eft-
irfarandi upplýsingar. Beiðnir um
uppboð vom á árinu 1983 300 tals-
ins, á árinu 1984 voru þær 425, 20.
september 1985 eru uppboðs-
beiðnir orðnar 642. Til fróðleiks má
geta þess að á árinu 1982 voru slík-
ar beiðnir 263 en 169 á árinu 1981.
Af þessu má ráða að á 5 ára tímabili
hefur orðið mörghundruð prósenta
aukning á slíkum beiðnum.
Sé litið á tölur um nauðungar-
uppboð þá kemur í ljós að svokall-
aðar fyrri sölur voru 5 árið 1983, á
árinu 1984 vom þær 26 og eru nú
20. september orðnar 28. Síðari
sölur voru 3 á árinu 1983, voru 5 á
árinu 1984, og eru orðnar 5, það
sem af er þessu ári. Lausafjárupp-
boðsbeiðnir, í bílum, sjónvörpum
og þessháttar voru 4 á árinu 1983,
119 á árinu 1984, og eru orðnar
núna 155.
Lögtök eru orðin 333 það sem af
er þessu ári, en voru samtals 418 á
öllu árinu í fyrra. 111 lögtök voru
gerð árið 1983. Fjámám voru árið
1983 samtals 210, 293 árið 1984 og
eru orðin 268 það sem af er þessu
ári.
Amarflug
UI11
Vestfirði
Vetraráætlun Arnarflugs hefur
tekið gildi. Amarflug flýgur til
fimm staða á Vestfjörðum, það era
Bíldudalur, Flateyri, Suðureyri,
Hólmavík og Gjögur. Alls eru farn-
ar níu ferðir f viku til Vestfjarða frá
Amarflugi. Hér á eftir fer sá hluti
áætlunarinnar sem snertir okkur
Vestfirðinga.
Bíldudalur: Flogið er á þriðju-
dögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 13.00 frá Reykjavík og
kl. 14.00 frá Bíldudal.
Flateyri og Suðureyri: Flogið er
á mánudögum, miðvikudögum,
Sjávarutvegssýnmgln á Spáni:
Skipavogm hitti í mark
„Já það má segja það, að skipa-
vogin hafi hitt í mark,” sagði Ásgeir
Erling Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Pólsins. Þeir Hörður Ingólfs-
son sýndu skipavog fyrirtækisins á
sjávarútvegssýningunni í Vigo á
Spáni nú fyrr f vikunni. Þessi sýning
var fjölsótt af útgerðarmönnum,
skipstjórum og öðrum hagsmuna-
aðilum, ekki siður en framámönn-
um í rafeindaiðnaði. Ásgeir sagði að
þeim hefðu borist fyrirspurnir og
beiðnir um tilboð frá yfir 20 þjóð-
löndum og væri mjög mikill áhugi
hjá rafeindafyrirtækjum að verða
sér úti um söiu- og e.t.v. fram-
leiðsluumboð fyrir Pólinn. „Það er
Ijóst,” sagði Ásgeir, „að við getum
því miður ekki annað allri eftir-
spum.”
föstudögum og sunnudögum. Kl.
12.30 frá Reykjavík og 15.15 frá
Suðureyri.
Hólmavík og Gjögur: Flogið er á
mánudögum og fimmtudögum. Kl.
11.30 frá Reykjavík og kl. 14.00 til
baka.
Loðnubræðsla er nú hafin í
Bolungarvík, og kom fyrsti
báturinn með afla þann 10.
september s.l. Nú hafa í allt
borist aö landi í Bolungarvík
4700 tonn af loðnu á þessu
hausti.
Smábátar undir tíu tonnum
hafa verið í stoppi síðan á
föstudag, og verða það til
þriðja október.
GUÐBJARTUR kom inn í gær
með um 70 tonn af blönduð-
um afla.
ORRI. Alvarleg vélabilun
veldur því að Orrí er bundinn
við bryggju og er búist við að
úr rætist um helgina.
JÚLÍUS GEIRMUNDSSON
landaði í gær í Reykjavík um
það bil 170 tonnum, bróður-
parturinn af aflanum fer til
Hraðfrystihússins á Eyrar-
bakka, en eitthvað mun verða
sent utan í gámum.
GUÐBJÖRG er að fiska í sigl-
ingu.
PÁLL PÁLSSON iandaði
rúmlega 100 tonnum í gær.
BESSI er á veiöum.
ELfN ÞORBJARNARDÖTTIR
landaði í gær á ísafirði, um 40
tonnum sem fór allt í gáma.
GYLLIR kom inn á laugardag
með um 130 tonn, allt þorsk-
ur.
SLÉTTANES landaði á ísa-
firði f gær 110 tonnum af
blönduðum afla, og fór allt í
gáma.
TÁLKNFIRÐINGUR kom inn á
þriðjudag með rúm 130 tonn,
mest þorskur.
SIGUREY verður í landi á
föstudag.
DAGRÚN landaði á föstudag
80 tonnum og kom svo inn í
dag með 35 — 40 tonn sem
allt fer í gáma.
HEIÐRÚN kom inn á þriðju-
dag með um 50 tonn.
Nýlega lauk alþjóðlegri fiskeld-
issýningu sem haldin var i Laugar-
dalshöll. Póllinn h.f. á Ísafirði tók
þátt í sýningunni og kynnti þar
margar tækninýjungar í tengslum
við fiskeldi auk sinnar hefðbundnu
framleiðslu. Jónas Ágústsson sölu-
stjóri hjá Pólnum sagði i samtali við
Vf. að þeir væru mjög ánægðir með
árangurinn af sýningunni. Rúmlega
70 fyrirspurair bárast um fram-
leiðslu þá sem Póllinn sýndi. Geng-
ið var frá sölu fyrir rúmlega þrjár
ínilljónir króna.
Voru það bæði búnaður fyrir
fiskeldi og einnig skipavogin sem
vakið hefur nukla athygli. Jónas
sagði að tæplega 3000 manns hefðu
sótt sýninguna og hefði það að
stórum hluta verið fagfólk i fisk-
iðnaði og fiskeldi.
Eitt af þeim tækjum sem hvað
mesta athygli vakti í sýningarbás
Pólsins á fiskeldissýningunni í
Laugardalshöll, var laxaflokkari.
Hér er um að ræða tæki sem
stærðarflokkar lax og vigtar hann í
kassa. Er hægt að nota tæki þetta
hvort heldur sem er við slátrun á
laxi og pökkun, eða við flokkun á
lifandi laxi milli kerja.
Áður en laxaflokkarinn var sett-
ur á sýninguna var hann reyndur
hjá fiskeldisstöðinni Eldi h.f. í
Grindavík. Þar voru flokkaðir
rúmlega 2000 lifandi laxar á hálf-
um degi, að sögn forráðamanna
Eldis h.f. er það helmingi styttri
tími heldur en næðist með eldri
aðferðum. Þó tafði það nokkuð
flokkunina að laxamir voru allir
kyngreindir og lengdarmældir um
leið. Lofa niðurstöður þessarar til-
raunar því mjög góðu.
Nú þegar sýningunni í Laugar-
dal er lokið verður flokkarinn aftur
settur upp hjá Eldi h.f. í Grindavík,
þar sem gerðar verða frekari til-
raunir, að þeim loknum verður
flokkarinn aðhæfður Noregsmark-
aði og sendur út til Noregs til frek-
ari tilrauna.
Jónas Ágústsson hjá Pólnum h.f.
sagði að ef þessar prófanir í Noregi
gæfu góða raun þá yrði væntanlega
hafin framleiðsla á laxaflokkaran-
um fyrir Noregsmarkað. Hann
sagði að nú þegar lægju fyrir
nokkrar fyrirspumir frá norskum
aðilum.
Síminn
okkar er
allar hellur
„Fréttamennska eins og sást
á íþróttasiðu DV á þriðjudag, er
fyrir neðan allar hellur, og lofar
ekki höfund sinn. Hún er ekki til
þess fallin að hvetja menn til
þess að sinna félagsstörfum i
frfstundum sinum. Birtar eru al-
gjörlega órökstuddar dylgjur,
þar sem hópur fólks er vinnur að
íþróttamálum er opinberlega
sakfelldur á þessum skrifum og
gera verður þá kröfu að DV
skýri frá nafni hins „áreiðan-
lega” heimildarmanns, þannig
að hann geti staðið fyrir sinu
máli.”
Þetta sagði Ólafur Helgi
Ólafsson formaður ÍBf um skrif
þau sem birtust i DV á þriðju-
dag, en þar er fyrrverandi stjórn
KRÍ borin þungum sökum og
vænd um fjárdrátt og misferli.
BILALEIGA
Nesvegi 5 - Súðavík & 94-4972 - 4932
Vatnsmýrarvegi 34 - V/Miklatorg s 91-25433
Afgreiðsla á ísafjarðarfiugvelli s 94-4772
Sendum bílinn
Opið allan sólarhringinn