Vestfirska fréttablaðið - 14.11.1985, Síða 2
vestíirska
[
rRETTABLAÐID
vestlirska
Vestfirska fréttablaöið kemur út á fimmtudögum kl. 17:30. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka aö Hafnarstræti 14 er opin virka daga kl. 10:00
til 12:00 og 13:00 17:00. Síminn er 4011. Biaðamenn: Páll Ásgeirsson og Arnar Þór Árnason. Fjármál og dreifing: Guörún Halldórsdóttir. Útgefandi og
ábyrgðarmaöur: Árni Sigurðsson, ritstjóri, Fagraholti 12, ísafirði, sími 3100. Prentun: Prentstofan ísrún hf. ísafirði. Verð í lausasölu kr. 30,00.
Auglýsingaverð kr. 140,00 dcm. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað hálfsárslega eftirá.
509 dagar í október
— Atvinnuleysi á Bfldudal
Frá því i byrjun október hefur
veríð nokkurt atvinnuleysi á Bfldu-
dal og núna um mánaðamótin voru
35 manns á atvinnuleysisskrá. Alls
voru 509 atvinnuleysisdagar i októ-
ber. Þetta eru aðallega konur sem
unnu i frystihúsi Fiskvinnslunnar
hf. á Bildudal, en sem kunnugt er
var togarí Bflddælinga, Sölvi
Bjarnason settur á nauðungarupp-
boð i haust. Sfðan hefur veríð strjai
eða engin atvinna á Bfldudal. Hóp-
ur þeirra sem skráðir eru atvinnu-
lausir skiptist þannig að um er að
ræða 13 karla og 22 konur.
Að sögn Jakobs Kristinssonar er
stöðugt unnið að því að einhver
úrlausn finnist í atvinnumálum
Bílddælinga. Jakob sagði að menn
hefðu fullan hug á því að kaupa
Sölva Bjamason aftur, en það eru
Fiskveiðasjóður og Byggðasjóður
sem eru stærstu kröfuhafar í skip-
inu. Sagði Jakob að seint gengi að
semja við þá, kerfið væri þungt í
vöfum.
Hann sagðist þó vonast til að
eitthvað rofaði til á næstunni þegar
línubátur sem Fiskvinnslan er að
festa kaup á, getur hafið veiðar.
Málfreyjur
a
Patreksfirði
Ný efiialaug
Efnalaugin Albert heitir nýtt fyr-
irtæki sem nú tekur til starfa á ísa-
firði. Eigendur hennar eru hjónin
Sigurborg Þorkelsdóttir og Gunnar
Amórsson.
Efnalaugin mun eins og nafnið
bendir til, hreinsa föt, og eru til þess
notuð tæki frá þýska fyrirtækinu
Böve. Að sögn Sigurborgar Þor-
kelsdóítur mun þar einnig verða
hægt að fá föt vatnsvarin, og margt
fleira yrði þar nýtt á ferðinni. Mynd
sú sem með fylgir var tekin nú fyrr í
vikunni, þegar verið var að koma
tækjum fyrir í Alberti.
Málfreyjur nefnist félagsskapur
sem mikið hefur starfað vitt og
breitt um landið. Tilgangur félags-
ins er að efla sjálfstraust félaga
sinna og þjálfa þá i ræðumennsku.
Lengst af hafa eingöngu veríð kon-
ur innan vébanda hreyfingarínnar
en nú hefur reglum verið breytt
þannig að karlmenn geta fengið
inngöngu í málfreyjuklúbbana ef
samstaða næst um það.
Starfsemi af þessu tagi hefur
verið með mjög miklum blóma á
Patreksfirði. Ekki er nóg með að
haldið hafi verið uppi öflugu mál-
freyjustarfi þar heldur hafa mál-
freyjur á Patreksfirði gengist fyrir
stofnun samskonar klúbba á
Tálknafirði og Bíldudal. Sagði
heimildarmaður blaðsins, Anna
Einarsdóttir á Patreksfirði að talið
væri að í þessum þremur félögum
væri 60 til 70 félagar sem er góð
þátttaka.
MATAR-
HORNIÐ
Umsjónarmaður Matardálks-
ins að þessu sinni er Dagmar
Gunnarsdóttir. Dagmar er mikil
áhugamanneskja um matargerð
og ýmislegt góðgæti. Hún lét
okkur í té uppáhaldskjúklinga-
uppskríftina sína. Sá sem þessar
línur rítar getur boríð vitni um
það að þessi uppskríft er hrein-
asta lostæti.
Kjúklingaréttur fyrir 6 — 8
2 kjúklingar
karrý
2 súputeningar
6 bollar hrísgrjón
Vi dós kjúklingasúpa
Vi dós sveppir
'A dós aspargus
Vi dós maísbaunir
6 matskeiðar majones.
Kjúklingurinn er grillaður og
kryddaður eftir smekk með
salti, pipar, kjúklingakryddi og
paprikudufti
Síðan er soðinu af
aspargusnum hrært út í
majonesið og búið til þykkni. Ot
í það er síðan sett karrý, súpu-
teningar sem hafa verið leystir
upp, sveppimir, maísbaunimar
og aspargusinn. Síðan er hrís-
grjónunum sem er búið að
sjóða, hrært saman við. Kjúkl-
ingurinn er losaður frá beinun-
um, kjötið saxað og þessu öllu
blandað saman í ofnskúffu,
ostur rifinn yfir og bakað í ofni
við 200 gráður í ca. 20 mínútur
eða þar til osturinn er gulbrúnn.
Borið fram með heitu hvít-
lauksbrauði.
Verði ykkur að góðu
Krístni-
boðsdagur
Um þessar mundir er kristni-
boðsdags Þjóðkirkjunnar minnst
með ýmsum hætti í kirkjum lands-
ins. Dagsins verður minnst í Isa-
fjarðarkirkju á laugardaginn næst-
komandi, 16. nóvember. Benedikt
Amkelsson kristniboði mun þar
flytja erindi og sýna myndir og
hefst samkoman kl. 8.30. Benedikt
mun síðan messa í kirkjunni
klukkan 14.00 á sunnudag. Ástæða
er til þess að hvetja safnaðarmeð-
limi til þess að mæta og fræðast um
kristniboðsstörf sem unnin eru víða
um heim.
doncano
• •
• * Stærðif.XS til
Verð'frá 2.770,#0
SRORTHLAÐAN kf
.SILFURTÖRÖI 1 .
400 ÍSAFIRÐI
SÍMI 4123 . .
“doncano
StærðiY XS til XL
Verð.fsá 4.550,00
'Anótakker
. Stærðir S til L
Verð frá 4.375,00'
Bárna
Stærðir-6 til 14
Ver-ðfrá 3*150.0
-- —------—— —” — —' —— '"T’ — T-—
* « *'k « * •**
Stærðir.6 til 14 * . .
Verð írá 1.750,00 ;
Glansgallar
* J5ta§rðir 10 til'L ^
- oofío. .* ‘Verð frá 3.770,00- * C°lo.r