Vestfirska fréttablaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 8
8
Erum með slátursölu
fimmtudaga og föstudaga
í sláturhúsinu frá kl. 2 til 6
eftir hádegi.
Tekið á móti pöntunum í síma
3266 (skiptiborð).
Þær þurfa að berast
fyrir kl. 15.00 á þriðjudag
ATHUGIÐ!
Okkur sárvantar
svíðingameistara strax
KAUPFÉLAG
ÍSFIRÐINGA
> ÍSAFIRÐI
Þegar þú kemur suður, þá tekur
þú við bílnum frá okkur á
Reykjavíkurflugvelli.
Svo skilur þú hann eftir á sama
stað, þegar þú ferð.
Bílaleiga
IjfJlj 1 iJ I IV Carrental
BORGARTÚNI 24 — REYKJAVÍK — SÍMI 11015
LÍFEYRISSJÓÐUR VESTFIRÐINGA
BRUNNGÖTU 7 — 400 ÍSAFIRÐI
ATVINNA
Lífeyrissjóður Vestfirðinga óskar nú þegar
eftir starfsmanni til tölvuskráningar og
annarra skrifstofustarfa. Um er að ræða
heilsdagsstarf.
Bolungarvík:
Fjölmenni við jarðarför
Jarðarför Guðmundar Krist-
jánssonar bæjarstjóra í Bolung-
arvík fór fram frá Hólskirkju í
Bolungarvík á laugardag að
viðstöddu fjölmenni. Athöfnin
fór fram á vegum Bolungarvík-
urkaupstaðar.
Guðmundur Kristjánsson
hóf störf sem skrifstofustjóri hjá
Hólshreppi árið 1956 og gegndi
því starfi til 1972 en þá var hann
ráðinn sveitarstjóri Hólshrepps
og tók síðan við starfi bæjar-
stjóra 1974 þegar Bolungarvík gegndi starfi bæjarstjóra í Bol-
fékk kaupstaðarréttindi. Hann ungarvík allt til dauðadags.
t5
vEstíirska
TTABLASIS
Kristinn Gunnarsson bæjarfulltrúi í Bolungarvík
Fjórðungssambandið
tók skakkan pól í
hæðina
— auðveldara að sýna fram á sparnað sem jarðgangna
gerð leiðir af sér
Það, sem stjórnvöld horfa
einkum til, þegar þau vega og
meta í hvaða verkefni skal ráðist í
vegagerð er arðsemi fram-
kvæmdanna. Þá eru bornar
saman tvær stærðir, kostnaður-
inn við framkvæmdirnar og
sparnaðurinn sem af þeim hlýst.
Fram til þessa höfum við eink-
um horft á kostnaðarþáttinn.
Framlag Fjórðungssambands
Vestfirðinga á síðastliðnu sumri
var fólgið í því að leggja fram
skýrslu, sem sýna átti fram á að
kostnaðurinn væri allt að 40%
minni en Vegagerð ríkisins hafði
áður áætlað. Hugsunin var sú að
því minni kostnaður þeim mun
meiri líkur á að af framkvæmdum
verði.
En þegar áætlanirnar tvær
voru bornar saman kom í Ijós að
gefnar voru mismunandi for-
sendur og það skýrði að miklu
leyti mismuninn á áætluðum
kostnaði.
SKÝRSLAN BÆTTI ENGU VIÐ
ÞEKKINGU MANNA
Ég tel að Fjórðungssambandið
hafi tekið skakkan pól í hæðina.
Skýrsla þess bætti ekki miklu við
þekkingu manna um kostnað við
jarðgangagerð, heldur virðist
miklu fremur sem tölur Vega-
gerðarinnar séu ekki fjarri lagi,
miðað við fyrirliggjandi upplýs-
ingar um jarðgangnasvæðið.
Vilji menn gera kostnaðaráætlun
með betri nákvæmni verður að
rannsaka svæðið betur og Vest-
firðingar eiga að leggja mikla á-
herslu á að það verk verði hafið
þegar á næsta ári.
MÁLIÐ KOMST AÐ í FJÖLMIÐL-
UM
Ávinningurinn af skýrslu
Fjórðungssambandsins er að
mínu mati nær einvörðungu sá
að málið fékk þó nokkra umfjöll-
un í fjölmiðlum og jarðgangna-
gerð á Vestfjörðum komst í svið-
sljósið um tíma.
Því eigum við að fylgja eftir,
ekki með því að rökræða við
Vegagerð ríkisins um kostnaðar-
tölur, heldur með því að benda á
þann sparnað sem leiða má rök
að muni leiða af jarðgöngum.
Takist okkur að sýna fram á að
má móti útlögðum kostnaði við
Kristinn Gunnarsson bæjarfulltrúi í
Bolungarvík skrifar um sparnad af
jarðgangna gerð.
jarðgöngin komi sparnaður fyrir
ríki og sveitarfélög og jafnvel at-
vinnureksturinn höfum við lagt
fram þung rök málinu til stuðn-
ings.
SVÆÐIÐ FRÁ ÞINGEYRI TIL
ÍSAFJARÐAR SÉ EIN HEILD
Til þess að gera okkur grein
fyrir sparnaðinum veröum við að
ímynda okkur að svæðið frá
Þingeyri til ísafjarðar sé ein heild
með öruggum samgöngum allan
ársins hring, tengt með jarð-
göngum milli Skutulsfjarðar,
Súgandafjarðar og Önundar-
fjarðar og komin sé brú yfir
Dýrafjörð.
Það fyrsta sem kemur á óvart
er hversu stutt er á milli byggð-
arlaga. Frá ísafirði til Suðureyrar
um 15 mín. akstur eða eins og
milli Reykjavíkur og Hafnarfjarð-
ar svo dæmi sé tekið. Það þýðir
að við verðum að hugsa út frá
allt öðrum forsendum en nú er
gert. í stað þess að miða samfé-
lagslega þjónustu við þarfir
byggðarlagsins eða fjarðarins þá
verður viðmiðunin svæðið allt.
MESTUR SPARNAÐUR HJÁ
VEGAGERÐINNI
Augljósasti sparnaðurinn er
hjá Vegagerð ríkisins. Vegirnir
verða einfaldlega styttri, þá er
augljóst að á hverju ári muni
sparast töluvert fé í snjómokstri,
jafnvel þótt snjómokstur á lág-
lendi aukist eitthvað frá því sem
nú er.
Skólamál: Það verður ekki
nauðsynlegt að byggja full-
komna aðstöðu fyrir alla grunn-
skólanemendur í sérhverju
byggðarlagi. Nú verður hægt að
hafa sameiginlega aðstöðu að
einhverju leyti. Þar er sparnaður
hjá ríki og sveitarfélögum bæði í
stofnkostnaði og rekstri.
1 - 2 FLUGVELLIR í STAÐ 4 ÁÐ-
UR
Flugmál: Nú duga væntanlega
1 — 2 flugvellir ístað fjögurra nú.
Hafnargerð: Á samgöngu-
svæðinu verða 6 hafnir. Þarna
opnast möguleikar á því að nýta
betur einhverja tiltekna höfn í
stað þess að leggja í dýrar fram-
kvæmdir við aðra sem t.d. þyrfti
að stækka til að anna umferð í
henni.
Þannig má áfram telja t.d.
heilbrigðismál, uppbyggingu
framhaldsskóla og íþróttamann-
virkja svo eitthvað sér nefnt og
eru þó atvinnumálin alveg ó-
nefnd.
EKKI HÆGT AÐ REIKNA ALLT í
KRÓNUM OG AURUM
Hér hefur eingöngu verið bent
á beinan fjárhagslegan ávinning
af öruggum samgöngum, atriði
þar sem hægt er með nokkurri
vinnu að leggja fram áætlaðan
sparnað í beinum tölum. En
auðvitað yrðu áhrifin miklu víð-
tækari og ekki alltaf unnt að
reikna þau í krónum og aurum.
Að mínu mati er afar nauðsyn-
legt að við nýtum fyrri hluta vetr-
ar til þess að safna sem bestum
gögnum um beinan fjárhagsleg-
an ávinning af jarðgöngum og
leggja þau gögn fyrir Alþingi
þegar í vetur.
Kristinn H. Gunnarsson.
Netagerð
Vestfjarða hf.
ATHUGIÐ!
Það geta ekki allir orðið viðskiptafræðingar,
lögfræðingar eða læknar.
Hvernig væri þá að reyna að læra veiðarfæragerð.
Getum bætt við okkur nemum í veiðarfæragerð.
Ef þú hefur áhuga, hafðu þá samband sem fyrst
við Magna í síma 3413 eða 3475.
Netagerð Vestfjarða