Vestfirska fréttablaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 10
10
Patreksfjörður:
Kaupfélagið fær 3 mánaða
greiðslustöðvun
Sýslumaður Barðastrand-
arsýslu veitti Kaupfélagi
Vesturbarðstrendinga
greiðslustöðvun til þriggja
mánaða við lok síðustu viku.
Félagið, sem rekur nýlendu-
vöruverslun á Patreksfirði
auk byggingarvöru og ben-
sínafgreiðslu á sama stað,
hefur átt í verulegum rekstr-
arerfiðleikum að undanförnu.
Sýslumaður heimilaði
greiðslustöðvun eftir athugun á
stöðu kaupfélagsins og í kjölfar
þess að Samband íslenskra
samvinnufélaga féllst á að fella
niður30 milljónir af um það bil
70 milljóna skuld sinni við fé-
lagið. Niðurfellingin er háð því
að aðrir kröfuhafar felli niður
sama hlutfall af sínum inneign-
um hjá Kaupfélagi Vesturbarð-
strendinga.
vestfirska
Suðureyri:
Amór stýrir
Bylgjunni
Arnór Stefánsson, 27 ára
gamall útgerðartæknir tók í júlí
síðastliðnum við starfi fram-
kvæmdastjóra hjá Bylgjunni hf
á Suðureyri. Arnór kemur frá
Keflavík en þar var hann út-
gerðarstjóri hjá Hraðfrystihúsi
Keflavíkur hf um þriggja ára
skeið.
Hann lauk prófi í útgerðar-
tækni frá Tækniskóla Islands
árið 1982 og starfaði síðan í
rúmlega eitt ár hjá Afurðalána-
deild Landsbanka íslands eða
þar til hann hét til starfa í
Keflavík.
Arnór Stefánsson er kvæntur
Onnu Ingvarsdóttur og eiga þau
hjón tvö börn.
Fjórðungsþingið:
Hvað sparast við
gerð jarðgangna?
„Fjórðungsþing Vestfirðinga
1987 felur stjórn sambandsins að
meta beinan sparnað sem mun
leiða af jarðgöngum á norðanverð-
um Vestfjörðum.“
Þannig hljóðaði ályktun, sem
samþykkt var á Fjórðungsþinginu,
sem haldið var í Reykjanesi í fyrri
mánuði. Flutningsmenn tillögunn-
ar bentu á að nauðsynlegt væri, að
benda á þann mikla sparnað, sem
verða mundi af jarðgöngum, sem
tengja mundu saman byggir á
norðanverðum Vestfjörðum. Væri
nauðsynlegt að sá sparnaður væri
ljós, þegar og jafnhliða og rætt væri
um hve mikið kostaði að gera jarð-
göngin.
I viðtali Vestfirska fréttablaðsins
við Jóhann T. Bjarnason fram-
kvæmdastjóra Fjórðungssambands
Vestfjarða kom fram að ekki hefur
enn verið hafist handa við fram-
kvæmd verksins enda hefur skrif-
stofa sambandsins verið lokuð
vegna orlofs undanfarnar vikur.
Jóhann sagði að ekki væri vafi á að
margt mætti telja fram af sparnað-
arliðum en hinu mætti ekki heldur
gleyma, að marga liði, sem vinnast
mundu við gerð jarðganga væri
ekki hægt að reikna til peninga. Þar
væri hinsvegar um ýmiskonar fé-
lagsleg atriði sem ekki væri neinn
ágreiningur um að til hagsbóta
væru.
Suðureyrarkirkj a
hálfrar aldar
Sóknarkirkja Súgfirðinga á Suðureyri á fimmtíu ára afmæli á þessu ári.
Unnið hefur verið að endurbótum á kirkjunni í tilefni afmælisins og verður
hátíðarmessa af þessu tilefni fljótlega.
Svo virðist sem að, í Bolungarvík séu hlutirnir ekki eins dýrir og af er látið.
Rangt verð á
kartöflum
og kakómalti
Tvær leiðar villur slæddust
inn í verðkönnun blaðsins, sem
birtist í fyrri viku. Báðar varða
þær Verslun Einars Guðfinns-
sonar hf. í Bolungarvík. Nes-
quik kakómalt var I könnuninni
talið kosta kr. 183,7 í 400 gr.
pakkningum. Þetta var ekki rétt
þarna var um að ræða verð á
Nesquik kakómalti í 700 gr.
pakkningum. Rétta verðið á
Nesquik kakómalti í 400 gr.
pakkningum hjá Verslun Einars
Guðfinnssonar hf. er kr. 103,00.
Hin vörutegundin er kartöfl-
ur, en í verðkönnuninni var
gefið upp verð á 2 kg. pakkn-
ingu I stað verðs á einu kílói.
Verð á einu kílói af kartöflum
var því 48,00 krónur hjá Verslun
Einars Guðfinnssonar hf., þeg-
ar könnunin fór fram. Það mun
reyndar vera komið niður í
35,00 krónur í dag.
Vestfirska fréttablaðið biðst
velvirðingar á sínum þætti í
mistökum þessum.
Skípað gæti ég væri
mér hlýtt
Fræðslufundur um aga var
haldinn með öllumkennurum í
grunnskólanum á Isafirði, Bolung-
arvík, Þingeyri, Flateyri og Suður-
eyri. Á fundinum var fjallað um
aga og agavandamál sem kennarar
í grunnskólum þurfa að glíma við.
Fyrirlesari á námskeiðinu var Sól-
veig Ásgrímsdóttir, sem er kennari
og sálfræðingur að mennt og hefur
starfað sem siíkur.
„Þetta var afar gagnlegt
námskeið" sagði Ingibjörg Þor-
leifsdóttir útibússtjóri grunnskól-
ans í Hnífsdal í samtali við Vest-
firska fréttablaðið. „Það hefði mátt
vera lengra og hefði mátt vinna í
hópum ef tími hefði gefist til. Þarna
var fjallað um aga í ýmsum mynd-
um, og hvemig foreldrar og kenn-
arar eiga að hjálpa börnunum til
nokkurs þroska með jákvæðum
aga.
„Mikið var rætt um hvernig beita
mætti aga á jákvæðan hátt og
hvaða kröfur mætti gera til hvaða
aldurshjóps fyrir sig.
Það er Kennaraháskólinn sem
hefur forgöngu um fundi sem
þessa.
ísafjörður:
Kírkj uskólinn
tekur
til starfa
KIRKJUSKÓLINN Á ISAFIRÐI
VERÐUR 1 SAL GRUNNSKÓL- Nú er kominn vetur og allir
ANS Á SUNNUDAGSMORGN- skólar að berða byrjaðir. Kirkju-
UM KL. 11.00 skólinn á ísafirði mun starfa áfram
þrátt fyrir kirkjuleysið. Forráða-
menn grunnskólans hafa góðfús-
lega leyft að kirkjuskólinn verði til
húsa í samkomusal skólans fram að
áramótum en aðstæðna vegna er
heppilegast að hann verði þann
tíma á sunnudagsmorgnum.
Við reynum að hafa allt skóla-
haldið sem líkast því sem við erum
vön að þessu undanskildu, að við
verðum á öðrum stað og öðrum
tíma. Öll böm eru hvött til þess að
koma og vera með frá byrjun.
Æskilegt væri að yngstu bömunum
yrði fylgt.
Strætisvagninn fer sína
venjulegu leið úr Holtahverfi.
Börn á Urðarvegi, Seljalands-
vegi og Túnunum athugi það!