Vestfirska fréttablaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 11
vestlirska I
ÍTTABLAfllfl
\ nestíirska n
FRETTABLADID
Vestfirska fréttablaðið kemur út á fimmtudögum kl. 17:30. Ritstjórnar-
skrifstofa og auglýsingamóttaka að Hafnarstræti 14 er opin virka daga
ki: 10:00 til 12:00 og 13:00 17:00. Síminn er 4011, svarað er allan
sólarhringinn. Blaðamaður og Ijósmyndari: Páll Ásgeirsson. Útgefandi
og ábyrgðarmaður: Ólafur Geirsson, ritstjóri. Prentun: Prentstofan (srún
hf., ísafirði. Verð í lausasölu kr. 70,00. Áskriftarverð er lausasöluverð
reiknað hálfsárslega eftirá.
Úr yörn í sókn í
menntamálum
Það kostaði tuttugu ára baráttu að fá Alþingi til
að samþykkja lög um að Menntaskóli á ísafirði yrði
settur á fót. Átta frumvörp voru lögð fyrir Alþingi
þessa efnis og öll voru þau svæfð í nefnd. Loksins
árið 1970 voru sett lög um byggingu þriggja mennta-
skóla, eins í Reykjavík, annars á Egilsstöðum og
svo á ísafirði.
Af þessu er ljóst að það hefur ekki verið tekið út
með sitjandi sældinni að fá skilning stjórnvalda á
mikilvægi þess að grundvallaratriði eins og mennta-
og fræðslumál séu í góðu standi þar sem fólk á að
búa.
Því ber að fagna, að kennsluhúsnæði Mennta-
skólans á ísafirði hefur verið tekið formlega í
notkun. Sautján ára byggingarsögu er að mestu
lokið.
Á undanfömum áratugum hefur það gerst og
gerist enn, að heilu fjölskyldurnar telja sig neyddar
til að flytja á brott frá Vestfjörðum vegna þess að
ekki gefst kostur á menntun fyrir börnin í heima-
byggðinni. Nú sjást þess merki, að þessari þróun
hafi verið snúið við.
Á næstu árum hillir undir nýtt og fullkomið
íþróttahús á ísafirði. Verður það hið fyrsta sinnar
tegundar á Vestfjörðum, sem fullnægir öllum
kröfum sem gerðar eru til slíkra húsa.
Verkmenntaskóli á ísafirði er næsti byggingará-
fanginn í tengslum við Menntaskólann. Tryggja
verður að hægt verði að veita fullnægjandi verk-
menntun á Vestfjörðum, enda er það ekki síður
nauðsynlegur grundvöllur undir mannlíf en hin
hefðbundna menntaskólafræðsla.
Pá mun starfssamningur Tónlistarfélags ísafjarð-
ar og ísafjarðarkaupstaðar enn styrkja stöðu tónlist-
arfræðslu í bænum.
í ræðu bæjarstjóra ísafjarðar við vígslu hins nýja
kennsluhúsnæðis Menntaskólans, sagði hann að
uppbygging skólamála yrði meginverkefni bæjar-
stjórnar ísafjarðar á yfirstandandi kjörtímabili.
Slíkt er verðugt verkefni hverri bæjarstjórn.
Vonandi rætast þau orð bæjarstjórans, að í náinni
framtíð muni ísafjörður skipa sér á bekk með þeim
sveitarfélögum, sem besta aðstöðu hafa til
menntunar og, að kaupstaðurinn muni laða að sér
fólk úr öðrum landshlutum til að afla sér menntun-
ar.
ÓG
------------------------
GRÍPTU
100.000 krónur
Sól gos - meiriháttar gos
^
I---------------------------
j FASTEIGNA-
i VIÐSKIPTI
J ÍSAFJÖRÐUR:
| Einbýlishús/Raðhús:
| Austurvegur 13, 2 íbúðir, á efri
I hæð 4ra herb. íbúð, á neðri hæð
5 herb. íbúð.
I Seljalandsvegur 84a ca. 80 fm
| einbýlishús, einangrað og klætt.
Tangagata 6. Hús með tveimur
íbúðum og kjallara. Efri hæð og
ris laust strax.
Heimabær 3, 2x55 fm einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt risi
og kjallara.
Hafraholt 20. 142 fm raðhús á
tveimur hæðum ásamt 32 fm
bílskúr. Skipti á Sérhæð+bílskúr.
Miðtún 39. Nýlegt raðhús á
tveimur hæðum, ásamt bílskúr.
Laust strax.
Aðalstræti 33. 2x80 fm sérbýli
ásamt kjallara og bílskúr. íbúð í
hjarta bæjarins.
4-6 herb. íbúðir:
Fjarðarstræti 59. ca. 110 fm 4ra
herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi.
Smá-
auglýsingar
TIL SÖLU
Subaru 1800 station 1984.
Vökvastýri og rafmagn í
rúðum. Bíll í toppstandi.
Upplýsingar í síma 3035 og
3040.
TIL SÖLU
Chevrolet Blazer Silverado.
Árgerð 1982. Sjálfskiptur. Ek-
inn 48 þúsund mílur.
Upplýsingar í síma 3806 á
kvöldin, 3555 í vinnutíma.
TIL SÖLU
Volvo 245 station árgerð
1978. verð kr. 230 þúsund.
Upplýsingar í síma 7386.
STRAUBORÐ
Á ekki einhver gamalt strau-
borð sem hann vill losna við?
Litla Leikklúbbinn vantar til-
finnanlega eitt stykki strau-
borð.
Vinsamlegast hafiö samband
við Dísu í síma 3794 eftir kl.
19.00
11
1
Hjallavegur 12,114 fm 4ra herb.
íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi. Sérbýli.
Hjallavegur 8. 130 fm sérhæð á
n.h. í tvíbýlishúsi. Skipti koma til
greina inn í Firði.
Sundstræti 30. Ca 140 fm íbúð í
kjallara.
Engjavegur 17. 4ra herb. íbúð á
e.h., í tvíbýlishúsi. Bílskúrsréttur.
Mjaliagata 6. 100 fm íbúð á e.h.
í þríbýlishúsi. Skipti á stærri eign
möguleg.
Pólgata 4, 4ra herb. íbúð á n.h.
Bílskúr.
Engjavegur 21. 130 fm sérhæð,
sérherbergi og sameign í kjallara.
Sundstræti 29, íbúð í norður-
enda n.h., í fjórbýlishúsi.
Sundstræti 29, íbúð á n.h., í
suðurenda í fjórbýlishúsi.
Hrannargata 4.4x80 fm einbýlis-
hús á fjórum hæðum, ásamt 38
fm bílskúr. Eignarlóð.
3ja herb. íbúðir:
Stórholt 11, ca. 85 fm íbúð á 2.
hæð í fjölbýlishúsi. Bílskúr. Skipti
á einbýli möguleg.
Hreggnasi 3, 70-80 fm íbúð á
e.h., í tvíbýlishúsi auk kjallara.
Aðalstræti 32, 70 fm íbúð á e.h..
i austurenda auk kjallara.
Fjarðarstræti 9. 76 fm íbúð á 3.
hæð í fjölbýlishúsi auk sérgeym-
slu í kjallara og risherbergis.
Stórholt 11.75 fm íbúð á 3. hæð
í fjölbýlishúsi.
Stórholt 7, 75 fm íbúð á 2. hæð.
Selst með góðri útborgun, ef
nægileg trygging er fyrir hendi.
Heimabær 5. 80 fm. íbúð e.h., í
fjórbýlishúsi.
Hlíðarvegur 16, 70 fm íbúð á
e.h., í þríbýlishúsi.
Hrannargata 9, 100 fm íbúð í
sérbýli. Skipti á stærri eign mögu-
leg.
2ja herb. íbúðir:
Tangagata 8a, ca 50 fm íbúð á
n.h. í steinhúsi auk 50% af kjall-
ara.
Sundstræti 24, 60 fm íbúð í þrí-
býlishúsi.
BOLUNGARVÍK:
Traðarland 15, ca 120 fm einbýl-
ishús ásamt bílskúr.
Traðarland 8, ca 150 fm einbýlis-
hús ásamt bílskúr.
Hjallastræti 37, ca 100 fm einbýl-
ishús ásamt bílskúr.
Vitastígur 8, ca 180 fm einbýlis-
hús.
Hafnargata 46, 130 fm 6 herb.
íbúð á e.h.
Vitastígur 13, 90 fm íbúð á 1.
hæð í fjórbýlishúsi.
Stigahlíð 4, 51 fm 2ja herb. íbúð
í fjölbýlishúsi.
Þjóðólfsvegur 16, 54 fm 2ja
herb. íbúð í fjölbýlishúsi.
ATH.: Margar fleiri fasteignir
eru til sölu á skrifstofu minni.
Tryggvi
Guðmundsson
hdl.
Hrannargötu 2, ísafirði,
sími 3940.
FÉLAGSSKÍTUR
Sunddeild Vestra verður með félagsskít á
næstunni. Upplýsingar í síma 3765
(Bogga) og 3548 (Lóa).
VESTRI
Skelltu hvorki
skuid á hálku
eða myrkur.
Þaö ert ftcí sem situr við stýrið
u
UMFERÐAR
G>
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Afgreiðslugjaldkeri
Við viljum ráða afgreiðslugjaldkera á skrif-
stofu okkar á ísafirði.
Upplýsingar veitir Guðmundur Halldórsson í
síma 94-3211.
ORKUBÚ VESTFJARÐA