Vestfirska fréttablaðið - 08.04.1988, Blaðsíða 4
4
vesllirska
Einbýlishús til sölu
Til sölu er húseignin
Tangagata 7, ísafirði.
Laus eftir samkomulagi.
Arnar Geir Hinriksson, hdl.
Silfurtorgi 1, ísafirði, sími 4144
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hótels ísafjarðar h.f. verður
haldinn á Hótel ísafirði 19. apríl kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Byggðastofnun
RAUÐARÁRSTlG 25 • SlMI: 25133 • PÓSTHÓLF 5410 • REYKJAVlK
Byggðastofnun
auglýsir til sölu hraðfrystihús
á Patreksfirði
Byggðastofnun auglýsir til sölu hraðfrysti-
hús á Vatneyri við Patreksfjörð (áður eign
Vatneyrar hf.) ásamt tilheyrandi eignarlóð.
Eignin er til sölu í heilu lagi en einnig kemur
til greina að selja einstaka hluta hennar. Til-
boðum í ofangreinda eign skal skilað fyrir 15.
apríl nk. til lögfræðings Byggðastofnunar,
Karls F. Jóhannssonar, Rauðarárstíg 25, 105
Reykjavík, sími 91-25133, semjafnframt veit-
ir nánari upplýsingar.
* /
Utvegsbankinn Isafirði
verðlaunaður
Nú nýlega veitti bankaráð Útvegsbanka íslands hf. Útvegsbankanum
á ísafirði verðlaun fyrir góða frammistöðu á síðasta ári. Þetta er í fyrsta
skipti sem verðlaunin eru afhent, en ætlunin er að veita þau árlega.
Verðlaunaafhendingin fór fram í hófi sem haldið var fyrir stjórnendur
bankans. Högni Þórðarson útibússtjóri á ísafirði tók við verðlaunum
fyrir hönd starfsfólks útibúsins. Guðmundur Hauksson bankastjóri
færði honum veglegan verðlaunagrip sem Jens Guðjónsson gullsmiður
smíðaði, auk 75.000 króna sem renni í sameiginlegan sjóð starfsmanna
Útvegsbankans á ísafirði.
Útvegsbankinn á ísafirði er ein af traustustu rekstrareiningum Út-
vegsbankans. í sumar mun Útvegsbankinn á fsafirði flytja í hið nýja
stjórnsýsluhús sem nú rís á ísafirði. Þar gefst starfsmönnum Útvegs-
bankans á ísafirði tækifæri til að standa sig enn betur í nýju húsnæði
með betri aðstöðu bæði fyrir viðskiptavini og starfsmenn.
Á myndinni eru f.v. Guðmundur Hauksson og Högni Þórðarson.
HUdur Einarsdóttir:
Gullnar stundir
í félagslífi í
Bolungarvík
Leikfélag Bolungarvíkur tvítugt
Leikfélag Bolungarvíkur á 20
ára afmæli um þessar mundir.
Leikstarfsemi hefurþó verið iðkuð
hér allt frá aldamótum. Frá því ég
man eftir, hefur oft verið mikill
áhugi fyrir leiklist. Sveinn Hall-
dórsson, skólastjóri hér, var mjög
áhugasamur og duglegur að setja
upp leikrit og skrautsýningar með
okkur barnaskólakrökkunum, og
það fannst mér óskaplega spenn-
andi.
Góðtemplarareglan var í fullu
fjöri á þessum árum. Hér var þá
starfandi barnastúkan Lilja og
stúkan Harpa. Jens E. Níelsson,
sem var kennari hér í áratugi, hafði
þar forystu.
Góðtemplarahúsið var eina
samkomuhús staðarins. Þar var
leiksvið, og þar var tekizt á við list-
ina.
Hulda Runólfsdóttir, sem var
kennari hér á árunum 1938-1941,
stofnaði kór með okkur krökkun-
um, og við sungum á barnamessum
í Hólskirkju og á skólaskemmtun-
um. Hún var einnig mjög liðtæk í
leikstarfseminni.
Á mínum unglingsárum var hér
mikið félagslíf. UMFB var í fullum
blóma. Þar var stofnaður kór inn-
an félagsins, og einnig stóð það fyr-
ir því að settar voru upp leiksýn-
ingar, t.d. „Skugga-Sveinn“ sem
oft var sýndur, „Gift eða ógift“
árið 1946, o.fl.
Ég var kornung, þegar ég gekk
í kvenfélagið „Brautin“. Fastur
liður í starfsemi félagsins var að
halda skemmtun á nýársdag. Þar
var leiksýning og sitthvað fleira.
Auk þess var ævinlega reynt að
vanda til árshátíðar, sem haldin
var einu sinni á vetri fyrir gamla
fólkið. Þá var það fastur liður, að
flutt var klukkustundar leikrit.
Oftast var einnig söngur eða
skrautsýning á þessum skemmtun-
um.
Ég hafði bæði gagn og gaman af
að vera þátttakandi í þessu
skemmtilega mannlífi, og því
fylgdi mikil sjálfsbjargarviðleitni í
félagslífi.
Á þessum árum var hér mikill
áhugi fyrir leikstarfsemi. Árið
1952 höfðum við fengið Félags-
heimilið til afnota. Þar var mikil
og góð aðstaða til leikstarfseminn-