Vestfirska fréttablaðið - 08.04.1988, Qupperneq 6
6
Þegar þú kemur suður, þá tekur
i. þú við bílnuxn frá okkur á
t\ Reykjavíkurflugvelli.
j| j Svo skilur þú hann eftir á sama
I J L stað, þegar þú ferð.
l'V\ GEYSIR láfrerlS
BORGARTÚNI 24 — REYKJAVÍK — SÍMI 11015
TIL.KYNNING
UM
AÐSETURSSKIPTI!
Skrifstofa. \Zestfirska.
fréttablaösins
(ritstjórn og auglýsingar)
er flutt aö Aöalstræti 33,
(á sama staö og
Rrentstofan ísrún).
\/estfirska fréttablaöiö
•5S? (94)401 1 og 3223.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
Aðalfundir Samvinnutrygginga g.t. og Líf-
tryggingafélagsins Andvöku, verða haldnir í
Samvinnutryggingahúsinu, Ármúla 3,
Reykjavík, föstudaginn 29. apríl n.k. og hefj-
ast kl. 17:00.
Dagskrá verður samkvæmt samþykktum fé-
laganna.
Stjórnir félaganna.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
ÁRMÚU4 REVKJAVIK SlMI 84499
ÚTBOÐ
Byggingamefnd Vistheimilis aldraðra á Þing-
eyri óskar eftir tilboðum í 4. hluta 1. áfanga
byggingar vistheimflis fyrir aldraða á Þing-
eyri.
Verkið felst í uppsteypu á 780 ferm. hæð
ásamt smíði á þaki og frágangi utanhúss en
lokíð er við gerð kjaflara og undirstaða. Verk-
inu skal vera lokið fyrir 1. okt. 1988.
Útboðsgögn verða afhent. á skrifstofu Þing-
eyrarhrepps, 470 Þingeyri og hjá VST hf.
Aðalstræti 24, 400 ísafirði, gegn kr. 10.000.-
skilatryggingu. Tflboð verða opnuð á skrif-
stofu Þingeyrarhrepps mánudaginn 25. aprfl
kl. 14.00.
VST hf.
Aðalstræti 24,
400 ísafirði.
Að mála hesta
sýslumannsins og
bæjarfógetans á Isafirði
— spjall yfir pönnukökum við Hansínu Einarsdóttur
(hans Kitta Jónasar)
Hansína Einarsdóttir er Hnífsdælingur, að eigin sögn. Að vísu fædd á Suðureyri. En
í Hnífsdal ólst hún upp með Ágúst fósturbróður, hjá fósturforeldrum sínum Einari
Steindórssyni og konu hans Ólöfu Magnúsdóttur. Og þar segist hún ætla að eyða ellinni.
Einar var framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins í Hnífsdal nær því frá upphafi, eða um
nær 40 ára skeið. Auk þess var hann lengi oddviti Eyrarhrepps. Hansína hefur unnið
um langt árabil á skrifstofu Hraðfrystihússins, auk þess sem hún ásamt fleirum keypti á
síðasta ári Rækjuverksmiðjuna í Hnífsdal, og fetar þarmeð í fótspor föður síns með virkri
þátttöku í atvinnulífi Hnífsdælinga.
Hansína er lífsglöð kona og hláturmild og liggur ekki á skoðun sinni. Hún er gift
Kristjáni Knúti Jónassyni forseta bæjarstjórnar á Isafirði. Þau eiga fimm uppkomin börn.
Það var reglulega notalegt að setjast niður með Hansínu eina kvöldstund yfir kaffi og
rjómapönnukökum (eins og mamma bakar) og ræða við hana um Hnífsdal og Isafjörð,
sameiningu sveitarfélaganna, bernskuminningar hennar, samstöðu ísfirðinga, pólitík,
málaða hesta og ýmislegt fleira.
ER OG VERÐ HNÍFSDÆL-
INGUR, ÞÓ ÉG HAFI VERIÐ
BÚSETT Á ÍSAFIRÐI SÍÐAN
1959.
Ég bjó í Hnífsdal alveg þangað
til ég giftist Kristjáni og flutti hing-
að inneftir, og ég vinn þar alla
daga, svo ég er vissulega Hnífs-
dælingur. Þegar ég var lítil stelpa
og var að fara með pabba að út-
deila skömmtunarseðlum, þá
ókum við í gegnum ísafjörð.
Sveitabæirnir í Firðinum tilheyrðu
Hnífsdal. Þetta var rétt eftir
stríðið.
Þá var í Hnífsdal eitt kaupfélag.
búð og bakarí, þarna bjuggu um
300 manns og þeir sem ekki unnu
í frystihúsinu þeir voru á sjó. Pláss-
ið var þá mjög mikið útaf fyrir sig,
því samgöngur voru litlar við ísa-
fjörð yfir veturinn. Það var ekki
mokað að vetrinum, nema kannski
einu sinni í viku. Mér er í barns-
minni þegar ég fór í fyrsta sinn á
ísafjörð að sjá leikrit, þá var geng-
ið til baka um nóttina í tungsljós-
inu. Mig minnir að það hafi verið
Piltur og stúlka. Það var ekki mik-
ill samgangur. Ég held að ég hafi
komið í þrjú hús á ísafirði þegar
ég kom hingað inneftir til náms í
Gagnfræðaskólanum.
Fermingarárið mitt 1954 þá
gengum við iðulega inneftir til
prestsins til spurninga. Það var síð-
asti árgangurinn sem fermdist
innfrá, allar stúlkurnar í hvítum
kjólum. Stundum fórum við á
skíðum inneftir. Nú Jóakim Páls-
son átti jeppa og stundum keyrði
hann okkur hálfa eða alla leið. Ef
það þurfti að moka þá þurfti pabbi
að hringja í Charles Bjarnason og
fá leyfi, og síðan kom Kitti á ýt-
unni, sem kallaður var, og mokaði.
Þrjú af börnunum okkar eru
búsett hér á ísafirði og í Hnífsdal.
Steinar Örn sonur okkar hefur fest
kaup á húsinu sem ég ólst upp í í