Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 08.04.1988, Síða 8

Vestfirska fréttablaðið - 08.04.1988, Síða 8
Mikið úrval af sjónaukum lækkað verð Jfc SFORTHIAÐAN hf V SILFURTORGI 1 400 ISAFIRÐI ^ — SIMI 4123 ERNIR P Bílaleig a Patrekur Dýrfjörð hefur heyrt ... að við lesturvel ígrundaðrar greinar Jens í Kaldalóni hér í blaðinu um sameiningu sveitar- félaganna í Djúpinu, hafi bónda einum i nágrenni við Jens orðið að orði, að þetta hefði nú svo sem allt verið í lagi með sam- einingu, ef hinu háa félags- málaráðuneyti hefði ekki láðst að fyrirskipa Djúpinu í tæka tíð að hnipra sig saman um svo sem tvöhundruð kílómetra áður en sameiningin færi fram. Þá hefði það einnig farist fyrir hjá ráðuneytihu að birta í B-deild Stjórnartíðindaviðmiðunarregl- ur til allra Djúpverja á barneign- araldri varðandi íbúafjölda hins sameinaða hrepps, og hnykkja á skyldum þeirra í þeim efnum. ... að hestvagnar muni brátt setja svip á umferðina á ísafirði eins og forðum. Nú í vetur hefur ástand gatna í kaupstaðnum verið með þeim hætti, að naum- ast hefur verið bjóðandi öðrum en skriðdrekum og hestum. Kannski var það einmitt þess vegna sem Isfirðingurinn gamli Jón Baldvin felldi niður aðflutn- ingsgjöld á skriðdrekum nú um áramótin. En nú hafa ísfirsk bæjaryfir- völd gripið til nýstárlegra við- haldsaðgerða á götunum. I stað þess að bæta malbik og olíumöl með hefðbundnum hætti, þá hefur nú verið gripið til þess ráðs að bera ofan [ göturn- ar eins og gert er við malarvegi. Að vísu er ekki verið að bera ofan í göturnar einhvern muln- ing eða almennilegan ofaní- burð eins og tíðkast jafnvel á sjaldförnustu fjallvegum, heldur er komið með hina groddaleg- ustu og ruddalegustu grús og sturtað á göturnar eins og í árdaga. Svo standa vegavinnu- menn á tipp á milli Sjálfstæðis- hússins og rakarastofunnar eins og þegar amma var ung og tína stærsta grjótið úr Hafnar- strætinu. Nú vantar bara hestakerrur og Gamla Ford til að fullkomna götumyndina á ísafirði. Málfreyjuþíng á Bfldudal Málfreyjudeildin á Bíldudal heldur ráðsfund nú um helgina, og vonast til þess að allar málfreyjur sem vettlingi geta valdið komi. Deildirnar á Vestfjörðum tilheyra I. ráði málfreyja á íslandi, en þær eru starfandi á Patreksfirði, Tálknafirði, Bíldudal, ísafirði og í Bolungarvík. Að auki eru í I. ráði deildir í Reykjavík, Keflavík og Kópavogi. Deildirnar skiptast á að halda sameiginlega ráðsfundi, fjóra á ári, og vorfundurinn nú kemur í hlut þeirra á Bíldudal. Það er kominn tími til að tengja! Vestfirska fréttablaðið óskar eftir tengiliðum, tíðindamönnum og fréttariturum út um alla Vestfirði. Hafið samband! Vestfirska fréttablaðið sími (94)4011 og 3223. ISAFJÖRÐUR: GUÐBJARTUR landaði á skírdag 131,5 tonnum. Aflinn var mjög blandaður, allur sóttur suður fyrir land, mikið ýsa og ufsi, og fór allur til vinnslu heima í Norðurtanganum. Síðan lá togarinn inni yfir páskana, en fór aftur út aðfaranótt fimmtudags. ORRI var á netaveiðum á Breiðafirði í marsmánuði. Það var ein hörmung, algert aflaleysi, eins og hjá öðrum sem þar hafa verið. Hann hætti því netaveið- um um mánaðamótin, og er að fara á fiskitroll, fór af stað nú á fimmtudagskvöldið í fyrsta róðurinn. Línubátarnir VÍK- INGUR III og GUÐNÝ fiska mjög vel, og nú eftir páskana hafa þeir verið með 13-15 tonn í róðri, sem telst vera mjög gott. Uppistaðan er steinbítur, en nokkuð af þorski með. JÚLÍUS GEIRMUNDSSON Iandaði á laugardag fyrir páska um 190 tonnum, ýmsar tegurdir, mest karfi, þar af var látið í tvo gáma. GUÐBJÖRGIN er í Þýskalandi á þurru landi og búið að saga hana í tvennt. Nú á mið- vikudag var búið að draga hlut- ana í sundur og átti að fara að máta nýja stykkið á milli. Hin lengda Guðbjörg er síðan vænt- anleg aftur um eða upp úr mán- aðamótunum. Línubátar sem lagt hafa upp hjá íshúsfélaginu hafa að undanförnu fengið mjög góðan steinbítsafla. SÚÐAVÍK: BESSI kom inn á laugardag með 140 tonn, þar af var sett í fimm gáma. Blandaður afli, helming- urinn grálúða, hitt sitt af hverju. HAFFARI kom líka á laugar- dag, hann var með 4 tonn af rækju. Litlu pungarnir: DÓRI kom í síðustu viku með 1475 kg af rækju úr Djúpinu og STUNDVÍS með 2422 kg. KOL- BRÚN frá ísafirði sem landað hefur rækju f Súðavík er búin með kvótann og hætt. BOLUNGARVÍK: DAGRÚN landaði nálægt 100 tonnum núna á miðvikudag eftir 5-6 daga útivist, mest þorski. Þetta var fyrsti túrinn eftir nokk- urt stopp vegna vclarhreinsunar. HEIÐRÚN landaði heima 30. mars um 115 tonnum, þar af var sett í einn gám. Mest var um karfa, en ýsa og þorskur yfir 30 tonn og ufsi um 25 tonn. Heiðrún var síðan að landa nú á fimmtu- dag í Njarðvíkunum, eitthvað um 100 tonnum, þar af átti að setja í nokkra gáma. Línuaflinn hefur verið góður þegar róið hef- ur verið. FLOSI var með mjög góðan afla yfir marsmánuð, eða 308 tonn í 22 róðrum, sem mun vera einhver mesti afli sem um getur hér um slóðir í þeim mán- uði. Meðalaflinn var því 14 tonn í róðri. í tveimur róðrum í þessari viku hefur hann síðan verið með 15 og 17 tonn. Minni bátarnir hafa einnig verið með nokkuð góðan afla og góða róðra inn á milli. Nú eru þeir með þetta 4-7 tonn í róðri, en komust hæst í 12 tonn fyrir páskana. SÓLRÚN er á úthafsrækju á Austfjarðamið- um, búin að vera úti síðan 17. mars, og mun vera farin að nálg- ast 100 tonn og væntanleg fljót- lega til Bolungarvíkur með aflann. Rækjuveiðin í Djúpinu er að verða búin, sumir eru alveg að klára og sumir búnir. Sumir eru að byrja á steinbít, en einhverjir fara á línu. Tveir eða þrír eru að byrja á handfærum þessa dagana. Einn loðnubátur landaði um 470 tonnum fyrir páskana, og þar með kemur ekki meiri loðna til Bolungarvíkur á þessari vertíð. HNÍFSDALUR: Þingeyrartogararnir koma og landa til skiptis hjá Hraðfrysti- húsinu Hnífsdal, eftir því sem á stendur. Umsamið er að húsið fær 60 tonn á viku frá þeim, og hefur svo verið frá áramótum og stendur á meðan PÁLL PÁLS- SON er í breytingunum í Póll- andi. Nú um helgina em Jóakim Pálsson og Hansína Einarsdóttir að fara til Póllands vegna togar- ans. Vinnan þar hefur gepgið miklu seinna en til stóð. SUÐUREYRI: í marsmánuði var SIGURVON með alls 226,8 tonn, JÓN GUÐMUNDSSON með 16,3 tonn og INGIMAR MAGNÚS- SON 55,3. ELÍN ÞORBJARN- ARDÓTTIR landaði nú á þriðjudag og miðvikudag um 150 tonnum, þriðjungurinn ýsa, hitt þorskur og karfi. Sett var í fjóra gáma til sölu éllendis á mánúdag- inn, en tæp 11 tonn voru seld á Fiskmarkaði Suðurnesja. BÍLDUDALUR: SÖLVI BJARNASON landaði 142 tonnum í páskavikunni, blandaður afli, og aftur nú á mið- vikudag 93 tonnum af þorski. Tveir litlir línubátar hafa verið að fá reyting. Rækjuskipið ÞRÖSTUR er á úthafsrækju fyrir norðan land. TÁLKNAFJÖRÐUR: TÁLKNFIRÐINGUR iandaði 26. mars 133 tonnum, uppistaðan karfi eða 85 tonn, hitt mest grá- lúða, eitthvað af steinbít og fleira. Togarinn landaði aftur 5. apríl 143 tonnum, þar var einnig mest af karfa, en öðru leyti blanda af ýsu, þorski, grálúðu og öllu mögulegu. FLATEYRI: GYLLIR landaði 28. mars 111 tonnum, þar af fór tæpur helm- ingur í gáma. Togarinn lá síðan inni fram yfir páska, en fór út í fyrrakvöld. Línubátarnir hafa fiskað ágætlega þegar gefið hefur. ÞINGEYRI: " _ Bátar 26. mars til 6. apríl: GÍSLI PÁLL tæp 26 tonn í fjórum ferðum, MÁNI tæp 30 tonn í fjórum ferðum, BJÖRGVIN MÁR rúm 21 tonn í fjórum ferðum. FRAMNES landaði 66 tonnum í Hnífsdal á laugardag og setti auk þess í tvo gáma. SLÉTTANES var í Grundarfirði 28. mars með 71 tonn og auk þess í tvo gáma. Síðan kom togarinn heim á laugardag með 36 tonn og auk þess í tvo gáma. PATREKSFJÖRÐUR: SIGUREY landaði á laugardag 135 tonnum, einkum karfa og ufsa. ÞRYMUR kom síðan inn vegna bilunar með eitthvað um 20 tonn af ýsu og þorski. Patrekur Dýríjörð heyrði líka... ... að nú séu Vestfirðingar farnir að þjálfa upp ræðusnillinga með skipulegum hætti, sem síðan í fyllingu tímans sé ætlað að halda uppi merki núverandi og fyrrverandi þrumukjafta í MÍ. Við viljum reyndar hugsa enn lengra - ekki er síður mikilvægt að halda uppi merki núverandi og fyrrverandi þrumukjafta Vestfirðinga á Alþingi. Nú er sumsé komið að lokum mælskukeppni grunnskóla- nemenda á Vestfjörðum. Rætt verður til þrautar í sal Mennta- skólans á (safirði (einmitt það!) nú á laugardagskvöldið og verður byrjað að munnhöggv- ast kl. átta. Úrslitabaráttan stendur á milli liða frá Bolungar- vík og Flateyri. Átta lið hófu keppnina, frá Suðureyri, Flateyri, Núpi og Þingeyri, eitt frá hverjum stað, og tvö lið frá ísafirði og tvö frá Boíungarvík. Liðsskipan og til- högun er alveg með sama hætti og í MORFlS (einmitt það!) og einn helsti hvatamaður þessar- ar keppni heitir Birgir Finnsson, núverandi þrumukjaftur í mælskuliði MÍ (einmitt þaðl). Og ef okkur skjátlast ekki mikið, þá kom það stundum fyrir að afi hans og alnafni segði nokkur orð á Alþingi hér í eina tíð .... ÓKEYPIS smá- auglýsingar TIL SÖLU 10gíra DBS reiðhjól sem stol- ið var að heimili mínu. Selst ódýrt í því ástandi sem það kann að vera ef það finnst. Upplýsingar í síma 3276. MYNDAVÉL Til sölu er Professional Bron- ica ETR-S 4,5x6 myndavél ásamt tveim filmubökum, tveim linsum, tveim eftirtöku- filterum, Polaroid filmubaki o.fl. Upplýsingar á skrifstofu Vest- firska, Aðalstræti 35, ísafirði (sama stað og Prentstofan Isrún), sími 4011 og 3223. ÓKEYPIS Smáauglýsingar í Vestfirska fréttablaðinu eru ókeypis! TIL LEIGU Til leigu einbýlishús og hest- hús í Bolungarvík. Leigu- skipti í Reykjavík koma til greina. Upplýsingar í síma 7569. MINNINGARKORT Styrktarfélags vangefinna á Vest- fjörðum fást í Penslinum á ísafirði og hjá Níelsínu Þorvaldsdóttur í Bolungarvík. Hljómflutningstæki frá TEC og SAMSUNG Margar gerðir - f rábær fermingargjöf PÓLLINN VERSLUN RAFÞJÓNUSTA SÍMI 3092 © PÖLLINN HF. TOPPHAR SÍMI3517 TOPPBLÓMIÐ SÍMI4717

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.