Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 2

Vestfirska fréttablaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 2
2 vestlirska I vestfirska I FRETTABLADIÐ Vestfirska fréttablaöið kemur út vikulega. Ritstjórn og auglýsingar: Aðalstræti 35, ísafirði, sími 4011 og 3223. Heimasími vegna auglýs- inga er 4057. Útgefandi: Grafíktækni h.f., (safirði. Ritstjóri og ábyrgð- armaður: Hlynur Þór Magnússon. Prentun: Prentstofan (srún h.f., (safirði. Verð í lausasölu kr. 70. Áskriftarverð er lausasöluverð reiknað hálfsárslega eftir á. RITSTJÓRN: Mikií viðbrögð Undanfarið höfum við á Vestfirska fréttablaðinu fengið meiri viðbrögð frá lesendum en okkur gat órað fyrir. Bæði jákvæð og neikvæð. En yfirleitt ánægjuleg! Neikvæðu viðbrögðin hafa yfirleitt beinst að því áformi okkar að minnka brot blaðsins, að hafa það í tímaritsstærð. Viðbrögðin við þessu hafa verið svo kröftug, að við erum hættir við það! Fólk hefur t.d. haldið því fram, að það sé ekki stærðin sem skiptir máli, heldur hvernig hluturinn er notaður, að við ættum fyrst að reyna að bæta innihaldið áður en við förum að hringla mikið með umbúðirnar. Margir hafa spáð illu um slíka breytingu, sagt að það sé nóg að hafa eitt BB, og þar fram eftir götunum. Þessi viðbrögð hafa vissulega snert viðkvæman streng íhaldsseminnar í hjörtum okkar, og við höldum jafnvel að innst inni höfum við alltaf verið á móti breytingunni. A.m.k. erum við fegnir að vera áfram með alvörublað í alvörustærð í höndunum, með þeim möguleikum sem það býður upp á. Fyrir okkur, og fyrir lesendur. Þess vegna hafa hin neikvæðu við- brögð reynst okkur sérlega ánægjuleg! Jákvæðu viðbrögðin hafa líka verið kröftug. FjÖldi fólks hefur hringt til okkar víðsvegar af Vestfjörðum, og hvatt okkur til þess að standa við það að gera Vest- firska að sterku vestfirsku blaði. Við treystum því að þetta fólk, og margir aðrir, hjálpi okkur í þessu verki, því að annars er það ekki hægt. Blaði er ekki aðeins nauðsyn á lesendum til að lesa það, heldur einnig til að skapa það. Við viljum og verðum að hafa sem best samband við lesendur um alla Vestfirði (og reyndar áskrifendur okkar sem eru hundruðum saman utan Vestfjarða), og fá frá þeim fréttir og ábendingar (við gætum fyllsta trúnaðar við heimildarmenn ef þess er óskað). Við viljum fá frá þeim greinar og samantektir, og við aðstoðum við frágang á slíku ef menn vilja. Takið eftir því, ef ykkur er annað tamara en ritstörf. Hafið samband! ÁSKRIFT —NÝJUNG Hingað til hafa áskrifendur Vestfirska eingöngu getað fengið blaðið í pósti, en ekki borið í hús eins og tíðkast um dagblöð. Nú breytum við þessu. Þeir sem búa í bæjum og þorpum á Vestfjörð- um munu framvegis geta fengið blaðið borið til sín um leið og það kemur út eða kemur á staðinn. Petta verður samt ekki til þess að börnin sem hafa gengið í hús til að selja blaðið missi neins. Þvert á móti. Tökum dæmi af ísafirði. Blað- sölukrakki þrammar í hús við til- tekna götu og býður blaðið til sölu, og fær ákveðna upphæð (kr. 21) af hverju seldu eintaki. Hann hefur áskriftarlistann meðferðis, og þar sem áskrifendur búa, lætur hann blaðið umyrðalaust inn um lúguna, en fær sömu upphæð fyrir og áður. Við þetta ætti margt að vinnast: Við seljum fleiri blöð, því að oft er enginn heima þegar krakkinn bankar upp á. Þetta hlífir fólki við ónæði, en það fær blaðið samt heim, líka þegar eng- inn er heima. Þetta flýtir fyrir krökkunum og léttir þeim starfið, og þau hafa meira upp úr sér á skemmri tíma. Hafið samband! Verðlaunakrossgáta nr. 1 af 5 forn fjallveg- ur við ísafjörð - 'W Satans klikkuð ► ^ fiskana heilagur Frans frá... samtal aðgæta varkára leynd býli í Skutuls- firði ántilefnis ► brenni- steinn hræði- legir ► ▼ fugli spretta upp ► narts ílát ► r* lemur sex ► ball ► drykk öxull ► upp- hrópun keyra ► kjarna- sýra 51 blað sam- tenging ▼ (lat.) einnig fiskur ► hlössin síðast ► >► hraðara ► Þessi heimabakaða vestfirska krossgáta er snöggtum minni en krossgátan í síðasta blaði. Hún er líka ein af fimm gátum, sem verðlaun verða veitt fyrir í einu lagi. Við viljum ekki fá lausnirnar sendar eina og eina, heldur allar fimm saman í einu lagi þegar þar að kemur. Takið vel eftir því. Safnið því gátunum saman, og sendið okkur (eða komið með til okkar) í einu umslagi þegar búið er að ráða allar fimm. Verðlaunin verða góðl Þau verða tilkynnt síðar. Við gróðursettum ofurlítinn vísi að DAGBÓK í síðasta blaði. Þar eiga að vera upplýsingar um það sem er á döfinni, um fundi, skemmtanir, sýningar og aðrar samkomur, hvenær stofnanir eru opnar, og allt þar fram eftir götun- um. Og auðvitað er þetta ókeypis. Við biðjum lesendur að hringja eða koma og láta okkur fá upplýs- ingar í dagbókina. Ókeypis!

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.