Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 1

Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 1
Áfram BÍ: Stelpurnar fá íslandsmeistarana í heimsókn á laugardag Nú fer boltinn að rúlla, eins og það heitir víst á fagmáli. Stelpurn- ar í ÍBÍ unnu sig upp í fyrstu deild í fyrra, eins og menn muna. Nú í sumar leika þær undir nafni BÍ, en ættu fjárakornið ekki að standa sig verr fyrir það. Andstæðingar ísfirsku stúlkn- anna í fyrsta leiknum í sumar verða ekki af lakara taginu. Það eru íslandsmeistararnir frá því í fyrra, Valsstúlkurnar frá Hlíðar- enda í Reykjavík, sem koma vest- ur og mæta BÍ-stúlkunum á Torf- nesvelli nú á laugardaginn 28. maí kl. 14. Örnólfur Oddsson þjálfar stelp- urnar ísfirsku í sumar, en Jón E. (,,Lambi“) Haraldsson þjálfaði þær tvö síðustu ár með hinum ágætasta árangri. Þess má geta, að tvær stúlkur sem voru á Akureyri sl. sumar og spiluðu þar með KA, þær Sigrún Sigurðardóttir og Stella Hjaltadóttir, leika nú aftur með sínu heimaliði. Allir á völlinn, áfram BÍ (það er eiginlega eins og í-ið hafi týnst framan af ÍBÍ - eða þannig)! Svo byrja strákarnir í bikar- keppninni á miðvikudaginn í næstu viku (1. júní) og fá þá í heimsókn Stjörnuna úr Garðabæ. Áfram BÍ. MB Flosi ÍS vid bryggju í Bolungarvík. Flosi ÍS 15 frá Bolungarvík: Aflahæsti línubáturinn á Vestfjörðum Það verður ekki langt í þúsund tonnin þegar vertínni hjá þeim lýkur um helgina Flosi ÍS hefur komið með um 930 tonn að landi á vertíðinni og mun halda áfram veiðum út þessa viku. Alls er ellefu manna áhöfn á Flosa, fimm á sjó og sex í landi. Ágætt fiskirí hefur verið alla ver- tíðina og steinbítur stór hluti aflans. Þó var nokkuð um þorsk fyrripart vertíðar, og eins hefur þorskafli verið að glæðast nú undir lokin. Jón Egilsson skipstjóri á Flosa sagði að það væri greinilegt að þorskurinn á miðunum nú væri smærri en undanfarin ár, og ástæð- an fyrir því sjálfsagt margvísleg, kaldari sjór og örugglega hefði aukin loðnuveiði sitt að segja. Þrátt fyrir góðan afla taldi Jón að afraksturinn væri ekki mikill fyrir sjómennina og þeir teldu sig ekki halda sínum hlut gagnvart öðrum stéttum. Það yrði að öllum líkind- um erfitt verk að semja um nýtt fiskverð. í sumar verður Flosi gerður út á rækju, eða „rauða gullið" eins og sjómennirnir gjarnan kalla hana. Jón sagði þó að það yrði stöðugt erfiðara fyrir minni og miðlungs- bátana að stunda úthafsrækjuveið- ar, því sífellt þyrfti að sækja á dýpri mið og þar hefðu stóru loðnubátamir og togararnir yfir- höndina. Eins væm þessi stóru skip stöðugt að stækka trollið ár frá ári til að halda sama aflamagni, og geysilegur fjöldi báta væri kom- inn á þessar veiðar. Miðin sagði Jón vera fyrir öllu Norðurlandi, allt vestan frá Hala og austur að Gerpi, og í fyrra hefði verið krökkt af bátum á öllu þessu svæði. / blaðinu í dag: Athugasemdir um varaflugvöll fyrír ísafjarðarflugvöll — sjá bls. 6 og 7 Allt um IBI — sjá bls. 5 Jóhann T. Bjarnason fjallar um sameiningu sveitarfélaga á Vestfjörðum — sjá bls. 4 Skólaslit Mennta- skólans og Iðnskólans — sjá bls. 2 Tónlistarskóla ísafjarðar slitið í fertugasta sinn — sjá umfjöllun á bls. 3 — Vefnaðarvörudeild — Mikið úrval af sumarefnum oa aardínuefnum Reglubundnar ferðir frá Reykjavík 6-7 sinnum í mánuði til Vestfjarða RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.