Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 2
2
I vestfirska ~~l
FRETTABLADIÐ
Vestfirska fréttablaðið kemur út á miðvikudögum. Ritstjórn og auglýs-
ingar: Aðalstræti 35, Isafirði, sími 4011 og 3223. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður: Hlynur Þór Magnússon, heimasími 4446. Auglýsingar: Hans-
ína Garðarsdóttir, heimasími 4057. Útlitsteikning, Ijósmyndari og
blaðamaður: Hörður Kristjánsson. Útgefandi: Grafíktækni h.f., (safirði.
Framkvæmdastjóri: Rögnvaldur Bjamason. Setning, umbrot, filmu-
vinna og prentun: Prentstofan Isrún h.f., Aðalstræti 35, ísafirði. Verð
kr. 70. Lausasala og áskrift.
Ekki á brauði
einu...
Tónlistarfélag ísafjarðar og Tónlistarskóli ísa-
fjarðar eiga fertugsafmæli á þessu ári. í hugum
landsmanna er ísafjörður tónlistarbær, enda hafa
þar löngum starfað ötulir verkamenn í þeim vín-
garði. Jónas Tómasson rak tónlistarskóla á ísa-
firði á öðrum áratug þessarar aldar. Og fyrir fjöru-
tíu árum var Tónlistarfélagið stofnað á heimili
hans. Sama ár kom Ragnar H. Ragnar úr Vestur-
heimi til þess að skipuleggja hinn nýja tónlistar-
skóla á ísafirði og stjóma honum.
Orðstír þessara manna og ávöxtur starfa þeirra
mun ekki deyja, þótt sjálfir séu þeir fallnir. Menn-
ingarstarf þeirra, og allra hinna sem halda merki
þeirra á lofti, gerir Isafjörð að byggðarlagi sem er
annað og miklu meira en bara verstöð.
Pað athugist, að maðurinn lifir ekki á brauði
einu saman.
H
Nýstúdentar frá M.l
sem fengu verðlaun
og viðurkenningar
Við skólaslit MÍ voru ýmsir
nemendur heiðraðir fyrir góða
frammistöðu í einstökum grein-
um, auk þess sem Rögnvaldur
Daði Ingþórsson fékk peninga-
verðlaun úr Aldarafmælissjóði
ísafjarðarkaupstaðar fyrir hæsta
heildareinkunn á stúdentsprófi.
Hér á eftir eru þeir taldir upp sem
verðlaun hlutu:
Dux scholae:
Rögnvaldur Daði Ingþórsson.
íslenska:
Linda Sveinbjörnsdóttir.
Norðurlandamál:
Guðni K. Agústsson og
Rögnvaldur D. Ingþórsson.
Enska:
Rögnvaldur D. Ingþórsson.
Franska:
Linda Sveinbjörnsdóttir og
Heimir G. Hansson.
Þýska:
Margrét Vagnsdóttir.
Saga:
Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir.
Eðlis- og stærðfræði:
Guðmundur Óskarsson.
Náttúrufræði:
Gunnar Örn Kristjánsson.
Hagfræðigreinar:
Margrét Vagnsdóttir og
Linda Kristmannsdóttir.
Fyrir mikið og gott starf að fé-
lagsmálum hlaut Birgir Finnsson
viðurkenningu frá Björnsbúð.
NAMSTILBOÐ!
Að loknum grunnskóla.
HEILSUGÆSLUBRAUT
Markmiðiö er að búa nemendur undir undirbúnings-
störf við hjúkrun á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðv-
um.
Ekki er um verklegt nám að ræða en nemendur fara
í starfskynningu á sjúkrahús. Framhald til stúdents-
prófs er eðlilegast á náttúrufræðibraut.
Námstími er fjórar annir.
Umsóknarfrestur um skólavist er til 10. júní.
NÚPSSKÓLI S 8222 OG 8236.
vestlirska
ÍRiIájiÍ.Í-ITFIt’M
Tvíþætt skólaslit á ísafirði:
Menntaskólinn á ísafirði
orðinn átján vetra
— 246 voru við nám í Menntaskólanum og
Iðnskólanum samanlögðum
Skólahald Menntaskólans á ísafirði og Iðnskóla ísafjarðar var sameinað að miklu leyti síðastUðið haust,
fyrst um sinn í eitt ár til reynslu. í vetur komu alls 246 nemendur við sögu í skólunum báðum, þar með
taldir nemendur í fornámi og öldungadeild. Karlar voru 123 og konur 119, þannig að í heildina hallaðist
naumast á. Kynjum var þó stórlega misskipt milli námsbrauta.
Björn Teitsson skólameistari sleit báðum skólunum í hátíðasal MÍ á Torfnesi á laugardaginn fyrir
hvítasunnu, og brautskráðust þá 27 nýstúdentar frá Menntaskólanum. Sjö luku námi á tveggja ára
viðskiptabraut í MÍ, en þeir geta síðan haldið áfram á hagfræðabraut til stúdentsprófs. Fjórir luku 2.
stigi vélstjórnarnáms í Iðnskólanum, en sex nemendur brautskráðust þaðan með 200 tonna skipstjórn-
arréttindi.
Hæsta einkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegið meðaltal allra einkunna á leiðinni gegnum Menntaskólann,
hlaut Rögnvaldur Daði Ingþórsson, ísafirði, á mála- og samfélagsbraut. Einkunn hans var 8.53. Næst-
hæsta einkunn, 7.83, fékk Margrét Vagnsdóttir, Bolungarvík, á hagfræðabraut, og í þriðja sæti með
einkunnina 7.78 var Linda Kristmannsdóttir, ísafirði, einnig á hagfræðabraut. í fjórða sæti með 7.63 var
Guðmundur Óskarsson, ísafirði, á eðlisfræðibraut.
Hæsta einkunn þeirra sem brautskráðust af tveggja ára viðskiptabraut hlaut Hildur Gylfadóttir, ísafirði.
Af skipstjóraefnum fékk hæsta meðaleinkunn Þorsteinn Gestsson, Súðavík.
í skólaslitaræðu sinni gat Björn
Teitsson skólameistari um breyt-
ingar á starfsliði. Snemma á haust-
önn sagði Axel 'Carlquist starfi
sínu lausu, og þar með hvarf frá
ísafirði sá maður sem lengst hefur
kennt við Menntaskólann á ísa-
firði, eða frá upphafi hans að fyrsta
árinu undanskildu; sextán vetur
alls. Við kennslu í stærðfræði og
eðlisfræði tóku um jól tveir ungir
menn, Lúðvík Ólason og Lárus
Valdimarsson.
Hinn 16. febrúar andaðist
Símon Helgason, aðalkennari í
skipstjórnargreinum, eftir stutta
banalegu. Við kennslu hans tók í
febrúarbyrjun Vilbergur Prebens-
son.
Ekki er búist við því að margir
fastir kennarar hætti störfum í
sumar. Þó er ljóst að Svavar B.
Jónsson þýskukennari lætur nú af
kennslu, og sömuleiðis Snorri
Grímsson, sem kennt hefur bók-
námsgreinar í Iðnskólanum.
Snorri og Arný Herbertsdóttir
kona hans leggja nú einnig niður
húsbóndavöld á heimavistinni.
í ræðu sinni minntist skólameist-
ari þeirra Símonar Helgasonar,
sem fyrr er getið, og Ragnars H.
Ragnar, sem lést á aðfangadag
jóla. Þeir höfðu lengi með höndum
forystu í ísfirskum skólamálum,
hvor á sínu sviði. Gísli Jón
Kristjánsson, fulltrúi nemenda á
skipstjórnarbraut, minntist einnig
Símonar Helgasonar og færði að
gjöf málverk af honum eftir Pétur
Guðmundsson listmálara.
Um áramótin réðst nýr húsvörð-
ur að Menntaskólanum, Astvaldur
Björnsson, en Rúrik Sumarliðason
lét af starfi eftir hálft sjöunda ár,
Nýstúdentarnir 27 frá MÍ komnir út í vorgjóluna eftir útskrift. Fremsta röð frá vinstri: Sigrún Sigurðardóttir,
Erla B. Kristjánsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Jóna Lind Karlsdóttir, Linda Björk Steinþórsdóttir, Sigrún Þorleifs-
dóttir, Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir, Linda Kristmannsdóttir og Bergrós Kjartansdóttir. Miðröð, talið frá
vinstri, byrjað á þeim sem er á bak við aðra stúlku frá vinstri í fremstu röð: Gunnar Örn Kristjánsson,
Guðmundur Óskarsson, Hulda Guðmundsdóttir, Friðgerður G. Ómarsdóttir, Laufey Karlsdóttir, Guðrún
Sigurbjörnsdóttir, Margrét Vagnsdóttir og Linda Sveinbjörnsdóttir. Aftast frá vinstri: Birgir Finnsson, Stefán
Pétursson, Róbert Ásgeirsson, Ólafur M. Birgisson, Gísli Örn Þórólfsson, Heimir G. Hansson, Guðni K.
Ágústsson, Kristinn Þór Kristinsson, Rögnvaldur Daði Ingþórsson og Hafrún Huld Einarsdóttir.
Rögnvaldur Daði Ingþórsson og
Linda Björk Steinþórsdóttir eru
fyrstu stúdentar M.í. sem jafn-
framt hafa verið þar í skíðavalinu
og fengu gripi frá skíðasambandi
íslands til minningar um það.
Rögnvaldur er jafnframt dux
scholae.
og þakkaði skólameistari honum
prýðilega samvinnu.
Fulltrúi tíu ára stúdenta, Bryn-
dís Friðgeirsdóttir, flutti ávarp á
gamla daga í MÍ, og frá sínum ár-
gangi færði hún skólanum að gjöf
peningaupphæð í slaghörpusjóð.
Fyrir utan aðra kosti við að eignast
slíkt hljóðfæri þegar þar að kemur,
þá verður að því mikill léttir fyrir
húsvörð, skólameistara og áfanga-
stjóra Menntaskólans að þurfa
ekki lengur að burðast með láns-
píanó á vettvang við sérhverja
merkisathöfn.
Dux scholae, Rögnvaldur Daði
Ingþórsson, ávarpaði samkomuna
Elísa Elíasdóttir ekkja Símonar
Helgasonar afhjúpar myndina
sem skipstjóranemar gáfu til
minningar um hann. Björn Teits-
son og Gísli Jón Kristjánsson
fylgjast með.
líka, eins og dúxi hlýðir við skóla-
• slit. Fyrir þroska nemenda taldi
hann sjálfa skólavistina, félagslífið
og félagsskapinn í skólanum, fullt
eins mikils virði og lexíurnar.
Hugsun sem virðist nokkuð skyld
þessari, ef vel er að gáð, kom ein-
mitt fram í lokaávarpi skólameist-
ara til nýstúdenta, þegar hann vitn-
aði til orða Aristótelesar: Menn
eiga fremur að reiða sig á athugan-
ir heldur en kenningar, og ekki á
kenningar nema þær hafi verið
staðfestar með rannsóknum.
„Þessi orð hníga að mikilvægi
reynslunnar í heimi okkar", sagði