Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Page 3

Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Page 3
 vestfirska TTABLADID skólameistari. „Hitt er annað, að hver og einn getur ekki orðið sér úti um mjög víðtæka reynslu; til slíks endist ekki ævin.“ Síðan minnti hann á þann fámenna hóp fólks, sem lærir ekki aðeins af eigin reynslu, eigin mistökum, heldur kynnir sér mistök annarra til þess að læra af þeim líka. Meistari kvaðst vonast til að hinir nýju stúd- entar frá Menntaskólanum á ísa- firði yrðu sem flestir í þeim hópi. Á þessu ári eru liðin 40 ár frá stofnun bæði Tónlistarfélagsins og Tónlistarskólans. Afmæli félagsins var 20. maí, en afmæli skólans er 10. október í haust. Núverandi formaður Tónlistarfélags ísafjarð- ar er Bára Einarsdóttir, og kemst hún m.a. svo að orði í dagskrá afmælishátíðarinnar: „Skólastjórahjónin frá stofnun skólans, Ragnar H. Ragnar og Sig- rfður Jónsdóttir, hafa haft allan veg og vanda af starfsemi hans og mótað skólann frá upphafi. Það dylst engum að þar hefur verið lögð alúð við hvert verk og nem- endum og kennurum miðlað af viti og þekkingu, enda skólinn löngum talinn öðrum skólum til fyrirmynd- ar. Sigríður Ragnarsdóttir er nú tekin við stjórn skólans og fetar þar í fótspor foreldra sinna. Tón- listarfélagið er henni þakklátt fyrir að taka á sig þetta erfiða starf og óskar henni og skólanum alls góðs. Það er einlæg von Tónlistarfélags- ins að skólinn haldi áfram að vera sú lyftistöng í menningarlífinu í bænum sem hann hefur verið hing- að til. Tónlistarfélag ísafjarðar var stofnað af áhugamönnum um lista- og menningarmál. Það er á engan hallað þó getið sé eins manns og honum þakkað öðrum fremur. Jónas Tómasson, tónskáld og bók- sali, var aðalhvatamaður að stofn- un Tónlistarfélags ísafjarðar og vann á langri ævi að tónlistar- og menningarmálum á ísafirði. Tón- listarfélagið vill færa honum ein- lægar þakkir og virðingu á þessum tímamótum. Fjölmargir tónleikar eru haldnir á vegum félagsins á hverju ári. Framkvæmd þeirra er öll í höndum framkvæmdastjóra félagsins, sem nú er Jónas Tómasson tónskáld, yngri. Það er einlæg von félagsins að bæjarbúar virði þessa viðleitni félagsins til menningarlegra lífs í bænum.“ Þetta var úr ávarpi Báru Einars- dóttur. Skólastarfið í vetur Fastráðnir kennarar við Tónlist- arskóla ísafjarðar í vetur voru alls níu. Ólöf Jónsdóttir úr Reykjavík tók að sér fiðlukennsluna frá ára- Þá var slegið á létta strengi láns- hörpunnar þungu; Linda Svein- björnsdóttir nýstúdent og Marta Hlín Magnadóttir nemandi í 2. bekk léku fjórhent á píanó tón- verkið Boðið upp í dans eftir Carl Maria von Weber. Síðan voru skólaslit; lokið var 18. ári Menntaskólans á ísafirði. Margir af nemendum skólans eru nú mj ög j afnaldra honum sj álfum. mótum í veikindaforföllum Mariu Kyriakou, og kom vikulega vestur í tvo-þrjá daga í senn, en hverfur nú aftur frá skólanum. Eins mun Jónas Tómasson hætta fastri kennslu við skólann í bili, enda hefur honum verið úthlutað starfs- launum í tólf mánuði til að vinna að tónsmíðum. Ragnar H. Ragnar fékk í fyrsta sinn leyfi frá kennslu vegna veik- inda síðastliðið haust, og hafði hann þá kennt við skólann óslitið í 39 ár. Ragnar andaðist á aðfanga- dag jóla. Stundakennarar í vetur voru sex talsins, og munu þeir flestir halda áfram störfum sínum við skólann. Kennt var á fjórum stöðum í vetur: í húsi Húsmæðraskólans að Austurvegi 11, þar sem megnið af kennslunni fór fram, í Heimavist MÍ, að Dalbraut 1 í Hnífsdal, og að Smiðjugötu 5. í skólaslitaræðu Sigríðar Ragn- arsdóttur kom fram, að alls innrit- uðust 189 nemendur í skólann í vetur, og eru þá meðtaldir nem- endur á námskeiðum í tónmennt og söng. Reglulegt nám á hljóðfæri og í forskóla stunduðu 170 nem- endur, flestir allan veturinn. Sumir voru þó aðeins út haustönnina, en þá byrjuðu aðrir í staðinn. Píanónemendur voru fjöl- mennastir eða 80 talsins, 18 nem- endur á fiðlu og selló innrituðust, gítarnemendur voru 12, en nem- endur á blásturshljóðfæri voru 28. Nemendur í forskólanum voru 26, og þátttakendur í blokkflautu- kennslu á vorönn voru 8. Söhg- námskeið var haldið í mars með 11 þátttakendum, og komust færri að en vildu. Nokkrir sóttu eingöngu tónfræðitíma einu sinni í viku, en stunduðu annars ekki hljóðfæra- nám við skólann. Tónleikahald í skólanum var að venju öflugt í vetur, en auk sér- stakra tónleika á vegum skólans komu nemendur að sjálfsögðu oft fram utan hans. Einkum er þar að geta góðs samstarfs milli skólans og ísafjarðarkirkju, en nemendur komu margsinnis fram við ýmsar kirkjuathafnir í vetur. Barnakórinn er síðan sérstakur kapítuli í vetrarstarfinu. Hann tók þátt í tónleikum skólans fyrir jól og um miðjan vetur, auk aðventu- kvölds í kirkjunni, en frá því í byrj- un mars var það óperan Eldmærin sem átti hug hans og krafta. Hún var sýnd fimm sinnum við fádæma góðar undirtektir samtals hátt á níunda hundrað gesta. Stjórnandi barnakórsins er Beáta Joó. Húsnæðismálin Varðandi eigið húsnæði Tónlist- arskólans er það að segja, að bæjarstjóm ísafjarðar og mennta- málaráðherra staðfestu lóðarút- hlutun í júlí 1984, og tók Ragnar H. Ragnar fyrstu skóflustunguna að skólahúsnæði á Torfnesi 8. júní 1985. f framhaldi af því voru bygg- ingarframkvæmdir hafnar og botnplata steypt. Talsvert fé hefur þegar safnast í byggingarsjóð skólans. Eigi að síður varð fljótlega ljóst eftir að framkvæmdir hófust, að nægilegur stuðningur fengist ekki frá opin- berum aðilum til að halda fram- kvæmdum áfram með eðlilegum hætti. Þó var unnið markvisst að framgangi málsins, og það leiddi til þess að gerður var í maí í fyrra samstarfssamningur við bæjar- stjórn ísafjarðar um byggingu skólahúss fyrir Tónlistarskóla ísa- fjarðar á Torfnesi. Samningurinn gerir ráð fyrir því að Tónlistarfélag Isafjarðar og ísafjarðarkaupstaður standi saman að byggingu skóla- hússins og greiði hvor aðili helm- ing kostnaðar. f samningnum er gert ráð fyrir því að skólahúsið verði tekið í notkun eigi síðan en árið 1994. Upphaf Tónlistarféiags ísafjarðar Stofnfundur Tónlistarfélags ísa- fjarðar var haldinn á heimili Jónas- ar Tómassonar tónskálds og bók- sala 20. maí 1948 og voru þessir stofnfélagar: Elías J. Pálsson kaupmaður, Gísli Kristjánsson sundhallarstjóri, Halldór Hall- dórsson bankastjóri, Jóhann Gunnar Ólafsson bæjarfógeti, Jón Jónsson frá Hvanná skrifstofu- maður, Jónas Tómasson bóksali, Kristján H. Jónsson hafnsögumað- ur, Kristján Tryggvason klæð- skerameistari, Ólafur Magnússon framkvæmdastjóri, séra Óli Ketils- son fyrrv. sóknarprestur, Páll Jónsson verslunarmaður, og Sig- urður J. Dahlmann símstjóri. Allir stofnendur félagsins eru nú látnir nema Ólafur Magnússon. Á stofnfundi félagsins var ák- veðið að félagar skyldu vera tóíf, og hélst sú skipan til 17. nóv. 1982, en þá var samþykkt á framhaldsað- alfundi að opna félagið öllu áhuga- fólki um tónlistarmál. í kjölfar þeirrar samþykktar gengu 60 nýir félagar í Tónlistarfélagið. Forsvarsmenn félagsins Fyrsti formaður Tónlistarfélags- ins var kosinn Jóhann Gunnar Ólafsson. Fyrsti framkvæmda- stjóri þess var Páll Jónsson, og gegndi hann því starfi uns hann fluttist til Reykjavíkur árið 1951. Næstu árin var enginn fram- kvæmdastjóri starfandi, en árið 1963 var Ragnar H. Ragnar ráðinn framkvæmdastjóri Tónlistarfélags ísafjarðar. Hann gegndi því starfi til ársins 1983, þegar Jónas Tómas- son tónskáld tók við. Á 40 ára starfsferli félagsins hafa eftirtaldir gegnt formennsku: Jóhann Gunnar Ólafsson 1948-49 og aftur 1963-65 Halldór Halldórsson 1949-50 Kristján Tryggvason 1950-51 og aftur 1965-68 Bjami Guðbjömsson 1951-55 og aftur 1968-71 Sigurður Jónsson 1955-63 Gunnlaugur Jónasson 1971-82 Högni Þórðarson 1982-85 Pétur Kr. Hafstein 1985-87 Bára Einarsdóttir 1987- Núverandi stjórn Tónlistarfé- lagsins skipa: Bára Einarsdóttir formaður, Jóhann Hinriksson varaformaður, Einar Ingvarsson ritari, Gunnlaugur Jónasson gjald- keri, og Sigríður J. Ragnar með- stjómandi. Tónlistarskólinn Á árunum 1911-18 starfrækti Jónas Tómasson, tónskáld og bók- sali, tónlistarskóla á ísafirði, og mun það hafa verið fyrsta skipu- lagða starfsemi tónlistarskóla hér álandi. Var það alltafætlun Jónas- ar að endurvekja þessa starfsemi til nýs lífs. Haustið 1948 varð sú ætlun hans að veruleika, þegar Tónlistarfélag- ið réð hingað vestan um haf Ragn- ar H. Ragnar tónlistarmann til að skipuleggja og stjórna tónlistar- skóla á ísafirði. Á 40 ára starfsferli hefur skólinn haft á að skipa fjölda kennara í ýmsum greinum tónmennta. RagnarH. Ragnar var aðalkennari skólans lengst af, kenndi við hann allt til haustsins 1987, og stjórnaði skólanum frá upphafi og til hausts- ins 1984. Þá tók við stjórn skólans Sigríður Ragnarsdóttir, núverandi skólastjóri. Skólanefnd skipa nú Kristján Haraldsson formaður, Gunnar Jónsson og Sigurður Jónsson. Tónlistarfélag og Tónlistarskóli ísafjarðar: Afmælishátíð og skólaslit —rifjuð upp nokkur atriði úr 40 ára sögu Það var mikið um dýrðir á ísafirði laugardaginn fyrir hvítasunnu. Ekki var fyrr lokið brautskráningu nýstúdenta og slitum Iðnskóla og Menntaskóla, en Tónlistarfélag Isafjarðar og Tónlistarskóli ísafjarðar héldu afmælishátíð og skólaslit í hátíðasal Grunnskólans. Þar var söngur og fjölbreyttur hljóðfærasláttur, eins og vænta mátti, verðlaun voru afhent og ávörp flutt. Síðan var sest að kaffidrykkju í húsakynnum skólans að Austurvegi 11, og þar var jafnframt opnuð sýning á svip- myndum úr starfi skólans og félagsins á liðnum áratugum. 3 [fasteTgna-] ; VIÐSKIPTI ; I ÍSAFJÖRÐUR: ■ Brautarholt 14,160 fm einbýlis- ■ I hús ásamt bflskúr. Laust eftir 3 I I mánuði. J Hlíðarvegur 16, efrihæð. Suður- jj J endi, 3ja herb. íbúð. ■ Bakkavegur 27,2x129 fm einbýi- | I ishús. Laust eftir samkomutagi. | | Hafraholt 28, raðhús. i húsinu I | eru m.a. 4 svefnherb. Getur losn- | | aðfljótlega. | Túngata 7. Einbýlishús ásamt | | bílskúr. Getur losnað fljótlega. | I Fjarðarstræti 19. 120 fm efri I I hæð í tvíbýlishúsi ásamt bíl- I I geymslu. J Sundstræti 25, 3ja herb. íbúð á ! J l.hæð. J ■ Túngata 13. 2ja herb. kjallara- ■ I íbúð. I Sundstræti 29. 2ja herb. íbúð á | | 2. hæð I fjórbýlishúsi. | ■ Smiðjugata 10,4ra herb. íbúð. ■ | Stórholt 13, 4ra herb. fbúð á 3ju . ! hæð ásamt bílskúr. | Sundstræti 27, 3ja herb. íbúð á j | 1. hæð. Laus. | I Sundstrætl 35b. Lítið einbýlis- I | hús. Selst ódýrt. Laust fljótlega. I Tangagata 26. Fallegt einbýlts- ■ I hús t góðu standi. Elgnarlóð. Get- ■ I ur losnað fljótlega. J j Aðalstræti 26A. 3-4 herbergja j | íbúð. ■ Litlabýli vlð Seljalandsveg, lítið I J einbýlishús. Laust 1. júní. I | Engjavegur 33, 2ja herb. íbúð á ■ | n.h. Laus fljótlega. I Stórholt 11, 4ra herb. íbúð á 2. ■ I hæð ásamt bilgeymslu. Getur J I losnað fljótlega. | | Seljalandsvegur 30, 175 ferm. | | einbýlishús með innbyggðum | j bílskúr. 4 svefnherbergi. Húsið er | | í góðu ástandi. Veðbandalaust. | I Stórholt13,3ja herbergja ibúð á I I 1. hæð. Laus eftirsamkomulagi. I | MJallargata 6, 4ra herb. íbúð á ■ efrt hæð í suðurenda. ■ Sólgata 5, 3 herb. ibúð. Laus J J fljótlega. | | Sundstræti 24, 2ja herb. ibúð á | | l.hæð. I BOLUNGARVÍK: | Stlgahlíð 4, 2ja herb. ibúð á | | jarðhæð. | I Heiðarbrún 1. Einbýlishús á I I tveim hæðum. Um 200 ferm. I Hjallastræti 20. Rúmlega 100 ■ ■ ferm. einbýlishús ásamt bilskúr. ■ ■ Hjallastræti 18,120 fm einbýlis- J hús ásamt bílskúr. | Stigahlíð 4, 3 herb. endaibúð á | | 3. hæð. ■ Hafnargata 110. Tæplega 100 I ferm. álklætt einbýlishús. I Skólastígur 20, 5 herb. íbúð á ! tveimur hæðum í parhúsi. SUMARBUSTAÐUR 75 ferm. sumarbústaður f ■ Heydal f Mjóaflrði. ARNARGEIR j ŒNRIKSS0N,hdL! Silfurtorgi 1, \ ísafirði, sími 4144 ■ I Ósk á ísafirði: Afmælisblað um75árasögu húsmæðra- skólans Húsmæðraskólinn Ósk á ísafirði er 75 ára um þessar mundir. Af því tilefni er nú að koma út sér- stakt afmælisblað á vegum nem- endasambands skólans. í blaðinu er fjölbreytt efni, viðtöl, greinar og garnlar myndir úr sögu skólans. Blaðið verður selt í lausasölu á ísafirði og Bolungar- vík. Auk þess er hægt að panta blaðið á afgreiðslu þess að Hafnar- stræti 14 á ísafirði, sími 4262', og fá það sent hvert á land sem er.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.