Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 4
4___________________
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Jóhann T. Bjarnason:
Um sameiningu
sveitarfélaga á
Vestfjörðum
Hinn 18. apríl 1986 tóku gildi lög nr. 8/1986, sveitarstjórnarlög.
Fimmta grein þeirra hljóðar svo: „Lágmarksíbúatala sveitarfélags
er 50 íbúar. Nú hefur íbúafjöldi sveitarfélags verið lægri en 50 í þrjú
ár samfleytt og skal ráðuneytið þá eiga frumkvæði aðþvi að sameina
það nágrannasveitarfélagi. Einnig má skipta hinu fámenna sveitar-
félagi milli nágrannasveitarfélaga. - Undantekningu frá þessu
ákvæði skal gera ef sérstakar aðstæður hindra það að mati ráðu-
neytisins að íbúar hins fámenna sveitarfélags geti myndað félags-
lega heild með íbúum nágrannasveitarféiaga."
Við gildistöku laganna voru 32 sveitarfélög í Vestfjarðakjördæmi.
Þar af voru 8 með færri en 50 íbúa hvert, og féllu því undir 5. gr.
laganna, þar sem félagsmálaráðuneytinu er gert skylt að hafa frum-
kvæði að sameiningu. Það fer svo eftir mati á landfræðilegum og
samgöngulegum aðstæðum, hvort einhver af þessum 8 sveitarfé-
lögum geta fallið undir undanþáguákvæðið um sameiningu.
Pau 8 sveitarfélög, þar sem íbú-
ar voru færri en 50, voru þessi:
í Austur-Barðastrandarsýslu:
Gufudalshreppur, Múlahreppur
og Flateyjarhreppur.
f Vestur-Barðastrandarsýslu:
Ketildalahreppur.
í Vestur-ísafjarðarsýslu: Auð-
kúluhreppur.
í Norður-ísafjarðarsýslu: Ögur-
hreppur og Snæfjallahreppur.
í Strandasýslu: Hrófbergs-
hreppur.
Sameinað á þremur stöðum í
fyrra
Frá gildistöku laganna hafa
sveitarfélög í Vestfjarðakjördæmi
verið sameinuð sem hér greinir:
a) Hrófbergshreppur og Hólma-
víkurhreppur, með gildistöku 1.
janúar 1987, undir nafni Hólma-
víkurhrepps. Þar var um frjálsa
sameiningu að ræða. Beiðni þar
um kom frá hreppsnefnd Hróf-
bergshrepps. Sú beiðni var sam-
þykkt í almennri atkvæðagreiðslu
í báðum sveitarfélögunum. Við
sameininguna var ekki efnt til
sveitarstjórnarkosninga. Fráfar-
andi hreppsnefnd í Hrófbergs-
hreppi óskaði ekki eftir að kosn-
ingar færu fram.
b) Hinn 1. júlí 1987 sameinuðust
Ketildalahreppur og Suðurfjarð-
ahreppur undir nýju nafni, Bíldu-
dalshreppur. Þar var ekki kosið til
nýrrar hreppsnefndar við samein-
inguna.
c) Hinn 1. júlí 1987 runnusaman
í eitt sveitarfélag öll hreppsfélögin
í Austur-Barðastrandarsýslu. Þau
.voru: Geiradalshreppur, Reyk-
hólahreppur, Gufudalshreppur,
Múlahreppur og Flateyjarhrepp-
ur. Sameiningin átti sér talsverðan
aðdraganda, enda hafði ekki áður
verið ráðist í svo umfangsmikla
sameiningu hér á landi, svo vitað
sé, að heilt sýslufélag yrði eitt
sveitarfélag. Við almenna at-
kvæðagreiðslu kom fram mjög ein-
dreginn vilji til sameiningarinnar.
Nokkiirt umstang varð við að velja
hinu nýja sveitarfélagi nafn. Við
hugmyndasamkeppni komu fram
yfir 20 tillögur. Eins konar útslátt-
arkosning fór fram um tillögurnar.
Niðurstaðan varð sú, að hið nýja
sveitarfélag heitir Reykhólahrepp-
ur. Kosin var ný sveitarstjórn og
ráðinn sveitarstjóri.
Þrír hreppar eftir með færri en
50 íbúa
Nokkru er ennþá ólokið af svo-
kallaðri lögskipaðri sameiningu
sveitarfélaga hér á Vestfjörðum.
Þannig hefur engin formleg um-
ræða farið fram um sameiningu
Auðkúluhrepps við aðliggjandi
hreppa, en þeir eru Bíldudals-
hreppur í V.-Barðastrandarsýslu
og Þingyerarhrepur í V,- ísafjarð-
arsýslu. Félagsmálaráðuneytið
hefur skipað nefnd sem á að vinna
að málinu. Nefndin hefur ekki lok-
ið störfum. Oddviti Auðkúlu-
hrepps telur ljóst að erfiðar sam-
göngur torveldi mjög að hreppur-
inn verði sameinaður öðru sveitar-
félagi.
Svo sem um var getið hér að
framan, hvílir sameiningarskylda
á tveimur hreppum í Norður-ísa-
fjarðarsýslu, Ögurhreppi og
Snæfjallahreppi Að störfum er
nefnd, sem kosin var á sameigin-
legum fundi hreppsnefndarmanna
í fjórum hreppum í Inn-Djúpi,
sem hefur að verkefni að kanna
möguleika á frjálsri sameiningu
þessara fjögurra hreppa, áður en
til skyldusameiningar hinna
tveggja áðurgreindu hreppa kæmi.
Ráðgerð er í sumar allsherjar at-
kvæðagreiðsla um hvort vilji sé fyr-
ir hendi að sameina þessa fjóra
hreppa, þ.e. Snæfjallahrepp,
Nauteyrarhrepp, Reykjarfjarðar-
hrepp og Ögurhrepp, í eitt sveitar-
félag. Verði niðurstaðan jákvæð,
munu þeir væntanlega renna sam-
an í eitt sveitarfélag. Fari svo,
verða sveitarfélögin í N.-ísafjarð-
arsýslu aðeins tvö, því að sögn
sveitarstjórans í Súðavík hefur
ekki verið rætt um sameiningu
Súðavíkurhrepps við áðurgreinda
sveitahreppa í Djúpinu.
Um þessar mundir eru sveitar-
félögin í Vestfjarðakjördæmi 26,
en voru 32 við gildistöku sveitar-
stjómarlaganna eins og áður var
greint frá.
vestfirska
TTABLAÐID
Vetrarmynd fri Reykhólum. Myndin er tekin á veginum sem liggur niður í Þörungavinnslu. Vlð Helllshólana
vinstra megin eru gamla læknishúsið og prestshúsið, en uppi á bæjarhólnum eru Reykhólakirkja og gamla
íbúðarhúsið. Hægra megin eru Reykhólaskóli og framan við hann meginhluti hinnar nýlegri byggðarþorpsins
við Hellisbraut og Reykjabraut.
Snjóinn á myndinni hefur tekið upp og förin eru horfin. Eins og öll spor gera reyndar með timanum.
Hugsanlegt að sameina í fleiri
tilvikum
Vissulega er hægt að hugsa sér
enn frekari sameiningu en rakin
var hér á undan. Rauðasands-
hreppur og Patrekshreppur voru
t.d. áður eitt sveitarfélag. Hét þá
Rauðasandshreppur.
Ráðgerð brú á Dýrafjörð gæti
orðið til þess að auðvelda samein-
ingu Þingeyrarhrepps og Mýr-
ahrepps. Það hefur verið rætt
manna á milli en ekki ennþá komið
til formlegra umræðna í hrepps-
nefndunum svo vitað sé.
í hreppsnefnd Flateyrarhrepps
er vilji fyrir viðræðum við hrepps-
nefnd Mosvallahrepps um nánara
samstarf eða sameiningu.
Vissulega geta Súðvíkingar átt
samleið með Djúphreppunum eða
(væntanlegum/hugsanlegum) sam-
eiginlegum hreppi.
I Strandasýslu mætti hugsa sér
sameiningu Kirkjubólshrepps og
Hólmavíkurhrepps. Með þeim
hreppum er allmikil samvinna.
Það hefur ekki verið rætt form-
lega, þótt hugmyndinni hafi verið
hreyft manna á milli.
Fellshreppur og Óspakseyrar-
hreppur hafa gott samstarf sín á
milli og gætu samgangna vegna
hæglega sameinast, hugsanlega
einnig með Bæjarhreppi. Ekkert
er samt á döfinni varðandi slíka
sameiningu nú um stundir.
Niðurlag
Að sameina sveitarfélög er við-
kvæmt mál. Það tekur tíma að
koma slíku í kring. Þess vegna er
lögboðnu verkefni í því efni ekki
ennþá lokið.
Að sameiningarmálunum hér á
Vestfjörðum hafa unnið viðkom-
andi sýslumenn, Samband ísl.
sveitarfélaga, Fjórðungssamband-
ið og viðkomandi sveitarstjórnar-
menn, auk félagsmálaráðuneytis-
ins. Samstarf þessara aðila hefur
verið mjög gott.
Samkvæmt heimild í fyrrgreind-
um lögum hefur félagsmálaráðu-
neytið veitt mikilsverðan stuðning.
Þar á meðal bein fjárframlög úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, eink-
um í Reykhólahreppi, þar sem lof-
að er greiðslu á verulegum hluta af
launum sveitarstjóra fyrstu árin
eftir sameiningu. Leyst var úr
greiðsluþröng Reykhólahrepps
hins eldra og greitt fyrir fjármagni
til byggingar dvalarheimilis ald-
raðra, en framkvæmdir við það
höfðu stöðvast vegna fjárskorts.
Hitt á svo við í öllum tilvikum,
að ég held, að ráðuneytið hefur
ráðið til þess með vilja og ósk
heimamanna löggiltan endurskoð-
anda til að gera upp reikninga
þeirra sveitarfélaga sem sameinast
hafa, og einnig til að steypa saman
bókhaldi og fjárreiðum og til að
setja upp nýtt bókhald fyrir hið
samcinaða sveitarfélag. Allan
kostnað af þessu starfi hefur ráðu-
neytið greitt.
Menn getur greint á um, hvað
ávinnst við sameiningu sveitarfé-
laga. Svo kann að vera, að ávinn-
ingurinn sé ekki alltaf augljós. Ég
hygg að engum blandist þó hugur
um, að sameining ísafjarðarkaup-
staðar og Eyrarhrepps hefur sann-
að ágæti sitt. Hitt getur heldureng-
um blandast hugur um, að þar sem
fámenni er orðið slíkt, að stefnir í
að vart er hægt að finna nægilega
marga til að sitja sem aðalmenn og
varamenn í hreppsnefnd, verður
vart komist hjá sameiningu, því
ætla verður að ýmsum sé það óljúft
að kjósa til hreppsnefndar fólk
sem það telur sér andstætt í skoð-
unum, hvort sem það er í málefna-
legum eða pólitískum efnum.
Það var mikil mildi að ekki yrði
stórslys á Óshlíðarvegi að kvöldi
hvítasunnudags þegar bíll sem leið
átti þar um varð fyrir grjóthruni.
Það voru hjónin Sigurvin Guð-
mundsson og Guðdís Guðmunds-
dóttir frá Ingjaldssandi sem lentu
í þessari óskemmtilegu reynslu.
Þau eru nú búsett á ísafirði og voru
að koma úr fermingarveislu í Bol-
ungarvík. Þegar bíll þeirra hjóna
var kominn að stað rétt utanvið
svokallað Hald á Óshlíðarvegi,
skipti það engum togum að grjóti
fór að rigna yfir bílinn og átti
Sigurvin fullt í fangi með að hafa
Erindi þetta flutti Jóhann T.
Bjarnason framkvœmdastjóri
Fjórðungssambands Vestfirðinga
ú hádegisverðarfundi Rótarý-
klúbbs ísafjarðar 19. maí síðastlið-
inn. Hann varð góðfúslega við
beiðni Vestfirska fréttablaðsins um
að fá að birta erindið.
stjórn á honum. Ljóst þykir að
ekki hafi munað nema hársbreidd
að illa hefði farið því bæði fór grjót
í gegnum þak bílsins rétt aftan við
framsætin og eins lenti stór steinn
á stuðara og vinstra frambretti.
Þrátt fyrir grjóthrunið tókst
Sigurvin að aka bíl sínum í var
undir vegsvölum sem eru þarna
nokkru innar og fékk fljótlega að-
stoð frá ungum Bolvíking sem kom
þar að skömmu síðar. Ekki töldu
þau hjón sér hafa orðið meint af
þessu utan eymsla í hálsi og þökk-
uðu forsjóninni fyrir að ekki skylöi
ver fara.
Grjóthrun á bíl
á Oshlíðarvegi