Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Qupperneq 5

Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Qupperneq 5
 vesttirska TTABLASID Knattspyrnuráð ísafjarðar: Skiptafundur í þrotabúinu á morgun Karlaliðið keppir í nafni Badminton- félags ísafjarðar í 4. deild í sumar. Félagsstofnun á döfinni. Haldið verður áfram að greiða niður skuldahalann. Enginn maður fæst til starfa í knattspyrnuráði. Fjárhagsvandi Knattspyrnu- ráðs ísafjarðar hefur oft verið til umræðu á síðustu misserum. Nú áföstudaginn, 27. maí, hefur verið boðað til skiptafundar í þrotabúi ráðsins. Kjörtími ráðsmanna er löngu útrunninn, og engir fást í staðinn. ísfirskir knattspyrnumenn munu ekki leika undir merki ÍBÍ í sumar, heldur í nafni Badmintonfélags ísafjarðar (BÍ). Strákarnir sem féllu úr annarri í þriðju deild í fyrra leika nú í fjórðu deild, en stelpurnar verða í fyrstu deild sem þær unnu sig upp í sl. sumar. Hvað er að gerast? Sá orðrómur hefur heyrst, að ætlunin hafi verið að setja ráðið á hausinn og losna þannig á billegan hátt undan skuldafarginu, og séu tilfæringarnar með Badmintonfé- lagið liður í þeirri fléttu. Knatt- spyrnuráðsmenn sem Vestfirska hefur rætt við segja hins vegar að slíkt sé tilhæfulaust með öllu. Ekki komi neitt annað til greina, og hafi aldrei gert, en að halda áfram að berjast við að ná niður skuldunum. Og störf ráðsins og frammistaða í þeirri baráttu síðustu árin benda hreint ekki til annars en þetta sé rétt. Vegna neyðarástandsins í fjár- málum knattspyrnuráðs voru nokkrir ísfirskir „þungavigtar- menn“ fengnir til þess fyrir tveim- ur og hálfu ári að taka sæti í ráðinu, til þess fyrst og fremst að reyna að bjarga málunum, afla fjár og ráða bót á því ófremdarástandi sem ríkti. Þeir sjö menn sem átt hafa sæti í ráðinu frá þeim tíma eru Tryggvi Sigtryggsson, formaður, Gestur Halldórsson, Kristján Jó- hannsson, Jens Kristmannsson, Eiríkur Böðvarsson, Sturla Hall- dórsson og Kristján K. Jónasson, en hann hefur einkum verið í forsvari í fjárhagsmálunum. Þessir menn voru kosnir til tveggja ára. Aðalfundur og fram- haldsaðalfundur ráðsins var hald- inn í febrúar og reikningar voru lagðir fram. Og þá átti' að kjósa nýja menn, en það var ekki hægt því að enginn gaf kost á sér. Sumir hinna gömlu ráðsmanna eru nú hættir störfum, en aðrir eru enn að puða. Þegar fyrrnefndir ráðsmenn tóku við fyrir tveimur og hálfu ári, þá voru fyrstu upplýsingar sem þeir fengu þess efnis að skuldir ráðsins væru um 2,7 milljónir króna, auk vaxta. Þegar allt var saman talið, reyndust þær þó hafa verið nokkuð á sjöttu milljón, sumar nýlegar, sumar orðnar hátt í tveggja ára gamlar. Og þegar búið var að bókfæra vexti, kom í ljós að bagginn sem hið nýja knatt- spyrnuráð tók við var samtals hátt á áttundu milljón. Skuldir þessar voru við marga tugi aðila, stórar og smáar. Sú upphæð væri að lík- indum komin í einar 14 milljónir í dag, með vöxtum og kostnaði, ef ekkert hefði verið gert í málinu síðan. Ráðsmenn settu það markmið að koma skuldunum út úr heimin- um á fimm árum. Fyrst einbeittu þeir sér að því að koma í veg fyrir að gengið yrði að einstaklingum sem voru í ábyrgðum. Öllu slíku hefur tekist að bjarga hingað til, með greiðslum og ýmiskonar samningum. Nú er orðið lítið um slíkar ábyrgðir. Töluvert af skuldum er orðið að föstum lánum hjá bönkunum á ísafirði, og er þar íþróttabandalag ísafjarðar ábyrgðaraðili, en fyrir sumu er bæjarsjóður í ábyrgð. Auk annarr- ar fjáröflunar hafa sumir ráðs- menn lagt fram stórar upphæðir sjálfir. Vaxtakostnaður í landinu hefur hækkað gífurlega síðustu tvö árin, 5 og hefur það gert strik í reikning- inn. T.d. greiddi ráðið yfir hálfa aðra milljón í vexti á síðasta ári, en þá nam fjáröflun þess alls um 4,5 milljónum króna. En á móti hefur komið töluvert af peningum úr Lottóinu, eftir að það var stofnað. í samtali við Vestfirska frétta- blaðið sagðist Kristján K. Jónas- son telja að upphafleg fimm ára áætlun um að vinna niður skuldirn- ar ætti að standast, þannig að inn- an þriggja ára yrði búið að ganga frá þessu máli til fulls. Hins vegar sagðist Kristján ekki sjá hvernig þeir félagar gætu losn- að út úr ráðinu, þegar engir fenpjust til að taka við. A sínum tíma voru tveir aðilar sem ráðið skuldaði sem fóru í hart. Þær skuldir voru að stofni samtals innan við þrjú hundruð þúsund. Að sögn ráðsmanna var það fyrir athugunarleysi að ekki var mætt af þeirra hálfu á auglýst uppboð, og fór því svo í desember sl. að ráðið var lýst gjaldþrota, þar sem eignir þess eru engar. Skiptafundur er síðan á morgun, eins og fyrr segir. Kristján segir að þessi málatilbún- aður allur svo og eignaleysi ráðsins hafi engin áhrif á þau áform að standa við skuldbindingar þess. En hvers vegna Badmintonfélag ísafjarðar? Alllangt er síðan farið var að ræða það, að félag og félags- andi þyrfti að vera að baki knatt- spyrnuliðunum, en ekki bara eitt- hvert ráð. Nauðsynlegt væri líka að starfið dreifðist á fleiri herðar. Á bandalagsþingi ÍBÍ í vetur var þetta rætt, og ákveðið að stefna að stofnun félags. Þinghaldi var síðan frestað og átti að koma aftur sam- an í apríl, en undirbúningsnefnd falið að starfa á meðan. Ekkert hefur hins vegar gerst enn, og þing- ið er ókomið saman til framhalds- fundar. Þegar dró nær knatt- spyrnuvertíðinni var hins vegar að hrökkva eða stökkva í þessu máli, og var gripið til þess til bráða- birgða að keppa undir merki BÍ. Þetta á ekkert skylt við neinar til- raunir til þess að hlaupa frá hinum gömlu skuldum knattspyrnuráðs, enda kom á bandalagsþingi ÍBÍ í vetur fram eindreginn vilji til þess að ljúka skuldunum á mannsæm- andi hátt ( n s' 1 O j A C. •/ C* A( •K AC 'L \3TT—7 * V-7VN / /\ \ (&Hk 199* Um hvítasunnuna þræddi ég allar mögulegar og ómögulegar veislur til að lifa af fram að jólum. Þá mundi ég allt í einu eftir af- mælisveislunni hans Sigga frænda daginn eftir!!! I vestfirska ~l FHETTABLADID Þegar þú kemur suður, þá tekur þú við bílnum frá okkur á Reykjavíkurflugvelli. Svo skilur þú hann eftir á sama stað, þegar þú ferð. ^ GEYSIR Car rental BORGARTUNI 24 — REYKJAVÍK — SÍMI 11015 NAMSTILBOÐ! Að loknum grunnskóla. TÆKNIBRAUT (fyrri hluti) Markmið námsins er að búa nemendur til náms í iðnfræði í Tækniskóla íslands og náms við Fisk- vinnsluskóla fslands. Námstími er fjórar annir. Umsóknarfrestur um skólavist er til 10. júní. NÚPSSKÓLI S 8222 OG 8236.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.