Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 6
6
Isafjarðarkaupstaður
Auglýsing frá hreinsunarnefnd
ísfirðingar. Við minnum á hreinsunarátakið
helgina 28. og 29. maí nk. Mæting við áhalda-
hús bæjarins kl. 10.00 þann 28. maí.
Aformað er að hreinsa opin svæði í kaup-
staðnum.
Hreinsunamefnd.
NÚPSSKÓLI AUGLÝSIR
NÁMSTILBOÐ ‘88 - ‘89
— 9. bekkur
— Fornám
— Heilsugæslubraut
— Þjálfunarbraut
— Viðskiptabraut
— Tæknibraut
Umsóknarfrestur um skólavist er til 10. júní.
UPPLÝSINGAR í S 8222 EÐA 8236
SKÓLASTJÓRI.
MENNTASKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
PÓSTHÓLF 97 — 400 ÍSAFIRÐI
Frá Menntaskólanum
og Iðnskólanum á ísafirði.
Innritún nýrra nemenda skólaárið 1988-1989
er nú hafin. Boðið er upp á eftirtálið nám:
Almennt bóknám, sem síðan leiðir til
stúdentsprófs eftir 4 ár af eðlisfræðibraut,
mála- og samfélagsbraut, náttúrufræði-
braut eða tónlistarbraut.
Skíðaval, til stúdentsprófs, ætlað efnilegu
skíðafólki, tengist almennu bóknámi fyrsta
árið.
Viðskiptabraut, 2ja ára. Áframhald er til
stúdentsprófs af hagfræðibraut.
Tæknibraut, til stúdentsprófs.
Heilsugæslubraut, 2ja ára, áframhald á
náttúrufræðibraut.
Skipstjórnarbraut, eitt ár, 1. stig, 200
tonna réttindi.
Vélstjórnarbraut, eitt ár, 1. og 2. stig.
Almennt iðnnám, þ-e. bóklegi hlutinn.
Grunndeild rafiðna, eitt ár.
Rafvirkjun, annað ár eftir grunndeild raf-
iðna.
Rafeindavirkjun, annað ár eftir grunn-
deild rafiðna.
Aðrar iðngreinar, bóklegt sémám, eftir
því sem við verður komið.
Tækniteiknun.
Fornám framhaldsskóla, væntanlega eins
vetrar nám.
Öldungardeildarnám. Þeir sem vilja hefja
nám á 1. ári í haust láti vita hið fyrsta.
Öllum umsóknum væntanlegra nýnema um
skólavist skal skilað til skrifstofu Mennta-
skólans á ísafirði, Torfnesi, ísafirði, fyrir 10.
júní n.k. Umsóknareyðublöð fást þar og í
gmnnskólum.
Skólameistarí.
SAMGÖNGUMÁL
Varaflugvöllur fyrir ísafjörð:
„Flugvöllurinn við Þingeyri
eini kosturinn sem vit er í“
Sigmundur Þórðarson á Þingeyri gerir athugasemdir við
ummæli umdæmisstjóra Flugleiða um varaflugvöll í
Önundarfirði
í áramótahefti tímaritsins Við sem fljúgum sl. vetur birtist stutt viðtal við Arnór Jónatansson, umdæmis-
stjóra Flugleiða á ísafirði, undir fyrirsögninni Okkur vantar varaflugvöll. Vegna ummæla sem höfð eru
eftir Arnóri íþessu viðtali, um að flugvöllurinn við Holt í Onundarfirði sé besti kosturinn sem varavöllur
fyrir ísafjarðarflugvöll, kom Sigmundur Þórðarson á Þingeyri að máli við Vestfirska fréttablaðið og
kvaðst vilja gera alvarlegar athugasemdir við málflutning umdæmisstjórans. Sigmundur hafði ýmis
gögn meðferðis máli sínu til stuðnings, og sagði að það væri eindregin skoðun sérfræðinga, að
einungis Þingeyrarflugvöllur kæmi til greina sem varavöllur fyrir ísafjörð, bæði af landfræðilegum og
veðurfræðilegum ástæðum. Slæmu áttirnar á ísafirði væru einnig slæmar á flugvellinum við Holt í
Önundarfirði, en þá gegndi öðru máli á flugvellinum í Dýrafirði. Sigmundur lagðijafnframt mikla áherslu
á nauðsyn þess að hin fyrirhugaða brú á Dýrafjörð yrði gerð sem allra fyrst. Snjóþungt er í botni
Dýrafjarðar, þar er veðravíti og oft erfið færð á vetrum. Sá farartálmi yrði úr sögunni með brúargerð
við Lambadalsodda, en auk þess mundi leiðin milli ísafjarðar og Þingeyrarflugvallar styttast um 13
kílómetra.
Þessi mynd var tekin siðia árs
1984 við Þingeyrarflugvöll þegar
afhjúpaður var minnisvarði um
brautryðjandann í flugmálum
Dýrfirðinga, séra Stefán Eggerts-
son. Á myndinni eru, talið frá
vinstri: Nanna Magnúsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Sigrún
Stefánsdóttir og Eggert Stefáns-
son.
í áðurnefndu viðtali er eftirfar-
andi haft eftir Arnóri Jónatanssyni
um ísafjarðarflugvöll: „Vindurinn
er okkar aðalvandamál. Aðflugs-
skilyrði hér eru mjög þröng og því
eru öryggisreglur í flugi mjög
strangar. Suð-vestan og suð-aust-
an áttirnar eru okkur oft erfiðar.
Hér er aðeins ein flugbraut sem er
1400 metra löng og var hún lengd
í fyrrasumar um 200 metra." Og
niðurlag viðtalsins er þannig: Arn-
ór taldi nauðsynlegt að koma upp
varaflugvelli og taldi Holt í Ön-
undarfirði vera besta kostinn fyrir
staðsetningu hans. „í Holti eru að-
stæður fyrir aðflug góðar og það
hefur sýnt sig að þar er oft hægt að
lenda þegar flugvöllurinn hér á ísa-
firði er lokaður. Þegar jarðgöngin
í gegnum Breiðadalsheiðina koma
til sögunnar að auki ættu sam-
göngur hingað til ísafjarðar að
batna mikið", sagði Arnór Jóna-
tansson umdæmisstjóri Flugleiða
á ísafirði að lokum.
Sigmundur Þórðarson kvað
þetta álit umdæmisstjórans stang-
ast algerlega á við þær athuganir
sem gerðar hafa verið í þessu máli.
Skýrsla Ingimars K. Svein-
björnssonar
f fyrsta lagi benti Sigmundur á
niðurstöður Ingimars K. Svein-
björnssonar flugstjóra, en þær setti
hann fram snemma árs 1981. Þar
segir:
„Ég hef lokið athugun á hvað
virðist hægt að gera í sambandi við
varaflugvöll fyrir ísafjörð.
Aðstæðum á Þingeyri er ég vel
kunnugur, en ekki í Holti. Þess
vegna hef ég kynnt mér aðstæður
í Holti. Ég hef haft samband við
þá flugmenn, sem hafa flogið mik-
ið á flugvöllinn. Þeir eru sammála
að suðaustan áttin, sem er verst á
ísafirði, geti verið varasöm í Holti,
einnig eru slæmar flugaðstæður í
suðvestanátt.
Ég hef nýlega gert aðflug að
flugvellinum í Holti á F-27
(Fokker). Það er mjög þröngt við
flugvöllinn og erfitt að athafna sig
þar á F-27, sérstaklega flugtak inn
fjörðinn og einnig mjög þröngt að
fara inn fyrir flugvöllinn til að
lenda út.
Þingeyrarflugvöllur hefur reynst
ágætlega í lendingu og flugtaki inn
fjörðinn (flugbraut 14), furðulega
lítil ókyrrð í suðaustanátt. Tölu-
verð hindrun er háls fyrir innan
flugvöllinn í sambandi við flug-
taksþunga.
Æskilegt væri að hægt væri
kostnaðarlega að lengja flugbraut
32 út í fjöru.
Flugbrautin er núna 1075
metrar. Fróðlegt væri að láta
reikna út, ef flugbrautin væri lengd
í 1500 metra og þá eins mikið og
hægt væri í átt til sjávar, hve mikla
hækkun við fengjum á flugtaks-
þunga.
Flugtak á 32 er auðvelt, en lend-
ing á 32 getur verið takmörkuð af
lágum skýjum, þar sem fljúga þarf
inn fyrir þorpið og fara yfir háls
þann, sem er sunnan við flugvöll-
inn.
Furðulega lítil vandræði hafa
skapast vegna suðvestan áttar, en
þó þarf að fara varlega í þeirri
vindátt, vindur má lítið vera yfir
15 hnútar úr suðvestri.
í sambandi við flugtak á 32, þá
held ég að mæla mætti með flug-
taki á þeirri braut í myrkri í góðu
veðri, þar sem fjörðurinn er það
breiður. Allavega væri auðvelt
með hjálp radartækja í flugvélinni
að fljúga út fjörðinn.
í okkar flugi, þá höfum við oft
lent á Þingeyri þegar suðaustan átt
hefur hamlað flugi til ísafjarðar.
Erfiðleikar hafa verið að anna
farþegaflutningum í þeim tilfell-
um, þegar flugvélar okkar hafa
verið fullsetnar og jafnvel verið
takmörkun á flugtaksþunga vegna
hálku, þar sem flugbrautin er svo
stutt.
Ég tel rétt að við athugum niður
í kjölinn möguleika á að lagfæra
Þingeyrarflugvöll svo hann geti
þjónað sem varaflugvöllur fyrir
ísafjörð.“
Þetta var skýrsla Ingimars K.
Sveinbjörnssonar flugstjóra, sem
hann gerði fyrir rúmlega sjö árum.
Sigmundur Þórðarson kveður
skýrsluna enn í fullu gildi, enda
hefur hvorki veðurfar né landslag
á Vestfjörðum breyst síðan hún
var skrifuð, né heldur flugvéla-
kostur Flugleiða.
Skýrsla Samgöngunefndar
Vestfjarða
Snemma árs 1985 skilaði Sam-
göngunefnd Vestfjarða mjög ítar-
legri skýrslu til samgönguráð-