Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 9
vestfirska
TTABLASIS
9
SUÐUREYRI
Heimilið heitir
Sunnuhlíð
Dagvist aldraðra vígð
annan dag hvítasunnu
Annan dag hvítasunnu var
formlega opnuð dagdeild aldr-
aðra að Túngötu 2 hér á Suður-
eyri, eins og sagt var frá í Vest-
firska í síðustu viku að til stæði.
Dagvistarheimili þetta var opn-
að 15. febrúar síðastliðinn, og
hefur verið starfrækt síðan. Pað
hefur hlotið nafnið Sunnuhlíð.
Heimilið er í öðrum enda
hússins, sem er feiknastórt á þrem-
ur hæðum. f hinum endanum er
heilsugæslustöðin með sína starf-
semi. Suðureyrarhreppur sér um
rekstur Sunnuhlíðar, og fram-
kvæmdastjóri er Ragnar Jörunds-
son sveitarstjóri. Fjórir starfsmenn
vinna á heimilinu. Par er opið frá
kl. eitt til fimm síðdegis, fimm
daga vikunnar, en lokað um
helgar.
Helga G. Kristjánsdóttir sér um
föndurkennslu tvisvar í viku.
Heimilisfólkið er duglegt við
föndur, m.a. er málað á gler og
spegla, og einnig eru sokkablóm í
miklu uppáhaldi. Á vígsluhátíð-
inni var haldin föndursýning.
Auk þess að stunda föndur kem-
ur fólk saman í Sunnuhlíð til þess
að taka í spil, rabba saman, fara í
leikfimi, og sitthvað fleira. Síðan
er á vegum Sunnuhlíðar heima-
hjúkrun og heimilishjálp, sem Ing-
unn Sveinsdóttir sér að mestu leyti
um.
Fólk hefur verið duglegt að
sækja þjónustuna sem Sunnuhlíð
býður upp á, og hafa verið þar frá
þremur og upp í fimmtán manns á
dag. Kvenfólkið er í meirihluta, en
karlarnir eru líka farnir að líta inn
og líkar vel.
Brautryðjandinn
Arna Skúladóttir hjúkrunar-
fræðingur hefur verið frumkvöðull
þess að koma á legg þessari starf-
semi, allt frá því að hún fluttist til
Suðureyrar ásamt fjölskyldu sinni.
Þetta var eitt af þeim málum sem
sett voru á oddinn í síðustu sveit-
arstjórnarkosningum. Súgfirðing-
ar kunna Örnu miklar þakkir fyrir.
Opnunarhátíðin
Ragnar Jörundsson hóf vígslu-
hátíðina með því að bjóða gesti
velkomna, og síðan rakti hann að-
draganda að stofnun Sunnuhlíðar
og gang málsins.
Séra Karl V. Matthíasson lagði
blessun sína yfir þessa starfsemi,
og vígði heimilið formlega. Lesnar
voru ritningargreinar, og sungið
við undirleik.
Gjöf frá Ársól
Kvenfélagið Ársól afhenti gjöf
til Sunnuhlíðar, 28 tommu Nord-
mende sjónvarpstæki ásamt
Goldstar myndbandstæki. Þessi
tæki prýða nú heimilið ásamt hús-
gögnum sem sveitarfélagið hefur
lagt til. Ragnar Jörundsson færði
kvenfélaginu þakkir fyrir gjöfina,
og því næst var sest að kaffiveiting-
um í Sunnuhlíð. Eftir það var
sungið saman, og Ingibjörg Jónas-
dóttir spilaði á gítar og söng fyrir
gestina.
Guð blessi starfsemi Sunnuhlíð-
ar.
R. Schmidt, Suðureyri.
Frá vígsluhátíð Sunnuhlíðar: Ragnar Jörundsson þakkar Ástu Björk Friðbertsdóttur fyrir gjöfina sem hún
afhenti heimilinu fyrir hönd Kvenfélagsins Ársólar á Suðureyri.
í þessu húsi er dagvistarheimilið Sunnuhlíð á Suðureyri (í háreistari hlutanum vinstra megin á myndinni). í
álmunni til vinstri er heilsugæslustöðin til húsa.
Fermingarbörn á Suðureyri
Fermingarbörn á Suðureyri é hvítasunnudag ásamt presti sínum, séra Karli V. Matthíassyni. Á myndinni eru,
auk séra Karls, talið frá vinstri: Þorleifur Kr. Sigurvinsson, Aðalbjörn Jóelsson, Kristján Ibsen, Lilja Guð-
björnsdóttir, Kristfn Anna Sæmundsdóttir, Maríanna Sigurðardóttir og Haukur Elvarsson.
Sinfóníuhljómsveitin:
Tónleikar á Þingeyri, ísafirði,
Patreksfirði og í Bolungarvík
Sinfóníuhljómsveitin er nú að dagskvöld 1. júní, í sal Grunnskól- Sunnukórinn með hljónsveitinni,
fara í yfirreið um Vestfirði. Fyrstu ans á ísafirði fimmtudagskvöldið en á öllum tónleikunum verður
tónleikarnir í ferðinni verða haldn- 2. júní, og loks á Patreksfirði einleikari á trompet Ásgeir Stein-
ir á Þingeyri þriðjudagskvöldið 31. föstudagskvöldið 3. júní. Tón- grímsson. Flutt verða m.a. verk
maí. Síðan eru tónleikar í Félags- leikarnir hefjast alltaf kl. 20:30. í eftir Beethoven, Hummel, Prok-
heimilinu í Bolungarvík miðviku- Bolungarvík og á ísafirði Ieikur ofiev og Mozart.
ÍSMARK
ÍSVÉLAROG
ÍSBLÁSARAR
ÍSMARK ísvélarnar hafa sýnt og sannað gildi sitt bæði
til sjós og lands þar sem kröfur eru gerðar til afkasta
og endingar. Með þeim er auðvelt að ráða formstærð
og þykkt íssins enda helst fiskur sem hefur verið
ísaður með ISMARK ís ferskur og áferðarfallegur.
ÍSMARK ísvélarnar eru til í fjórum stöðluðum
stærðum: fyrir ferskt vatn eða sjó, á land eða í skip.
Með ÍSMARK blásurum heyrir ísmoksturinn sögunni til.
Þeir blása ísnum 10-50 metra og afköstin eru 20-40
tonn á klukkustund. ÍSMARK ísblásararfara betur með
ísinn og stuðla jafnframt að auknum afköstum.
Vinsamlegast hafid samband. Við veitum allar
upplýsingar um verð og greiðsluskilmála.