Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 12
GEISLAVÖRN
Jarðtengdar skjásíur i-t
fyrir tölvunotendur m Bókaverslun Jónasar Tómassonar Sími 3123 ísafirði
ERNIR P
Bílaleiga
Golfklúbbur ísafjarðar:
Fyrsta mótið
á afmælisári
Tilvalið fyrir nýliða að spreyta sig
í Tungudalnum á laugardaginn
Golfvertíð ísfirskra kylfinga
hefst formlega nú á laugardaginn.
Pá fer fram hið árlega opnunarmót
á golfvellinum í Tungudal.
Nú fer í hönd merkissumar í
sögu Golfklúbbs ísafjarðar. Tíu
ára afmæli klúbbsins er á þessu ári,
og halda kylfingar (gylfingar?!)
upp á það með ýmsu móti. T.d.
hefur afmælishóf þegar farið fram.
En stærsti viðburðurinn er afmæl-
ismót sem haldið verður í ágúst,
þar sem nokkrir af sterkustu kylf-
ingum landsins munu væntanlega
verða með. Auk þessa munu færir
golfkennarar láta sjá sig á vellinum
í sumar til að leiðbeina byrjendum
jafnt sem lengra komnum í íþrótt-
inni.
Völlurinn í Tungudal er nú að
komast í ágætis sumarstand. í sum-
ar mun uppbygging hans halda á-
fram þar sem frá var horfið í fyrra,
en unnið verður eftir nýju skipu-
lagi.
Golfklúbbur ísafjarðar vill
minna á áðurnefnt opnunarmót,
sem hefst kl. 13 á laugardaginn.
Mótið yerður með óvenjulegu
sniði, svokallað punktamót með
forgjöf, og er þar af leiðandi tilval-
ið fyrir nýja kylfinga að spreyta sig.
Leiknar verða 18 holur.
F.h. mótanefndar G.Í.,
Gunnar Tryggvason.
Umferðarvika á ísafirði
Á vegum umferðarnefndar ísafjarðar og Bindindisfélags ökumanna stendur nú yfir sérstök umferðarvika.
Þar er skólabörnum gefin kostur á að taka þátt í umferðareftirliti undir leiðsögn lögreglumanna. Gera börnin
skýrslur um hina ýmsu þætti umferðamálanna auk þess sem þau framkvæma radarmælingar á götum
bæjarins. Myndin hér að ofan er einmitt tekin þegar börnin voru við radarmælingar á Skutulsfjarðarbraut á
þriðjudaginn.
Sjaldan fellureplið
langt frá eikinni
Á hvítasunnudag mátti sjá
nokkra seglbrettakappa á fullri
ferð fyrir botni Skutulsfjarðar,
og þar á meðal var Guðmundur
Harðarson. Ljósmyndari Vest-
firska fréttablaðsins brá sér inn
á Skeið og niður í fjöruna og
smellti nokkrum myndum af
þeim félögum. Þegar Guðmund-
ur renndi sér svo upp í fjöru á
brettinu sínu var tækifærið grip-
ið og hann spurður hvað væri
framundan hjá honum í fluginu.
Hann sagðist vera að klára tím-
ann sem þarf, en það eru 200 flug-
tímar. Bóklega náminu væri lokið
og hann ætti eftir að taka 20 blind-
flugstíma á flugvél. Þegar því væri
lokið ætti hann að vera tilbúinn til
að fá flugmannsskírteinið. Að-
spurður um það hvort hann færi
þá að fljúga með föður sínum,
svaraði hann játandi og sagðist
frekar eiga von á því að verða að-
stoðarflugmaður hjá honum.
Sagðist Guðmundur vonast til að
af því gæti orðið sem fyrst, varla
ættu að líða nema einn til tveir
mánuðir. Svo væri bara að halda
þessu við, það væri svo sem ekki
erfitt þegar menn væru starfandi í
fluginu. Viss skilyrði þyrfti jú að
uppfylla, og svo ákveðinn flugtíma
auk svokallaðs PFT, en það er sér-
stök þjálfun sem farið er í ásamt
flugkennara þar sem farið er í
gegnum allar kennsluæfingamar.
En þarf ekki sérþjálfun fyrir
hverja flugvélartegund?
„Jú“, svaraði Guðmundur, „en
ekki þó fyrir eins hreyfils vélarnar.
Fyrir þær er hægt að taka sérstakt
stöðupróf sem gefur réttindi á allar
eins hreyfils flugvélar upp að 5700
kg.“ Fyrir tveggja hreyfla flugvél-
arnar þarf hinsvegar sérstakt próf
á hverja tegund og sagðist Guð-
mundur reyndar vera að fara í eitt
slíkt. Það er Twin Otter námskeið
sem hann tekur í Reykjavík. Á
því er farið í gegnum öll „system-
in“ á þeirri flugvél. Þar á eftir er
síðan farið í verklegt próf þar sem
Guðmundur Harðarson.
teknar eru æfingar með flugtökum
og lendingum á vélinni sjálfri.
Guðmundur sagðist þó hafa farið
á svona Twin Otter námskeið áður
og þá tekið bóklega hlutann, en
núna tæki hann þetta aftur ásamt
viðbót fyrir Twin Otter 300, en það
er samskonar vél og Flugfélagið
Ernir fékk á dögunum. Aðspurður
um hvernig honum litist á að fara
að fljúga slíkri vél, sagði Guð-
mundur að það legðist bara mjög
vel í sig. Þetta væru ömggar flug-
vélar og sérstaklega góðar fyrir
flugvellina hér á Vestfjörðum því
hátt væri upp í skrúfublöðin og lítil
hætta á skemmdum af völdum
steinkasts.
Og þar með var Guðmundur
rokinn af stað á seglbrettinu sínu.
En Vestfirðingar þurfa væntanlega
ekki að bíða lengi eftir að sjá þenn-
an unga flugmann sitja við stjóm-
völinn á nýja Ottemum hjá
Flugfélaginu Erni hf., en þar sitja
í dag þeir Hörður Guðmundsson
og Jón ívarsson.
ÞAÐ STANSA
FLESTIR í
ALLTÁ FULLUHJÁ OKKUR
SUMAR SEM VETUR
/mmti /mkmi /mmn /mmti /mmti /mmn smmii /mkmi smmu /mmti /mkm /mMi
RÍCOh video upptökuvélarfyrir 8 mm spólur- lengri
upptöku- og afspilunarmöguleikar. Einfaldari og betri þræðing. - Betri mynd. Opið laugardaga 9-16 Sunnudaga 14-16
Hægt að titla myndir.- j | Ný sending á gamla verðinu rJ^
v
m póllinn = m TOPPBLÓMIÐ SÍMI 4717 SÍMI 3517