Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 2

Vestfirska fréttablaðið - 30.11.1988, Blaðsíða 2
2 I vestíirska I FRÉTTABLADID Vestfirska fréttablaðið kemur út á miðvikudögum. Ritstjórn og auglýs- ingar: Aðalstræti 35, ísafirði, s. 4011, 4423 og 3223. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon, heimasími 4446. Auglýsing- ar og dreifing: Rögnvaldur Bjarnason, heimasími 4554. Útlitsteiknari, Ijósmyndari og blaðamaður: Hörður Kristjánsson. Útgefandi: Grafík- tækni h.f., ísafirði. Framkvæmdastjóri: Rögnvaldur Bjamason. Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Prentstofan Isrún h.f., Aðal- stræti 35, (safirði. Verð kr. 70. Lausasala og áskrift. Kirkjulíf Hnífsdalskapella: Barnaguðs- þjónusta sunnudag kl. 11. ísafjarðarkapella: Kirkjuskóii iaugardag kl. 11. Fjölskylduguðs- þjónusta sunnudag kl. 14. „Jónas Sigurðsson“ íslenskt gróðurlendi hefur skroppið stórlega saman á liðnum öldum, frá því er landið var „viði (eða víði) vaxið milli fjalls og fjöru“. Ástæður þessa eru margvíslegar og samverkandi. Ein þeirra er búseta manna í landinu og það sem henni hefur fylgt: Annars vegar eyðing skóga á fyrstu öldum íslandsbyggðar, en í kjölfar hennar var uppblæstrinum boðið heim; hins vegar búfjárhald, sem frá upphafi og fram á okkar daga hefur verið forsenda þess að hér lifði fólk. Fyrir fáum áratugum var hugtakið náttúruvernd að mestu óþekkt. Nú er orðinn almennur skilningur manna á nauðsyn þess að vemda líf og land. Margir vinna vel að þeim málum; en þar eru líka ofstækismenn í bland eins og jafnan vill verða. íslenskum bændum stendur landið nær en nokkrum öðmm. Samtök þeirra hafa haldið fram þeirri skoðun, að heppilegast sé að hver búgrein skuli stunduð á þeim landsvæðum sem best em til þess fallin; þannig verði sauðfjárhald bundið við þá landshluta þar sem ekki er hætta landspjöllum vegna ofbeitar. Að þessu marki er stefnt. Að þessu er verið að vinna. Og hvað hrossin varðar: Því marki hefur þegar verið náð, að hross ganga ekki lengur á neinum þeim afréttum sem em í uppblást- urshættu. Það kemur því eins og fjandinn úr sauðarleggnum, þegar Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra hót- ar íslenskum bændum ofbeldisaðgerðum samkvæmt uppskrift heimsfrægra ofstækismanna. Á nýafstöðnu flokksþingi Alþýðuflokksins ræddi ráðherra um gróður- eyðingu á íslandi, ástæður hennar og ráð til úrbóta, og sagði orðrétt: „Ef til vill er eina ráðið að efna til herferðar meðal almennings, um að hann hætti að kaupa kjöt af þeim dýmm sem em alin á beit á afréttum í uppblásturs- hættu. Þetta ætti bæði við um afurðir sauðfjár og hrossa.“ Hér er einfaldlega verið að tala um þær aðferðir sem Greenpeace-menn beita gegn íslendingum. Hér er við- skiptaráðherra íslendinga að tala um viðskiptaþvinganir gegn einni stétt þjóðfélagsins, byggðar á fölskum for- sendum. Hér er um að ræða bæði fáfræði og illvilja, eins og formaður þingflokks Framsóknarmanna orðaði það. Framangreind ummæli Jóns Sigurðssonar vom tekin til umræðu utan dagskrár á Alþingi sl. fimmtudag. Þau em „forkastanleg11 og „þau ber að harma“, eins og einn stjómarþingmanna orðaði það. Annar stjómarþingmað- ur kvað það „með öllu ótækt, að einstakir ráðamenn, eins og í þessu tilviki hæstvirtur viðskiptaráðherra, fari að beina spjótum sínum að bændastéttinni“. Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra taldi þessi ummæli „óheppileg og afar lítt gmnduð“, og Guðmundur Bjama- son ráðherra kvaðst leyfa sér að fullyrða, að „ummæli einstakra ráðherra ... geta aldrei talist steftia ríkisstjóm- ar“. Þannig sóm ráðherrar og þingmenn ríkisstjómarinnar af sér hlutdeild í boðskap Jóns Sigurðssonar. Það er skiljanlegt. Eftir stendur, að fmmhlaup ráðherrans er óskiljanlegt. Áróður Jónasar Kristjánssonar í DV er gamalkunnur og kemur engum á óvart lengur. Hins vegar hefur Jón Sigurðsson notið trausts langt út fyrir raðir eigin flokks- manna. Fram að þessu. Nú hefur Jónas eignast sálufélaga í Jóni. í umræðunum á Alþingi tók fjöldi þingmanna til máls, en enginn mælti ummælum Jóns Sigurðssonar bót nema Ásthildur, Silli og Dúddi: Gömlu brýnin eður GB-tríóið Síðastliðinn mánuð hefur oft mátt heyra dynjandi dansmúsik á kvöldin í Brunngötunni á ísafirði. Tónlistin hefur komið frá rauðum bílskúr við rautt hús á horni Brunngötu og Silfurgötu. Reyndar heitir þetta rauða hús Aðalstræti 26a, og þar býr Sigurgeir Sverris- son (Silli). Pau Silli, Ásthildur Cesil (Þórð- ardóttir) og Dúddi (Halldór Guðmundsson í Þór) hafa stofnað tríó sem þau nefna Gömlu brýnin eða GB-tríóið, og þar er einmitt frá æfingum þeirra sem tónarnir hafa borist úr rauða bílskúrnum við Brunngötuna. Þetta fólk er allt margreynt í þessum bransa. Ásthildur hefur verið í þó nokkrum hljómsveitum. Hún hefur m.a. spilað og sungið með Ásgeiri Sigurðssyni; hún var einn af stofnendum Sokkabands- ins sem var margfræg kvenna- hljómsveit á Vestfjörðum; og hún hefur gefið út sólóplötu. Silli er einn af stofnfélögum Harmóniku- félagsins (hann spilar á forláta harmóniku sem einnig getur gegnt hlutverki orgels), og Dúddi er bú- inn að vera í þessu meira og minna á þriðja áratug, ekki síst með Ás- geiri Sigurðssyni. Síðastliðin tvö ár voru þeir Silli og Dúddi ásamt Guðnýju Snorra- dóttur söngkonu og gítarleikara með danshljómsveitina Sígild, en nú er Guðný flutt til Reykj avíkur. Gömlu brýnin munu spila á dansleikjum á ísafirði og nágrenni í vetur. Þau segjast verða með músík við allra hæfi, en sérstaka áherslu ieggja þau á gömlu dans- ana og gömlu góðu rokklögin. Þeir sem vilja fá þau til að spila geta haft samband við Dúdda í síma 3193. Eiður Guðnason og Kristín Halldórsdóttir (eiginkona Jónasar Kristjánssonar). Að lokum kom ráðherra sjálfur í ræðustól. Hann reyndi klóra yfir skömmina og kvaðst vísa á bug „fráleitum fullyrðingum manna sem hér hafa talað“. Hann sagðist ekki hafa hvatt til aðgerða gegn bændum; hins vegar hefði hann hvatt til aðgerða gegn gróðureyðingunni. Þar stendur staðhæfing gegn staðhæfingu hjá einum og sama manninum. Rétt er að minna á það, að fjármálaráðherra Alþýðu- flokksins beitti sér á síðasta ári fyrir stórfelldum niður- skurði á framlögum ríkisins til gróðurvemdar. Nú telur annar ráðherra sama flokks, að eina ráðið í gróðurvemd- armálum kunni að vera að efna til viðskiptaþvingana og skemmdarverka á mörkuðum íslenskra bænda. Og kannski er það einmitt eina ráðið í gróðurvemd- armálum á íslandi, á meðan kratar em í stjóm og geta haft áhrif á fjárveitingar til þeirra hluta. Á Vestfjörðum em landkostir góðir til sauðfjárræktar, og gróðureyðing af völdum ofbeitar þekkist hér ekki. En „herferð meðal almennings“, þótt hún eigi aðeins að vera til vemdar „afréttum í uppblásturshættu“, mun bitna á vestfirskum bændum eins og öðmm. Vonandi munu ekki allir Alþýðuflokksmenn styðja viðskiptaráðherra sinn í þessu máli. Því verður ekki trúað að óreyndu, að vestfirskir þingmenn Alþýðuflokksins leggist í slíkan hemað gegn bændum. Nógir em erfiðleikar bænda samt. HÞM FRA BÓKHLÖÐUNNI Nýjar bækur berast daglega, hér teljum við nokkrar: ÍSLENSKAR ÆVISÖGUR 0G ANNAR FRÓÐLEIKUR: Hafrannsóknir við ísland I Jón Jónsson 4.875.- Síldarævintýrið á Siglufirói Bjöm Dúason 2.500.- Þrautgóðir á raunastund 19. bindi Steinar J. Lúðvíksson 2.375.- Mjófirðinga sögur 2. bindi Vilhjálmur Hjálmarsson 3.975.- Þórður kakali Ásgeir Jakobsson 2.990.- íslenskir nasistar Hrafn og lllugi Jökulss. 3.980.- Fíladans og framandi fólk Jóhanna Kristjónsdóttir 2.480.- Mín káta angist Guðm. Andri Thorsson 2.375.- Þrjár sólir svartar Úlfar Þormóðsson 2.648.- Markaðstorg Guðanna Ólafur Jóhann Ólafsson 2.480.- Væntanlegar í dag: SAGAISAFJARÐAR eftirJón Þ. Þór, 3. bindi kr. 4.375.- og aðrar tvær sem vekja athygli okkar: í FLÆÐARMÁUNU eftir Njörð P. Njarðvík minningabrot drengs frá uppvextinum „inn í firði“ kr. 2.480.- BRYNDÍS Lífssaga Bryndísar rituð af Ólínu hispurslaus og hress bók kr. 2.890.- Bókaverslun Jónasar Tómassonar Sími 3123 ísafirði

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.