Vestfirska fréttablaðið - 15.12.1988, Page 5
vestlirska I
5
Þessi mynd er af börnum í Afríku, dánum eða að dauða komnum af hungri. Á meðan bera íslendingar sig
illa vegna kreppu, versnandi lífskjara og mikils fjármagnskostnaðar.
Börnin á myndinni hafa ekki áhyggjur af fjármagnskostnaði.
BRAUÐ
handa hungruðum heimi
Yfirskrift hinnar árlegu lands-
söfnunar Hjálparstofnunar kirkj-
unnar er Brauð handa hungruðum
heimi. Söfnunin hófst í byrjun des-
ember og stendur til jóla. Verið er
að dreifa gíróseðlum ásamt söfn-
unarbaukum inn á öll heimili
landsins.
Kirkjan væntir þess, að lands-
menn taki jsessari söfnun vel, nú
sem fyrr. A síðasta ári söfnuðust
nær 17 milljónir króna.
Framlögum er hægt að koma til
skila í öllum bönkum, sparisjóðum
og pósthúsum, eða til sóknar-
presta. Kirkjur verða opnar á Por-
láksmessu til að taka á móti söfn-
unarbaukum og framlögum.
Friðarkertin verða einnig til sölu
um land allt fyrir jólin. Þau verða
bæði seld í verslunum og í lausa-
sölu á torgum.
Verkefni líðandi árs
Á þessu ári hefur Hjálparstofn-
un kirkjunnar starfað í nokkrum
löndum í Afríku og Asíu.
í samvinnu við Hjálparstofnun
norsku kirkjunnar byggir Hjálpar-
stofnunin heimili fyrir munaðar-
laus börn í Eþíópíu.
í Mósambík hefur Hjálparstofn-
unin dreift matvælum og sáðkorni,
í samvinnu við systurstofnanir á
Norðurlöndum. Alvarlegur matar-
skortur er í nokkrum héruðum
landsins og erfitt að koma vistum
á áfangastað.
í Víetnam tók Hjálparstofnunin
þátt í kostnaði við stíflugerð, sem
stuðlar að betri hrísgrjónaupp-
skeru smábænda.
Hjálparstofnunin kostaði nokk-
ur smærri þróunarverkefni á Ind-
landi og í Eþíópíu, verkefni sem
kosta lítið en hjálpa mörgum til
s j álfshj álpar.
Og nýjasta verkefnið sem Hjálp-
arstofnunin tekur þátt í, er neyðar-
hjálp vegna hörmunganna í Arme-
níu í síðustu viku.
Hjálparstofnun kirkjunnar sinn-
ir ekki aðeins hjálparstarfi í fjar-
lægum löndum, heldur einnig á fs-
landi. Kvennaathvarfið í Reykja-
vík er því miður nauðsyn í þjóðfé-
lagi okkar, en það á við erfiðan
fjárhagsvanda að etja. Hjálpar-
stofnunin hefur veitt athvarfinu
styrk sem nemur hálfri milljón
króna, til þess að koma í veg fyrir
að sex ára uppbyggingarstarf þess
renni út í sandinn.
Verkefni framundan
Mörg brýn hjálparverkefni blasa
við framundan.
Eitt þeirra er uppbyggingarstarf
vegna flóðanna í Bangladesh í
haust. Flóðin skildu 25 milljónir
manna eftir heimilislausar. Enn er
mikil hætta á útbreiðslu farsótta.
Þetta er annað árið í röð sem gífur-
leg flóð verða í landinu. Ástandið
versnaði enn, þegar fellibylur gekk
yfir landið nú í byrjun desember.
Þá fórust hundruð manna og fjöl-
margir til viðbótar misstu heimili
sín.
Matvælaaðstoðinni í Mósambík
verður haldið áfram svo lengi sem
þörf krefur.
í litlu þorpi í suðurhluta Ind-
lands er rekinn skóli fyrir börn fá-
tækasta fólksins. í sumar brenndu
ofstækismenn skólahúsið til
grunna, og síðan hefur verið kennt
undir beru lofti. Hjálparstofnun
kirkjunnar ætlar að veita fé til að
byggja nýjan skóla.
Einnig hefur Hjálparstofnun
kirkjunnar ákveðið að styrkja
byggingu heimilis fyrir vangefin
börn í suðurhluta Indlands. Þar er
um að ræða börn frá lægstu stéttum
og stéttlausum fjölskyldum, en
þeir hópar eru verst settir allra.
Heimilið verður reist af þorpsbú-
um sjálfum.
Án stuðnings íslensku þjóðar-
innar er Hjálparstofnun kirkjunn-
ar einskis megnug. Fjáröflun
stofnunarinnar fer að mestum
hluta fram á jólaföstunni, og hún
stendur og fellur með söfnuninni
Brauð handa hungruðum heimi.
Vonandi leggja sem flestir fram
sinn skerf, hver eftir sínum efnum
og ástæðum. Hver króna sem fer í
hjálparstarf margfaldast að gildi í
hinum fátæku löndum.
Ekki er
allt
gott gott
— Iftil sönn jóla-
saga úr Hnffsdal
Það hefur verið til siðs í Hnífsdal
eins og annars staðar, að „jóla-
sveinar" gefi krökkum eitthvert
góðgæti í skóinn. Fyrir nokkrum
dögum gerðust þeir atburðir á
heimili einu í plássinu, sem nú skal
greina.
Lítil stúlka á þriðja ári hafði
komið skónum sínum fyrir úti í
glugga áður en hún fór að sofa.
Gekk svo heimilisfólk til náða og
einnig móðirin.
Snemma næsta morgun vaknaði
húsmóðirin við vondan draum. Þá
uppgötvaði hún að gleymst hafði
að setja í skóinn og ekkert hafði
heldur verið keypt í því skyni dag-
inn áður. Nú voru góð ráð dýr.
Konan minntist þá konfektkassa
sem verið hafði uppi í skáp um
nokkurn tíma. Hún sótti nokkra
mola og lét í skóinn, rétt í tæka tíð
áður en barnið vaknaði. En þegar
að því kom, þá var fyrsta verkið að
sjálfsögðu að gá í skóinn. Og viti
menn, þar voru nokkrir konfekt-
molar. Sá galli var bara á gjöf
Njarðar, að barninu þótti konfekt-
ið vont. Litla stúlkan fór þá ein-
faldlega með molana inn að rúmi
móður sinnar, rétti henni þá og
sagði: „Heyrðu mamma, viltu ekki
bara setja þá aftur í kassann?"
Byggt á
Tálkna-
firði
— tvö hús komin
undir þak af sex
fyrirhuguðum
Að undanförnu hefur verið unn-
ið að byggingu tveggja íbúðarhúsa
á Tálknafirði samkvæmt reglum
Húsnæðisstofnunar. Leyfi fengust
fyrir sex húsum og er mikil eftir-
spurn á staðnum eftir þeim. Gert
var ráð fyrir að halda áfram á næsta
ári og byggja þau fjögur hús sem
eftir verða, en ekki er gott útlit
fyrir að það fjármagn fáist sem
búið var að lofa. Finnst mönnum
nóg af allskyns sérfræðingum hjá
Húsnæðisstofnun, en minna um
peninga þegar á þarf að halda.
uerslunin
50Ð
Hnífsddl
Úrvals kæst skata
á adeins KR. 225,- pr. kg.
Bæði lóskata 09 stórskata
mmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmBmmmm^mmm
Við vilju.m minna á opnunartíma
verslunarinnar dagana 19. - 23. des.
en þá er opið tiL kl. 21:00 á kvöldin.
Á aðfangadag er opið frá 10:00 til 12:00