Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 15.12.1988, Side 14

Vestfirska fréttablaðið - 15.12.1988, Side 14
14 Kambháfur, laxeldi og frímerkja- söfnun Það sem vakti hvað mesta at- hygli í aflafréttum síðustu viku, voru tíðindin af kambháfnum sem Guðbjörgin frá ísafirði fékk í vörpuna. Með miklum tilfæring- um tókst að koma háfnum lifandi flugleiðis á fiskasafn í Vest- mannaeyjum, þar sem hann síð- an drapst eftir langt dauðastríð, senniíega af „kafaraveiki". Tálknfirðingar eru hressir að vanda og allir á fullu í laxeldinu. Komin eru fjögur fyrirtæki í þess- ari grein, en það eru Sveinseyr- arlax, Þórslax, Lax h.f., og ein stöð enn sem er í eigu Patreks- firðínga. Unnið hefur verið að borunum út um allan fjörð í leit að heitu vatni, og segja kunnugir að fjörðurinn sé nú orðinn eins og gatasigti og allsstaðar velli heitt vatn úr jörðu. Ekki láta Tálknfirðingar heldur deigan síga þótt mikill barlómur sé í þjóðfélaginu og bankarnir ætli allt að drepa. Þeir segjast nú vera að safna fyrir frímerkjum, svo að senda megi suður um- sókn um hin nýju „víkjandi" lán. Það telja menn nauðsynlegt, vegna þess að bankarnir, sem lánað hafa út á afurðir, teija sig nú þegar hafa lánað of mikið. Þess vegna hirða þeir andvirði nánast hvers einasta fisks sem úr sjónum kemur. Þvi leggja Tálknfirðingar nú afganginn af fiskverðinu í frímerkjasjóð. Stjórnendum fyrirtækja þykir framferði bankanna fullmikið af þvt góða. Þegar menn eru að kikna eða komnir á hnén, þá koma bankarnir og setjast á bak- ið á þeim. ÍSAFJÖRÐUR Rækjutogarinn HAFÞÓR landaði 22 tonnum á mánudag; af því fóru um 7 tonn í vinnslu, en ann- að beint í útflutning. Hafþór er nú á.veiðum og verður tíl jóla, en stoppar milli jóla og nýárs. GUÐBJARTUR landaði síðast- líðinn fimmtudag um 30 tonnum, og fór allt í vinnslu hjá Norður- tanganum. Hann er nú að veið- um á Austfjarðamiðum. Linubátar eru með þetta 8 til 10 tonn í róðri þegargefur, en ieiðin- legt veður hefur verið á miðunum og flestir bátar í landi í gær. Línu- bátar mega róafimm daga í viku, þannig að ef ekki gefur einn daginn, þá geta þeir bætt sér það upp á laugardögum. GUÐBJÖRG er á veiðum og er væntanleg næsta mánudag. Þetta er jafnframt síðasti túrinn fyrir áramót hjá þeim á Guðbjörg- inni. JÚLÍUS GEIRMUNDSSON landaði á þriðjudag um 45 tonnum, en af þeim afla var sett í einn gám. Júlíus er nú að öllum líkindum í sinum síðasta túr fyrir áramót. PÁLL PÁLSSON kom inn á sunnudag með eitthvað um 17 til 18 tonn. Búist er við að hann haldi áfram veiðum til áramóta, því nægur kvóti væri fyrir skipið. Heimilt er að flytja 10% af kvóta allra tegunda fyrri árs yfir á það næsta. BOLUNGARVÍK DAGRÚN landaði 42 tonnum á mánudag og setti í einn gám. HEIÐRÚN var með 15 tonn. SÓLRÚN landaði um 20 tonnum af rækju á þriðjudag. Línuafli hefur verið þokkalegur að undanförnu. SÚÐAVÍK BESSI landaði 16,5 tonnum á mánudag. HAFFARI landaði sama dag rúmum 900 kílóum af úthafsrækju. Rækjuaflinn í ísafjarðardjúpi í síðustu viku varþannig, að VAL- UR var með 2,7 tonn rúm, SIG- RÚN með tæp 9 tonn, HAFRÚN um 3,5 tonn og síðan tandaði KOLBRÚN einu sinni rúmum 400 kílóum. BESSI mun að öllúm líkindum halda áfram veiðum til áramóta. SUÐUREYRI ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR landaði 40 tonnum á þriðjudag. Togarinn mun halda áfram veið- um til jóla, en verður væntanlega í landi milli jófa og nýars. Það er sama sagan hjá þeim á Elínu eins og öðrum Vestfjarðat- ogurum, að fiskirí er dræmt um þessar mundir. Fyrir nokkrum vikum sögðum við frá því, þegar línubáturinn Bjarn- veig kom til veturvistar á Suður- eyri. Nú hefur enn einn bátur bæst í hóp línubátanna þar í plássinu, KRISTJÁN, sem er 30 tonna bátur frá Bolungarvfk, eign Magnúsar Snorrasonar. Skip- stjóri verður Guðni Einarsson sem fram að þessu hefur verið með Sigurvonina. Hann ætlar að róa út desember og eitthvað fram í janúarmánuð. Tveir verða um borð og tveir til þrfr verða við beit- ingu í landi. FLATEYRI GYLLIR landaði á þriðjudag um 50 tonnum. Hann fer að öllum líkindum einn stuttan túr fyrir jól. Sæmilegur línuafli er hjá bátun- um þegar gefur. Skást var hjá JÓNÍNU á þriðjudag, en þá var hún með rúm 8 tonn. I gær voru línubátarnir í landi vegna brælu. ÞINGEYRI SLÉTTANES landaði á sunnu- dag rúmum 53tonnum. Skipið er nú farið í slipp í Reykjavik. FRAMNES kom úr sölutúr á þriðjudag og fór strax til veiða og á eftir einn túr fram að áramótum. BÍLDUDALUR SÖLVI BJARNASON landaði slatta þann níunda. Hann er nú að veiðum á Kögurgrunni og var í þokkalegri veiði í fyrrinótt. Búist var við togaranum í land í gær- kvöldi og átti hann þá eftir eina veiðiferð fyrir áramót. Rækjubát- ar eru komnir í jólafrí eftir góða rækjuveiði. TÁLKNAFJÖRÐUR TÁLKNFIRÐINGUR landaði á þriðjudag í síðustu viku, en von var á honum í dag úr síðasta túr fyrir jól. Ekki gaf línubátum á sjó í gær, þvf vestan drulluveður var og bræla. PATREKSFJÖRÐUR ÞRYMUR var að selja í gær á Faxamarkaði og fékk gott verð, eða 61,60 kr. meðalverð fyrir rúm 19 tonn af blönduðum afla. Þrym- urerhætturveiðum íbili.SIGUR- EY landaði í tvo gáma á þriðjudag. Skipið átti.að fara í sinn síðasta túr fyrir áramót á morgun. Línu- bátar hafa verið að afla sæmi- lega þegar gefur. Um 9 tonn rúm voru hjá PATREKI á þríðjudag. TÁLKNI var líka að landa á þriðjudag og var með um 7 tonn. Ekki voru línubátar á sjó f gær enda veður vont á miðunum. Haustið hefur þó verið mjög gott fyrir línubátana og ftskirí gott. Telja menn sig þvt vart þurfa að kvarta þó það komi einn og einn bræludagur. Kannskl finnst elnhverjum skrítib að láta mynd af Garðarí hans Jóns Magnússonar fylgja aflafréttum, því að hann stendur á þurru, löngu hættur að draga björg í bú. En myndin minnir á það, að kyrrlátir haustdagar taka við af annríki hásumarsins, hvort sem það er í iífi skipa eða manna, og öllu amstri lýkur um síðir. Myndina tók sr. Sigurður Jónsson á Patreksfirði. Agnes, Torfi og Birgir: Hugbunaðarkerfi fyrir útgerð og fiskvinnslu Vannýttir stofnar sjávardýra: Fiskifræðingar líta ígulkerin hýru auga Undanfarið hefur fyrirtækið Hugtak h.f. auglýst í Vestfirska fréttablaðinu fyrirbæri sem nefnast Agnes, Torfi og Birgir. Þarna er um að ræða hugbúnað (forrit) sem er sérstaklega hannaður fyrir út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtæki. Hugtak h.f. hefur unnið að þró- un þessa hugbúnaðar undanfarin ár, og hefur frá upphafi verið stefnt að því að bjóða samofna heildar- lausn hugbúnaðar fyrir útgerð og fiskvinnslu. Bæði Birgir og Torfi ganga á flestar tegundir af tölvum, allt frá PC-tölvum til stórra fjöl- notendavéla. Agnes, launauppgjör sjómanna, er hugbúnaður sem hefur verið í notkun í tæp þrjú ár. Yfir 150 út- gerðir gera upp laun sjómanna með þessu kerfi. Agnes sér um allt er varðar launauppgjörið, annast hlutaskiptaútreikninga og skilar af sér öllum þeim gögnum sem við eiga, svo sem launaseðlum, skila- greinum til lífeyrissjóða, stéttar- félaga og opinberra aðila. Stað- greiðslukerfi skatta er mjög sveigj- anlegt í meðförum. Agnes vinnur jöfnum höndum að uppgjöri smá- báta sem stærstu togara. Torfi, aflauppgjörfiskiskipa, sér um gerð skýrslna fyrir Fiskifélagið, svo sem vigtarskýrslur og ráðstöf- unarskýrslur. Einnig gerir hann allar skilagreinar fyrir banka og sjóði, s.s. Stofnfjársjóð, vátrygg- ingar, banka og hafnargjöld, og sér um kostnaðarliði tengda gámasölu og sölu á mörkuðum, innanlands og erlendis. Birgir, birgða- og umbúðahald sjávarafurða, heldur í stuttu máli utan um alla þætti sem snerta afurðir, svo sem verðmæti, af- reikninga, útskipanir, hreyfingar birgða, notkun umbúða, verðmæti umbúða og notkun yfir ákveðin tímabil, auk veðsetninga, hvort sem er í íslenskri mynt eða er- lendri. Samfrost í Vestmannaeyjum er stærsti viðskiptavinur Hugtaks, en meðal vestfirskra fyrirtækja sem nota eitt eða fleiri ofantalinna kerfa má nefna Þórsberg á Tálkna- firði, Bakka í Hnífsdal, Niður- suðuverksmiðjuna á ísafirði og Hólmadrang á Hólmavík. Þegar upp koma umræður um ofveiði, þá vaknar líka sú spurning hvort við íslendingar eigum ekki einhverja ónýtta stofna sjávardýra í hafinu við landið. Við leituðum álits fiskifræðings á því máli, og taldi hann menn þá helst líta veiðar á ígulkerjum björtum augum. Að- stæður til þeirra veiða eru mjög góðar í ísafjarðardjúpi og má finna ígulker nánast í öllum fjörðum. í þessu efni væri kannski erfiðast að selja vöruna, því erfitt gæti reynst að komast inn á þá markaði sem til eru í Frakklandi og Japan. Það sem nýtt er úr ígulkerjunum eru aðallega hrognin, en fyrir þau fæst mjög hátt verð í Frakklandi og Japan. Hugsanlegt er, að með beinu þotuflugi frá Keflavík til Japans, sem nú er á döfinni, opnist möguleiki á að koma þessari vöru á markað á fljótlegan hátt. Ýmislegt fleira er talið koma til greina varðandi nýtingu á sjávar- dýrum. Þar nefna fiskifræðingar til dæmis sæbjúgu, krossfiska og fleiri framandlegar tegundir. Rækjan í ísafjarðardjúpi: Hættir veiðum fyrir áramót — byrja aftur þrettánda janúar Rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi voru stöðvaðar nú þann 9. des- ember, og var þá búið að veiða um 300 tonn síðan 18. nóvember. Tuttugu og níu bátar hafa nýtt leyfið af þeim þrjátíu og fimm sem heimild hafa til veiðanna. Þeir sem ekki hafa verið á rækju, hafa farið á aðrar veiðar eins og á hörpudiski. Rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi munu hefjast aftur þann 13. janú- ar, og að sögn Guðmundar Skúla Bragasonar hjá Hafrannsókn, þá gera þeir ráð fyrir að fara í könn- unarleiðangur í febrúar og eftir það verður tekin endanleg ákvörð- un um kvóta til hækkunareðajafn- vel lækkunar.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.