Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Page 2
2
vestlirska
TTABLADID
I vestfirska ~l
FHETTABLADID
Vestfirska fréttablaöið kemur út á fimmtudögum. Ritstjórn og auglýs-
ingar: Aöalstræti 35, Isafirði, s. 4011, 4423 og 3223. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon, heimasimi 4446. Auglýsing-
ar og dreifing: Rögnvaldur Bjarnason, heimasími 4554. Útlitsteiknari,
Ijósmyndari og blaðamaður: Höröur Kristjánsson. Útgefandi: Grafík-
tækni h.f., ísafiröi. Framkvæmdastjóri: Rögnvaldur Bjarnason. Prent-
vinnsla: Grafíktækni hf„ Aðalstræti 35, ísafirði.
Vestfirska
fréttablaðið
Um áramótin voru níu mánuðir síðan Grafíktækni h.f.
keypti Vestfirska fréttablaðið og tók við rekstri þess. Þá
hafði blaðið verið á hraðri niðurleið um nokkra hríð,
salan dregist verulega saman og auglýsingar sömuleiðis.
Maður sá, sem eigandi blaðsins hafði samið við um að
annast útgáfuna fram á sumarið, var sprunginn á limminu
og hættur. Ýmsir voru þá óneitanlega svartsýnir á framtíð
Vestfirska fréttablaðsins.
Skemmst er frá því að segja, að okkur tókst að snúa
vöm í sókn, auka lausasölu blaðsins og bæta jafnframt
við fjölmörgum áskrifendum. Ekki hefur tekist að sama
skapi að auka við auglýsingamagnið; þar hefur verið
haldið í horfinu, en lítið meira. En niðurstöðutölur um
reksturinn á framangreindu níu mánaða tímabili liggja
nú fyrir, og kemur þar í ljós að hann hefur skilað sæmi-
legum hagnaði. Það er nokkuð sem sumir bjuggust ekki
við.
En hvað sem líður sölu og útbreiðslu Vestfirska frétta-
blaðsins, þá hefur reynst furðulega erfitt að koma fólki
(og auglýsendum) í skilning um staðreyndir á því sviði.
Margir virðast trúa því að blaðið seljist lítið og hagur
þess sé slæmur. Enda hefur verið rekinn harður áróður
gegn okkur á þessu sviði. En það er staðreynd, að blaðið
er keypt á nánast öðra hverju heimili á ísafirði (trúlega
er það nálægt heimsmeti þegar um er að ræða blað sem
er selt, en ekki dreift frítt). Samt er því ekki að neita,
að sala blaðsins á ísafirði er nú nokkru minni en á fyrri
tíð þegar samkeppni var ekki teljandi. í Bolungarvík er
blaðið keypt á þriðja hverju heimili. Og okkur er tjáð,
að á sunnanverðum Vestfjörðum sé Vestfirska frétta-
blaðið nú með meiri útbreiðslu en önnur blöð sem þó á
að heita að sé „dreift“ frítt.
En betur má ef duga skal í áróðursstríðinu, og þess
vegna munum við nú á næstu vikum gefa öllum Vestfirð-
ingum kost á að fá blaðið endurgjaldslaust. Áskrifendur
utan Vestfjarða munu einnig fá blaðið frítt, utan hvað
þeir verða rakkaðir um sendingarkostnað.
Á næstu vikum verður Vestfirska fréttablaðið sumsé
borið út frítt á Vestfjörðum. Þetta gildir að sjálfsögðu
líka um sunnanverða Vestfirði; þar verður ekki látið
nægja að láta blaðið liggja frammi á einhverjum afvikn-
um stað. Og sveitimar verða ekki undanskildar, ekki
Strandasýsla, ekki Hólmavík. Það verður erfitt fyrir
keppinauta okkar að halda því fram, næstu vikumar að
minnsta kosti, að Vestfirska fréttablaðið sé ekki besti
auglýsingamiðill á Vestfjörðum.
Vestfirska fréttablaðið hefur í gegnum tíðina haft gott
samband við fólk víða um Vestfirði. í dag hefur blaðið
á sínum snæram tíðindamenn og tengiliði vítt og breitt
um fjórðunginn, og með aðstoð þeirra er það von okkar,
að lesendur fái nokkra innsýn í það fjölbreytta mannlíf
sem blómstrar á Vestfjörðum.
Við hvetjum fólk til að hafa samband við okkur um
alla skapaða hluti, hér eftir sem hingað til. Allar ábend-
ingar um efni era vel þegnar. Þannig gerir gott samstarf
við íbúa svæðisins Vestfirska fréttablaðið að lifandi speg-
ilmynd lífsins á Vestfjörðum.
Með kærri kveðju
frá útgefendum Vestfirska fréttablaðsins.
ááULMi
Kirkjulíf
Dagskráin
„Verum viðbúin“
— samvinnuverkefni skátahreyfingar-
innar, Kiwanis á íslandi, Sjónvarpsins,
allra 9 og 10 ára barna í landinu og
fjölskyldna þeirra
í næstu viku, dagana 23. til 27.
janúar, munu skátar og Kiwanis-
menn afhenda 9 og 10 ára börnum
í grunnskólum landsins verkefna-
bækur varðandi „dagskrá" sem ber
heitið „Verum viðbúin“.
Þessari dagskrá er ætlað að
hjálpa foreldrum og öðrum að
kenna bömum að takast á við þau
vandamál sem upp geta komið,
frá því börnin koma heim úr skóla-
num og þar til foreldrarnir koma
heim úr vinnu.
Þannig mun foreldrum verða
hjálpað til að kenna börnum sínum
hvað beri að varast í umhverfinu
og heima fyrir þegar þau eru ein.
Tekið verður á hættum eins og
slysum í heimahúsum, notkun
eiturefna, umferðaröryggi, barna-
gæslu ofl. ofl.
Auk þessa verður ýmislegt gert
til að vekja athygli á stöðu barna í
þjóðfélaginu. Búnar verða til
hnappnælur sem gefnar verða
öllum sem taka þátt í þessu, vegg-
spjöld verða hengd upp, blaða-
greinar munu birtast um stöðu og
öryggi barna, foreldrum verður
skrifað bréf um markmið og fram-
kvæmd dagskrárinnar og einnig
verða skólayfirvöld upplýst um
verkefnið.
VIÐURKENNINGAR FYRIR
ÞÁTTTÖKUNA
Þegar þátttakendur hafa lokið
þeim verkefnum sem dagskráin
setur þeim, þá geta þeir sent stað-
festingarblað til aðstandenda
hennar, en slíkt blað fylgir bókinni
sem dreift verður. Munu þeir sem
senda þannig staðfestingu um þátt-
töku fá sent viðurkenningarskjal,
sér að kostnaðarlausu.
ÞÁTTTAKA
RÍKISSJÓNVARPSINS
I Sjónvarpinu verður sýndur
stuttur þáttur fyrir hvern kafla í
bókinni, og mun Hermann Gunn-
arsson stjórna þáttunum. Þarna
verða leikin atriði auk þess sem
Hermann fær sex börn í heimsókn
í hvern þátt. Stjórnandi útsending-
ar verður Björn Emilsson og verð-
ur fyrsti þátturinn sendur út að
loknum kvöldfréttum laugardag-
inn 28. janúar nk. Annar þáttur
verður sýndur strax næsta dag að
loknum fréttum og síðan verður
einn þáttur sendur út á hverju
sunnudagskvöldi að loknum frétt-
um í fimm vikur þar á eftir.
ísafjarðarkapella
Guðsþjónusta fyrir foreldra og
böm á sunnudag kl. 11.
Með þessari guðsþjónustu hefst
barnastarf vormisseris. Tilhögun
verður í áframhaldinu sú sama og
í fyrra, að foreldrar og börn geta
komið saman til guðsþjónustu og
byrjað hana saman. Börnin eru
síðar leidd til barnastofu þar sem
Ámý Herbertsdóttir syngur með
þeim og ræðir við þau um það sem
guðsríki tilheyrir. Allir eru velk-
omnir.
Súða víkurkirkja
Fjölskylduguðsþjónusta á sunn-
udag kl. 14.
Fyrsta guðsþjónustan á nýja árinu.
Allir velkomnir.
Alþjóðleg bænavika
í tilefni alþjóðlegrar bænaviku fyr-
ir einingu kristinna manna talar sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson á sam-
komu hvítasunnumanna í sal
Hjálpræðishersins kl. 17 á sunnu-
dag.
Athygli er vakin á þessari sam-
komu sem öllum er boðið til er
styðja vilja að einingu kristinna
manna.
GRAFIKTÆKNIHF.
AÐALSTRÆTI35 - 400 ÍSAFJÖRÐUR
PRENTÞJÓNUSTA - BLAÐAÚTGÁFA
Þarftu að láta prenta?
Þarftu ad hanna það sem þú ætlar að láta prenta?
(Hvað með árans málfræðina?)
Við prentum allt. En við gerum meira.
Við hönnum líka ef þú vilt. Við bjóðum upp á
fagmennsku í útlitsteikningu og textagerð.
Við hönnum allt. Auglýsingar og merki. Eyðublöð.
Við hönnum heilu blöðin ef þú vilt. Allt!
Við höfum þekkinguna og tæknina.
Við prentum allt. Ekki bara eyðublöð og reikninga.
Líka kynningarblöð og bæklinga. Allt!
(Nema peninga). Þú getur skilað lauslegum
efnisdrögum ef þú vilt, og við skulum búa þau til
prentunar. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af
málfræði eða stafsetningu. Við skulum sjá um það.
Við hönnum allt. Og prentum það líka!
Síminn er 3223.
Grafíktækni, ísafirði.