Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 3
3
GunnarJónsson:
Athugasemdir
við tillögu að deiliskipulagi sjúkrahússlóðar, sem auglýst
hefur verið af bæjaryfirvöldum
vEstlirska
liillfirHiri
ísafjörður:
Endurbætur í
Skóbúðinni
85 ár frá því að Leó Eyjólfsson byrjaði
að versla með skó á ísafirði
Margir sem átt hafa leið um
Hafnarstrætið á ísafirði nú síðustu
daga hafa veitt því athygli, að fyrir
innan gluggana á Skóbúð Leós hef-
ur allt verið á rúi og stúi. Sjá hefur
mátt málara og aðra iðnaðarmenn
upp um alla veggi; greinilegt að
þeir hafa ekki verið að máta skó.
í samtali við blaðið sagði Krist-
ján Jóhannsson að undanfarna
daga hafi staðið yfir miklar breyt-
ingar á búðinni til hagræðis fyrir
viðskiptavini, enda voru innrétt-
ingar komnar til ára sinna.
Fólkið hans Kristjáns er svo sem
engir nýgræðingar í skóverslun á
ísafirði. Árið 1904hóf afi Kristjáns
rekstur skóbúðar að Hrannargötu
8 undir nafninu Verslun Leós Ey-
jólfssonar. Hefur reksturinn staðið
óslitið síðan, þótt búðin skipti um
nafn árið 1957 og heiti eftir það
Skóverslun Leós. Úr Hrannargöt-
Nú á laugardaginn (21. jan.) kl.
16 verður opnuð sýning á munum
Söru Pucci í Slunkaríki á ísafirði.
Sarah Pucci er kona hátt á níræðis-
aldri. Hún hefur aldrei litið ásjálfa
sig sem listamann, heldur hefur
hún búið til munina sér til gamans
og gefið þá dóttur sinni, listakon-
unni Dorothy Iannone. Verk Söru
voru til sýnis í Nýlistasafninu í
Reykjavík sl. haust.
Sýningin í Slunkaríki stendur í
tvær vikur og er opin fimmtud,-
sunnud. kl. 16-18.
Við opnunina á laugardaginn
verður sýnd vídeómynd um Söru
sem dóttir hennar hefur gert.
(Því má skjóta hér inn, að ekki
hefur ennþá spurst neitt til mynd-
arinnar sem stolið var af sýningu í
Slunkaríki og við sögðum frá um
daginn. Svona lagað getur orðið
galleríinu dýrt, því að það verður
að borga stolnar myndir fullu
verði.)
Um Söru Pucci
Sarah Pucci vann árum saman
við verksmiðjustörf. Hún var
bráðum sextug, þegar hún byrjaði
að búa gripina sína til og gefa dótt-
ur sinni. Hún hefur aldrei litið á
þetta sem listaverk. Fyrsta sýning-
in á handaverkum hennar var hald-
in í Þýskalandi árið 1973, og átti
unni fluttist Verslun Leós Eyjólfs-
sonar í Fell (Hafnarstæti 3). Þaðan
fluttist búðin um set skömmu áður
en Fell brann árið 1946, og fór þá
í núverandi húsnæði að Hafnar-
stræti 5. (Það er varla hægt að
flytja öllu styttri leið en um eitt
húsnúmer við götu).
I öll þessi ár hefur skóverslun
þessarar fjölskyldu staðið af sér
alla samkeppni, og nú árið 1989 er
verslunin 85 ára. Afþvítilefnim.a.
er farið í þær endurbætur sem getið
var í upphafi.
Hin síðari ár hefur Margrét,
dóttir Leós, ásamt manni sínum
Jóhanni Júlíussyni útgerðarmanni
og tveim sonum, séð um rekstur
verslunarinnar. Og það er greini-
lega engan bilbug að finna á Jóa og
Grétu í því að útvega ísfirðingum
vandaða og góða skó.
Dieter Rot þar hlut að máli.
Tveimur árum síðar sýndi Ben
Vauthier verk hennar í galleríi
sínu í Nizza. Síðan hafa fylgt í
kjölfarið sýningar í ýmsum hinum
virtustu sýningarsölum.
Sarah fer eldsnemma á fætur á
morgnana til þess að vinna, „því
að tíminn flýgur" eins og hún segir.
Bráðum níræð, og still going
strong.
Gunnar Jónsson.
Með þessari tillögu er lagt til að
nýrri kirkju verði ætlaður staður í
næsta nágrenni nýja sjúkrahússins.
í samþykktu aðalskipulagi fyrir
ísafjarðarkaupstað er gert ráð fyrir
tveimur lóðum undir kirkjur og
kirkjustarfsemi, annars vegar þar
sem Eyrarkirkja stendur og hefur
staðið um aldir, og hins vegar við
Tunguárós inni í Firði.
Þetta er rökrétt, með tilliti til
þess, að fjölgi íbúum hér á ísafirði
í næstu framtíð, er reiknað með að
sú stækkun byggðar sem af því
leiðir verði svo til öll á Fjarðar-
svæðinu.
Kirkjubygging sú, sem lagt er til
að rísi þarna undir vegg sjúkra-
hússins, hlýtur að verða í yfirþyrm-
andi ósamræmi við sjúkrahúss-
bygginguna, ef svo hörmulega tæk-
ist til að tillagan yrði samþykkt af
yfirvöldum. Þetta ósamræmi mun
æpa á íbúa þessa bæjar og aðra,
hvaðan sem litið verður til þessa
svæðis, hvort heldur er frá höfn-
inni eða neðan úr bænum, en þó
sér í lagi þegar komið er út eftir
Skutulsfjarðarbraut og frá Fjarð-
arsvæðinu.
Með þessu er spillt sérstæðu
svipmóti sem enn er óskaddað,
svipmóti gamla Eyrarbæjarsvæðis-
ins sem einkennist af kirkjunni,
gamla sjúkrahúsinu og Túngöt-
unni. í þessu sambandi er vert að
benda á, hversu vel hefur tekist til
við hönnun hins nýbyggða stórhýs-
is við Mjallargötu, sem fellur svo
vel að umhverfinu og svip þeirra
húsa sem fyrir eru, að manni finnst
að þetta hús hafi alltaf verið þarna
og annað geti ekki passað betur.
Á síðustu áratugum hafa menn
hér á landi vaknað til vitundar um
gildi þess umhverfis sem geymir
sögu genginna kynslóða, að okkur
beri að varðveita það og nýta svo
sem kostur er.
Bein afleiðing þessa skipulags-
slyss, ef af verður, er hugsanlega
sú, að gömlu kirkjunni verði sópað
burt vegna þess afkáraskapar að
hafa tvær kirkjur svo nálægt hvora
annarri.
Benda má á, að í frumvarpi að
lögum um minjavernd, sem lagt
hefur verið fram á Alþingi, er
ákvæði sem bannar niðurrif kirkna
sem byggðar hafa verið fyrir 1918.
ísfirðingafélagið í Reykjavík
gengst fyrir sínu árlega Sólarkaffi
föstudaginn 27. janúar í Veitinga-
húsinu Glæsibæ. Húsið verður
opnað fyrir matargesti kl. 18, en
Einmitt á því svæði, þar sem
nýju kirkjunni er ætlaður staður
samkvæmt tillögunni, er grænt
svæði til yndisauka og nota fyrir
sjúklinga, íbúa Hlífar og aðra
bæjarbúa. Auk þess lyftir þetta
svæði nokkuð hinum þunga svip
sjúkrahússbyggingarinnar.
Síðast en ekki síst er þarna um
að ræða verulega skammsýni, að
ætla sér að þrengja svo mjög að
sjúkrahússbyggingunni, að útilok-
að verði að í framtíðinni rísi nokk-
ur bygging fyrir skylda starfsemi
eða stækkun sjúkrahússins að
norðanverðu, eins og reiknað hef-
ur verið með.
Það er hverjum manni óskiljan-
legt, vilji hann á annað borð hug-
leiða málið, hvernig sá maður sem
unnið hefur að skipulagi þessa bæj-
ar í a.m.k. sextán ár og gert hér
marga góða og þakkarverða hluti,
Ingimundur Sveinsson arkitekt,
skuli geta látið slíka tillögu frá sér
fara, athugasemdalaust að því er
virðist.
Gunnar Jónsson.
kl. 21 hefst hin hefðbundna
dagskrá með kaffi og rjómapönnu-
kökum.
Aðgangseyrir er kr. 1.200.
Borðapantanir í sfma (91)83436.
ÞORRAMATUR - ÞORRAMATUR
Þorramatinn færðu hjá okkur!
OPIÐ:
Máxiudagfa til föstudaga
kl. 9:30 - 12:30 og
13:30 - 19:00
Laugardaga
kl. 11:00 - 18:00
Sunnudaga
kl. 13:00 - 16:00
uerslunin
Hnífsdal
Slunkaríki:
Bráðum níræð
nýlistakona!
(stolna myndin ófundin)
Sólarkaffi /sf/rð-
inga í Reykjavík
Hjarta“ eftir Söru Pucci.