Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Page 4
4
NÝTT SÍMANÚMER 688888
!/c3'Að/um' fafa&ttsS&Ms/Hp lHZfUaA/.
ACYC1D Bflaleiga
WE I ðl 1% Car rental
SUÐURLANDSBRAUT16 (VBgmólamegin), REYKJAVfK. SlMI 91 688888.
ÞÚ TEKUR VIÐ BÍLNUM Á FLUGVELLINUM ÞEGAR ÞÚ KEMUR OG
SKILUR HANN EFTIR Á SAMA STAÐ ÞEGAR ÞÚ FERÐ.
s
IsaQarðarkaupstaður
Styrkir frá Menningarráði
Aðilar sem óska eftir styrkjum frá Menning-
arráði ísafjarðar 1989 eru vinsamlega beðnir
að senda umsóknir til formanns ráðsins,
Bjöms Teitssonar Túngötu 20, fyrir 1. febrúar
næstkomandi.
Mermingarráð.
Deiliskipulag
Auglýst er deiliskipulag sjúkrahússreits á
Isafirði, en þar er m.a. gert ráð fyrir kirkju-
byggingu, í samræmi við grein 4.4. í skipu-
lagsreglugerð nr. 318/1985.
Skipulagstillagan liggur frammi á 1. hæð í
Stjómsýsluhúsinu frá og með 3. janúar 1989
til 31. janúar sama ár.
Athugasemdir, ef einhverjar em, skulu vera
skriflegar og berast bæjarstjórn fyrir 1. fe-
brúar 1989.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
£\ GRAFIKTÆKNIHF.
AÐALSTRÆTI35 - 400 ÍSAFJÖRÐUR
PRENTÞJONUSTA
BLAÐAÚTGÁFA
0“ 3223 OG 4011
Tálknafjördur:
Nýi íþróttasalurinn
í gagnið - að hluta til
f byrjun febrúar munu Tálkn-
firðingar taka í notkun hluta
íþróttasalarins í nýja íþróttahús-
inu. Þama er um að ræða rúman
helming af því sem salurinn verður
fullgerður.
Þá á því eftir að ganga frá tæpum
helmingi salarins, og einnig verður
eftir frágangur í helmingi hússins,
þar sem fyrirhuguð er aðstaða fyrir
félagsstarfsemi, anddyri, geymslur
og fleira.
Húsið er búið að vera lengi í
byggingu og ekki gott að spá um
verkalok, enda er þetta mikið
mannvirki og ekki tjaldað til einn-
ar nætur.
Þessi mynd er tekin að sumri til, fyrir hálfu öðru ári. Tvílytta húsið hægra
megin er Dynjandi, gamla samkomuhúsið á Tálknafirði. Það er nú í eigu
Kvenfélagsins Hörpu. Lágreista húsið fjær er nýja íþróttahúsið. Þegar
myndin var tekin var búið að klæða hluta þaksins (Ijósi hlutinn), en nú er
þakið fuiigert. Nýja sundlaugin er við þá hlið íþróttahússins sem snýr að
gamla húsinu, umlukin Ijósleitum skjólvegg. Hún erekki afneinum vanefn-
um ger fremur en íþróttahúsið.
Í5
vestfirska
TTABLADID
Svavar Gestsson menntamálaráðherra
á landsreisu um Vestfirði:
Skólinn má aldrei
vera afgangsstærð
í þjóðfélaginu
Það verður varla sagt, að
Vestfirðingar hafi verið afskiptir
um ráðherraheimsóknir um síð-
ustu helgi. Hér voru á ferðinni
hvorki meira né minna en þrír
ráðherrar. Formannafundur A-
flokkanna var haldinn á fæðing-
arstað Jóns Baidvins í Alþýðu-
húsinu á föstudagskvöld með
um heiðar. Auk þess að heimsækja
skóla ætluðum við að halda fund á
Núpi. Það verður hins vegar að
bíða betri tíma, en við erum stað-
ráðin í því að ljúka þessu verkefni
hér. Einnig verður það kannað,
hvort við komumst í þessu þinghléi
í Vestur-Barðastrandarsýslu, á
Patreksfjörð og til staða þar í ná-
höfum við einnig skoðað, þannig
að við höfum reynt að ná yfir alla
þá þætti sem tilheyra okkar mála-
flokki. Og ekki má gleyma því, að
við heimsóttum einnig Grunnskól-
ann í Súðavík. Við höfum fræðst
um það sem verið er að gera og
reynum að spyrja okkur áfram um
hluti. Við reynum að átta okkur á
Svavar Gestsson menntamálaráðherra.
sérlegum ræðupúltum og
„lúðraþyt og söng“ að hætti
Ámunda Ámundasonar. Það
vantaði að vísu flugeldana og
fýrverkeríið sem átti að nota til
að minna bæjarbúa á fundinn,
komst víst ekki vestur, en úr
því verður bætt á næstu
fundum.
Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra efndi hins vegar
til gamaldags skólamálafundar
á Hótel ísafirði á laugardaginn,
sem reyndar var ágætlega sótt-
ur og á endanum bráðfjörugur.
Með Svavari voru samstarfs-
menn hans úrmenntamálaráðu-
neytinu, þær Guðrún Ágústs-
dóttir aðstoðarráðherra og
Gerður G. Óskarsdóttir ráðu-
nautur um skólamál. Á þessum
fundi flutti Gerður langt og
greinargott erindi um öll skóla-
stigin, frá forskóla og upp í há-
skóla, og ráðherrann svaraði
fyrirspurnum.
í tilefni heimsóknarinnar átti
Vestfirska fréttablaðið samtal
við menntamálaráðherra, og í
upphafi var vikið að því hvort
hér væri um að ræða fyrstu
landsreisu Svavars Gestssonar
eftir að hann tók við embætti í
haust:
„Nei, þetta er ekki fyrsta ferðin.
Við fórum fyrst á Norðurland
eystra og héldum stóran skólafund
á Akureyri, þar sem voru á annað
hundrað manns. Síðan heimsótt-
um við fjölmarga skóla á svæðinu,
og reyndar á Norðurlandi vestra
líka, og því má segja að þetta sé
önnur lotan. Hún varð kannski
ekki eins góð og við ætluðum
okkur, þar sem ófært var vestur
grenninu. Staðreyndin er sú, að
það skilur enginn maður neitt með
því að styðjast eingöngu við papp-
íra á skrifborði. Að minnsta kosti
hefur mér ekki verið gefin sú
spektin að skynja hlutina þannig.
Þess vegna finnst mér ég þurfa að
fara á staðina til að átta mig á því
hvað ég er að taka ákvörðun um
hverju sinni.
Við höfðum samband við
fræðslustjóra og bæjarstjórn ísa-
fjarðar og báðum um að skipulögð
yrði fyrir okkur ferð á þessu svæði.
Við heimsóttum skólana í Bolung-
arvík og skoðuðum íþróttahúsið.
Á ísafirði komum við í Grunnskól-
ann, bæði á Eyrinni og í Hnífsdal.
Einnig fórum við í Menntaskólann
og litum á verkmenntunaraðstöðu
Iðnskólans. Tónlistarskólann
heimsóttum við einnig, svo og
söfnin á ísafirði. Það verður at-
hyglisvert að fylgjast með upp-
byggingu þeirra í húsnæði gamla
sjúkrahússins. Dagvistarheimili
því, hver séu helstu vandamálin.
Síðan setjum við í gang áætlun um
það, hvernig á þeim verður tekið.“
Við erum samverkamenn
- Hvernig hafa menn tekið
þessari vettvangskönnun ráðherra
og aðstoðarmanna hans?
„Menn hafa tekið þessu heldur
vel, mér fannst þessi fundur á
Hótel ísafirði fremur skemmti-
legur. Við reynum að setja þetta
þannig upp, að við séum sam-
verkamenn, við sem erum að vinna
í ráðuneytinu og það fólk sem er
að vinna í skólunum. Að við eigum
sameiginleg verkefni að fást við.
Ég held að fólki líki þessar heim-
sóknir vel, þær eru óvenjulegar.
Það var ekkert sérstakt sem kallaði
þessa daga, við völdum þá sjálf og
þetta er bara á verkefnaskránni.
Við ákváðum líka að fara á
Norðurland eystra, þar hafa að
vísu verið uppi alveg sérstök