Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Page 6
6
vBstfírska
TTABLASIS
A
Patreks-
fjörður
— gott á línuna
þegar gefur
Sigurey er á sjó, fiskar væntan-
lega í siglingu og á bókaðan sölu-
dag 1. febrúar. Þrymur hefur farið
eina veiðiferð eftir áramót og er
nú í sínum öðrum túr. Síðast land-
aði hann á Faxamarkaði og fékk
gott verð, eða 69,56 kr. meðalverð
á kíló.
Tálkni hefur verið með þetta
fimm til tíu tonn á línuna í hverjum
róðri. Þannig hefur verið ágætisafli
þegar gefur, en tíð hefur verið
leiðinlega rysjótt.
Vestri var með 32 tonn í fjórum
ferðum á línu í síðustu viku og
Patrekur hafði 35 tonn í fjórum
róðrum. Uppistaðan í afla bátanna
var þorskur, en þeir skila öllu
slægðu í land.
Haukur Böðvarsson frá ísafirði
er nú gerður út frá Patreksfirði og
er á línu. Fiskirí hefur verið bæri-
legt hjá þeim eins og öðrum línu-
bátum á Vestfjörðum.
Tálkna-
fjörður
— lítið að frétta
af togaraafla
Tálknfirðingur er á sjó og hefur
landað einu sinni frá áramótum.
Von var á honum í land fyrir helg-
ina.
María Júlía fór þrjá róðra í síð-
ustu viku og var með þetta sex til
sjö tonn í róðri. Máni fór einn
róður í síðustu viku og var með
rúm 5 tonn. Báðir bátarnir hafa
verið á sjó upp á hvern dag í þess-
ari viku.
Sölvi Bjarnason landaði í fyrra-
dag um 70 tonnum og fór allur afl-
inn til vinnslu í landi. Rækjubátar
byrjuðu fyrir nokkru á rækjunni
aftur eftir jólafrí og er aflinn
góður.
Nú eru menn óðum að verða
búnir að jafna sig eftir jólahátíðina
og er fólk nú í óðaönn að undirbúa
þorrablót á Bíldudal. Veg og
vanda af þeim undirbúningi hefur
kvenfélag Slysavarnafélagsins og
verður það haldið þann 28. jan.
Frá höfninni á Flateyri.
Þlngeyri súðavík
— sama lélega
fiskiríið hjá
togurunum
Framnes og Sléttanes áttu að
koma í land í gær og var frekar
dauft hljóð í mönnum. Afli hjá
togurunum hefur verið tregur eins
og annars staðar.
Línubátar hafa gert það gott og
fengið ágætan afla. Á þriðjudag
landaði Tjaldanes um 4,5 tonnum
af ágætisfiski.
Flateyri
— skortur á hrá-
efni hjá frystihús-
inu, starfsfólk not-
ar tímann til að
dytta að og þrífa
Gyllir átti að koma í land í gær
eða dag með eitthvað um 50 tonn.
Hann hefur verið að þvælast um
allan sjó, en lítið fengið.
Línubátar hafa geta verið á sjó
nú eftir helgi og hafa verið með
þetta fimm til sjö tonn í róðri,
Benni Vagn og Sif.
— rækjuveiðar
hafnar í Djúpinu,
rækjan frekar smá
Haffari landaði á laugardag 2,5
tonnum af úthafsrækju, en hann
kom inn vegna veðurs. Togarinn
Bessi landaði svo 55,5 tonnum á
þriðjudag og fór allur aflinn til
vinnslu í landi.
Rækjubátar sem stunda veiðar
á ísafjarðardjúpi byrjuðu flestir á
mánudag. Valur var með 3,9 tonn
rúm af rækju í tveimur róðrum,
Sigrún var svo með rúmlega 3,8
tonn eftir tvo róðra og Hafrún með
3,3 tonn tæp, sömuleiðis í tveimur
róðrum.
ísafjörður
— það er sama
sagan, gott á línu,
en frekar tregt hjá
togurunum
Guðbjartur fór á veiðar þann
níunda og hélt þá austur fyrir land.
Fiskirí var lélegt þar og slæmt
veður, svo að nú í vikubyrjun var
hann kominn aftur á heimaslóð og
afli eitthvað að glæðast.
Ný tækni:
Bylting í fiskvinnslu?
Línuaflinn hefur verið góður,
þrátt fyrir frátafir í síðustu viku
vegna veðurs. Hafa þeir verið með
þetta 10 til 12 tonn í róðri að jafn-
aði undanfarna daga.
Páll Pálsson landaði á mánudag
um 60 tonnum og Júlíus Geir-
mundsson um 95 tonnum. Af afla
Júlíusar var sett í tvo gáma og fór
annar á markað í Hafnarfirði, en
hinn til Bretlands. Guðbjörg kom
í land í gær með 95 tonn.
Rækjufréttir
Eint; og fram hefur komið, þá
eru rækjuveiðar hafnar aftur eftir
jólafrí, bæði í Arnarfirði og í ísafj-
arðardjúpi. Af því tilefni slógum
við á þráðinn til Guðmundar Skúla
Bragasonar hjá Hafrannsókn á
ísafirði og spurðum frétta. Hann
sagði að rækjuflotinn hefði byrjað
veiðar á ísafjarðardjúpi á mánu-
dag, þótt heimild hafi verið til að
byrja á föstudag í síðustu viku. Þá
var hins vegar svo slæmt veður, að
menn héldu að sér höndum fram
yfir helgina. Rækjan var sæmileg
fyrsta daginn, en annars er uppi-
staðan í þessu ársgömul rækja.
Sagðist Guðmundur reikna með
að svona yrði þetta út vertíðina.
Nú í febrúar verður farið í stofn-
mælingaleiðangur á rækju í ísa-
fjarðardjúpi og endanlegar veiði-
heimildir miðaðar við útkomuna
úr þeim rannsóknum. Á haustver-
tíðinni veiddust alveg um 300 tonn
af rækju í Djúpinu.
í Arnarfirði hefur rækjuveiði
gengið vel og uppistaðan í aflanum
fjögurra ára rækja.
Fyrir þremur árum var svipað
vandamál í Amarfirði og nú er í
ísafjarðardjúpi, en þá var uppi-
staðan í afla ársgömul rækja. Guð-
mundur sagði að menn vonuðu nú
að útkoman í ísafjarðardjúpi yrði
eitthvað svipuð á næstu ámm þeg-
ar smáa rækjan fer að vaxa upp.
Strax á næsta ári ætti að verða
veruleg breyting, því ársgamla
rækjan væri þá búin að þrefalda
þyngd sína yfir sumarið. Taldi
hann rétt að fara rólega í veiðarnar
í Djúpinu á þessari vertíð með von
um betri útkomu á þeirri næstu.
Bolungarvík
— ágætur afli hjá
Flosa á Ifnunni
Flosi hefur verið með um 11
tonn í róðri að meðaltali, en minni
bátarnir eins og Jakob Valgeir og
Gísli Kristján með um 7,5 tonn.
Dagrún átti að koma inn í gær
með um 75 til 80 tonn. Heiðrún
átti svo að koma inn fyrir helgina.
Engin loðna hefur borist á land
í Bolungarvík að undanförnu,
enda langt á miðin. Nú eru loðnu-
skipin aðallega að veiðum við
Austfirði og lítil von til að þau sigii
með aflann á fjarlægar hafnir eins
og Bolungarvík, um hávetur þegar
búast má við slæmum veðmm á
leiðinni.
Suðureyri
— góður
mánudagur
Línubátar rem ekkert í síðustu
viku, en fóru einn róður sl. mánu-
dag og fengu ágætis afla. Ingimar
var með 5,5 tonn, Kristján 7 tonn,
og Bjamveig 3,5 tonn.
Héraðsnefnd Vestur-Barð.:
Guðmundur Sævar
formaður
Frá Noregi berast nú þær fréttir,
að búið sé að finna aðferð til
geymslu á ferskum fiski, er komi
hugsanlega til með að valda bylt-
ingu á því sviði.
Einn aðalmaðurinn á bak við
þetta er íslendingur að nafni Jó-
hann Ólafsson, sem starfað hefur
í Tromsö í Noregi. Hann og félag-
ar hans eru nú að afla sér einka-
leyfa á nýrri geymsluaðferð á
ferskum fiski, sem er svo einföld,
ef marka má fréttir, að ýmsir trúa
því vart að hún geti staðist. Jóhann
og félagar hans fullyrða, að með
þessari aðferð sé hægt að halda
fiski ferskum í allt að átta vikur.
Segjast þeir hafa gert tilraunir með
_þettai>g;þá aðallega við geymstu á
laxi, og hafi þær skilað mjög góð-
um árangri.
Þarna mun vera um það að
ræða, að fiskurinn er settur í ein-
hvers konar lofttæmdar umbúðir,
sem síðan eru hitaðar við vægt
hitastig. Hitunin drepur gerla og
veldur því að rotnun á sér ekki stað
nema á löngum tíma. Ekki mun
þessi aðferð vera að öllu leyti
óþekkt, því að með svipuðum að-
ferðum hefur hálfsoðnum eða
steiktum matvælum verið pakkað
í neytendaumbúðir um langt ára-
bil. Eftir því sem blaðið kemst
næst, þá telja Jóhann og félagar að
þeirra aðferð sé samt nokkuð
önnur en tíðkast hefur, og felist
það m.a. í aðferðinni við hitunina.
Spurningin hlýtur því að vera sú,
hvort þarna sé hugsanlega búið að
finna aðferð til geymslu á ferskum
fiski, sem valdið geti straumhvörf-
um fyrir allan fiskiðnað og útflutn-
ing, hér á landi sem annars staðar.
Um þetta eru ekki allir sammála
og halda sumir því fram að með
þessari geymsluaðferð sé fiskurinn
soðinn að einhverju marki, og því
sé naumast um ferskan fisk að
ræða. Telja þeir hinir sömu að um
mjög takmarkaðan markað sé að
ræða fyrir slíka vöru, þó að enn
eigi eftir að reyna á það.
Nýstofnuð héraðsnefnd Vestur-
Barðstrendinga kom saman til
fundar á Patreksfirði á þriðjudag-
inn. Þar var Guðmundur S. Guð-
jónsson á Bíldudal kosinn formað-
ur og Jón Bjarnason á Tálknafirði
varaformaður. Héraðsnefndin er
skipuð tíu mönnum; tveir eru frá
Bíldudal, tveir frá Tálknafirði,
fjórir frá Patreksfirði, einn úr
Barðastrandarhreppi og einn úr
Rauðasandshreppi. í héraðsráð
(skipað þremur úr hópi héraðs-
nefndarmanna) hlutu kosningu
Guðmundur Sævar og Patreksfirð-
ingarnir Stefán Skarphéðinsson og
Sigurður Viggósson.