Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Síða 8
ERNIR P
Bílaleiga
Vestfirska
hefur heyrt...
... a ð ónefndur starfsmaður ís-
húsfélags ísfirðinga hafi stolið
senunni á opnum fundi A-for-
mannanna í Alþýðuhúsinu á
Isafirði um daginn. Vegna
þessa mun verið að endur-
skoða framhald fundanna. Það
er skoðun margra að mikilvægt
sé að fá mann þennan til að
slást í för með þeim Jóni og
Ólafi „á rauðu ljósi“ um landið,
til þess að tryggja fullan damp
á fundunum. Kannski hann
verði hluti af settinu eins og
sérsmíðuðu púltin, fiugeldarnir
og Ámundi...
... að á síðustu stundu hafi ver-
ið hætt við að selja aðgöngu-
miða á téðan fund Jóns Bald-
vins og Ófafs Ragnars á 200
krónur stykkið, en óska í stað-
inn eftir frjálsum framlögum
(mælt var með frjálsu framlagi
upp á t.d. 200 krónur per
mannl). A.m.k. stóð ákvörðunin
um að selja inn ennþá óhögguð
tveimur tímum fyrir fundinn.
Ástæða fyrir þessum sinna-
skiptum? illkvittnir menn og
skynsamir telja að þetta hafi
verið gert til að komast hjá því
að greiða söluskatt og skemmt-
anaskatt af aðgöngumiðunum.
Samskot á trúboðssamkomum
eru undanþegin slíkum
gjöldum...
... að stórtíðinda sé að vænta
á næsturini varðandi málefni
Kaupfélags (sfirðinga; að
þessa dagana sé unnið að því
hörðum höndum á ýmsum víg-
stöðvum að koma styrkari stoð-
um undir reksturinn. Hefur
heyrst aö Sambandið taki mik-
inn þátt (þeirri endurskipulagn-
ingu...
Bílvelta
á
Botnsheiði
Róbert Schmidt, Suðureyri.
Bílvelta varð í síðustu viku á
Botnsheiði. Fólksbifreið fór eina
veltu og lenti aftur á hjólunum.
Lítilsháttar hálka var á veginum.
Ökumaður og farþegi sluppu án
meiðsla. Bíllinn skemmdist lítil-
lega á þaki, en reyndist ökufær
þrátt fyrir óhappið.
Bifreiðaskoðun íslands h.f.:
Áfram skoðað á
Vestfjörðum!
í síðustu viku var greint frá því
hér í blaðinu, að erfiðlega hefði
gengið að fá upplýsingar um þau
mál sem áður heyrðu undir Bif-
reiðaeftirlit ríkisins. Við gáfumst
þó ekki upp og náðum tali af Vil-
hjálmi Bjarnasyni hjá Bifreiða-
skoðun íslands nú eftir helgina.
Vilhjálmur sagði að nýja fyrir-
tækið kæmi til með að verða með
aðstöðu á Isafirði, þar sem yrði
miðstöð þjónustu fyrir Vestfirði.
Mun Bifreiðaskoðun íslands h.f.
verða með aðstöðu inni í Firði þar
sem Bifreiðaeftirlitið var áður,
a.m.k. fyrst um sinn. Nú er hins-
vegar verið að leita að hentugra
húsnæði þar sem hægt yrði að
skoða allar bifreiðar innandyra.
Ekki kvaðst Vilhjálmur þó vera
með opnunardaginn á hreinu, en
á mánudagsmorgun hefði verið
gcngið frá ráðningu starfsmanns á
Isafirði, og mun Jóhann Magnús-
son bifvélavirki á ísafirði sinna
bifreiðaskoðun á Vestfjörðum
framvegis. Á stöðum utan ísa-
fjarðar mun Jóhann sinna bifreiða-
skoðun í nýju færanlegu skoðunar-
stöðinni, eftir því sem henni verð-
ur við komið.
Varðandi fyrirkomulag bifreiða-
eftirlitsins sagði Vilhjálmur: „Ef
einhver breyting verður á bifreiða-
skoðuninni á Iandsbyggðinni í
framtíðinni, þá verður hún til
mikilla bóta, en ég játa það fúslega
að við höfum farið svolítið van-
búnir af stað.“
Um það hvers vegna svo erfið-
lega gekk að ná sambandi við þá
hjá Bifreiðaskoðun íslands h.f.
sagði Vilhjálmur: „Það voru
fleiri sem náðu illa sambandi og
við þurftum að svara miklu af fyrir-
spurnum um hin aðskiljanlegustu
efni. Við vorum þrír ráðnir til
fyrirtækisins um miðjan nóvember
og forstjórinn heldur fyrr. Hann
var hinsvegar ekki laus úr sínu
fyrra starfi fyrr en um áramót. Ef
vel hefði átt að vera, þá hefði þetta
þurft meiri undirbúning, en ég
held samt sem áður að það hafi
enginn farið illa út úr þessum van-
búnaði okkar. Það var þó eitt sem
menn gerðu sér ekki grein fyrir að
væri eins mikið um og raun ber
vitni, en það eru innlagnir á núm-
erum vegna tryggingarmála. Það
hafa orðið óþægindi af þessu hjá
mönnum sem áttu númer inniliggj-
andi og fengu þau ekki afgreidd,
t.d. á stöðum eins og ísafirði og
nágrenni, en ég neita því nú algjör-
lega að menn hafi orðið fyrir skaða
af þessu. Þetta verður í eitthvað
svipuðu formi áfram eins og áður
var, og næstu þrjá mánuði verður
hægt að fá númerin aftur.
Varðandi starf Bifreiðaskoðunar
íslands h.f. úti um land, þá er ætl-
unin að uppbyggingin á lands-
byggðinni verði nokkuð jafnfætis
því sem verður í Reykjavík. Þetta
er óskapleg fjárfesting sem við
erum nú að ráðast í, vegna þess að
Bifreiðaeftirlit ríkisins var alla tíð
í fjársvelti og við byrjum hér nán-
ast með lágmarksverkfæri.
Við verðum með 14 stöðvar á
landinu öllu, auk nýja skoðunar-
bílsins sem fara mun á minni stað-
ina. Bíllinn á að komast tvisvar um
landið á hverju ári, þannig að eng-
inn á að verða svikinn af því. í
bílnum eru lyftur og búnaður til að
skoða hjólabúnað, prófa bremsur
og annað. Samskonar búnað er
gert ráð fyrir að setja upp í föstu
skoðunarstöðvunum. “
- En hvað með ökuprófin?
„Prófin verða alfarið í höndum
dómsmálaráðuneytisins. Varðandi
framtíð þeirra er nú starfandi sér-
stök prófanefnd. Mun henni ætlað
m.a. að gera tillögur um það
hvernig skipuleggja eigi próf fyrir
ökumenn, þ.e. almenn próf, rútu-
próf og fleira, eftir 1. janúar 1990.
Á þessu ári munu sérstakir próf-
dómarar, sem áður voru starfs-
menn Bifreiðaeftirlits ríkisins,
gegna þessum störfum. Annars
verð ég bara að vísa á dómsmála-
ráðuneytið varðandi þetta, en
Guðni Karlsson mun vera að vinna
þar í þessum málum.“
Hugmynd „á rauðu ljósi“
Á að stofna
Vestfjarðabanka ?
—spurning sem Sólberg Jónsson spari-
sjóðsstjóri í Bolungarvíkvarpaði fram á
fundi Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars í
Alþýðuhúsinu á ísafirði
Hvort af sameiningu Alþýðu- eftir fundaherferðina „á rauðu
flokks og Alþýðubandalags verður ljósi“ skal ósagt látið, en á fundi
formanna flokkanna á ísafirði sl.
föstudag kom fram hugmynd um
sameiningu af öðru tagi. Ekki hef-
ur farið mikið fyrir þeirri hugmynd
í fréttum af fundinum, en hún er
þó allrar athygli verð.
Það var sparisjóðsstjóri þeirra
Bolvíkinga, Sólberg Jónsson, sem
lagði þessa hugmynd fyrir þá Jón
Baldvin og Ólaf Ragnar, þegar
rætt var um sparnað og hagræð-
ingu í bankakerfinu. Benti hann á,
að vel væri hægt að hugsa sér að
steypa útibúum ríkisbankanna
saman í einn landshlutabanka, og
síðan gætu sparisjóðimir komið á
eftir.
Þarna er á ferðinni hugmynd
sem gæti skipt Vestfirðinga tölu-
verðu máli. Með sterkum banka
þeirra sjálfra ætti að vera hægt að
hefta hið taumlausa peninga-
streymi til aðalbankanna í Reykja-
vík.
Til að forvitnast nánar um þetta,
þá slógum við á þráðinn til Sól-
bergs sparisjóðsstjóra, og spurð-
um hann hvort þetta hefði verið
rætt meðal bankamanna á Vest-
fjörðum. Hann sagði, að oft hefði
verið talað um sameiningu banka
og sparisjóða, og oft hefði þetta
borið á góma í máii stjómmála-
manna, en lengra næði það varla.
T.d. hefði komið upp sú hugmynd
að skipta núverandi kerfi peninga-
stofnana upp í landshlutabanka,
en svo aldrei orðið neitt meira úr.
Nú er enn einu sinni verið að tala
um Útvegsbankann og hvað eigi
að gera við hann. Þetta er rætt, en
ekkert gert, sagði Sólberg. Stjóm-
málamenn kenna bönkunum sí-
fellt um óf arirnar í efnahagsmálum
landsmanna, sagði hann, en samt
gerist ekkert. Hann sagðist telja,
að úitibúin á ísafirði og sparisjóð-
irnir á Vestfjörðum væm almennt
vel reknar stofnanir, og þar sem
hann þekkti til væri eiginfjárstaðan
mjög góð.
Vestfjarðabanki, ef stofnaður
yrði, gæti orðið mjög sterkur, og
með tilkomu hans myndi peninga-
streymi minnka til Reykjavíkur.
Ef útibú ríkisbankanna yrðu með
í þessu, þá telur Sólberg að þau
ættu væntanlega að eiga eitthvað
meira í handraðanum en það sem
er á stöðunum í dag. Bæði Lands-
bankinn og íslandsbanki, forveri
Útvegsbankans, stofnuðu útibú á
ísafirði rétt eftir aldamótin, og síð-
an em þau búin að leggja til vem-
lega fjármuni í uppbyggingu aðal-
bankanna í Reykjavík. Þar eiga
því útibúin stóran hlut sem eðlilegt
væri að kæmi inn í nýjan Vest-
fjarðabanka ef stofnaður yrði.
Ekki var á Sólberg að heyra að
hann væri bjartsýnn á að þetta yrði
nokkurn tíma gert; þarna væri
meira talað en minna framkvæmt.
Og þarna væri hrepparígurinn
gamalkunni einnig með í spili.
LÓÐBOLTAR, LÓÐBYSSUR
★ 25 w - 40 w - 75 w
★ Fyrir tré, leður og sitthvað fieira
★ Ýmsir fylgihlutir
POLLINN
VERSLUN
RAFÞJÓNUSTA
SÍMI3092
©
PÓLLINN HF.
—
STEINIÐJAN HF.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
EErum teknir vlð aif
Kaupfélagi ísfirðinga
— Kannið þjónustuna
--- /Vufcfð vöruúrvaf