Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Qupperneq 2
Leifur Benediktsson
2
vestlirska ~
FHGTTABLADID
Vestfirska fréttablaðið kemur út á fimmtudögum. Ritstjórn og auglýs-
ingar: Aöalstræti 35, ísafirði, s. 4011, 4423 og 3223. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon, hs. 4446. Blaðamenn:
Höröur Kristjánsson og Helga Guörún Eiríksdóttir. Auglýsingar: Helga
Guörún Eiríksdóttir, hs. 4641. Dreifing: Rögnvaldur Bjarnason, hs.
4554. Útlitsteikning og Ijósmyndun: Höröur Kristjánsson. Útgefandi:
Grafíktækni h.f., (safiröi. Frkvstj. Hlynur Þór Magnússon. Prentvinnsla:
Grafíktækni hf., Aöalstræti 35, ísafirði.
Brestir í krosstrjám
Fyrst var það forseti Hæstaréttar, nú er það utanríkisráð-
herra.
Það er annars athyglisvert, að því efnaðri og áhrifameiri
sem menn eru, þeim mun meira fá þeir af gjöfum og fríð-
indum. Háttsettir embættismenn með þrjú hundruð þúsund
á mánuði eru líklegri til þess að fá stórgjafir en afgreiðslufólk
með fimmtíu þúsund. Forstjórar fá bílastyrk til að komast
í vinnuna. Aðalforstjórar fá frían lúxusjeppa til að komast
í vinnuna. Verkakallar þurfa að borga af launum sínum til
að komast í vinnuna. Það telst meiri þjóðfélagsleg nauðsyn
að ráðherrar fái ódýrt brennivín en rónar. Kannski þeir noti
líka meira af því en rónarnir.
Krosstré bregðast eins og aðrir raftar. Sú var tíðin að
siðapostuli sat í ritstjórastól á Helgarpóstinum og bar ábyrgð
á gegndarlausu níði og ofsóknum á hendur forsvarsmanna
Hafskips og Útvegsbankans. Svo kom í ljós að maður þessi
hafði þegið ákveðna fyrirgreiðslu hjá þessu sama skipafé-
lagi. Postulinn missti ritstjórastarfið á Helgarpóstinum, þar
eð siðferðisþrek hans þótti ekki samrýmast heilagleika
blaðsins. Hann fékk hins vegar annan stól fljótlega á öðru
blaði. Aðrar kröfur virðast gerðar um siðferði á Alþýðublað-
inu en Helgarpóstinum sáluga. Kannski vegna þess að það
kemur ekki fyrir augu almennings.
Man annars nokkur lengur af hverju Helgarpósturinn dó?
Utanríkisráðherra segir í skýringabréfi sínu til Ríkisend-
urskoðunar vegna hins nýja áfengiskaupamáls, að ritstjóri
Alþýðublaðsins (sem áfengið var keypt til heiðurs) sé bind-
indismaður á vín og tóbak. Ekki verður séð hvað það kemur
málinu við, nema e.t.v. til þess að skýra að ekki voru keyptar
nema rúmlega hundrað flöskur. Ætla má að ráðherra hefði
orðið öllu stórtækari í áfengiskaupunum ef ritstjórinn hefði
fengið sér í glas eins og aðrir.
Vestfirska fréttablaðið leggur til að íslenskir rónar fái að
kaupa ódýrt áfengi til jafns við ráðherra. Það væri sannar-
lega lofsvert framtak í anda jafnaðarstefnunnar.
Hlynur Þór Magnússon.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags launþega
á Isafirði verður haldinn að Hafnar-
stræti 12, 2. hæð, föstudaginn 29. sept.
1989 kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjör fulltrúa á landsfund.
3. Önnur mál.
Stjórnin
Kristniboðssamkomur
í Hólskirkju Bolungarvík mið-
vikudaginn 4. október, í Hlíf ísafirði
fimmtudaginn 5. október, í Flateyrar-
kirkju mánudaginn 9. október, hefjast
kl. 20.30.
Friðrik Hilmarsson og Benedikt Arn-
kelsson tala, og sýna myndir frá ís-
lenska kristniboðinu í Afríku.
Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið.
vestfirska
TTADLADID
Um útboðsreglur
— í tilefni af útboðsmálum í Bolungarvík
„Með þessu hefur bæjarstjórn Bolungarvík-
ur ekki einungis eyðilagt fyrir sér öflugt fyrir-
tæki, heldur hefur hún einnig fækkað verk-
tökum á markaðinum og þar með minnkað
samkeppni, til tjóns fyrir sig og aðra sem bjóða
þurfa út verk... “ /
Alllangt er síðan farið var hér á
landi að leita tilboða í verk með
einum eða öðrum hætti. Það er
hins vegar ekki fyrr en á sjöunda
áratugnum sem útboð á bygg-
ingum húsa eru að mestu komin í
núverandi horf. Meginreglur um
útboð er að finna í íslenskum staðli
nr. 30 og kom fyrsta útgáfa hans út
1969. Staðall þessi hefur síðan
verið endurskoðaður tvívegis, síð-
ast haustið 1988. Staðall er hvorki
ígildi laga né reglugerða, heldur er
hér um að ræða reglur sem full-
trúar þeirra sem starfa á þessum
markaði hafa komið sér saman um
að vinna eftir. Tilgangurinn er
bæði að flýta fyrir viðskiptum með
því að allir fylgi sömu aðferðum,
og ekki síður að jafna rétt beggja
aðila útboðs, verkkaupa og verk-
taka. Þykir þó mörgum verktökum
að þrátt fyrir það sé hlutur þeirra
lakari, því verkkauparnir hafi ráð-
ið mun meiru um þær reglur sem
farið sé eftir.
Brot á útboðsreglum
Þar sem engin sérstök lög eða
reglugerðir gilda um útboð, er ekki
unnt að dæma menn til neinna
venjulegra refsinga þó þeir fari
ekki eftir ákvæðum staðals eða
brjóti á annan hátt í bága við þær
viðskiptavenjur sem skapast hafa,
og koma slík brot nokkuð oft fyrir.
Stundum stafa þau einfaldlega af
kunnáttuleysi þess sem undirbýr
útboðið eða stendur að því. Margir
virðast halda að útboð felist í litlu
öðru en að auglýsa í blaði eftir
verktaka til að vinna ákveðin verk,
og síðan geti sá sem auglýsti um-
gengist tilboð verktakans að vild
sinni. Ef staðli er fylgt, er í honum
að finna nákvæmar reglur um
hvernig fara skuli með tilboð og
eftir hvaða reglum skuli farið
þegar verktaki er valinn. Aðrir
verkkaupar eru aftur á móti ekki
nægilega sterkir á svellinu sið-
ferðislega til að fylgja þessum
reglum þegar þeim finnst útkoman
ætla að verða önnur en þeir höfðu
óskað í upphafi. Þessir síðast-
nefndu hafa þá gjarnan verið búnir
að ákveða verktakann fyrirfram,
en efna til útboðs annaðhvort af
sýndarmennsku eða til að pressa
verðið niður hjá óskaverktak-
anum. Þess eru jafnvel dæmi að
slíkir verkkaupar hafi samið við
hinn útvalda verktaka um að vinna
verk samkvæmt tilboði annars
verktaka. Nú kann einhver að
spyrja: Er þetta ekki allt í lagi,
þessir verktakar græða nóg samt
og við fengum verkið á hagstæðu
verði? Svo kann að virðast við
fyrstu sýn, en er ekki ef betur er
að gáð.
Form útboða
Algengasta útboðsformið er
svokallað opið útboð. Þá mega
allir leggja fram tilboð í verkið,
hvort sem þeir hafa nokkra kunn-
áttu eða fjárhagslega getu til að
leysa það af hendi eða ekki. í stað-
inn tryggir staðallinn verkkaup-
anum rétt til að velja hvern bjóð-
endanna sem honum sýnist, en
auðvitað velur hann oftast þann
sem lægst býður af þeim bjóð-
endum sem hann metur hæfa.
Annað þykir vera brot á eðlilegum
viðskiptaháttum. Verkkaupar sem
ekki vilja fylgja þessari reglu,
heldur velja verktaka eftir ein-
hverjum öðrum sjónarmiðum,
vilja ógjarnan viðurkenna að svo
sé. Alvöru verktakar sem þannig
eru sniðgengnir, verða þá gjarnan
fyrir því að vera álitnir vera með
ótraustan fjárhag og verða þannig
oft fyrir alvarlegum álitshnekki.
Kostnaður við gerð
tilboða
Önnur ástæða er sú, að það kost-
ar verktaka mikið fé að reikna
tilboð, mismikið eftir eðli
verksins, en tölur milli 40 og 100
þúsund krónur eru algengur
kostnaður við heildartilboð í bygg-
ingu húss. í flest verk bjóða margir
verktakar, oft 4-8, þannig að
verktakar verða að leggja í tölu-
verðan kostnað við gerð margra
árangurslausra tilboða. Þó leggja
menn í þennan kostnað þegar þeir
treysta því að farið sé að réttum
reglum. Öðru máli gegnir þegar
verkkaupinn fer að hafa rangt við.
Fæstir vilja spila við þá sem svindla
í spilum og sama gildir um verk-
taka. Þeir bjóða ógjarnan í verk
hjá slíkum aðilum. Eru þess dæmi
að verkkaupi hafi svindlað svo oft
í spilinu, að hann stóð að lokum
uppi með sinn „óskaverktaka"
einan, og varð að ganga að hans
kröfum ef fá átti verk unnið.
Útboðsmál í Bolungarvík
Einn þeirra staða þar sem menn
hafa ekki fylgt útboðsreglum ná-
kvæmlega á undanförnum árum er
Bolungarvík. Þó brotin hafi ekki
verið eins gróf og lýst var hér að
framan, hafa þau þó verið nægileg
til þess að nú er stærsti verktaki
staðarins og raunar einn stærri
verktaka landsins búinn að fá sig
fullsaddan, og hefur ákveðið að
hætta starfsemi sinni. Það hefur ár-
eiðanlega ekki verið ánægjuleg
ákvörðun að þurfa að yfirgefa með
þessum hætti starfsvettvang sem
getur verið bæði spennandi og
skemmtilegur þegar allt er með
felldu. Það hefur lítinn tilgang að
fara að rekja hér í smáatriðum
hvernig vikið hefur verið frá
réttum útboðsreglum, enda ekki
unnt að gera það í stuttu máli. Þó
má nefna sem dæmi, að eitt sinn
var krafist lækkunar á tilboði sem
útbjóðendum þótti of hátt miðað
við kostnaðaráætlun, án þess að
gefa nokkurn kost á að ræða það
mál nánar. Mátti þó auðveldlega
sýna fram á að kostnaðaráætlun
var of lág í þessu tilviki. Reglur
staðals eru einfaldar í slíkum til-
vikum, óheimilt er að krefjast
breytinga á tilboði, en hins vegar
heimilt að hafna öllum tilboðum
og bjóða út aftur. Þannig fá allir
bjóðendur að endurskoða tilboð
sín, og einnig höfundur kostnaðar-
áætlunar. Einnig er heimilt að
hafna boðum og reyna samninga
við verktaka, þó að sú aðferð sé
mun lakari. Það sem olli ágreiningi
í ár var svipað tilvik þessu, en þó
grófara að því leyti að gengið var
til samninga við annan verktaka
um að vinna hluta verksins eftir
verðum lægstbjóðanda, sem þó
hafði verið hafnað vegna þess að
tilboð hans þótti alltof hátt!
Mikilvægi útboða
og afleiðingar deilna
Með þessu hefur bæjarstjórn
Bolungarvíkur ekki einungis eyði-
lagt fyrir sér öflugt fyrirtæki,
heldur hefur hún einnig fækkað
verktökum á markaðinum og þar
með minnkað samkeppni, til tjóns
fyrir sig og aðra sem bjóða þurfa
út verk. Útboð eru mjög mikil-
vægur þáttur í nútíma viðskipta-
lífi. Sé rétt á málum haldið, tryggja
útboð að verkkaupi fær verk sín
unnin á lægsta fáanlegu verði, án
þess að á neinn hátt sé hægt að
saka hann um óeðlileg viðskipti.
Allir sem til greina koma að vinna
verkið sitja við sama borð þó auð-
vitað geti þeir boðið lægst sem hafa
best skipulögðu fyrirtækin og
áhöld og rekstur í lagi. Það er því
ótækt að ábyrgir aðilar skuli haga
sér með þessum hætti og rýra þar
með traust á útboðum. Gagnkvæmt
traust er á þeim vettvangi þau einu
lög sem byggt er á. Það er líka
slæmt til þess að vita að menn skuli
hafa komið málum síns sveitarfé-
lags svo illa sem raun ber vitni þeg-
ar margar leiðir voru til að koma í
veg fyrir ágreining, ef menn hefðu
aðeins tamið sér að fylgja siðaregl-
unum. Sjálfsagt hafa fleiri verktak-
ar gefist upp af svipuðum ástæðum
á undanförnum árum, þó ekki hafi
borið eins mikið á því og nú, þegar
svo virðist sem sá verktaki, sem
lengst hefur starfað undir sama
firmanafni, sé að hætta. Ég get
ekki annað en áfellst bæjarstjórn-
armenn í Bol-
ungarvík fyrir að svo er komið,
þeir hafa ekki hagað sér skynsam-
lega.
Leifur Benediktsson.
Höfundur er verkfræðingur
hjá framkvæmdadeild
Innkaupastofnunar ríkisins.
Suðureyrarkirkja
Guðsþjónusta sunnudag 1. okt. kl
14.
ísafjarðarkapella
Guðsþjónusta sunnudag 1. okt. kl
11.
Sr. Karl V. Matthíasson.