Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Page 3

Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Page 3
vBstlirska Óánægdur með þjónustu leigubíla — Lögreglan telur fólksflutninga eftir böll ekki í sfnum verkahring Á föstudag í síðustu viku hafði Hlíðar Kristjánsson flutningabíl- stjóri úr Bolungarvík samband við okkur á Vestfirska og sagði farir sínar ekki sléttar. Hafði hann ásamt eiginkonu og nokkrum kunningjum farið á öldurhús á Isa- firði á fimmtudagskvöldið, fengið sér í glas eins og gengur og skemmt sér hið besta. Þegar samkomunni lauk ætlaði svo mannskapurinn að hverfa til síns heima. Var gripið til þess sjálfsagða ráðs að hringja á lcigubíl, en á ísafirði er einmitt starfrækt slík þjónusta. Skcmmst cr frá því að segja, að ekki svaraði síminn á leigubíla- stöðinni og ckki var þar heldur neinn símsvari mcð upplýsingar um hvcrt menn skyldu snúa sér. Því fóru mcnn að blaða í símaskrá og hringdu heim til þcirra scm vitað var aö stunduðu akstur leigu- bíla (undir Fólksbílastöðinni hf \ símaskránni eru talin upp ellefu nöfn ásamt hcimasímum). Töldu menn sig hafa hringt í flcsta lcigu- bílstjóra sem þeir vissu til að störf- uðu við þctta á ísafirði, cn þá ýmist svaraði ckki, cða mcnn voru ckki tilbúnir að sinna þcssu. Leigubíll í Bolungarvík sem sagður var upptckinn þegar hringt var, kom ekki heldur þrátt fyrir loforð um að koma eftir hálftíma. Til skammar fyrir leigubflstjóra Þetta ástand taldi Hlfðar til skammar fyrir stétt leigubílstjóra á svæðinu og þetta tilvik því miður ekkert einsdæmi. Væri brýn nauð- syn orðin á að bæta þessa þjón- ustu, því þetta væri með öllu óvið- unandi í svo stóru bæjarfélagi, þar sem skemmtistaðir eru opnir mörg kvöld í viku. Þá var farið á lögreglustöðina og leitað ásjár löggæslumanna og þeir spurðir hvort þeir vildu aka fólkinu til Bolungarvíkur. Þar var svarið neitandi og að sögn Hlíðars töldu menn þar á bæ að slíkir flutningar væru ekki í verkahring lögregl- unnar, auk þess sem Bolungarvík væri utan þeirra umdæmis. Ekki sagðist Hlíðar hafa verið hress með þessi svör og voru lögreglu- menn því spurðir hvort atvik sem þessi hvettu menn ekki til að aka fullir. Sagði Hlíðar að þeir hefðu svarað því játandi. Reyndar tók Hlíðar það fram að hann hafi þver- tekið fyrir að nokkur úr hópnum settist undir stýri, jafnvel þó að viðkomandi hafi ekki vcrið búinn að drekka nema einn til tvo bjóra. Lögreglan getur ekki sinnt leigubílaþjónustu á álagstímum í samtali við blm. sagði Oddur Árnason varðstjóri sem var á vakt þetta kvöld, að Hlíðar hefði komið ásamt fleirum um klukkan hálftvö um nóttina og sagst vera búinn að reyna að hringja í flesta leigubíl- stjórana án árangurs. Þá hefðu þeir á lögreglustöðinni hringt í þá bílstjóra sem Hlíðar var ekki búinn að ná í, en þeir svöruðu ekki. Þá hafi Hlíðar beðið um að lögreglan æki þeim til Bolungar- víkur, en ekki var orðið við því, þar sem það væri ekki hlutverk lög- reglunnar að sinna slíkum verkefn- um, allra síst á þessum tíma. En er mikið um að fólk leiti til lögreglu vegna þess að ekki næst í leigubíl? Að sögn Jónmundar Kjartans- sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns á ísafirði, þá var mikið um þetta á sínum tíma og þá loguðu allar símalínur á lögreglustöðinni eftir böll. Voru lögreglumenn hættir að geta annað sínum skyldustörfum vegna þessa, og var leigubíl- stjórum þá tilkynnt að lögreglan hætti alfarið að sinna þessu. Eftir það minnkaði þessi ánauð mikið, enda gerði fólk sér grein fyrir því að lögrcglan ræki ekki leigubíla- þjónustu. Sagði Jónmundur að þeir hefðu alfarið lokað fyrir þetta, ncma ef fólk vestan af fjörðum eða úr nágrannasveitarfélögum væri í vandræðum, þá reyndu þeir auð- vitað að hjálpa til eftir bestu getu frekar en að láta það vera vega- laust á ísafirði. Sagði hann að þeir væru ekki tilbúnir að sinna fólki sem kæmi í hópum inn á lögreglu- stöð til að biðja þá um að skutla sér inn í fjörð eða á aðra staði í bænum. „Staðreyndin er sú að óhætt er að fullyrða að þetta hefur ekki verið í nógu góðu lagi hjá leigubílstjórum", sagði Jónmundur. Það vantar bakvakt á leigubflastöðina „Það sem við kvörtum helst yfir, er að þegar leigubílstjórar yfirgefa stöðina, þá er ekki í sambandi símsvari sem bendir á menn á bakvakt. Vissulega eru þessir menn mjög misjafnir, en þarna eru menn innan um sem eru mjög liprir. Við sinnum því hins vegar ekki að hringja í leigubíla eða aka fólki á álagstímum hjá okkur, en ef við sjáum að fólk er í miklum vandræðum þá höfum við reynt að liðsinna því og ntunum gera það áfram ef svo ber undir“, sagði Jón- mundur Kjartansson aðstoðar- yfirlögregluþjónn á Isafirði. Bakvaktir af hinu góða Að sögn formanns Fólksbíla- stöðvarinnar hf. á ísafirði, þá hefur verið reynt að hafa slíkar bakvaktir, en það hefur strandað á því að menn hafa ckki verið sam- mála um hvernig ætti að leysa þetta. Taldi Itann slíkar bakvaktir af hinu góða, en óneitanlega hefðu menn misnotað þær á sínum tíma, m.a. með því að kalla leigubíla út í plattúra. Hann taldi þó nauðsyn- legt að athuga hvort ekki mætti taka þetta upp aftur. Föndurloftið auglýsir: Opna verslun og aðstöðu til námskeiða að Mjallargötu 5 (áður Vinnuver), efri hæð, föstudaginn 6. okt. kl. 13. Kvöld- og dagnámskeið í skartgripagerð úr fímóleir og tau- og glermálun. Innritun í síma 3659 og 3539. Nánari upplýsingar í sömu símum og á staðnum. Föndurloftið - Málfríður Halldórsdóttir. FRA STRÆTO Ferðinni kl. 11 á fimmtudögum í Hnífsdal verður seinkað frá torgi vegna skólabarna. Farið verður frá torginu kl. 11.07. Geiri Eigum ávallt til á lager ýmsar vörur fyrir loftkerfi s.s. slöngur - fittings - tékka - magn- og hraðastilla - olíuskammtara - síur, mæla o.m.fl. Vélvirkinn s/f Bolungarvík sími 7348 I ' /estíirska “1 . FRÉTTABLAÐIÐ ENGIN SPURNING! ATVINNA Vegna mikillar vinnu vantar okkur plötusmiði, vélvirkja og rennismið til starfa. Upplýsingar í S? 3899 og 4470. SKIPASMÍÐASTÖÐ MARSELLIUSAR hf. Símar; Skrifstofa 3575 - Lager 3790 Pósthólf 371 400 (safirði 3 ÓKEYPIS smá- auglýsingar FRYSTIKISTA EÐA FRYSTISKÁPUR Óska eftir frystikistu eða frystiskáp, má ekki vera mjög dýr. Uppl. ís. 3155 og 3016. TAPAÐ Tapast hefur skærbleik úlpa af 6 ára stelpu. Einnig lykla- kippa sem auðkennd er með bókstafnum S og þar undir stendur Benedorm. Finnandi hringi í s. 4204. STÓR GRÁ verkfærataska tapaðist í Engidal í sumar. Finnandi vinsamlegast hafi samband við Sigurð Hólm í s. 3026. Fundarlaun. ÓSKA EFTIR notaðri eldavél, vel með far- inni. Uppl. í s. 3720. TIL SÖLU Volvo 244 árg. 78 nýupptek- inn, 6 mánaða gamalt lakk, ekinn 130 þús. km. Skipti ósk- ast á Volvo árg. ’81 - ’82. Uppl. í s. 94-2613. ITC - SUNNA Fundur hjá ITC - deildinni Sunnu á Hótel ísafirði mánu- daginn 2. okt. 1989 kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn. Stjórnin. AÐALFUNDUR Myndlistarfélagsins verður haldinn sunnudaginn 1. októ- ber ’89 kl. 5 í bókasafni ísa- fjarðar. Venjuleg aðalfundar- störf. Stjórnin. SNJÓDEKK Til sölu eru fjögur ný snjódekk, 185x14. Einnig fjögur snjódekk á feigu undir Mazda, 195x14. Gott verð. S. 7346. TIL SÖLU Pioneer magnari, Pioneér segulband og Pioneer plötu- spilari. Sími 3398. TIL SÖLU Britax barnabílstóll. Sími 4587. HJÓLASKAUTAR Hjólaskautar til sölu, kr. 1225,- Sími 4311. TAPAÐ - FUNDIÐ Svört verkfærataska með sérhæfðum símaverkfærum tapaðist á leiðinni frá sím- stöðinni á ísafirði inn að Hafrafelli. Sími 3999. TIL SÖLU Mazda 929, árg. 78, þarfnast viðgerðar, selst ódýrt. Uppl. í s. 3162. BÍLL TIL SÖLU Mazda 929árg. ’82. Bíll í góðu standi. Uppl. í s. 4416. TIL SÖLU Subaru station GL Turbo, árg. ’85. Ekinn 67 þús km. Góður, vel með farinn bill með öllum aukabúnaði. Skipti möguleg á eldri Subaru station. Uppl. í s. 3720 á kvöldin.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.