Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Síða 4

Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Síða 4
Aðalfundur Aðalfundur Hótels ísafjarðar h.f. verður haldinn miðvikudaginn 11. okt. 1989 kl. 14.00 á Hótel Isafirði: Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga stjórnar um aukn- ingu hlutafjár. 3. Önnur mál. Stjórnin ísfirðingar - nágrannar! Heimsókn frá Reykjavík. Samkomur verða í sal hjálpræðishersins um næstu helgi sem hér segir: Föstu- dags - laugardags - og sunnudagskvöld kl. 20.30. Garðar Ragnarsson talar. Allir velkomnir. Hvítasunnusöfnuðurinn Bæjarfógetinn á ísafirði Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu Héraðslögreglumenn Héraðslögreglumenn vantar nú þegar til starfa, tvo á Þingeyri og einn á Flateyri. Um er að ræða hlutastarf með góðum tekju- möguleikum. Leitað er að traustum mönnum, sem unnið geta sjálfstætt. Yfir- lögregluþjónn veitir nánari upplýsingar. 22. september 1989 Bæjarfógetinn á ísafirði Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu Pétur Kr. Hafstein. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA VESTFJÖRÐUM BRÆÐRATUNGA 400 ÍSAFJÖRÐUR ATVINNA! Starfsmaður óskast á kvöld— og helgarvakt- ir nú þegar. Starfshlutfall 60 — 70%. Mögu- leikar á 6 eða 8 tíma vinnuvöktum . Einnig er óskað eftir starfsmanni í 100% stöðu frá og með 1. nóv. n.k. Vaktavinna. Störf þessi fela í sér umönnun og meðferð þroskaheftra einstaklinga. Upplýsingar hefur forstöðumaður í S" 3290 OKKAR SÍMI ER 688888 Ifá Aá/um/fa/óftsi'S&M'vastZdA/. ACYC1D Bflaleiga VE I VIPE Car rental SUÐURLANDS8RAUT16 (Vsgmúlarrwgin), REYKJAVÍK. SÍMI 91688888. ÞÚ TEKUR VIÐ BlLNUM Á FLUGVELLINUM ÞEGAR ÞÚ KEMUR OG SKILUR HANN EFTIR Á SAMA STAÐ ÞEGAR ÞÚ FERÐ. vestlírska TTABLADID Magnús Guðmundsson, Patreksfirði: Hættum að úthluta kvóta í selinn Magnús Guðmundsson. Nú hefur þjóðinni verið tilkynnt um áframhaldandi niðurskurð á fiskveiðum. Er það verjandi, að ráðherra láti „fiskifræðinga“ sem dvelja árlangt innan fjögurra veggja draga sig á asnaeyrunum og úthluta andstæðingi okkar og keppinaut 30 þúsund tonnum af fiski á næsta ári? Við erum ekki að keppa við sjálfa okkur í fiskveið- um. Takmörkuð sókn og lokanir fiskimiða er það besta sem við getum gert fyrir selinn, en hann drepur meiri fisk en fullkomnustu skuttogarar. Selurinn verður ekki lengi að éta upp 30 þúsund tonnin á næsta ári. Hér er ég ekki að tala um líkur, því að það er staðreynd að í byrjun þessarar aldar varð ör- deyða á íslandsmiðum og í Bar- entshafi, og var þá ekki tækninni um að kenna, heldur komust vís- indamenn að raun um að offjölgun á sel í norðurhöfum hafði valdið því að fiskur gekk ekki á þessar slóðir. Er ekki kominn tími til að huga að öllum þáttum lífríkisins í hafinu og stjórna veiðum samkvæmt því? Hættum að úthluta kvóta í selinn, það er betra að drepa nokkra seli og efla fiskistofnana. Falskt núgildandi kvótakerfi í stjórnun fiskveiða verður að nema úr gildi strax. Patreksfirði, 27. sept. 1989. Magnús Guðmundsson, Strandgötu 3. Frá Sunnukórnum á ísafirði: Beáta Joó æfir söngfólkið líka fyrir tónleika með Sinfóníunni Til Vestfirska fréttablaðsins, ísa- firði. Fyrir hönd Sunnukórsins vil ég þakka skrif Vestfirska fréttablaðs- ins um hljómleika þá sem kórinn tók þátt í hér fyrir vestan á dögu- num ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands. Það er því miður allt of sjaldan sem bæjarblöðin skrifa um þá hljómleika er kórar á staðnum halda; vonandi er þetta vitnisburð- ur um að breyting sé að verða á því. Þó viljum við láta koma fram, að það var stjórnandi Sunnukórs- ins, frk. Beáta Joó, er hafði allan veg og vanda af því er kórarnir sungu með Sinfóníunni. Það vill gleymast, þegar Sinfóníuhljóm- sveitin kemur í heimsókn, að Be- áta hefur jafnan æft kórinn áður en stjórnandi hljómsveitarinnar kemur inn í dæmið, en hann hefur yfirleitt eina til tvær æfingar. Þetta viljum við endilega láta koma fram. Þá vill Sunnukórinn þakka félögum úr kirkjukór Bolungar- víkur og félögum úr Karlakór ís- afjarðar, en því miður kom þátt- taka þeirra ekki fram í auglýsing- um. Og meira að segja gerðu tveir félagar sér lítið fyrir og komu alla leið frá Flateyri. Hafi þeir þökk fyrir. Bestu þakkir fyrir góða og skcmmtilega samvinnu. Vonandi verður áframhald á henni. Reynir Ingason, formaður. DANS! Innritun stendur yfir núna og yfir alla helgina og fram á mánudagskvöld Hjónatímar! Látið það loksins eftirykkuraðskellaykkur í dans Tímar fyrir einstaklinga Tímar fyrir hópa (þið getið tekið ykkur saman og fengið lokaðan tíma) Tímar fyrir unglinga Barnatímar Gamlir dansar — jassskóli — Salsa — nýir dansar Dirty Dancing fyrir þá sem þora Hringið í síma 4433 Ræktin Sólgötu 9, ísafírði

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.