Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Side 5
vestíirska
Malla af stað með föndurskóla og búð:
Föndurloftið skal það heita
Málfríður Halldórsdóttir
(Malla) cr að byrja með föndur-
skóla og föndurverslun á ísafirði.
Þessi starfsemi verður á efri hæð-
inni í Vinnuvershúsinu við Mjall-
argötu 5 (gengið inn á bakvið),
húsinu þar sem Þorvaldur læknir
bjó í gamla daga. Og eins og bein-
ast liggur við, þá á staðurinn að
heita Föndurloftið.
Eins og menn vita, þá var Malla
forstöðumaður Félagsstarfs aldr-
aðra á ísafirði, en hefur nú látið af
því starfi. Undanfarið hafa Arnór
Stígsson maður hennar, sonur
þeirra og tcngdasonur og systir
Möllu verið önnum kafin við að
standsetja húsnæðið á loftinu í
Mjallargötunni, en það var heldur
illa á sig komið.
Einþáttungar
hjaLL
Aldarfjórðungs-
afmæli í vor
Vetrarstarf Litla leikklúbbsins
(LL) á ísafirði er nú að hefjast.
Haustverkefni klúbbsins eru ein-
þáttungar cftir Tom Stoppard og
Michael Green, og stefnt er að
frumsýningu á Bandalagsdaginn
11. nóvember.
Árshátíð LL verður haldin 21.
október í Sjallanum.
Á næsta ári verður LL 25 ára og
verður mikið um dýrðir kringum
afmælisdaginn 24. aprfl. Meira um
það síðar.
Stjórn LL hvetur alla þá sem
áhuga hafa á því að taka þátt í
starfi klúbbsins í haust og/eða í
vor, að hafa samband við stjórnar-
menn, þ.e. Báru í s. 4361, Guðjón
í s. 4737, Rúnar í s. 4535, Vigdísi
í s. 3030, eða Þórdísi í s. 3193.
Einnig eru allir velkomnir á al-
mennan félagsfund sem haldinn
verður nú á laugardaginn (30. sept-
ember) kl. 20:30 í Gagnfræðaskól-
anum.
Sjáumst!
Bilirí í
Víkinni
Skjaldan er ein báran stök, sagði
amma mín stundum. Pað sannast
núna á veiðiskipum Bolvíkinga.
Dagrún var að leggja af stað í
gærmorgun í sinn fyrsta túr eftir
slipp, þegar einhver aðskotahlutur
lenti í skrúfunni og braut hana.
Skipið bíður nú eftir því að komast
aftur í slipp. Sólrún er með úr-
brædda Ijósavél. Júpífer var á Ieið-
inni heim í gær með bilað spil.
Malla ætlar að vera með nám-
skeið í föndri og handavinnu af
ýmsu tagi, fyrir unga jafnt sem
aldna, og reka þarna jafnframt litla
verslun með sitthvað sem til þeirra
hluta heyrir.
Það vill svo skemmtilega til, að
einmitt þarna á loftinu byrjaði
Málfríður árið 1960 að vinna við
föndur fyrir Sjálfsbjörgu, og ekki
nóg með það, fyrir nær tíu árum
byrjaði hún á þessum sama stað í
samráði við bæjaryfirvöld á félags-
starfi aldraðra í þeirri mynd sem
það er í dag.
Föndurloftið verður opnað
formlega föstudaginn 6. október,
en innritun á námskeiðin byrjar
fyrr í síma 3659 eða 3539.
Málfríður Halldórsdóttir ásamt smiðunum sínum. Frá vinstri: Jó-
hann Sigfússon, Stígur Arnórsson, Arnór Stígsson og Málfriður.
JON FR. EINARSSON
BYGGINGARVÖRUVERSLUN
S 7353
- -'lU£)ErLD,
Hvergi á Vestfjörðum er
annað eins úrval af byggingarvörum og verkfærum
ALLT Á SAMA STAÐ
Báta- og bílavörur
Fjölbreytt úrval af ýmiskonar
vörum í bílinn og/eða bátinn
VINNUFATNAÐUR
Fjölbreytt úrval af vinnufatnaði
frá Max h/f
Auk þess ýmisskonar öryggisbúnaður
t.d. öryggisskór - hjálmar - gleraugu
Heimilistæki:
bjóðum þekkt merki
eins og: Husquarna - Electrolux - og Rowenta
Hljómtæki:
Sjónvörp - myndbönd - o.fl.
frá Sanyo og Mitsubishi
••
HUSGOGN ! Á tveimur hæðum bjóðum við
mikið úrval af húsgögnum í allar vistarverur hússins
Minnum á laugardagsopnunina kl. 13 -16 næstkomandi laugardag og laugar-
daginn 7. október. En frá og með 14. október hættum við að
hafa opið á laugardögum að sinni.
FERÐ í byggingarvöruverslun J.F.E
í Bolungarvík
sparar tíma og fyrirhöfn