Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Qupperneq 8
BOKAVERSLUN
JÓNASAR TÓMASSONAR
SÍMI 3123 - ÍSAFIRÐI
Orðabækur:
Ensk/þýsk eða frönsk-íslensk kr. 2.850,-
Vasaorðabækur Ensk-frönsk eða spænsk kr. 1.595,-
Stafsetningarorðabækur Ný réttritunarorðabók kr. 960,
Vestfirska fréttablaðið
er best — ískalt
Aðlögunar-
hæfileikar
hjá Vinnuveitenda-
sambandinu
Ásgeir Hannes Eiríksson al-
þingismaður hringdi til okkar á
Vestfirska í gær og bað um að fá
blaðið sent. Hann sagði þá litla
sögu varðandi Einar Odd Krist-
jánsson, sem við megum til með
að taka hér upp:
Ásgeir Hannes kvaðst fyrir
stuttu hafa hitt Þórarin V. Þór-
arinsson og spurt hvort það væru
ekki mikil og erfið viðbrigði hjá
þeim hjá Vinnuveitendasamband-
inu að vera allt í einu komnir með
normal mann í stöðu formanns.
„Nei“, svaraði Þórarinn V., „við
höfunt svo mikla aðlögunarhæfi-
leika“.
„Sínum
fagnar kvóta“
M.Ó. hringdi til okkar eitt
kvöldið, og sagði að eftirfarandi
vísa hefði orðið til þegar hann sá
mynd af Sigurði Sveinssyni kunn-
ingja sínum á forsíðu Vestfirska
fyrir hálfum mánuði:
Sigurð lífið leikur við,
lítur allt til bóta.
Safnar auði og sálarfrið,
sínum fagnar kvóta.
„ ísfirðinga sjáum senn
sinna okkar þörfum“
Um það leyti sem blaðið var að
fara í prentun í dag fengum við
þessar vísur frá ónefndum hagyrð-
ingi í Bolungarvík, þar sem hann
fjallar um væntanlegan lögreglu-
missi þeirra Víkara (sbr. frétt hér
á síðunni):
Leysa skal hér löggumenn
líklega frá störfum.
ísfirðinga sjáum senn
sinna okkar þörfum.
Vitið þið það, Víkarar,
að völdin eru að missa.
Er þett' ekki allsherjar
ógn, og mesta skyssa?
Nýi skólastjórinn erhagvanur í Reykjanesi
Þorkell Ingimarsson
tekur við af Skarphéðni
Frystiskipið Þór Pétursson ÞH sem smíðað var hjá Skipasmíðastöð
Marsellíusar h.f. á ísafirði.
Skipasmíðastöð Marsellíusar hf.:
Mikil verkefni og
bjart framundan
Skarphéðinn Olafsson, sem ver-
ið hefur skólastjóri í Reykjanesi
við Isafjarðardjúp um allmörg ár,
er farinn í ársleyfi, eins og fram
hefur komið í fréttum. Við stöðu
skólastjóra hefur nú tekið Þorkell
Ingimarsson. Hann er hagvanur í
Reykjanesi, því að hann kenndi
þar um þriggja ára skeið, frá hausti
1981 til vors 1984. Þorkeil er
kennari að mennt, en undanfarin
fimm ár hefur hann verið verslun-
arstjóri í Rafbúð Sambandsins í
Reykjavík.
I stuttu spjalli við Vestfirska
fréttablaðið sagði Þorkell að þetta
hefði borið mjög brátt að, og hefði
hann fengið sig lausan úr sínu fyrra
starfi með litlum fyrirvara. Hann
kom snögga ferð vestur um síðustu
helgi, en kemur síðan alkominn
núna um þessa helgi.
Eiginkona Þorkels er Gunnþóra
Önundardóttir, og eiga þau tvö
börn. Gunnþóra starfaði í Reykja-
nesi á sínum tíma ásamt manni
sínum. Hún vinnurnúáTollstjóra-
skrifstofunni í Reykjavík og mun
halda því áfram; Þorkell verður
því án fjölskyldu sinnar fyrir vest-
an í vetur.
Ráðið hefur verið í allar stöður
í Reykjanesi í vetur. Margrét
Karlsdóttir tekur við starfi skóla-
bryta af Heiðari Guðbrandssyni;
Ingólfur Kjartansson frá Unaðsdal
kennir íþróttir, líffræði og íslensku
að hluta; Hallur Karlsson kennir
Þorkell Ingimarsson.
ensku, dönsku og íslensku að hluta
(hann hefur áður verið í Reykja-
nesi, þó ekki síðasta vetur); og
Guðbjartur Kr. Kristjánsson úr
Reykjavík kennir stærðfræði,
eðlisfræði, bókfærslu og vélritun.
Sverrir Kristinsson mun annast
kennsluna í barnaskólanum sem
fyrr, en Þórunn Jósefsdóttir kona
hans verður stundakennari og
kennir heimilisfræði og handa-
vinnu stúlkna. EinnigverðurPétur
Bjarnason stundakennari og
kennir sjóvinnu, siglingafræði og
handavinnu pilta. Kristján Péturs-
son í Svansvík verður staðarráðs-
maður eins og löngum áður.
Skipasmíðastöð Marsellíusar hf.
á ísafirði hefur fengið góða dóma
hjá viðskiptavinum í blöðum að
undanförnu. Er þar skemmst að
minnast frystiskipsins Þórs Péturs-
sonar ÞH 50 sem afhent var nú í
sumar. Þykir stöðin hafa staðið sig
vel hvað smíðatíma skipsins áhrær-
ir og eins er verðið talið sambæri-
legt við það sem lægst gerist í
Vestur-Evrópu.
í samtali við blm. Vestfirska
sagði Sævar Birgisson fram-
kvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar
Marsellíusar hf., að mikið væri að
gera um þessar mundir. Nú væru
þeir að bíða eftir því að Fiskveiði-
sjóður fjallaði um smíðasamning
á 20 tonna bát fyrir feðgana Magn-
ús Þorgilsson og Halldór Magnús-
son á ísafirði. Ef þetta næðist fljót-
lega í gegn, þá gerði Sævar ráð
fyrir að smíði bátsins entist þeim
fram á fyrstu mánuði næsta árs.
Þá sagði Sævar að þeir hefðu
verið að fá nokkuð stórt verk sem
byrjað yrði á í næsta mánuði, en
þar er um að ræða breytingar á
millidekki og aðrar lagfæringar á
Gylli frá Flateyri. I þessari viku er
svo verið að byrja vinnu við lag-
færingar á millidekki og uppsetn-
ingu á færiböndum í togaranum
Framnesi frá Þingeyri. Þá hafa þeir
verið að klára vinnu við Dagfara
ÞH sem verið hefur hjá þeim í
slipp.
Þegar veður gengur niður er svo
meiningin að taka Egil BA frá
Patreksfirði inn í hús og skipta um
stýrishús á honum.
Þessu til viðbótar hefur Skipa-
smíðastöð Marsellíusar verið
mikið í skipaviðgerðum og fram-
leiðslu á ýmsum hlutum, eins og
rækjudælum, en þrjár slíkar dælur
er einmitt verið að setja upp hjá
Niðursuðuverksmiðju K. Jónsson
á Akureyri.
Löggæsla í Bolungarvík til
ísafjarðar til reynslu
— Skiptar skoðanir um ágæti þeirrar ráðstöfunar
Nú er ljóst að löggæslan í Bol-
ungarvík verður færð undir lög-
regluna á Isafirði um næstu áramót
til reynslu, en Vestfirska skýrði
frá því í síðustu viku að uppi væru
hugmyndir um það. Tveir lög-
reglumenn eru nú starfandi í Bol-
ungarvík, undir stjórn bæjarfóget-
ans þar. Þeir munu væntanlega
ganga inn í lögregluliðið á ísafirði.
Embættismenn úr dómsmálaráðu-
neyti, Hjalti Zophoníasson og
Gísli Guðmundsson, komu vestur
í vikunni og héldu í gær fundi með
yfirmönnum lögreglu á báðum
stöðunum, bæjaryfirvöldum í Bol-
ungarvík og starfsmannafélagi lög-
reglunnar á Vestfjörðum. Skiptar
skoðanir eru um ágæti þessarar
ráðstöfunar.
Bæjaryfirvöld í Víkinni munu
ekki setja sig gegn því að þetta
verði reynt um ákveðinn tíma,
nokkra mánuði eða jafnvel eitt ár,
að því tilskildu að veginum milli
ísafjarðar og Bolungarvíkur verði
haldið opnum alla daga eins og
milli ísafjarðar og Hnífsdals, en
það hefur ekki verið gert undan-
farna vetur. Það er jafnframt
forsenda þessara skipulagsbreyt-
inga, að þær hafi verulegan
sparnað í för með sér, án þess að
þjónustan versni eða minnki. Ef
reynslan af þessu verður ekki góð,
munu bæjaryfirvöld í Bolungarvík
áskilja sér allan rétt til þess að
hverfa til fyrra fyrirkomulags.
Viðmælendur blaðsins í Bolung-
arvík voru ekki ánægðir með að
smátt og smátt væri verið að „reyta
af embætti bæjarfógetans hér
þangað til hann verður lagður
niður“ og minntu í því sambandi á
flutning tollafgreiðslunnar þaðan
til ísafjarðar ekki alls fyrir löngu.
Þeir áttu ekki heldur gott með að
samþykkja þann boðskap að lög-
gæslan í Bolungarvík mundi batna
og aukast við það að verða flutt til
ísafjarðar; fullyrt var að tilraunir
Þannig sagði Sævar Birgisson
eitt og annað vera á döfinni og í
raun miklu meira að gera en þeir
hefðu átt von á. Hjá stöðinni starfa
nú um 35 manns, en hann sagði að
þá vantaði 5 til 10 menn til viðbót-
ar. Taldi hann nokkuð bjart fram-
undan og verkefni tryggð til næstu
mánaða.
bolvísku lögreglunnar til samvinnu
við ísafjarðarlögregluna hefðu
gengið heldur stirðlega.
UTSALA!
Erum að rýma fyrir nýjum vörum. Útsala á borðlömpum og ljósum.
Einnig örbylgjuofnamót í mörgum stærðum á gjafverði.
15 - 25% afsláttur. Líttu inn og gerðu góð kaup.
PÓLLINN
VERSLUN
RAFÞJÓNUSTA
SÍMI3092
©
Bætt vöruúrval
og þjónusta
STEINIÐJAN HF.
Steiniðjan h/f
Timbursala S* 3472