Feykir - 22.05.1981, Blaðsíða 7
Ferðalangar! Erum við bæjardyrnar með nesti handa ykkur og bílnum. Grillréttir, ferðavörur, bensín og olíur. Verið velkomin Verslunin ÁBÆR
Ferðafólk!
Verslunin Bláfell auglýsir:
- Lognmollan ...
(Framhald af bls. 8).
málum. Það sjá menn því miður á
Siglufirði, Skagafirði og Húna-
vatnssýslum. Ný fyrirtæki eru nú
undantekningin en stöðnun og
samdráttur til sjávar og sveita er
reglan þrátt fyrir hagstæðar ytri
aðstæður mikil aflabröhð og gott
útflutningsverð. Því er eðlilegt að
uggur sé í mönnum. Svartsýni má
þó ekki ná tökum á fólkinu, enda er
það ástæðulaust, því tækifærin
eru óteljandi — aðeins ef menn fá
að nota þau, og til langframa verða
þeir ekki hindraðir í því. Þessi
tækifæri þekkja allir og því tíunda
ég þau ekki.
Einungis má benda á, að Siglu-
fjörður á að gegna hlutverki Vest-
mannaeyja Norðurssins. Skagfirð-
ingar og Húnvetningar eiga huga
að meiri háttar iðnaði við hlið
sjávarútvegs og landbúnaðar, og nú
er svo komið að öllum má ljóst
vera, að Blanda er langhagstæðasti
virkjunarkostur landsmanna og því
þarf ekkert annað en ný stjórnvöld
til að strax verði hafist handa um
þá stórframkvæmd. — Menn eiga
því þrátt fyrir allt að vera bjartsýnir
á þessum vordögum.
Allar ferðavörur.
Heitar pylsur,
hamborgarar og
margt fleira.
Öl og gosdrykkir.
Bensín
og olíur
Dekkjaviðgerðir og
dekkjasala.
Opið öll kvöld
og um helgar.
Verslunin BLÁFELL
Sauðárkróki.
Feykir h/f
Hluthafar og þeir sem
óska að gerast hluthafar
eru hér með boðaðir á
aðalfund
Feykis h/f
sem verður haldinn laug-
ardaginn 30. maí n.k. kl.
17 í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki.
DAGSKRÁ:
1. Kosning stjórnar.
2. Ráðning ritstjóra.
BLAÐSTJÓRN.
Skagfirðingar!
Almennur stjórnmálafundur í Safnahúsinu á
Sauðárkróki fimmtudaginn 28.
maí (uppstigningardag) kl. 16,00.
FUNDAREFNI:
Er atvinnuöryggi stefnt í voða?
Stöðnun í góðæri.
FRAMSÖGUMAÐUR:
Geir Hallgrímsson.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag
Sauðárkróks
Gjaldendur -
Sauðárkróki
ATH.: Síðasti gjalddagi fyrirframgreiðslu útsvara er
1. júní n.k.
Þeir gjaldendur sem enn eiga ógreidd fasteigna-
gjöld eru vinsamlega beðnir að greiða þau nú
þegar, ásamt áföllnum kostnaði.
Forðist lögtaksaðgerðir og gerið skil á fast-
eignagjöldum.
INNHEIMTA SAUÐÁRKRÓKSBÆJAR.
Skagfirðingar!
Munið söfnunina vegna bygginga á íbúðum aldr-
aðra í héraðinu.
Umboðsmenn á svæðinu eru beðnir aó fylgjast
með söfnunarbaukum, sem þegar er búið að dreifa.
Ennfremur getur fólk, sem vill láta fé af hendi rakna,
lagt það inn á reikning byggingarnefndar í Bún-
aðarbankanum á Sauðárkróki og veitir Gestur
Þorsteinsson nánari Uþplýsingar þar að lútandi.
Stöndum vel saman að þessu þarfa málefni.
BYGGINGARNEFNDIN.
Brunabótafélag íslands
Erum með alla
venjulega tryggingaþjónustu
á hagkvæmustu kjörum
svo sem:
heimilistryggingar,
húseigendatryggingar,
bifreiða- og
ferðatryggingar.
Það er hagkvæmt að hafa allar tryggingar á sama stað.
Umboðsmenn í öllum sveitarfélögum í kjördæminu.
Brunabótafélag fslands
Feykir . 7