Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Side 1

Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Side 1
VESTFIRSKA FRÉTTABLAÐIÐ 1.TBL. 17. ÁRG. 5. JANÚAR 1991 Patreksfjörður. Jákvætt svar frá ráðuneyti og ekkert að vanbúnaði: •• Oldungadeild tekur til starfa á Patreksfirði ✓ — útibú frá Menntaskólanum á Isafirði — Erna Sveinbjarnardóttir verður útibússtjóri — sjötíu manns innritaðir Menntamálaráðuneytið gaf nú á miðvikudaginn grænt Ijós á stofnun öldungadeildar á Patreksfirði. Deildin verður útibú frá Menntaskólanum á Isafirði, en ætlunin er að hinn fyrirhugaði Framhaldsskóli Vestfjarða taki við hlutverki Menntaskúlans áður en langt um líður. Stofnun öldunga- deildarinnar á Flateyri í haust og á Patreksfirði nú eru skref í þá átt, svo og fyrirhugað vél- stjórnarnám (vélavarðanám) á Þingeyri. Ekkert er því að vanbúnaði að hefjast handa nú þegar við kennsluna á Patreksfirði, því að undirbúningur hefur staðið yfir síðan í haust; aðeins hefur staðið á svari Menntamála- ráðuneytisins, í byrjun októ- ber fóru þeir Smári Haralds- son skólameistari og Pétur Bjarnason fræðslustjóri til Patreksfjarðar að frumkvæði Ernu Sveinbjarnardóttur skólastjóra Grunnskólans á Patrcksfiröi og ræddu við sveitarstjórnarmenn og vænt- anlega nemendur og kennara, og var greint frá þeim ráða- gerðum hér í Vestfirska frétta- blaðinu á sínum tíma. Nú liggur fyrir að um sjötíu manns (!) hafa látið innrita sig og mun starfið byrja strax 9. janúar. Utibússtjóri verður Erna Sveinbjarnardóttir og mun hún jafnframt kenna dönsku; enskukennari verður Frances Taylor, áströlsk kona sem búsett er á Patreksfirði; íslensku kennir Helga Gísla- dóttir kennari við Grunnskól- ann; Hilmar Arnason yfir- kennari mun kenna stærð- fræði; og Rannveig Haralds- dóttir kennari við Grunnsícól- ann mun kenna vélritun. ;■ Alltaf má búast við íein- hverjum afföllum af þeim sem byrja í öldungadeildarnámi, en að sögn Smára skólameist- ara og Ernu útibússtjóra er mikill hugur í fólkinu og þátt- takan miklu meiri en búist var við. Nemendurnir eru alls ekki einskorðaðir við Patreksfjörð, heldur koma þeir víðs vegar af vestursvæðinu (suðursvæðinu eins og sagt er á ísafirði), bæði frá Tálknafirði og af Barða- ströndinni, og ætla að leggja á sig að brjótast í skólann þrjú kvöld í viku í vetur. Sóknarnefnd Isafjarðar: Stefnt að ofantöku gömlu kirkjunnar á næstu mánuðum Á fundi sínum á miðviku- dag fól Sóknarnefnd ísafjarð- ar þeim Gunnlaugi Jónassyni og Gunnari Steinþórssyni „að leita álits sérfróðra manna um það, hvernig haga skuli ofan- töku gömlu kirkjunnar á næstu mánuðum". Sömu mönnum var jafnframt falið að leita heimildar hjá bygg- ingarnefnd ísafjarðarkaup- staðar til að „taka niður Isa- fjarðarkirkju, gömlu prent- smiðjuna við Sólgötu svo og bílskúr, en þar kæmi að- komuleið að kirkjunni". — Yorönn ad hefjast í MÍ: Bryndís Schram snýr aftur — fjölmargir nýir stundakennarar Kennsla hefst nú senn á vorönn í Menntaskólanum á ísafirði. Töluverðar breytingar verða á kennaraliði. Þar má nefna að Ragnar G. Þórðarson sem kenndi viðskipta- greinar er hættur og vantar tilfinnanlega mann í hans stað. Lárus Valdimarsson er einnig hættur við skólann, en hann kenndi eðlisfræði og stærðfræði. Það er ekki eins bagalegt að missa Lárus, vegna þess að kennsla í þess- um greinum er mun minni eftir áramótin en var á haustönn- inni. Þá hefur Kristinn D. Grétarsson látið af kennslu í skíðagreinum, en Hafsteinn Sigurðsson tekur við af honum. Meðal nýrra stundakennara við M( á vorönn má nefna Bryndísi Schram, sem kemur á fornar slóðir og kennir leiklist sem valgrein (í gamla daga var hún skólameista- rafrú á ísafirði í mörg ár og sjálf skólameistari í eitt ár). Bryndís mun setja upp leikrit með nemendum og verður það flutt á Sólrisu í vor. Af öðrum nýjum stundakennurum má nefna Finnboga Hermannsson sem kennirdönsku, Helgu Friðriksdóttur sem kennir líffræði, Kristján Bjarna Guðmundsson sem kennir raflagnatækni, Þóri Þrastarson sem kennir blikk- smíði, Einar Garðar Hjaltason sem kennir verkstjórn, Björn Jóhannesson sem kennir lögfræði, Gunnar Jóns- son sem kennirtryggingafræði, og Þóru Karlsdóttur sem kennir íslensku. Öldungadeildin á Flateyri: Fjórtán luku prófum fyrir jólin Fjórtán nemendur luku fyrir jólin haustannarprófum á Flateyri í öldungadeildinni sem stofnuð var þar í haust sem útibú frá Menntaskólanum á ísafirði. Það er ágætur árangur þó svo að ekki hafi allir gengið undir próf sem byrjuðu í haust, því að reynslan er alltaf sú að afföllin verða mest fyrst. Reglubundnar ferðir frá Reykjavík 6-7 sinnum í mánuði til Vestfjarða Mikil og góð reynsla í hönnun merkja og eyðublaða fyrir opinberar stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga. ÍSPRENTHF. PRENTSMIÐJA S 94-3223 Óskum öllum viðskiptavinum okkar og öðrum Vestfirðingum velfarnaðar á nýju ári. Þökkum viðskiptin og önnur samskipti á liðnu ári. PÓLLINN HF. Verslun S 3092

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.