Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Page 2
Vestflrska fréttablaðið kemur út síðdegis á fimmtudögum. Blaðið er
ókeypis og sent áskrifendum hvar sem er á landinu og erlendis og
þá einungis gegn greiðslu á sendingarkostnaði. Ritstjórn og auglýs-
ingar: Aðalstræti 35, ísafirði, símar 94-4011. Póstfaxsími: 94-4423.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon. Útgefandi:
Grafíktækni h.f. Prentvinnsla: fsprent h.f. Aðalstræti 35, ísafiröi,
94-3223. Vestfirska fréttablaðið er í Samtökum bæjar- og héraðs-
fréttablaða. Vestfirska fréttablaðið er aðili að upplagseftirliti Verslun-
arráðs fslands.
... og friður á jörðu
með þeim mönnum
sem hann
hefur velþóknun á
Það varð sannarlega ekki fátt um kveðjur um
þessi jól og áramót fremur en endranær, sama
hvort var í blöðum, útvarpi eða sjónvarpi. Sum
stórfyrirtæki sendu meira að segja öllum lands-
mönnum bestu jóla- og nýársóskir, svo sem
Búnaðarbankinn og Coca Cola á íslandi. En
stærsta fyrirtækið á fslandi, sem auk þess er
sameign allrar þjóðarinnar, sendi bara einum
tilteknum hópi landsmanna óskir um farsæld á
komandi ári. Það var sjálfur Ríkissjóður
íslands. Frá honum birtist aftur og aftur auglýs-
ing í Sjónvarpinu þarsem einungis kaupendum
og áskrifendum spariskírteina var óskað árs
og friðar. Þeir landsmenn sem hafa annað við
peningana sína að gera en safna spariskírtein-
um ellegar eiga enga peninga fengu ekki
neinar hátíðakveðjur frá Stóra Bróður.
Sjómenn
smábátaeigendur
Siglingamálastofnun ríkisins
vill minna á lög nr. 112/1984
um atvinnuréttindi skipstjórnar-
manna á íslenskum skipum.
Þar eru ákvæði um að skipstjórnar-
réttindi þarf á öll skip 6 m og lengri.
Siglingamálastofnun ríkisins.
Þakkir
til skólabarna
Þau börn sem glöddu mig
með jólagjöfum og kortum yfir jólin
hafi hjartans þakkirfyrir.
Með bestu óskum um gleðilegt nýtt ár.
Sjáumst!
Kœr kveðja,
Geiri.
Athuga-
semd
frá
Oskari
Eggerts-
syni
varðandi
kirkju-
mál
✓
á Isa-
firði
Óskar Eggertsson bað Vest-
firska fréttablaðið að koma
þeirri áréttingu á framfæri
vegna frétta af fundi sóknar-
nefndar ísafjarðar sl. mið-
vikudag, að hann hefði „ekki
setið umræddan fund, né
heldur Gunnar Jónsson, sem
verið hefur sóknarnefndar-
formaður í vetrarleyfi Björns
Teitssonar.
Helga
Sigurðardóttir
íþróttamaður
ísafjarðar
í þriðja sinn
Helga Sigurðardóttir ásamt
Albert prins af Monaco.
Myndin er tekin á Smáþjóða-
leikunum ■ Monaco árið 1987.
Helga Sigurðardóttir sund-
kona í Vestra hlaut titilinn
fþróttamaður ísafjarðar 1990.
Þetta er í þriðja sinn sem
Helga hlýtur þessa útnefn-
ingu; hún var einnig íþrótta-
maður ísafjarðar 1986 og
1989.
Helga byrjaði að æfa sund
árið 1982 og setti sitt fyrsta ís-
landsmet árið 1984. Árið 1985
var hún í fyrsta sinn valin í
landslið til að keppa á Kalott
og hefur verið einn af burðar-
ásum landsliðsins síðan. Hún
hefur hlotið ótal íslandsmeist-
aratitla.
Sóknarnefnd Isafjarðar hafnar
tillögum Húsafriðunarnefndar
um endurbyggingu og stækkun
Isafjarðarkirkju
Vestfirska fréttablaðinu hefur borist bréf það og ályktun, sem birtast hér að neðan.
Mergurinn málsins er sá, að á fundi Sóknarnefndar ísafjarðar sl. miðvikudag var algerlega
hafnað tillögum Húsafriðunarnefndar ríkisins um endurbyggingu og stækkun ísafjarðar-
kirkju og byggingu safnaðarheimilis, en þær tillögur voru kynntar á ísafirði og hér í
blaðinu fyrr í vetur.
Fréttatílkynning frá sóknarnefnd isaf jaröarsóknar.
Vinsamlegast birtiö meöfylgjandi samþykkt og látiö þess getiö
aö hún var gerö í sóknarnefnd ísafjaröarsóknar þann 2. janúar
1991 meö fimm samhljóöa atkvæöum. Einn aöalmaöur var
fjarverandí og greiddi varamaöur hans atkvæöi. Viöstaddír voru
tveir aörir varamenn í sóknarnefnd, sóknarprestur og
kirkjuvöröur og lýstu allir stuöningi viö tillöguna.
Viröingarfyllst.
/ ti —
Björn Teitsson, formaöur sóknarnefndar.
fsafiröl, 2, Jan 1991.
Ályktun frá Sóknarnefnd ísaf jaröarsóknar, þann 2. jan. 1991.
Vegna bréfa frá Húsafriöunarnefnd ríklslns á árinu 1990, tillðgu
aö stækkun Isafjaröarkirkju og byggingu safnaðarheimilis frá I.
nóv. 1990 og þeirrar umræöu sem orðið hefur um
kirkjubyggingarmálið á ísafiröi frá því i októbermánuöi s.1.
ályktar sóknarnefnd eftirfarandi:
1
Tillaga Húsafriðunarnefndar um stækkun Isafnaröarkirkju og
byggingu safnaðarheimilis frá I. nóv. s.l. fullnægir ekki þeim
skilmálum sem fram komu í byggingarforsögn sókharnefndar frá
9. júli 1990. Því skal halda fast viö fyrri samþykktir
sóknarnefndar frá 9. júli 1990 og 15. nóv. 1990 um að byggö
veröi ný kirkja og safnaðarheimili á lóöunum á horni
Hafnarstrætis og Sólgötu.
2.
I bréfi frá formanni Húsafriðunarnefndar, dagsettu 28. sept.
1990 er fallist á flutning gömlu kirkjunnar.
Þá hefur bæjarstjórn Isafjaröar meö bréfi dagsettu 15. okt.1990
heitið liðsinni sínu viö aö rýma lóð gömlu kirkjunnar.
I framhaldi af bréfum þessum áréttar sóknarnefnd samþykkt sína
frá 15. nóv. 1990 um aö gamla kirkjan skuli tekin ofan í hlutum
og komið fyrir í vörslu til síðari tíma ráðstöfunnar. Sóknarnefnd
mun hiö fyrsta ráöa sérfræðing til aö hafa umsjón meö ofantöku
kirkjunnar.
J.
I bréfi Húsafriðunarnefndar frá 28. nóv. 1990 er taliö að koma
þurfi bein umsókn frá sóknarnefnd hyggist hún taka gömlu
kirkjuna ofan eöa flytja hana. Af þessu tilefni vill sóknarnefnd
taka fram aö hún er sömu skoöunar og áður sbr. bréf
sóknarnefndar til Húsafriöunarnefndar, dagsett 6. april 1990 um
rétt ísafjaröarsafnaöar til að rífa gömlu kirkjuna og að ekki sé
hægt aö krefja söfnuðinn um aö kosta endurbyggingu hennar og
varöveíslu.
4.
Stefna skal að því aö halda aöalsafnaöarfund snemma sumars,
eða um þaö bil ári eftir aö síðasti aöalsafnaöarfundur var
haldinn.