Vestfirska fréttablaðið - 05.01.1991, Síða 6
NEYÐARLINAN
áZk
ÍSAFJÖRÐUR
Slökkvilid/sjukrabíll..... 3333
Lögregla ................. 4222
Sjukrahus ................ 4500
BOLUNGARVIK
Slökkvilid................ 7261
Lögregla ................. 7310
Sjukrahus ................ 7147
PATREKSFJÖRÐUR
Slökkvilid................ 1400
Lögregla ................. 1277
Sjukrahús ................ 1110
Daglegarferðir
Reykjavík - ísafjörður
Vöruflutningar
Ármanns Leifssonar
® 94-7548 og 91-10440
SNYRTISTOFA
ÁGÚSTU
Fagraholti 9 S1 3441
'^RÁNARGÖTU 4A
Öll herbergi með baði,
síma, sjónvarpi, og míníbar!
S 91-18650
Blómabúðin Elísa
Hafnarstræti 11, simi 4722
Föndurloftið
Mjallargötu 5, sími 3659
Ferjan Baldur
— vegurirm suður
og heim aftur
H 93-81120 og94-2020
ORKUBÚ VESTFJARÐA
OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU
kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00
a 32ii
BILANATILKYNNINGAR
RAFMAGN:
S 3099
HITAVEITA
® 3201
ÍSPRENTHF.
PRENTSMIÐJA S 94-3223
MRSEM
TÖLVUPAPPÍRINN
FÆST
OKKAR SÍMI ER 688888
JL nzsUaA'
bGCYSIRs,
Jf MmxcmajT « rmg.ijir.nx). "rnuoiX afcai mtm»
P(J TEKUfi V® BlLNUM Á FLUGVELLINUU PEGAfi PU KEMUfi OG
SKILUfi HANN EFnn A SAMA STAO PEGAR PU FEOO
Öll herbergi með baði,
síma, sjónvarpi, og míníbar!
® 91-18650
Fréttagetraun
V estfírska fréttablaðsins
um árið 1990
Verðlaunin eru veglegir konfektkassar eða gulrótasafi að eigin vali
Hér birtum við fréttaget-
raun með svipuðu sniði og
fyrir réttu ári, bæði til gamans
og upprifjunar. I fyrra barst
fjöldi lausna, en meirihluti
þeirra reyndist ekki vera með
öilu villulaus. Ef okkur mis-
minnir ekki komu verðlaunin
í það skiptið í hlut Steinunnar
Ingimundardóttur húsfreyju í
Reykjarfirði, en þar var um að
ræða vöruúttekt i Versluninni
Straumi.
Nú bjóðum við þrenn verð-
laun fyrir réttar lausnir, stóra
og bosmamikla og freistandi
konfektkassa (þeir sem fóru í
megrun um áramótin þurfa
ekkert að óttast; ef þeir verða
svo óheppnir að hljóta vinning
geta þeir fengið konfektinu
skipt fyrir gulrótasafa).
Allt sem fjallað er um í þess-
ari fréttagetraun birtist í Vest-
firska fréttablaðinu á síðast-
liðnu ári. Þið haldið blaðinu
væntanlega saman og getið
flett upp í því! Getraunin er
ekki öll með mjög alvarlegum
blæ; vonandi hafa lesendur
nokkurt gaman af því að
spreyta sig á henni. Varúð:
Hún lcynir svolítið á sér eins
og í fyrra, þó að hún virðist
kannski létt við fyrstu sýn.
Reglurnar eru einfaldar:
Krossið í einn og aðeins einn
reit undir hverjum tölulið,
semsagt fímmtíu krossa takk.
Skrifið nafn og heimilisfang í
þar til gerðar línur og sendið
Vestfirska fréttablaðinu
lausnina í pósthólf 116 á ísa-
firði eða komið henni til okkar
í Aðalstræti 35 á ísafirði. Við
þurfum að hafa fengið lausnir
í hendur í síðasta lagi þriðju-
daginn 22. janúar. Dregið
verður úr réttum lausnum.
1.
í 1. tbl. Vestfirska fréttablaðs-
ins árið 1990 var greint frá því,
að ritstjóri Vestfirðings hefði
látið af því starfi. Það var:
Q a) Smári Haraldsson.
[J b) Gísli Hjartarson.
Ö) c) Magnús Ingólfsson.
2.
íþróttamaður ísafjarðar árið
1989 var útnefndur 4. janúar
1990. Titilinn hlaut:
□ a) Helga Sigurðardóttir.
□ b) Guðmundur Gíslason.
Qc) Rögnvaldurlngþórsson.
3.
í janúar var sagt frá því, að
ísafjarðarkaupstaður hefði
komið á fót eigin „innkaupa-
stofnun“ og skyldi tiltekin
starfsstétt annast útkeyrslu á
vörum:
□ a) Hjúkrunarfræðingar.
[[] b) Slökkviliðsmenn.
□ c) Grunnskólakennarar.
4.
í janúar kom það fram í frétt
frá Hólmavík, að íþrótta-
kennslan þar færi fram:
[[] a) í flugstöðvarbygging-
unni.
□ b) Á göngum Grunnskól-
ans.
[j c) I félagsheimilinu.
5.
í þorrabyrjun var hringt til
Vestfirska fréttablaðsins úr
Reykjavík og kvartað yfir því
að hvergi í verslunum þar um
slóðir væri hægt að fá tiltekið
lostæti, og Vestfirðingar beðn-
ir um liðsinni við að útvega
slíkt. Þar var um að ræða:
[[] a) Reykt svið.
□ b) Kæsta hrútspunga.
□ c) Hanginn magál.
6.
Á mynd nr. 1 eru þeir Gunnar
Hallsson, Finnbogi Her-
mannsson og Pétur Kr. Haf-
stein. Gunnar er þarna að:
[[] a) Taka við verðlaunum
fyrír umferðargetraun.
[[] b) Afhenda mótmælaskjal
vegna lögreglumálsins í
Bolungarvík.
[[] c) Afhenda undirskrifta-
lista vegna kirkjumálsins á
ísafirði.
14.
f febrúar birtist í Vestfirska
fréttablaðinu grein undirfyrir-
sögninni „Haltu kjafti og
þegiðu". Höfundurinn var:
[] a) Magnús Arnórsson.
□ b) Magnús Reynir Guð-
mundsson.
[[[] c) Vilborg Davíðsdóttir.
15.
Uppboðsréttur dæmdi Hans
W. Haraldssyni í vil en ísa-
fjarðarkaupstað í óhag. Deilt
var um:
[[] a) A-gatnagerðargjöld.
I I b) B-gatnagerðargjöld.
□ c) C-gatnagerðargjöld.
16.
„Ég er bara eggið, þau eru
hænurnar". Hver sagði þetta í
samtali við Vestfirska frétta-
blaðið?
I I a) Stefán Gíslason sveitar-
stjóri á Hólmavík.
[[] b) Reinhard Reynisson
sveitarstjórí á Reykhólum.
I | c) Haraldur L. Haraldsson
bæjarstjórí á Isafirði.
17.
Fjárhagsáætlun ísafjarðar-
kaupstaðar fyrir árið 1990 var
samþykkt á fundi sem stóð í:
□ a) 5 klst.
□ b) 7 klst.
□ c) 9 klst.
18.
Skátafélagið á Patreksfirði var
endurvakið. Það heitir:
I I a) Samherjar.
□ b) Emherjar.
I I c) Frumherjar.
19.
„Við erum eins og hey í
poka“, sögðu:
[[] a) Kvennalistakonur á ísa-
firði.
I i b) Vinstri menn í Bolungar-
vík.
[[] c) Sjálfstæðismenn á
Patreksfirði.
20.
Skutull, blað Alþýðuflokks-
ins, fékk nýjan ritstjóra:
[] a) Pétur Sigurðsson.
[] b) Gísla Hjartarson.
n c) Heiðar Guðbrandsson.
Mynd nr. 1.
7.
Kunnur embættismaður flutt-
ist síðla vetrar frá ísafirði til
Sauðárkróks.:
[[] a) Bergþóra Sigurðardóttir.
[[] b) Einar Otti Guðmunds-
son.
[[] c) Krístinn P. Benedikts-
son.
8.
Hver orti þessa •«
vísu sem birtist f Vísnaþætti
Helgu Guðrúnar?
Það er í einu orði sagt,
og að fullu sannað:
Þér er margt til lista lagt;
lygin jafnt og annað.
□ a) Elís Kjaran ýtumaður á
Þingeyri.
[[] b) Indríði bóndi á Skjald-
fönn.
[[] c) Krístján smiður á Bíldu-
dal.
9.
Eigendaskipti urðu snemma
árs að Gosa á ísafirði. Kaup-
endur voru:
□ a) Hansína Einarsdóttir og
Kristján K. Jónasson.
[[[] b) Inga Rut Olsen og Jón
Hermannsson.
[[] c) Sigríður Björnsdóttir
og Axel Carlquist.
10.
Bæjarfulltrúi á ísafirði skrifaði
grein í Vestfirska fréttablaðið
8. febrúar undir fyrirsögninni
„Pólitík og hviksögur":
□ a) Kristinn Jón Jónsson.
[[] b) Ólafur Helgi Kjartans-
son.
[[] c) Snorri Hermannsson.
11.
Á mynd nr. 2 er verið að moka
snjó af þaki hjá:
□ a) Andrési Jónssyni.
[] b) Indriða Guðmundssyni.
[] c) Óskari Friðbjarnarsyni.
12.
Á árinu var samtímis unnið að
gerð tveggja leikinna kvik-
mynda:
[] a) Á Isafirði.
[] b) Á Hólmavík.
[] c) Á Bíldudal.
13.
Hinir glaðbeittu Vestfirðingar
á mynd nr. 3 voru veðurteppt-
ir:
[] a) Á Akureyri.
[] b) Á Holtavörðuheiði.
[] c) Á Hótel Sögu.