Feykir - 26.03.1982, Blaðsíða 2
65. þing
USAH
65. Þing USAH var haldið i
Félagsheimilinu á Blönduósi laug-
ardaginn 6. mars. I þingsetningar-
ávarpi minntist formaður USAH,
Björn Sigurbjörnsson skólastjóri á
Blönduósi þess að 70 ár eru frá
stofnun sambandsins. Gestir
þingsins voru Pálmi Gíslason for-
maður UMFÍ, Guðjón Ingi-
mundarson Sauðárkróki vara-
formaður UMFl, Sveinn Bjöms-
son forseti ÍSÍ og Hermann
Guðmundsson framkvæmdastjóri
ISÍ. Fluttu þeir stutt ávörp og
færðu USAH gjafir í tilefni afmæl-
isins.
Á þinginu var lýst kjöri
„íþróttamanns ársins 1981“, en
Helgi Þór Helgason umf. Geislum
hlaut það sæmdar heiti. Þeir Lárus
Ægir Guðmundsson Skagaströnd
og Kristófer Kristjánsson Köldu-
kinn voru sæmdir starfsmerki
UMFl fyrir langt og gott starf inn-
an ungmennafélagshreyfingarinn-
ar.
í skýrslum stjómar og nefnda
kom fram að mikið starf var hjá
USAH sl. starfsár og víða komið
við, þó að íþróttir væru þar efst á
blaði. Margar mótandi tillögur
voru samþykktar á þinginu, og
kallar það á enn meira starf innan
USAH ínáinni framtíð.
Úr stjórn gengu Þorsteinn
Sigurðsson Blönduósi og Jón
Torfason Torfalæk. I þeirra stað
voru kosnir Stefán Haraldsson
Blönduósi og Valdimar Guð-
mannsson Bakkakoti.
Þingfulltrúar snæddu hádegis-
verð í boði Blönduóshrepps sem
kvenfélagskonur á Blönduósi
framreiddu.
Þingforsetar voru Valdimar
Guðmannsson Bakkakoti og Karl
Lúðvíksson kennari Húnavöllum.
öflug og afkastamikil Ijósritunarvél
Hverfisgötu 33 — Simi 20560 — Pósthólt 377
Reykjavik
Hafið samband við sölumenn
okkar, sem veita allar frekari upp-
lýsingar.
Staka
Gæti átt við bónda sem hélst illa á
veikara kyninu.
Eldishesta, ær og kýr
ekki brestur manninn.
Eitt þó verst er að ’onum snýr:
enginn festarsvanninn.
Hvaða ár fór Landsmót ungmennafé-
laganna fram á Sauðárkróki?
Tveir fræknir íþróttamenn úr liði UMSS. Þeir
heita?
Myndagetraun
UMSS 1982
Stjórn UMSS hefur ákveðið að hrinda af stað myndagetraun.
Getraunin verður við alira hæfi
4. mynd
5. mynd
SKRIFTIR
Dagar vonbrigða eru alla jafna
erfiðir dagar.
í gær gengu fulltrúar hrepps-
nefnda Seylu- og Lýtingsstaða-
hrepps á fund iðnaðarráðherra og
undirrituðu samning þann sem
boðið var upp á um virkjun
Blöndu.
Það verður að segjast eins og er
að sumir hreppsnefndarmanna
höfðu móast nokkuð við undan-
farna mánuði og einsaka sýnt
jafnvel skemmtilegar leikfléttur
og dirfsku — en þó fór sem fór.
Því leitar á hugann óljós minning
af lestri fornsagna: „Flýjum nú,
ekki er við menn að eiga.“ (Ann-
ars er ljótt að gera mönnum upp
orð).
Ég harma allt mannfall í
heimahéraði. Sumir hinna föllnu
komu að vísu til leiks með feigð-
ampa í augum og um þá gerði
ég mér aldrei neinar vonir. Hinir
veittu viðnám og féllu með sæmd.
Skylt er og að geta þeirra sem
stóðu af sér þessa lotu líka. Tveir
á móti, einn sat hjá. í dag svíður
mér það mest hve gagnslítill
stuðningur minn og minna líka
hefur verið þessum mönnum. Ég
heiti þeim þó fulltingi mínu enn
um sinn til að þoka þessu vand-
ræðamáli á vitrænar brautir.
Það sem eftir stendur af
heimavarnarliðinu er Ártúna-
kempan okkar með sínu liði og
tveir fjötraðir fullhugar með góð-
an flokk manna í Svínavatns-
hreppi. Megi þeim farnast sem
landinu sjálfu að brjóta af sér
böndin með vorinu. Það fer vel á
því.
Landverndarsamtök á vatna-
svæðum Blöndu og Héraðsvatna
voru stofnuð um hugsjón þess-
arra manna af þeim mönnum
öðrum sem virtu hana og vildu
gera að sinni. Hverjar sem lyktir
Blöndudeilunnar verða vona ég
að þau standa hana af sér og
margar fleiri og vaxi við hverja
raun. Þau munu líka geyma sögu
þessa máls — trausta heimild sem
seinnitíma menn meiga draga
lærdóm af og hafa sér til viðvör-
unar. Það munu þeir líka gera en
ég er vondaufur um að samtíma-
menn okkar hér á landi og ann-
arsstaðar beri gæfu til þess.
Það þyngir harm minn þennan
dag að aðkomumaður sem mér
hefur fundist falla svo vel inn í
umhverfið okkar hér í sveitinni
virðist nú leita upphafs síns. En
æskuástir eru þó alltaf fallegar þó
þær reynist tál — vertu sæll
Ragnar. Um hinn ræði ég ekki.
Þekki ekki bónda —jú einu sinni
handtak sem að reyndar vakti
vonir um ærlegheit en þær eru
sem sagt brostnar. En nöturlegt er
það hlutskipti landbúnaðarráð-
herra að ráðast gegn landvernd
ogskynsamlegri nýtingu landsins.
En burt með sút. Aftur kemur
vor í dal. Við eigum fleiri þing-
menn bæði hér í kjördæmi og um
land allt. Nú fer að reyna á þá.
Meigi þeir reynast sem bestir
vormenn Island I víðasta skilningi
þeirra orða.
Helgi Baldursson.
Þetta er fjáröflunarleið UMSS og vonast stjórnin
eftir góðum stuðningi frá Skagfirðingum.
Stjórn UMSS hefur látið útbúa sérstök spjöld til aó
rita svörin á og fást þau hjá formönnum ung-
mennafélaganna. Spjaldið kostar 40,- kr.
Vinningar eru ferðaútvarps- og kassettutæki (sjá
mynd) og tölvuúr frá Casio.
Sveitungum mínum og öllum sem glöddu mig með
heimsóknum, skeytum og gjöfum þann 14. mars
s.l., sendi ég hjartanlegt þakklœti.
Lifið heil.
VALBERG HANNESSON.
U-bix 100 er Ijósritunarvél sem sér-
staklega er hönnuð til þess að þola
mikið og stöðugt álag. Hún er
því mjög heppileg Ijósrítunarvél
fyrirstofnanirog fyrirtæki sem
stöðugt þurfa að fjölfalda mikið
efnismagn t.d. skýrslur og álits-
gerðireða kennslugögn og próf.
U-bix 100 hefur reynst ein
staklegavel tilslíkra verka
endaerhún nú mestselda
Ijósritunarvélin í sínum
stærðarflokki. U-bix 100
skilar allt að 15 Ijósritum á mínútu
í stærðunum A5 - A3 á venjulegan
pappír, bréfsefni eða löggiltan
skjalapappír.
w
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
W
U-BIXI00
2 . Feykir