Feykir


Feykir - 26.03.1982, Síða 10

Feykir - 26.03.1982, Síða 10
Jón Karlsson skrifar um Steinullarverksmiðju Það er að vonum að mikillar óþol- inmæði gæti varðandi ákvörðun um steinullarverksmiðjuna marg- umtöluðu. Við norðanmenn höfum jafnan gætt þess að viðhafa hóg- væran og efnislegan málflutning þegar þetta mál hefir komið til umræðu í fjölmiðlum. Okkar tals- menn hafa ekki látið egna sig til stóryrða né staðið í að skattyrðast við keppinautana á Suðurlandi, þó að tilefni hafi gefist til. Þar hafa þeirra talsmenn oft látið hafa eftir sér ýmsar fullyrðingar og nú uppá síðkastið gífuryrði, sem merkilegt má heita að fullvaxnir menn og forystumenn heils landfjórðungs telji vera málstað sínum til fram- dráttar. Ekki skal hér tekið upp karp í þessum tón, en ég vil samt til upprifjunar benda á nokkur atriði. Steinullarverksmiðja er búin að vera til umræðu meðal framá- manna og íbúa á Sauðárkróki síðan veturinn 1975/76. Ekki detturmér í hug að efast um að meðal Sunn- lendinga hafi verksmiðja sem þessi, komið til umræðu á árunum 1973/76. — En hitt er víst, að það er ekki fyrr en snemma vetrar 1979 að vart verður við áhuga þeirra að einhverju marki. Þá var af hálfu okkar á Sauðárkróki búið að vinna mikið í málinu í góðri samvinnu við Iðnaðarráðu- neytið. Þar lágu fyrir öll gögn málsins og þar má segja að Sunn- lendingar hafi „komist i málið“ — eða þau gögn sem þar voru. Eftir þetta setti iðnaðarráðuneytið báða aðila á jafnhátt plan, setti nefnd í málið og óskaði margvíslegra gagna. Jafnframt var unnið í mál- inu hér heima. Fullyrða má að öll sú vinna sem hér var unnin, fyrst og fremst af Þorsteini bæjarstjóra og stjórn Steinullarfélagsins hafi verið langtum markvissari og nákvæmari en keppinautanna. Enda kom það oft á daginn að þeir gerðu að sínu máli og sínum rökum margt af því sem héðan hafði komið. Þessi atriði vega þungt um þá forystu sem Steinullarfélagið hf. hefir haft í málinu og skiptir þar minnstu hverjum hafi dottið verksmiðja fyrst í hug. Kannanir Steinullar- félagsins leiddu í ljós að ekki er unnt að fá viðunandi verð fyrir framleiðsluna erlendis. Það er til- tölulega stutt síðan sunnlendingar viðurkenndu þetta, en þá með því að segjast tilbúnir að byggja „litla“ verksmiðju, sem þeir höfðu þó for- dæmt áður. Norðanmenn hafa haft með höndum víðtækar athuganir á bræðsluofnum og allri tækni sem til þarf í þessum efnum. Hefur verið haft samband við mörg fyrirtæki erlendis, sem framleiða slQcan búnað og safnað margvíslegum upplýsingum. Hafa allmörg fyrir- tæki erlendis verið heimsótt og við þau rætt ítarlega. Rangar eru fyll- yrðingar Sunnelndinga um að við séum að ryöjast inní einhver sam- bönd sem þeir hafi við fyrirtæki á Norðurlöndum. Við vorum þegar á árunum 1977 og 78 1 sambandi við þessi fyrirtæki og hefur öllum leið- um verið haldið opnum til áfram- haldandi samstarfs ef hagkvæmt þætti. Sama má segja um stórfyrir- tæki bæði i Þýskalandi og Frakk- landi, á þessu sviði; þar er opin leið að taka upp náið samstarf, en allt slíkt bíður þess fyrirtækis sem stofnað verður til reksturs væntan- legrar verksmiðju og stjórnenda þess. Allar áætlanir um að reisa verk- smiðju af þeirri stærð sem hér hefir verið gert hafa miðast við stækkun síðar, ef t.d. hagkvæmt yrði talið að flytja út. En öll skynsemi virðist mæla með því að rétt sér að byrja smærra og bæta síðan við í stað þess að byrja stórt — og fá e.t.v. stóran skell. Raunar hafa Sunn- lendingar nú viðurkennt þetta, með því að nú nýverið hafa þeir tjáð sig fúsa til að byggja litla verksmiðju. Að lokum þetta: Ef það á að líðast —þegar ein sveitarstjórn er búin að leggja svo mikið í sölurnar sem hér er gert, við að leggja grundvöll að atvinnufyrirtæki — að Alþingi komi og taki þetta úr höndum heimamanna og rétti alla þessa vinnu og áform öðrum — þá er hætt við að margur sveitarstjómar- maðurinn sjái í því lítinn tilgang að eyða kröftum i uppbyggingu at- vinnulífs. Jón Karlsson. Vísnakeppni Safnamála Tímaritið Safnamál, sem gefið er út af Héraðsbóka- og Héaðsskjala- safni Skagfirðinga, hefur undan- farin ár gengist fyrir vísnakeppni. Er það að tilstuðlan Magnúsar heitins Bjarnasonar kennara á Sauðárkróki, sem var mikill áhugamaður um vísnagerð og stofnaði sjóð til að standa fyrir ár- legri vísnakeppni í héraðinu. Þareð þátttaka hefur verið fremur dræm oft á tíðum vilja aðstandendur t)n»* '■hoM*ptnin*»r tm . . . I3íí ; Vfc.»..rttí .•.„//>. • . 9 iJ . «****>'* • < Mt■ xxhtn'fúu gerd) . t> 1Í. ■•> . 'i* il » áiT{a»q'Ui- i'DK) saina Minal 10 . Feyklr vísnakeppninnar koma henni á framfæri við lesendur Feykis og hvetja alla „hagsmiði bragar" til að spreyta sig og senda vísur og botna. Mun Feykir væntanlega síðar birta úrslit úr keppninni og eitthvert sýnishorn að auki. Keppnin fer þannig fram, að lesendur eru beðnir að gera til- tcknu yrkisefni skil í heilli vísu. Að þessu sinni eru þeir beðnir að yrkja um Vorkomuna. Ennfremur eru birtir fyrripartar tveir og glími menn nú við að botna: Það gæti varla verið synd, en vakið öfund hinna ... Ekki reynist gatan greið, grettum steinum þakin ... Botna og vísur skal merkja dul- nefni, en höfundamafn fylgi í lok- uðu umslagi, merkt dulnefninu, og sendist til Héraðsskjalasafns Skag- firðinga, Safnahúsinu, Sauðár- króki. Sérstök dómnefnd velur slð- an úr aðsendu efni og verða veitt bókaverðlaun fyrir bestu visu og botna. Skilafrestur er til 15. aprQ 1982. Kvenfélagskonur á Sauðárkróki taka lagið i Safnaðarheimilinu Sólborg Björnsdóttir leikur á gítarinn, en þær sem lagið taka með henni ero f.v. Lára Angantýsdóttir, Sigriður ögmundsdóttir, Lilla Bjarman, Ása Helgadóttir, Alda Ellertsdóttir. Línurskýrast Óðum skýrast framboðslín- urnar til bæjarstjórnarkosninga á Sauðárkróki. I síðasta tbl. Feykis voru birt nöfn efstu manna á lista Sjálfstæðisflokks- ins. Alþýðubandalagið hefur nú gengið frá sínum lista, og eru níu efstu menn þessir: Stefán Guðmundsson, Marta Bjarna- dóttir, Rúnar Bachmann, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Sigur- lína Árnadóttir, Jens Andrés- son, Skúli Jóhannsson, Lára Angantýsdóttir og Bragi Skúla- son. Ekki er enn búið að ganga frá lista Alþýðuflokks. Eftir því sem Feykir kemst næst munu fjórir efstu menn þar að löc- indum verða: Jón Karlsson, Dóra Þorsteinsdóttir, Helga Hannesdóttir og Guðmundur Guðmundsson. Listi Framsóknarflokksins eru heldur ekki tilbúinn, en Feykir hefur hlerað að þar verði þessir fjórir í efstu sætum: Magnús Sigurjónsson, Sig- hvatur Torfason, Pétur Péturs- son og Björn Magnús Björgvinsson. Hávær þögn rOcir enn um óháðan lista Harðar Ingimars- sonar. Feykir hefur þó heyrt að Hörður og félagar ætli sér a.m.k. tvö sæti i næstu bæjar- stjóm. Sauðárkrókur: Tannlæknaþjónusta Sæmundur Hermannsson segir frá Tannlæknaskortur er á Sauðárkróki og í Skagafjarðar- sýslu, og hefur svo verið um langan tíma. Við spurðum Sæ- mund Hermannsson ráðsmann Sjúkrahúss Skagfirðinga hvort gert væri ráð fyrir tannlækninga- aðstöðu í nýju heilsugæslustöð- inni sem risin er við sjúkrahúsið. Það kom fram í svari Sæm- undar að 5 ár eru liðin síðan vinna hófst við heilsugæslustöð- ina og ekki sæi fyrir endann ennþá. Sæmundur sagði að í upphafi hefði verið hugmyndin að hafa þarna tannlæknastofur, en áætlanir breyttust. Sagði Sæmundur að í lögum væri ákvæði um að stjórnir heilsu- gæslustöðva ættu að stuðla að því að tannlæknaþjónusta væri veitt á svæði stöðvarinnar. Þegar útséð var um að tannlæknastofur yrðu 1 nýju heilsugæslustöðinni var farið að svipast um eftir öðru slOcu hús- næði, sem hentað gæti tveimur til þremur tannlæknum og sameig- inlegu þjónustuliði. Var HúsavQc hér tekin til fyrirmyndar, en þar eru þrír tannlæknar saman um húsnæði og þjónustu. Trésmiðjan Borg á Sauðárkróki lýsti sig reiðubúna að útvega húspláss, og arkítekt var fenginn til að gera drög að innréttingu. Dráttur varð svo á að húsnæðið yrði tekið á leigu, og nú er svo komið að Borgarmenn telja sig ekki geta misst það. Sæmundur sagði sína afstöðu þá að það bæri að halda áfram að leita að hentugu húsnæði undir tannlæknastofu. Fólkið ætti rétt á öruggri þjónustu. Kvaðst Sæmundur álíta að vilji væri fyrir því að veita tannlæknum fyrir- greiðslu til kaupa á tækjum til þessarar þjónustu. Þjónustan eins og hún væri nú væri óviðunandi. Aðeins einn tannlæknir væri starfandi í sýslunni en annar væri á hlaupum hér annað slagið. Nýtt heillaskeyti Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju hefur nú gefið út nýtt heillaskeyti. Á skeytinu er vatnslitamynd af kirkjunni og safnaðarheimilinu eftir lista- konuna Ástu Pálsdóttur frá Sauðárkróki. Myndprent á Sauðárkróki hefur prentað. Skeytasala verður í safnaðarheimilinu laugardag 3. aprQ kl. 13-17 og á pálmasunnudag kl. 10-17. Miðvikudaginn 7. apríl verður skeytasalan opin kl. 13-17 og gog á skírdag kl. 13-15.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.