Feykir


Feykir - 30.04.1982, Qupperneq 6

Feykir - 30.04.1982, Qupperneq 6
Gísli á Hofi segir frá HÓLASKÓLA GEFIN SUNDLAUG Það var hátíðleg stund á Hólum í Hjaltadal sunnudaginn 18. aprQ þegar fyrsta skóflustungan var tek- in að sundlaug þar í bliðskapar- veðri. Sundlaugin á að vera tilbúin 4. júli í sumar þegar 100 ára af- mælis Bændaskólans á Hólum verður minnst. Hún verður gjöf gamalla Hólasveina og -meyja og annarra velunnara Hólastaðar til skólans. Fyrstu skóflustunguna tók bún- aðarmálastjóri Jónas Jónmsson og hélt hann stutta ræðu við það tækifæri og rakti aðdraganda þess að í sundlaugargerðina væri nú ráðist. Þegar hefur safnast um helmingur þess fjár sem fyrirhugað er að framkvæmdimar kosti, en auk sundlaugarinnar verður þama gufubað og heitur pottur, „freyði- pottur“ með vatns- og loftnuddi. Þá verða búningsklefar leikfimissalar endurbættir, en þeir munu einnig nýtast sundlaugargestum. Laugin verður norðan við austurálmu skólahússins, snýr í austur og vestur og verður 16%x8 m að stærð. Skólastjórinn Jón Bjamason frá Bjamarhöfn bauð gestum sem þama voru margir saman komnir til kaffidrykkju að athöfn lokinni. Þar talaði Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn í Svarfaðardal, en hann á sæti í skólanefnd Hólaskóla. Einnig talaði sýslumaður Skagfirðinga, Jóhann Salberg Guðmundsson. Sýndar voru teikningar af hinum fyrirhuguðu mannvirkjum. 900 bréf send út. Feykir hitti formann skóla- nefndar Hólaskóla, Gísla Pálsson á Hofi í Vatnsdal, og fékk að fræðast nokkuð um gang sundlaugarmáls- ins og annað sem snertir Hólastað, en Gísli er formaður Hólalax-fé- lagsins og formaður stjórnar hita- veitunnar í Hjaltadal. Þær eru orðnar margar ferðimar sem Gísli hefur farið heim að Hólum á síð- astliðnum þremur árum, líklega milli 50 og 60, en leiðin fram og aftur er um 300 km löng. Gísli sagði að sundlagarmálið væri nokkuð sérstakt að því leyti að hér væm gamlir nemendur skólans að bindast samtökum um nokkuð sem jafnvel vefðist fyrir opinberum aðilum að hrinda í fram- kvæmd. Hér væri ekki um bisniss eða verksmiðjustofnun að ræða heldur athöfn sem mjög gæti styrkt skólann og staðinn, enda byndu forráðamenn hans miklar vonir við þessa gjöf. Gísli á Hofi sagði að þeir í sundlaugamefndinni væru búnir að senda út 900 bréf til gamalla Hólamanna. Sá elsti væri Eiður Guðmundsson á Þúfnavöll- um í Skriðuhreppi sem útskrifaðist árið 1906. Næstir koma Guðjón Hallgrímsson á Marðamúpi f Vatnsdal og Ámi Antonsson á Dalvflc, en þeir útskrifuðust 1908. Gísli gat þess að einnig hefði verið leitað til fyrirtækja sem tengdust 6 . Feykir staðnum og landbúnaðinum. Þannig hefði Búnaðarbanki íslands gefið 50 þúsund krónur og Sýslu- sjóður Skagafjarðarsýslu 100 þús- und krónur. Stefnt er að því að laugin verði tilbúin 15. júní, en 4. júlí verður hún afhent skólanum eins og áður sagði. Hólalax. Talið snerist nú að Hólalaxi. Það kom fram f máli Gísla að hinn 9. maí 1977 kusu veiðifélögin í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum nefnd til að finna stað undir klak- stöð og hefjast handa um fram- kvæmdir. Árið 1978 var að áeggjan Haralds Ámasonar borað hjá Reykjum í Hjaltadal eftir heitu vatni með góðum árangri. Þá var farið að líta til Hóla sem ákjósan- legs staðar fyrir klakstöð. Fyrir nefndarmönnum vakti þá einnig endurreisn Hólastaðar og kennsla þar í laxeldi. Hlutafélagið Hólalax var svo stofnað 1979, og með til- komu þess skapaðist grundvöllur fyrir hitaveitu til Hóla (og sundlaug þar!), en þangað eru 9 km frá Reykjum. Nokkur barátta var háð um hitaveituna því að „þeir á Orkustofnun eyddu tíma í að sanna að þetta væri ekki hagkvæmt". Hitaveitan f Hjaltadal er eign rflcis, Hólalax og Hólahrepps. Gfsli sagði að fimm af nemend- um Bændaskólans hefðu tekið fiskeldi sem aðal- eða aukagrein og væm þrír þeirra nú í verklegu námi hjá Hólalaxi en tveir í Kollafirði. Klakstöðvum hefði fjölgað og það stæði þeim fyrir þrifum að ekki fengist menntað fólk til þeirra. Með kennslunni á Hólum ætti vonandi eftir að rætast þar úr. Aðspurður hvernig gengið hefði með klakið hjá Hólalaxi að undanförnu sagði Gísli að þeir mættu sæmilega við una. Byrjunarörðugleikar hefðu þó verið nokkrir, m.a. vegna skorts á fullkomnum tækjum. Loðdýr og heimafóður. — Getið þið sem standið að endurreisn Hólastaðar nú farið að anda rólega? „Nei, það er enn í mörg hom að líta. Það sem nú er mest aðkallandi er kennslubú á Hólum í loðdýra- rækt. Til að forðast mistökin við refa- og minkabúin, sem nú fjölgar ört, er kennsla nauðsynleg. Það var vegna þekkingarskorts fyrst og fremst sem minkabúin lögðust nið- ur hér á árunum. Loðdýraræktin virðist eiga framtíð fyrir sér. Af öllum búgreinum kemst hún næst því að unnt sé að framleiða þar á heimsmarkaðsverði." I framhaldi af þessu var minnst á Heimafóður, hina færanlegu hey- kögglaverksmiðju, sem Húnvetn- ingar hyggjast flytja inn á næst- unni. Gísli sagðist mjög trúaður á gengi þess fyrirtækis. Hann hefði sjálfur unnið að því að fá slflca verksmiðju til landsins fyrir 8 árum en því miður hefði ekki orðið af því þá. Benti Gísli á að slflc færanleg verksmiðja sparaði fjárbændum alveg fóðurkaup og minnkaði þau til muna hjá kúabændum. Á þenn- an hátt framleiddu bændur sjálfir sitt fóður. Þeir spöruðu sér þannig drjúgan skilding og þyrftu því ekki að hafa eins margt fé og ella. Gisli lét þess getið að ekki yrði undan því vikist að draga úr kjötframleiðsl- unni vegna markaðsvandamála. Það kom margt fleira fram í spjallinu við Gísla, sem ekki verður skýrt frá að sinni. Umræðan tengdist einkum laxveiðum og þeim tekjum sem bændur og sveit- arfélög geta haft af þeim ef rétt er að staðið. Ræddi hann um laxa- fóður og möguleikana á að fram- leiða það og annað fóður úr slátur- afurðum og fiskúrgangi sem við hendum. Gísli á Hofi gat þess í lokin að það hefði verið „voðalega gaman“ að vinna að þessari uppbyggingu Hólastaðar, og að enn væri þar framundan mikil barátta. Við kveðjum þennan sigurglaða mann og þökkum honum fyrir hressinguna. Þurfum við ekki nokkra slflca til að ýta við okkar annað slagið svo að við koðnum ekki niður í okkar þrönga heimi? Til sölu Ónotaður Egebjerg baggavagn, 130 bagga. Upplýsingar gefur Hjalti Guðmundsson, Vestur- hópshólum, sími um Hvammstanga. Oskum viðskiptavinum okkar egs sumars Apótek Blönduóss, Blönduósi Blómabær, Blönduósi Búnaðarbanki íslands, útibú Blönduósi Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Kistan, Blönduósi Pólarprjón h.f., Blönduósi Trésmiðjan Stígandi, Blönduósi Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga Sparisjóður V- Húnavatnssýslu, Hvammstanga Ábær, Sauðárkróki Blómabúð Sauðárkróks, Sauðárkróki Búnaðarbanki íslands, útibú Sauðárkróki Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki Matvörubúðin, Sauðárkróki Radio- og sjónvarpsþjónustan, Sauðárkróki Rafsjá h.f., Sauðárkróki Sauðárkróks Apotek, Sauðárkróki Verslunin Bláfell, Sauðárkróki Verslun Haraldar Júlíussonar, Sauðárkróki Verslunin Tindastóll, Sauðárkróki Gisl! ræAir við Guttorm Óskarsson hjá K.S. Og þar meS er vinna hafln vitf sundlaugina.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.