Feykir - 30.04.1982, Side 8
FeykÍR
CnOEFANtM: FEYKW H.F.
Rltstfód og ábyrgSarmsSur:
BALDUR HAF8TAÐ.
Augtýilngar:
MARQEIR FRIDRIK880N,
8iml 96-5600 og 96-5762.
Dnlflng:
HILMIR JÓHANNESSON,
Siml B6-5133 og 96-5314.
Aakrift:
Arni raqnarsson,
Slml 96-6500 og 966670.
Rltot)óm:
Arni raqnarsson, hilmir jóhanneson, hjAlmar jónsson
jón Asserqsson, jón f. hjartarson.
Rltnofnd á StgluflrtSI:
BIRQIR STEINDÓRSSON, SVEINN BJÓRNSSON, OUNNAR RAFN
SIQURBJÖRN8SON. KRISTJAN MÓLLER, PALMI VILHJAlMSSON.
Rltmfnd á Hvammitangi:
HÓIMFRlOUR BJARNAOÓTTIR, EQILL QUNNLAUQSSON, HELQI
ÓLAFSSON, ÞÓRVEIQ HJARTAROÓTTIR, HAFSTEINN KARLSSON,
MATTHlAS HALLOÓRSSON.
Rttnofnd A Blónduóál:
MAQNÚS ÓLAFSSON, SIQMAR JÓNSSON, BJÓRN
SIQURBJÖRNSSON, ELlN SIQURÐARDÓTT1R,
SIQURÐUR EYMUNDSSON.
Rttrwfnd A SkMMtfönd:
ELlN njAlsoóttir, sveinn inqólfsson, jón inqi
INQVARSSON, MAQNÚS B. JÓNSSON, ÓLAFUR BERNÓDUSSON.
Rltnáfnd á Hofadál:
FJÓLMUNDUfl KARLSSON, QUÐMUNDUR INQI LEIFSSON, PALMI
RÖONVALDSSON, BJARNI JÓHANNSSON, Sr. SIQURPALL
ÓSKARSSON, RÓSA PORSTEINSDÓTTIR, BJÖRN NlELSSON,
bÓRDlS FRWBJÓRNSDÓTTIR.
ÚtlH: REYNIfl HJARTARSON.
PRENTVERK ODOS BJÓRNSSONAR H.F.
AKUREYRI 1962
Fsyklr er hálfsmánaöarblaö.
Lauuula 8 hr.
*
Að tölta um engi
í sjónvarpsþœttl nýlega sagði gamall
skipherra á Gullfossl frá því þegar
Halldór Laxness gekk fram og aftur
á sklpsbrúnni á leiöinni yfir hafið og
andaði að sór fersku sjávarlofti. Við
heyrðum líka fró sjónarvottum að
skáldlð fœri í langar gönguferðir (
Mosfellssveit og talaði við fugla. Svo
er mynd brugðið upp af ungum
manni í Austurstræti sem gengur
teinróttur og hratt og hverfur inn í
pósthúslð. Þessi maður gæti tekið
þátt í vfðavagnshlaupl! Unglingurinn
reynist vera Halldór Laxness ótt-
ræður.
Nú á síðustu árum er farið að tala
miklð um líkamsrækt, „æfingatækl**,
„lyftingaaðstöðu1*, „leikfangasaH“,
„freyðipotta“ og þar fram eftir götun-
um, sem allt ó að stuðla að hreysti og
fegurð. Víðavangshlaup eru l(ka aug-
iýst á sumardaglnn fyrsta. Sá er
þetta rltar varð vitni að einu slíku á
Norðvesturlandl. Gaman var að sjá
tll keppenda, sem að vísu voru allt of
fáir. Hinir yngstu voru svo ungir að
þelr vlssu ekki hvað var að vinna og
tapa. í hærri aldursflokkum var tekið
á af öllum kröftum. Elsti keppandlnn
var 15 ára. Þelr sem eldri voru sáu
ekki ástæðu til að vera með. Áhorf-
endur sem hvöttu ungu hiauparana ó
gangstóttum voru fáir. Allmargir sátu
reyndar ( bdum sínum álengdar,
óvlrklr áhorfendur, eins og fyrir
framan sjónvarp. Einn og einn tók þó
mynd út um glugga tll að setja í fjöl-
skyldualbúmið. Mótorarnlr voru látn-
ir ganga tll að gefa umhverfinu
ramman þef.
Spyrja mættl hvort við getum hald-
ið bílaleiknum áfram til óttræðis
aldurs og eklð mllli húsa ( smábæj-
um okkar, en sofnað yfir fuglamynd-
um ( sjónvarpinu á kvöldum. En lika
mættl spyrja hvort það yrðl heilla-
vænlegra að skoða hreiður ( ná-
grenni okkar milliliðalaust, þenja
lungun ( svölum blæ af hafi og taka
þátt ( léttu víðavangshlaupi einu
slnni á ári með börnum. Stefán G.
talaði um að „gr(pa vorsins þrá og
þrótt“ ( kvæðl sem heitir Hver er allt
ofuppgeflnn. Hver er of uppgefinn til
að stíga út úr bdnum eina vorstund
og trítla um túnin og tölta um engin?
w
„Þörfin er brýn"
Rætt við Krístján Björnsson, verslunarmann,
sem skipar efsta sæti á lista Frjálslyndra á
Hvammstanga.
— Hverjir standa á bak viö
þennan lista?
— Að baki þessum lista stendur
fyst og fremst áhugafólk um mál-
efni Hvammstangahrepps. Sumt af
þessu fólki er flokksbundið í Sjálf-
stæðisflokki og Alþýðuflokki en
annað, og ekki færra, er óflokks-
bundið. Áður en þetta framboð var
ákveðið höfðu farið fram viðræður
við fulltrúa Framsóknarfélagsins
um myndun lista á breiðum grunni,
en þegar til átti að taka drógu þeir
sig út úr þeim viðræðum. Alþýðu-
bandalagsmenn höfðu þá þegar
ákveðið sitt framboð.
— Af hverju á fólk að kjósaykk-
ur en ekki hina?
— Þessu er nú ekki hægt að
svara að öðru leyti en því að á
okkar lista eru menn, sem hafa
unnið að málefnum hreppsins um
lengri eða skemmri tíma. Sumir
verið áður í hreppsnefnd við góðan
orðstír, aðrir starfað í nefndum á
vegum hreppsins og allir gjör-
þekkja þeir til málefna hrepps-
félagsins. Þetta er styrkur listans og
það veit ég að kjósendur hér munu
meta að verðleikum á kjördegi.
— Nú hafa kosningar veriö
óhlutbundnar hér í tuttugu ár. Hvers
vegna listakosning nú?
— Þetta kosningaform, óhlut-
bundnar kosningar, er löngu geng-
ið sér til húðar hér á Hvamms-
tanga. f undanförnum kosningum
hafa í reynd verið nokkurs konar
listakosningar, þvi að alls konar
klíkur hafa agiterað fyrir hinum og
þessum, jafnvel fólki, sem alls ekki
kærði sig um setu í hreppsnefnd.
Persónulega finnst mér listakosn-
ing skynsamlegri og þá kemur
raunverulega fram fólk sem vill
starfa að málefnum síns sveitar-
félags. Það held ég að sé aðalkost-
urinn.
— Einhver kosningaloforö, ein-
hver stefna?
— Nei, engin kosningaloforð.
Við sem erum þama í baráttunni
þekkjum vel málefni hreppsins og
stöðu hans. Undanfarin ár hefur
verið mjög ör fólksfjölgun í
hreppnum, sem kallað hefur á
miklar framkvæmdir og kostnað-
arsamar í gatnagerð, vatns- og hol-
ræsalögnum og hitaveitu ásamt
ýmsum öðrum félagslegum úrbót-
um. Fjárhagsstaða hreppsins er
erfið og engu hægt að lofa um
framkvæmdir að öðru leyti en þvi,
að unnið verður áfram við þau
verkefni, sem nú þegar er byrjað á.
Þörfin er brýn á mörgum sviðum,
svo sem skólamálum, atvinnumál-
um og varanlegri gatnagerð svo
eitthvað sé nefnt. Reynt verður að
þoka þessum málum áfram eins og
efni og ástæður leyfa.
— Eitthvað aö lokum?
— Við frambjóðendur L-listans
verðum varir við það að við höfum
meðbyr meðal fólksins hér á
Hvammstanga, og ég trúi því að
það muni veita okkur brautargengi
í kosningunum 22. maí.
H.K.
Með nýjum lögum um skóla á Is-
landi, svonefndum grunnskólalög-
um, var landinu skipt í fræðsluum-
dæmi þannig að þau urðu átta, þ.e.
jafnmörg kjördæmunum. Með
þessari breytingu áttu flestir von á
meiri og betri samskiptum skól-
anna og fræðsluskrifstofanna i
hinum ýmsu málum.
Nú er það svo að mjög margir
skólar eru tví- og jafnvel þrísetnir,
vinnuaðstaða nemenda og kennara
mjög slæm og kennsla margra sér-
greina er felld niður eða kennd við
mjög slæma aðstöðu. Þetta og
fækkun kennslustunda á skóla hef-
ur haft þau áhrif að kennaraskipti
eru mjög tíð og kennarar til
kennslu iýmsum greinum fást ekki.
En hvað er að gerast? I stað þess
að byggja upp grunninn, skólana,
þar sem vissulega þarf að gera átak,
þenjast fræðsluskrifstofumar (yfir-
byggingin) út. Svo merkilegt er það
LITIÐ VIÐ A
HVAMMSTANGA
. ' ' !. ' ' .....-9^——^———
„Höfum verið þátttakendur í
uppbyggingunni"
Rætt við Brynjólf Sveinbergsson, mjólkurbústjóra, efsta mann á lista Framsóknarf lokksins
— Hvers vegna listakosningar
núna?
— Það var á fundi 1 Framsókn-
arfélagi V.-Húnvetninga að tekin
var ákvörðun um að rétt væri að
stefna að frambiði framsóknar-
manna í komandi sveitarstjómar-
kosningum á Hvammstanga. Það
var jafnframt gengið frá því á þeim
fundi að framsóknarmenn á
Hvammstanga mundu vinna að
þessu framboði. Ástæða þess er sú
að við viljum tryggja það að það
ættu sér ekki stað svipaðir hlutir og
í kosningunum 1978, þegar til þess
að gera fámennur hópur kjósenda á
Hvammstanga réði kosningu sveit-
arstjómarinnar sem þá var kosin.
Við viljum breyta til, við viljum að
það verði teknar upp listakosningar
og höfum verið að vinna að þeim
lista sem nú liggur fyrir. Með vax-
andi fólksfjölda hér á staðnum,
teljum við að fólk eigi heimtingu á
því að geta að nokkru vegið og
metið þá lista sem í boði eru. Enn
fremur vil ég taka eftirfarandi
fram:
Á árunum 1967-1978 starfaði
ég að sveitarstjórnarmálum. Á
nú að stöðugildum skólanna fækk-
ar á hverju ári, vegna spamaðar-
ráðstafanna, en á sama tíma er
ráðið í margar stöður á fræðsluskrif-
stofunum, s.s. bókasafnsfr. (og
bókasöfn em tæpast til í mörgum
skólum), sérkennslufr., sálfr.,
félagsfr., uppeldisfr..
Með þessum orðum er ég ekki að
beina spjótum mínum að þessu
fólki, heldur benda á að svona
vinnubrögð geta vart gengið.
Kennarar geta ekki lengur látið
þessi mál sig engu varða. Þeir geta
ekki lengur litið framhjá þeirri
stofnun sem þeir vinna við.
Það er ljóst að meðan eingöngu
er hugsað um yfirbygginguna þá
kemur fúi í grunninn og að endingu
hrynur öll byggingin. Tið kennara-
skipti er eitt af því versta sem hent
getur skólastarfið. Og dreifbýlið á
erfitt með að halda kennurum
lengi. Af hverju? E©laust eru
ástæðumar ýmsar, en líklega er lé-
leg vinnuaðstaða ein aðalástæðan.
Það er ekki eftirsóknarvert að vera
kennari úti á landi vegna þess að
skólamir em svo miklu ver útbúnir
en skólar í stóru byggðakjömun-
um. Menn eru með vangaveltur
um, hvað valdi því að nemendur í
dreifbýli fái lélegri próf en nem-
endur þéttbýlis. Er það ekki grein
af sama stofni?
Það verður að bæta skólana og
gera þannig kennarastarfið eftir-
sóknarvert. Sérfræðingamir ná
aldrei árangri í sínu starfi ef skóla-
starfið er meira og minna í molum.
I þessu efni verða kennarar að
standa saman. Berjast fyrir um-
bjóðendur sina, bömin, því berum
við ekki hag þeirra fyrir brjósti, þá
er betra að taka sér annað fyrir
hendur.
Flemming Jensen,
kennari, Hvammstanga.
þessum tíma breyttust hlutimir á
þann veg að hér varð fólksfjölgun
yfir landsmeðaltal, aukning varð á
atvinnutækifærum og það þurfti að
byggja upp marga nýja þætti.
Þjóðfélagið er að verða stöðugt
flóknara og flóknara þannig að þeir
sem taka sveitarstjómarmálin að
sér verða að leggja sig fram í miklu
ríkara mæli um að undirbúa sig
undir átökin við hina fjölmörgu
þætti sem em í dag í þessu nútíma-
þjóðfélagi framundan. Við fram-
sóknarmenn viljum sýna ákveðið
að við stillum upp undir því merki.
Við vitum ákaflega vel um það að
yngra fólk í dag, vill ekki láta draga
sig í pólitíska dilka, það vill vera
hlutlaust og taka á málunum þegar
því þykir henta. Við emm á þeirri
skoðun að þó að fólk sé uppi með
þetta sjónarmið, þá fari ekki hjá því
að þegar á að taka á þessum mál-
um, þá verði örugglega litið á bæði
flokksleg sjónarmið og þær
persónur sem gefa kost á sér til
þessara starfa.
— Einhver stefna eða kosninga-
loforö sem þið getiö boðiö kjósend-
um upp á?
— I sambandi við framfaramál
staðarins þá liggur það alveg ljóst
fyrir að það eru nokkrir megin-
þættir sem við þurfum að’horfa til.
Það er kannski spuming um i
hvaða röð á að taka þá, en ég held
að við getum tekið í fyrsta lagi
skólamálin, þar eru gífurleg átök
framundan við stækkun skólans.
Ennfremur er verið að byggja hér
upp íþróttaaðstöðu. Sundlaugin er
að verða tilbúin og vonandi verður
þess ekki langt að bíða að hér rísi
einnig íþróttahús, búningsaðstaðan
er til staðar. Einnig þarf að ganga
betur frá íþróttavellinum og hlúa
að starfi unglinga. Vaxandi þáttur
er umhyggja fyrir öldmðum, sífellt
er gert stærra átak á því sviði og það
þarf að huga vel að þeim málum.
Síðan er þáttursem taka þarf miklu
betur á og ákveðnar en gert hefur
verið, en það er að laga það um-
hverfi sem við erum í. Við þurfum
að koma varanlegu slitlagi á göt-
uraar, meira en nú er. Ennfremur
þarf að efla uppbyggingu atvinnu-
lífsins eins og kostur er, þannig að
allir geti haft atvinnu við sitt hæfi. í
hvaða röð og með hvaða hraða
hægt er að gera þessa hluti verður
að meta hverju sinni, vegna þess að
ákaflega margir af tekjustofnum
sveitarfélagsins em bundnir fyrir-
fram. Nú, vegna þess að bæði karl-
ar og konur eru farin að vinna jafnt
úti í atvinnulífinu, þá eru barna-
heimilismálin á Hvammstanga eitt
af þeim framfaramálum sem þarf
að snúa sér að áður en langur tími
líður.
— Eitthvað að lokum, Brynjólf-
ur?
— Já, að lokum vil ég bara segja
það að þeir sem skipa lista fram-
sóknarmanna, eru íbúar sem hafa
verið hér í allmörg ár og hafa því
verið þátttakendur í þessari
uppbyggingu. Við teljum að við
þekkjum vel okkar umhverfi og
íbúa staðarins. Við viljum leggja
okkur fram til þess að ná hlutunum
betur fram á við.
H.K.
Verkamanna-
bústaðir
Nú er í smiðum fyrri áfangi verkamannabústaða á Hvammstanga. Hann
er fjórar íbúðir, um 100 ma hver. Sameinaðir verktakar tóku verkið að sér
og eiga að skila íbúðunum fullfrágengnum 1. október á þessu ári. Líklega
verða þær auglýstar fljótlega til sölu og úthlutað skömmu síðar. Nú í
vikunni var verið að steypa efri hæðina. Þó að það sjáist e.t.v. ekki á
myndinni, þá er þetta allra skemmtilegustu íbúðir og ætti ekki að væsa um
neinn - þeim í framtíðinni.
Við leggjum áherslu
breytt vinnubrögð.”
Viðtal við Matthías Halldórsson, lækni, efsta mann á lista
Alþýðubandalagsins og óháðra á Hvammstanga.
a
— Nú voruð þiðfyrstir til að birta
ykkar lista hér á Hvammstanga,
hvers vegna hlutbundnr kosningr
fremur en óhlutbundnar?
— Sjálfur var ég ekki kominn
hingað í síðustu sveitarstjómar-
kosningum, en mér er sagt að eftir
þær kosningar hafi legið í loftinu
að næst yrðu hér listakosningar
eins og á flestum þéttbýlisstöðum
landsins. Að mörgu leyti eru lista-
kosningar heilbrigðara fyrirkomu-
lag. Þeir sem skipa lista hafa gefið
kost á sér til þessarar þjónustu og
hafa því enga afsökun fyrir að
vinna ekki af fullu kappi að mál-
efnum hreppsfélagsins. Auk þess
hafa frambjóðendumir bakhjarl
þar sem flokksfélögin eru.
— Hvers vegna á fólk aö kjósa
ykkur en ekki hina?
— Þeir sem gefa kost á sér til
hreppsnefndar verða að hafa ákv-
eðna stefnu. G-listinn fylgir al-
mennri stefnu Alþýðubandalagsins
í öllum helstu þjóðmálum og sveit-
arstjómarmenn þess beita sér m.a.
fyrir virkara lýðræði, ákvörðunar-
rétti almennings um nánasta um-
hverfi sitt og þátttöku launafólks i
ákvarðanatöku. Við leggjum á-
herslu á breytt vinnubrögð í hrepps-
nefnd. Auðvelda verður íbúum
hreppsins að fylgjast með því,
hvemig fulltrúar þeirra vinna að
málum í nefndinni. Við teljum að
hreppurinn eigi að gefa út frétta-
bréf öðru hverju með upplýsingum
um allar ákvarðanir hreppsnefndar
máli skipta. Efstu menn
sem
sér
Fjölgun þingmanna leysir engan vanda
Við undirritaðir áhugamenn í V,-
Hún. um stjónarskrármálið, viljum
vekja athygli á að íslenskir stjórn-
málaflokkar hafa sett sér það
markmið, að fjölga þingmönnum á
Reykjavíkur- og Reykjanessvæð-
inu á kostnað landsbyggðarinnar.
Undirbúningur þeirra aðgerða
hefur verið i fullum gangi, og telja
má fullvíst, að stjómarskránni
verði breytt 1 þá veru við fyrsta
tækifæri, ef ekkert er aðhafst af
hálfu landsbyggðarinnar.
Þar sem hér er ekki aðeins um
hag hinna dreifðu byggða að ræða,
heldur og allrar þjóðarinnar, þegar
til lengri tíma er litið, teljum við
nauðsyn á að íbúar landsbyggðar-
innar standi saman og hrindi fyrr-
nefndum áformum af höndum sér,
þannig að slíkt komi ekki til fram-
kvæmda.
Staðreynd er, að megin áhrif
búsetubreytinga landsmanna á síð-
ustu áratugum em fólgnar í afger-
andi forystuhlutverki höfuðborg-
arsvæðisins á flestum sviðum. Þar
em nú aðalstöðvar embættiskerfis-
ins, hagsmunasamtaka, stjóm-
málaflokka, fjölmiðla og fjármála-
valds. Með tilliti til framangreinds,
verður að álíta að þrátt fyrir minna
atkvæðavægi, eru áhrif íbúa
Stór-Reykjavíkursvæðisins til
stjómunar þjóðmálanna mun meiri
en íbúa landsbyggðarinnar.
Aðalframleiðsla þjóðarinnar á
sér stað úti um hinar dreifðu
byggðir, en fjármunirnir renna til
Reykjavíkur og eru síðan skammt-
aðir þaðan úr hnefa.
Þeirri skoðun okkar viljum við
koma á framfæri, að fjölgun þing-
manna leysi engan vanda. T.d.
virðist heil heimsálfa —Ástralía —
komast vel af með aðeins 64 þing-
menn.
Allmiklar umræður hafa verið
hér innan sýslunnar um þetta mál,
bæði á pólitískum og almennum
fundum. Einstakar fundarsam-
þykktir leggja rflca áherslu á að
komi til breytinga á stjórnar-
skránni, verði fjöldi þingmanna í
Reykjavík og Reykjanesskjör-
dæmi, eins og þeim er nú skipað,
aldrei meiri en tveir fimmtu hlutar
af heildartölu alþingismanna þjóð-
arinnar.
Ef þú og þitt samstarfsfólk telur
að kalla þurfi fram andstöðu gegn
fyrirhugaðri kjördæmabreytingu
Framhald á bls. 15
G-listans munu skipa með
starfhóp sem ræðir allar meiri
háttar ákvarðanir fulltrúa listans.
Enginn einn hefur þekkingu á öll-
um málaflokkum og æskilegt er að
varamenn taki sæti aðalfulltrúa
þegar rædd eru mál sem þeir hafa
betri þekkingu á. Listi okkar er
skipaður fólki með sömu stefnu en
að nokkru leyti ólflc áhuga- og
hæfileikasvið og eru valdir á listann
með það í huga.
— Er þú ekki að fara héðan
Matthías?
— Svo er sagt, en sjálfur hef ég
ekki uppi neinr ráðagerðir í þá átt.
Andstæðingar listans hafa komið
þessari sögu á kreik og ég tel að við
megum vel við una ef þeir óttast
það mest að ég hverfi héðan. Ég hef
farið mánuð og mánuð i senn til
frekara framhaldsnáms í svoköll-
uðum félagslækningum og mun
væntanlega halda því áfram, enda
mikilvægt að læknir staðni ekki í
starfi sínu.
— Einhver kosningaloforð?
— í mínum huga eru kosninga-
loforð loforð sem eru svikin, að
öðru leyti vísa ég til þess sem ég
sagði hér áðan.
— Eitthvað að lokum?
— Nei. h.K.
Feykir . 9
8 . Feykir