Feykir - 30.04.1982, Page 15
Hvorki er ég dauður....
Framhald af bls. 1
verði byggð í Blöndu, ef leið II yrði
valin. Það er því tómt mál að tala
um leið II og ekkert annað en
gegnsæ blekking, að allur vandi
væri úr sögunni og málið leyst, ef sá
kostur yrði valinn.
Hvað tæki við?
Leið II táknar sem sagt enga
Blönduvirkjun í bráð. En líklega
gengur Helgi skrefinu lengra, enda
er einnig mjög veruleg landeyðing
með margumtalaðri leið II. Hann
er sjálfsagt alfarið á móti virkjun í
Blöndu. Það er sjónarmið út af fyrir
sig.
En hvað tekur þá við. Núverandi
ríkisstjóm ákvað, þegar hún var
mynduð, að næsta stórvirkjun yrði
utan eldvirkra svæða. Að Blöndu
frágenginni er því ljóst, að næsta
stórvirkjun yrði Fljótsdalsvirkjun.
Eins og Helga er vafalaust ljóst,
er það almennt viðurkennt af þeim
sem til þekkja, að landsspjöllin á
miðlunarstæði Fljótsdalsvirkjunar
eru miklu meiri en þau sem verða
við Blöndu; landið sem fer undir
vatn er stærra og gildi þess frá
sjónarmiði landkosta og náttúru-
fegurðar miklu meira, m.a. að dómi
Náttúruvemdarráðs.
Ef Helgi Baldursson er á förum í
landfræðilegri merkingu eftir sein-
ustu tíðindi í Blöndumálinu, þá veit
hann vonandi, hvert hann á að
fara. Á Austurlandi er sannarlega
óplægður akur fyrir sjónarmið
hans, því að þar hefur enginn
hreyft andmælum gegn væntan-
legum virkjunarkosti svo kunnugt
sé.
Málamiðlun?
Ég veit ekki, hvort Helga Bald-
urssyni er mikið um málamiðlanir.
Helst gæti ég trúað því að hann
sé hafinn yfir þess háttar brölt,
þegar himnesk náttúra jarðar er
annars vegar. En við sem erum að
paufast við að stjóma landinu,
stöndum í þessu daglega að miðla
málum og tryggja sættir í erfiðum
deiluefnum.
Deilan um næstu stórvirkjun
landsmanna hefur verið þrælslega
snúið mál. Þar hafa þó mikilvægar
sættir tekist með nýgerðum samn-
ingi við fimm hreppa — og ég er
sannerlega ekki vonlaus, þegar
þetta er ritað, að enn víðtækari
sættir takist á næstu dögum.
Helgi Baldursson hefur ásamt
ýmsum öðrum reynt að telja fólki
trú um með skrifum sínum, að í
þessu Blöndumáli hafi stjómvöld
og væntanlegir virkjunaraðilar
vaðið áfram af einstæðu skeyting-
arleysi gagnvart náttúru landsins.
Hvort sem telst skynsamlegra að
virkja Blöndu eða ekki, verður að
virða staðreyndir íþessu efni:
Ég tel, að varla verði dregið í efa,
að í nýgerðum samningi um virkjun
Blöndu sé margfalt meira tillit tek-
ið til náttúmvemdarsjónarmiða en
nokkm sinni fyrr síðan raforku-
framleiðsla hófst hér á landi. Ég vil
styðja þessa fullyrðingu nokkrum
augljósum rökum:
Lónið verulega minna
Allar stjórvirkjanir sem nú eru
fyrirhugaðar eru miðaðar við stór
miðlunarlón og sama gildir raunar
um stórvirkjanir seinustu ára.
Blönduvirkjun var upphaflega
teiknuð með 600-700 GL lóni en
550 GL lón er nú talið hagkvæm-
ast. Að kröfu heimaaðila hefur
lónið verið minnkað í 400 GL og
gert er ráð fyrir i samningum að
það verði 220 GL, þar til brýna
nauðsyn ber til að stækka það.
Þessi niðurstaða hefur fengist
eftir mjög langvinnt samningaþóf
og verður að teljast nokkuð ein-
stæður sigur hér á landi fyrir sjón-
armið náttúruvemdarmanna.
Samráð við heima-
menn
1 öðru lagi eru ákvæði í þessum
samningi um samráð virkjunarað-
ila og heimamanna um skipulag
mannvirkja og umhverfismál bæði
á byggingartíma og eftir að rekstur
er hafinn. Með skipan fjögurra
fulltrúa í sex manna samráðsnefnd
fá heimamenn gott tækifæri til að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi í öllum þeim málum sem varða
byggingu og rekstur virkjunarinn-
ar, en verði ágreiningur í nefndinni
sker fimm manna gerðardómur úr,
þ.e. svonefnd matsnefnd og sætti
menn sig ekki við þá niðurstöðu má
áfrýja málinu til yfirmats.
Ákvæði þessi eiga sér engin for-
dæmi hér á landi við meiri háttar
mannvirkjagerð. Þau eru til komin
að ósk bænda og verða að teljast
stórmerkur sigur fyrir heimamenn,
þótt þau hafi sem flest annað í
þessu máli fallið nokkuð í skugg-
ann af hóflitlum gífui7rðum and-
stæðinga samningsins.
N áttúruverndarráð
lagðist ekki gegn €
Ýmsir ágætir áhugamenn um
náttúrvemd hafa álasað mér í fjöl-
miðlum nú seinustu vikumar fyrir
að leggjast ekki gegn virkjun
Blöndu.
En em allir, sem gera sér grein
fyrir þvi, að Náttúmvemdarráð
hefur hvað eftir annað fjallað um
virkjun Blöndu samkvæmt leið I,
en aldrei mótmælt þessari virkjun-
artilhögun. í ályktun ráðsins frá því
i mars 1978 er sérstaklega tekið
fram að virkjunin raski ekki þeim
svæðum, sem frá sjónarmiði nátt-
úruvemdar beri helst að varðveita
„og ekki virðast heldur vera í húfi
sérstæð eða fágæt vistkerfi.“ Hins
vegar sé eftirsjá af víðfeðmu gróð-
urlendi. Náttúruvemdarráð mælir
því með þvi að „lokaákvörðun verði
tekin á grundvelli viðtæks landnýt-
ingarmats, sem ekki er f verkahring
Náttúruvemdarráðs að leggja dóm
á i heild.“
Áformin um virkjun Blöndu eru
byggð á þessari skoðun Náttúm-
vemdarráðs, að „víðtækt landnýt-
ingarmat“ verði að ráða niðurstöð-
unni.
Landið er notað undir orku-
búskap i þágu allra landsmanna i
stað sauðf járbúskapar eins og verið
hefur.
En það nýja við þennan samning
er, að nú er í fyrsta skipti i Islands-
sögunni stefnt að því að rækta upp
land í stað þess sem fer undir vatn.
Nýrækt í stað glataðs
lands.
Hingað til hefur verið algild
regla, að glatað gróðurlendi hefur
verið bætt með peningagreiðslum.
Þetta er í fyrst sinn, að væntanlegur
virkjunaraðili skuldbindur sig til að
rækta upp land í stað þess, sem fer
undir vatn. Heimaaðilar geta viss-
ulega ráðið því í gegnum samráðs-
nefnd, hvar það verður reynt.
Hingað til hefur aðallega verið tal-
að um uppgræðslu í sömu hæð inni
í landinu og lónið verður, en ekkert
er því til fyrirstöðu, að uppgræðsl-
an verði miklu nær byggð. Per-
sónulega tel ég, að nýræktin ætti
fyrst og fremst að vera á mótum
heiða og heimalanda.
Land sem tapast hefur undir
vatn fjarri byggð hefur hingað til
verið greitt með samningum eða
samkvæmt eignarnámi eftir svip-
uðum töxtum og Vegagerð rikisins
er látin borga.
Á árinu 1981 greiddi Vegagerð
rikisins um 35 þús. kr. á fer-
kílómetra (350 kr. á hektara) fyrir
gróið land utan byggða. Miðað við
400 GL lón við Reftjamarbungu er
landeyðing áætluð um 51 fer-
kílómetri og samkvæmt venjulegu
eignamámsmati yrði því landið
metið á um 1,8 milljón króna á
verðlagi liðins ár, ef fylgt væri fyrri
vinnubrögðum við íslenskar virkj-
anir.
Ákveðið hefur verið, að aðalfundur Hlutafélagsins
Feykis verði haldinn 28.-29. maL í tengslum við aðal-
fundinn verður boðað til ársþings Feykis þar sem rit-
nefndarmenn blaðsins í öllu kjördæminu hittast ásamt
hluthöfum félagsins og ræða stöðu blaðsins og stefnu-
mótun í framtíð, með hliðsjón af fenginni reynslu hins
fyrsta árs.
Augljóst er, að blaðið hefur sannað gildi sitt. Það
hefur miklu hlutverki að sinna og getur efalaust betur
með ennþá víðtækari samstöðu og markvissari stefnu
einstaklinganna sem byggja Norðvesturland.
Nánar verður sagt frá fyrirhuguðu þingi í næsta blaði,
en þess er eindregið vænst, að allir, sem hlut eiga að máli
sjái sér fært að koma til Sauðárkróks á aðalfundinn og
ársþingið.
Hj. J.
I þessu tilviki hefur hins vegar
verið samið um gjörólflc vinnu-
brögð, þ.e. uppræktun lands, sem
er talin verða 15-16 sinnum dýrari
en venjulegt eignamám og kostar
um 30 milljónir króna á verðlagi
liðins árs eða 5880 kr. á hektara.
Að sjálfsögðu er þetta stærri sig-
ur fyrir sjónarmið uppgræðslu og
landvemdar en nokkur dæmi em
um í íslandssögunni, enda mun
þessi niðurstaða hafa söguleg áhrif
á alla mannvirkjagerð, sem hefur
landeyðingu í för með sér héðan í
frá.
En staðreyndir af þessu tagi
komast lítt til almenning í því fár-
viðri ýkjukenndra fullyrðinga sem
beinist að því að telja fólki trú um,
að við, sem höfum staðið að þess-
um samningi séum sérstakir land-
níðingar og óbótamenn, sem eigum
það helst skilið að hent sé í okkur
lokakveðju.
Að endingu þessi ábending til
Helga Baldurssonar í fullri vin-
semd.
Ef fyrirhugað ferðalag þitt ber
ekki að skilja landfræðilegum
skilningi heldur á hinn veginn, að þú
sért að leita nýrra bandamanna
gegn stóriðjubrölti útlendinga f
landinu, þá vona ég sannariega að
þú leitir ekki langt yfir skammt og
lendir ekki, eins og sumir ágætir
menn, i geitarhúsi að leita ullar.
Ragnar Arnalds.
Neðanmáls fyrir fróðleiks-
fúsa
Eins og kemur fram hér að ofan virðist
kostnaður við uppgræðsluna nema
5,880 kr. á hektara. Vegagerðin greiðir
350 kr. fyrir gróið heiðaland en 1.400
fyrir ræktunarhæft gróið land í byggð
og 4.000 í ræktunarkostnað og má því
segja að hektari túns sé bættur með
5.400 kr. Þegar um tún er að ræða koma
bætur til viðbótar vegna afurðatjóns f
tvö ár, þegar vegagerðin á 1 hlut og veru
þvi heildarbætur vegna hektara túns
10.400 kr. á árinu 1981.
Auglýsing
Feykir auglýsir starf ritstjóra laust til umsóknar.
Upplýsingar veitir ritnefnd og núverandi ritstjóri.
Nýi maðurinn þyrfti að vera á aðalfundinum og taka
til starfa íjúníbyrjun.
Kjörskrá
vegna bæjarstjórnarkosninga þann 22. maí n.k.
liggur frammi á bæjarskrifstofunni til kl. 17.00
föstudaginn 7. maí n.k.
Kærur vegna kjörskrár skulu stflaðar til bæjar-
stjórans á Sauðárkróki og skulu hafa borist fyrir kl.
17.00 þann 7. maín.k.
Athygli aðstandenda námsmanna á Norðurlöndum
er vakin á að kanna hvort viðkomandi sé á kjörskrá
og gera viðeigandi ráðstafanir, sé svo ekki.
Sauðárkróki 26. apríl 1982.
BÆJARSTJÓRI.
Aðalfundur
Haldinn verður aðalfundur Sauöárkróksdeildar
Norræna félagsins þriðjudaginn 4. maí kl. 21 í
Safnaðarheimilinu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Frásögn af för U.M.F. Tindastóls til Köge.
Kaffiveitingar verða á fundinum.
Stjórnin.
Fjölgun þingmanna leysir engan vanda
Framhals af bls. 5
og þið eruð reiðubúin að starfa að
því málefni, ættum við að leggjast á
eitt og ráða ráðum okkar hvemig
bregðast skuli við til vamr, Þannig
að íbúar landsbyggðarinnar geti
búið við mannsæmandi kjör og
haldið áfram að starfa að verð-
mætasköpun fyrir þjóðarbúið.
Með bestu kveðjum og von um
samstarf.
Fyrir hönd áhugamanna í Fram-
sóknarfélagi V.-Hún.
Aðalbjöm Benediktsson,
Hvammstanga,
Öm Bjömsson, Gauksmýri,
Fyrir hönd áhugamanna í Sjálf-
stæðisfélagi V.-Hún.
Karl Sigurgeirsson, Hvamms-
tanga.
Egill Gunnlaugsson, Hvamms-
tanga.
Fyrir hönd áhugamanna í Alþýðu-
flokki í V.-Hún.
Baldur Ingvarsson, Hvamms-
tanga,
Vilhelm V. Guðbjartsson,
Hvammstanga.
Fyrir hönd áhugamanna í Alþýðu-
bandalagsfélagi V.-Húnavatns-
sýslu.
Bjöm Sigurvaldason, Ljtlu-Ás-
geirsá,
Matthías Halldórsson,
Hvammstanga.