Feykir


Feykir - 17.06.1982, Síða 2

Feykir - 17.06.1982, Síða 2
Arni Ragnarsson: Ársskýrsla stjómar Húsnæði aldraðra Sýning á uppdráttum dagana 7. til 16. maí 1982 Seinni hluti Vonir standa til þess, að þegar Myndprent fer að prenta Feyki, undirbúi prentsmiðjan blaðið fyrir dreifingu og komi því á pósthús. Dreifingin fer þannig fram núna, að Feykir er borinn til áskrifenda á Sauðárkróki á föstudegi og þegar áætlun stenst, fer hann á pósthús fyrir kl. átta á föstudagsmorgni og þaðan áleiðis á sveitabæina sam- dægurs og kemur þangað strax eftir helgina. 1 öðrum þéttbýlum er blaðinu dreift á laugardegi, en yfir veturinn er ýmis gangur á þessu. Áskrifendur sunnanlands fá blaðið um miðja næstu viku eftir útgáfu- dag. Tölvumenn Kaupfélags Skag- firðinga hafa verið Feyki mjög gagnlegir við prentun límmiða, gíróseðla og áskrifendalista, en dreifikerfið sjálft þarf að bæta að mun. Þar bíður okkar verkefni. Ritstjórnin stefnir að því, að koma blaðinu til allra þéttbýlisstaða kjördæmisins á föstudegi, þannig að það sé borið áskrifendum þá eða á laugardegi, og að blaðið sé sem allra mest selt í áskrift, en fáist í lausasölu á sjoppum. Með því að selja blaðið að mestu leyti íáskrift, minnkar hlaupavinna ritstjórnarmanna og meiri stöðug- leiki fæst í útgáfuna. I byrjun ákvað ritstjóm að senda blaðið á hvert sveitaheimili á Norðvesturlandi og hefur það verið gert síðan. Ætlunin var sú, að þeir sem greiddu áskrift- argjald, yrðu fastir áskrifendur, en hinir ekki. Leitað hefur verið samstarfs við átthagafélögin í höfuðborginni og góður árangur náðst með félög Skagfirðinga og Húnvetninga. Félagsskrá Húnvetningafélagsins hefur þó ekki legið fyrir í nógu góðu lagi, en ætlunin var að end- urskoða hana þannig að hún lægi ljós fyrir nú í maí eða júní. Ritstjóm hefur lagt mikla áherslu á og vinnu í að fjölga áskrifendum, en þar er mikill akur óplægður, bæði í þétt- býlum kjördæmisins og á meðal brottfluttra á höfuðborgarsvæðinu. Á höfuðborgarsvæðinu hefur fen- gist inni fyrir lausasölu á blaðinu og standa vonir til þess að þarna verði alltaf nýr Feykir til sölu. Ritstjórn hefur aflað margra áskrifenda á Sauðárkróki með símhringingum, en ekki talið gerlegt að bera sig eins að í öðrum þéttbýlum, heldur að ritnefndirnar tækju þetta að sér, hver á sínum stað. Áskrifendur á Sauðárkróki em nú 475. f sveitimar á Norðvesturlandi fara 812 blöð og þannig em áskrifendur alls 1985 talsins nú sem stendur. Það verður að telja sennilegt, að áskrifendum fækki þegar inn- heimtuseðlar verða sendir út 1 næsta mánuði, einkum i sveitum hér norðvestanlands, þrátt fyrir það að við teljum okkur eiga þar mjög marga trygga áskrifendur. Innheimtu áskriftargjalds hefur ritstjóm viljað haga þannig, að gíróseðlar yrðu sendir út á hálfs árs fresti til áskrifenda og þá beðið um greiðslu þrjá mánuði aftur og þrjá mánuði fram í tímann. Síðast var áskriftargjald innheimt í febrúar fyrir tímabilið september — febrú- ar, sem kostaði 60 krónur. Ætlunin er að senda út gíróseðla aftur í næsta mánuði og innheimta þá áskriftargjald fyrir tímabilið mars — ágúst. Á Sauðárkróki var gengið í hús til þess að innheimta fyrir tímabilið september —febrúar ’82. Innheimtukerfið er það sem þarfnast mestra endurbóta hjá okkur, því þar koma fram þeir gallar, sem fylgja þvl, að hinir ýmsu þættir útgáfunnar, sem ritstjóm hefur skipt með sér eru ekki nægi- lega samhæfðir. 2 . Eeykir Vinnan með spjaldskrá, inn- heimtu og bókhald Feykis hefur verið mikil. Við hana höfum við notið ómetanlegrar aðstoðar og aðstöðu hjá Loðskinni h.f., sem hefur léð okkur þetta og góða starfskrafta Margeirs Friðriks- sonar. Þetta vil ég þakka. Enn hefur hlutafé samkvæmt hlutafjárlof- orðum ekki verið innheimt að fullu, en því þarf að ljúka. Hlutaféð hefur verið tekið til rekstrarins, en blaðið hefur enn ekki komið sér upp aðstöðu. Svo virðist sem greinar, áskrift og auglýsingar þurfi að fylgjast að þannig, að til þess að fjölga áskrif- endum á einhverjum stað, þurfi blaðið að hafa bæði greinar og auglýsingar frá þessum sama stað — og eins ef fjölga á auglýsingum frá stað þurfi hitt að vera í blaðinu. Auglýsingar í Feyki hafa aðaliega verið frá Sauðárkróki, fyrirtækjum og kaupstaðnum. Þrátt fyrir góðan vilja stjómenda kaupstaðarins hef- ur einhver misrekstur verið á auglýsingaherferðum hans og hinir ýmsu fulltrúar virðast fara eigin leiðir. Sýslumenn og bæjarfulltrúar hafa auglýst nokkuð, en geta mun meir. Leitað hefur verið inn á auglýsingastofur höfuðborgar- innar, sem stór fyrirtæki á lands- vísu hafa gefið allt vald í auglýs- ingamálum sínum og gerum við okkur vonir um að þær muni viðurkenna Feyki sem auglýsinga- tæki smám saman. Rétt er hér að nefna þátt bílaumboðsmanna hér á Sauðárkróki einmitt í þessum slag. Kaupfélögin á Norðvesturlandi hafa auglýst í vaxandi mæli í Feyki. Þau eru svo stór í kjördæminu, að ritstjórn leitaði sérstakra leiða fyrir kaupfélögin og fékk til liðs við sig Helga Rafn Traustason, heitinn, sem hvarf frá leiknum fyrirvara- laust og stendur þakkarskuld okkar við hann vangoldin. Hugmynd Helga Rafns var sú, að kaupfélögin og SÍS hefðu eina síðu í hverju blaði til auglýsinga og fylgdi hann hugmyndinni eftir inn á kaupfé- lagsstjórafundi og auglýsingastofu SÍS. Við álitum að þetta mál væri komið vel á veg, en hefur ekki tekist að rekja slóð þess til enda. Við stefnum að því að finna það og vonum að enn séu starfandi hlið- hollir og framsýnir atorkumenn hjá kaupfélögunum. Auglýsingar ráða úrslitum um fjárhagslegan viðgang Feykis og ritstjóm taldi 1 upphafi nauðsynlegt að hafa sérstakan mann starfandi við að selja þær og innheimta. Framan af var Björn Magnús Björgvinsson ráðinn til þess starfa, en frá áramótum hefur Margeir Friðriksson haft þetta með hönd- um og sækjum við greinilega fram á þessum velli. Fjárhagur Feykis er ekki öflug- ur. Nauðsynlegt er að launa rit- stjóra og auglýsingastjóra og prentunarkostnaður og annar reksturskostnaður er — eins og annars staðar — mikill, þrátt fyrir að honum sé haldið í lágmarki og hugsjónamannavinnan sé töluverð. Blaðið hefur t.d. ekki húsnæði né útbúnað s.s. síma og ritvél. Rit- stjóm hefur rætt það, hvort leita ætti stuðnings sveitar- og sýslufé- laga og telur að þessir aðilar gætu stutt blaðið mun betur, t.d. með auglýsingum, en nú er gert, án þess að til komi beinn styrkur. Ríki styrkir útgáfuna eins og kunnugt er óbeint með söluskattseftirgjöf. Vænlegast teljum við að efla sókn á mið auglýsinga og áskrifta og láta á það reyna með áskriftargjaldi, sem nægir til að ná endum saman, hvort fólk vill hafa Feyki. Annars má láta sér detta í hug einn fjárstyrk sveit- arfélags — ekki stöðugan — sem t.d. gæti verið helmingur af fram- lagi þess til Fjórðungssambands Norðurlands á þessu ári. Við teljum biýnt að virkja betur ritnefndimar til þess að afla auglýsinga og áskr- ifta og stilla betur krafta okkar allra, líka í dreifingu blaðs ins. í þessum tilgangi og til þess að ræða blaðaskrifin og samhæfingu við efnisöflun, höfum við efnt til ársþings Feykis, sem fram fer hér i kvöld. Til þess koma fulltrúar rit- nefnda og bindum við miklar vonir við þetta ársþing, sem skref í átt til betri samvinnu. Þetta fyrsta starfsár Feykis hefur hann lotið ritstjóm Baldurs Hafstað. Það var mikið lán. Næmi Baldurs við ritstjórnarstörf- in, ósérhlífni hans og ljúfmennska hefur verið með eindæmum og það er þessum kostum hans að þakka, að Feykir er það sem hann er — lflca í hugum fólksins sem kaupir hann. Það má segja, að Feykir eigi Baldri líf að launa. — Baldur lætur nú af ritstjórn eftir næsta blað og finnst okkur í ritstjóm að við miss- um mikið með honum, þótt það sé huggun, að Baldur stendur með okkur hér næsta árið. Eg þakka Baldri ómetanleg störf fyrir hönd Feykis. Upphafið með byrjunarörðug- leikum trúi ég að sé erfiðast öllum fyrirtækjum og lflca Feyki. Rit- stjóm, ritstjóri, ritnefndir og auglýsingastjóri hafa þurft að læra til verka. Að mínu mati hefur starfsandinn í ritstjóminni verið góður og smám saman hefur mönnum lærst hvernig þeir nýttust best hver og einn. Ég tel að vel hafi tekist til þetta fyrsta ár og uppsker- an ekki verið lakari heldur en til var sáð. Raunar tel ég, að útgáfan hafi tekist framar björtustu vonum og að við getum öll verið ánægð með og þakkað okkur sjálfum fyrir — auk fólksins sem greinilega hefur gefið Feyki meðbyr. Ritstjórnarmenn eru allir reiðu- búnir til þess að fylgja Feyki í rit- stjóm enn um sinn. Þótt fram- undan sé ekki sá — ef svo má segja — vandamálaskógur, sem í upp- hafi var, eru þó framundan nógu stór vandamál til þess að sæmandi sé að fást við þau og leysa. Þar má nefna prentmálið, innheimtu- og dreifikerfið, áskrifta- og auglýs- ingaöflun auk ráðningar ritstjóra og að útvega húsnæði fyrir Feyki með viðunandi útbúnaði. Ritstjóm er einhuga um að vinna þessi mál — fái hún til þess umboð — og efla Feyki enn og koma styrkari fótum undir útgáfuna. Til- vist Feykis þetta ár finnst mér sanna, að Norðvesturland þarfnast Feykis ogég tel, að komandi mán- uðir muni sanna þetta enn frekar. Ég vil hverja hvern þann, sem lætur sig málefni Norðvesturlands varða, til liðsinnis við Feyki eftir því sem hann megnar. Galdurinn er — eins og alltaf — fólginn í vinnunni sjálfri. Tannlæknir á Hvammstanga Nú er tekinn til starfa tannlæknir á Hvammstanga. Heitir hann Eng- ilbert Snorrason og er frá Skógum undir Eyjafjöllum. Tannlækn- aþjónusta á Hvannstanga hefur verið með minnsta móti. Þó hafa tannlæknar komið hér reglulega og litið upp í menn og gert við það sem þurfti. Um leið og Engilbert er boðinn velkominn til starfa er hinum þökkuð sú þjónusta sem þeir hafaveitt. Tannlæknastofan hefur verið flutt frá Hvannstangabraut og í hús Sigurðar Pálmasonar við Höfðabraut. Húsnæðisstofnun rflcisins, Sam- band íslenzkra sveitarfélaga og öldrunarráð Islands efndu til sýn- ingar á teikningum af húsnæði fyrir aldraða í Byggingaþjónustunni að Hallveigarstíg 1, dagana 7. til 16. maí 1982. Ýmsum samtökum hönnuða húsnæðis var boðið að taka þátt í sýningunni. Því boði tóku alls 16 arkitektastofur og tæknideild Hús- næðisstofnunar rflcisins. Sýndar voru alls teikningar og ljósmyndir af 30 mannvirkjum. Skrá yfir sýn- endur fylgir hér með. Sýndar voru fjölbreytilegar byggingar, allt frá litlu einbýli til stórra dvalarheimila með margvíslegri þjónustu fyrir aldraða. Sýningin var opnuð föstudaginn 7. maí af Páli Sigurðssyni, ráðu- neytisstjóra, í forföllum Svavars Gestssonar heilbrigðis— og trygg- ingamálaráðherra. Auk þess fluttu ávörp Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofn- unar rflcisins, Jón G. Tómasson formaður Sambands íslenzkra sveitarfélaga, Pétur Sigurðsson, varaformaður öldrunarráðs Isl- Þann 15. ágúst n.k. verða 100 ár liðin frá fæðingu Jóns Þ. Bjöms- sonar frá Veðramóti, fyrsta heið- ursborgara Sauðárkróks. Jón var í forustusveit Sauðkrækinga um áratuga skeið, og störf hans á opin- berum vettvangi meiri, en nokkurs annars manns á Sauðárkróki, um hans daga. Skólastjóri Bamaskóla Sauðár- króks var hann 1908-1952 og Unglingaskólans á Sauðárkróki 1908-1946. Jón var talinn í hópi merkustu skólamanna landsins á sinni tíð, afburða fjölhæfur kennari svo fágætt var. Hann var oddviti Sauðárkrókshrepps 1913-1934, og hafði auk þess margvisleg afskipti af félagsmálum, hreifst snemma af hugsjónum ungmennafélaganna og lét íþrótta- og æskulýðsmál mjög til sin taka. Bindindishreyfingin átti ötulan baráttumann þar sem Jón var, og málefni kirkju og kristni voru hon- um mjög hjartfólgin. Starfssaga Jóns Þ. Bjömssonar á Sauðárkróki var óvenju fjölþætt. Spor hans lágu víðaa, þótt ekki verði þau rakin hér frekar. Störf slfkra manna verða seint metin né þökkuð að verðleikum. En til að sýna þó örlítinn vott virðingar hafa nokkrir gamlir nemendur og vinir Jóns ákveðið að beita sér fyrir þvi, að Barnaskóla Sauðárkróks verði gefin brjóst- mynd af honum, sem afhjúpuð yrði á afmælisdegi hans 15. ágúst n.k. Þegar Jón var hniginn á efri ald- ur gerði Guðmundur Elíasson, myndhöggvari, brjóstmynd af ands og Haraldur Helgason for- maður Arkitektafélags Islands. Miðvikudaginn 12. maí milli kl. 17.00 og 18.00 skýrðu hönnuðir húsanna verk sín fyrir sýningargestum. Föstudaginn 14. maíkl. 15.00var haldinn umræðufundur um sýn- inguna og húsnæði aldraðra. Frummælendur voru Ingibjörg R. Magnúsdóttir deildarstjóri í heil- brigðis- og tryggingaráðuneytisins og Gylfi Guðjónsson arkitekt. Auk þeirra tóku þátt í pallborðsum- ræðum Sigriður Jónsdóttir for- stöðukona DAS i Hafnarfirði og Sveinn Ragnarsson félagsmála- stjóri Reykjavöcurborgar. Um- ræður vom fjörlegar og komu fram margar athyglisverðar hugmyndir. Fundinum stýrði Unnar Stefánsson ritstjóri Sveitarstjórnarmála. Aðsókn að sýningunni var mjög góð. Það kom bæði fram á umræðu- fundinum og meðal sýningargesta að nauðsynlegt væri að safna öllum uppdráttum sýningarinnar saman á einn stað til varðveizlu þar sem sí- ðar gæfist tækifæri til að skoða þá. honum, sem steypt verður í varan- legt efni. Kostnaður við þetta verk er að sjálfsögðu all nokkur, þótt ekki sé vitað, á þessu stigi, hve mikill hann verður. Vafalaust eru þeir margir, sem vilja heiðra minningu sins gamla skólastjóra og samferðamanns með því að leggja þessu máli lið. Nem- endur og vinir Jóns eru dreifðir um allt land og ógerningur að ná til þeirra allra. En þeim, sem þessar línur lesa er góðfúslega bent á, að opnaður hefur verið reikningur í útibúi Búnaðarbankans á Sauðár- króki og geta þeir, sem þess óska, greitt framlög sín inn á hann. Þau má senda með gíróseðli frá hvaða banka, sparisjóði eða pósthúsi sem er, einnig í póstávísun eða ábyrgð- arbréfi. Reikningurinn nefnist Af- mælissjóður Jóns Þ. Bjömssonar og er nr. 11145 í Búnaðarbankan- um á Sauðárkróki, sem fyrr segir. Auk þess veita eftirtald irr mmeenn fjárframlögum viðtöku og gefa frekari upplýsingar ef óskað er: ÁAmi M. Jónsson verslunarmaður, Grundarstíg 1, Bjöm Bjömsson skólastjóri, öldustíg 4, Stefán Guðmundsson alþingismaður, Suðurgötu 8 og undirritaður, allir búsettir á Sauðárkróki. Safnist meira fé en þarf til að greiða kostnað við gerð og uppsetningu brjóstmyndarinnar, verður því var- ið til kaupa á bókum eða kennslu- tækjum handa Bamaskóla Sauðárkróks. Sauðárkróki í júní 1982. Kári Jónsson, Smáragrund 16. Orðsending til gamalla nemenda og vina Jóns Þ. Bjömssonar f.v. skólastjóra á Sauðárkróki

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.