Feykir


Feykir - 17.06.1982, Side 7

Feykir - 17.06.1982, Side 7
Opið bréf til Ragnars Arnalds Ágæti fjármálaráðherra Ragnar Amalds. Ég þakka föAurleg tilskrif þfn til min i Feyki 30. aprfl sem ég virði og að ég held — skil. Mér er það t.d. vel Ijóst að þar er verið að skrífa all miklu fleirum en mér. Ýmislegt værí skemmti- legt og jafnvel gagnlegt að skoða betur i þessarrí grein þinni en það verður að biða betrí tina. Hitt hefurdregist úrhömiu að þakka þér sérstaklega yfirlýs- ingar þfnar þar varðandi álver við Eyjafjörð. Óneitanlega finnst mér þó það mál horfa uggvænlega þegar ég hlusta á það f kvöldfréttum útvarps að nefnd á vegum iðnaðarráðu- neytisins hafi skilað áliti um staðarval fyrír álver á Islandi. Af þeim niu stöðum sem nefndir voru eru þrír við Eyjafjörð. Samkvæmt sömu fréttum er næsta skref iðnaðarráðuneytis- ins að fækka valmöguleikum í svona tvo til þrjá. Ef ég sem leikmaður reyni að gera mér grein fyrír þankagangi stjómmálamanna og virði fyrir mér vfgstöðu okkar sem viljum ekki álver við Eyjafjörð kemur þetta f ljós: Ef fylgja á áætlun um uppbyggingu atvinnuvega jafnhliða byggðarstefnu verður álverínu fundinn staður utan Faxafióasvæðisins. Af fjómm stöðum sem þá em til skoðunar em þrfr við Eyjafjörð. Stjóm- völd vita að í Eyjafirði er veruleg andstaða gegn álverínu. (Þó er hinu ekki að ieyna að sá fiokkur manna er til þar sem tekur þvi opnum örmum). Til að byrja með þarf að halda aftur af óþroskuðum nöldurseggjum sem ekkert skynbragð bera á hvað þeim sjálfum, að ég tali nú ekki um fósturjörð vorri og þjóð, er fyrír bestu. Þó platan sé nú lúin orðin þá skal hún á fón- inn og á götum og i húsum inni munu gömlu lögin sungin og leikin: „Landvernd á móti nægri atvinnu ...“, „Landvernd á móti uppbyggingu ...“, „Landvernd á móti framfömm ...“, „Land- vemd á móti þvf að þú getir keypt þér dýr leikföng...“, „Landvernd á móti...“, „Land- vemd á móti.. „Landvemd á móti.“ — og þessi gömlu Iög sem við þekkjum svo vel — hversu hljómur þeirra virðist sannur ef sungið er vel og nógu oft. — Kannski já og kannski verða Ifka samin ný lög og Ijóð. Sfðan verður Eyfirðingum e.t.v. boðið upp á — ja hvað eigum við að segja —átta til tólf valmöguleika á iðnfyrírtækjum til að fá þá til viðræðu. Ef vel gengur þarf ekki að spjalia við þá nema f eitt til tvö ár. Þá verður öllum „valmöguleikum“ kippt burt nema þessum eina. „Hagkvæmnisútreikningar“ taka af öll tvfmæli. Allir eiga að sameinast um álver við Eyja- fjörð — á Gásum, Hjalteyri, Árskógsströnd eða hvar þeir verða þá búnir að velja þvf stað — e.t.v. á Galmarsströnd. Það færí sjálfsagt best á þvL Þannig var nú með Blöndu- málið farið, Ragnar, og þó ekki allt upp talið sem leikið var þar af Blöndukvartettinum. En til hvers öll þessi læti. Hvað erum við að vinna með raforkustefnu sem kallar á álver sem hvað kostnað snertir er lagt að jöfnu við allar erlendar skuldir Islendinga nú? Næst þegar þú skrífar i Feyki, Ragnar, væri huggun f þvf að þú birtir okkur þfna sýn til þess Islands þar sem draumur um hagsæld hefur ræst. Það má sfðan hafa hana til samanburðar við raun- veruleikann þegar þar að kemur. En virkjun Blöndu er aðeins byrjunin. Næst er Fljótsdais- virkjun og svo einar tvær til við- bótar. Ef áætlanir rfkisstjómar- innar standast verður raforku- framleiðsian um miðjan sfðasta áratug aldarinnar komin langt fram úr þvf sem Islendingar sjálfir geta nýtt. Við höfum ekki efni á að framieiða rafmagn sem ekki er hægt að selja. Raforku- ver og stfflumannvirki em arð- laus fyrirtæki ef orkan selst ekki. öllum þeim mönnum sem vinna við slika mannvirkjagerð em greidd laun með innistæðu- lausum ávísunum. Þvf verður sú rfkisstjóm sem þá situr á Islandi að selja orkuna til erlendra aðila og hrekkur e.t.v. ekki til því samningsstaða hennar verður sýnilega ekki sterk. Þar með ná erlendir fésýslumenn enn frekari tökum á fslensku atvinnulffi — sjálfstjóm tslendinga á pen- ingamálum er stefnt f voða — sjálfstæði þjóðarinnar er ógnað. Þannig skal það Ijóst að andóf gegn þessari stefnu er ekki aðeins landverndarmál heldur einnig sjálfstæðisbarátta. Hver sá alþingismaður sem fylgir þessari stefnu nú, að ég ekki tali um ráðherra, ber þvf ábyrgð þegar þar að kemur. Þvf vil ég spyrja þig, Ragnar, hvenær hún varð baráttumál alþýðu- bandalagsmanna á þingi og f rfkisstjóm? Hvenær komst það á stefnuskrá Alþýðubandalags- ins að þjóna undir erlent vald? Við sem höfum veðjað á það að f þeim flokki væri trúast staðið vörð um fslenska menningu og sjálfstæði eram daprir að von- um. Stefnan er röng en enn er ekki um seinan að snúa við. Komdu þá sæll — þegar þú vilt. PS. A skammdegisdögum þeim, þá er Ijóst varð, hvaða af- stöðu ég og fleirí kennaraafætur tækjum til fyrírhugaðrar Blönduvirkjunar kom hljóð ur homi frá nokkmm framámönn- um úr röðum svokallaðra „Blöndunga“ hér f sveit. Þótti þeim einboðið að flytja okkur vestur f Svfnavatnshrepp. Sjálf- sagt værí að Svfnvetningar héldu okkur uppi þar sem við gengum nú erínda þeirra að þvi er þeir töldu. Einhverjar slfkar hug- myndir virðist þú ætla mér i sambandi við búsetuskipti þegar ég varpaði kveðju á þig i Feyki hér á dögunum. Þar sem þú ert nokkurs konar guðfaðir „Blöndunga“ héma og hefur þvf e.t.v. samsamast hugmynda- fræðinni þeirra ætia ég ekki að fyrtast við misskilning þinn. Eg biðst hins vegar alveg eindregið undan því að vera ætlað að beita málflutningi þeirra og rökum. Ég vænti þess þvi að héðan f frá sem hingað til geti nábýli okkar hér f Varmahlfð verið árekstra- laust á meðan báðir kjósa að byggja þann fagra stað. Varmahlfð f maL Helgi Baldursson. Frá Fjórðungssambandi Norðlendinga BLANDA I blaði yðar 10. tölublaði 2. árgangs 1982 er forystugrein, sem nefnist „Er Norðvesturland nýlenda höfuðborgarsvæðisins“ er að nokkru vikið að næsta Fjórðungs- þingi Norðlendinga, sem halda á síðari hluta ágústmánaðar á Sauð- árkróki. Drepið er á að á þinginu hljóti að vakna umræður um sam- starf sveitarfélaga og það gagn, sem hægt er að hafa af þvL Eins og kunnugt er starfar Fjórðungssam- band Norðlendinga, sem frjáls samstarfsvettvangur sveitarfélaga í Norðlendingafjórðungi, en fæst ekki við starfsemi sem sveitar- félögin annast sjálf að eigin frum- kvæði og að lögum. Þannig annast Fjórðungssam- bandið ekki samstarf sveitarfélaga á sviði skólamála, sem eru lögboðin verkefni sveitarfélaga eða um rekstur skipulagsþjónustu, sem ýmist er á vegum einstakra sveitar- félaga eða skipulags ríkisins. Komi hins vegar fram áhugi um að Fjórðungssambandið annist sam- ræmingarstörf og tillögugerð á til- teknu sviði, hefur sambandið átt þar hlut að máli. Síðasta Fjórð- ungsþing Norðlendinga samþykkti að fela fjórðungsráði að kjósa sér- staka nefnd, sem geri tillögur um fyrirkomulag skipulagsþjónustu á Norðurlandi með það fyrir augum að færa þessa þjónustu inn í héruðin til hagsbóta fyrir sveitarfé- lögin. Skipulagsstjóri rikisins mun eiga sæti í þessari nefnd. Vænta má tillagna frá þessari nefnd á þessu ári. Það er einnig hlutverk nefndarinnar að gera til- lögur um samræmingu laga um skipulagsmál byggingaeftirlit, jarðamálefni og umhverfismál. Hverjar verða niðurstöður þessa starfs fer eftir undirtektum sveitar- félaga og ríkisvaldsins. Sú starf- semi, sem Ámi Ragnarsson, arki- tekt hefur annast á Sauðárkróki að skipulagsmálum sannar að nauð- synlegt er að færa þessa þjónustu út á landsbyggðina. Reynslan af starfi Áma er kveikjan að því að Fjórð- ungssamband Norðlendinga hefur tekið þetta mál upp á sína dagskrá. Fjórðungsþing kýs fræðsluráð fyrir bæði fræðsluumdæmi Norð- urlands. Fræðsluráðum er ætluð yfirstjórn grunnskólamála og annarra skóla á framhaldsstigi, sem kostaðir eru sameiginlega af ríki og veitarfélögum, samkvæmt frum- varpi er fyrir liggur um framhalds- skóla. Meginstefna lagaáforma um framhaldsskóla er a.m.k. einn framhaldsskóli í hverju fræðslu- umdæmi. Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki er viðurkenndur framhaldsskóli fyrir fræðsluum- dæmi Norðurlands vestra. Telja verður eðlilegt að fræðsluráð um- dæmisins hafi forgöngu um rekstrarsamstarf sveitarfélaga um skólann. Það skal tekið fram að Fjórðungssamband Norðlendinga hefur ekki verið beðið um að hafa hér forgöngu. Sambandið hefur beitt sér fyrir svæðisbundnu sam- starfi um tiltekin verkefni, sem ná ekki til alls starfssvæðis þess. Þannig er þetta opin leið ef for- ráðamenn fjölbrautaskólans á Sauðárkróki óska eftir að leita eftir aðstoð sambandsins. Herra ritstjóri. Þetta er sent yður til glöggvunar og meðferðar í blaði yðar, ef yður sýnist svo. Hægt er að benda á dæmi um það að hlutur heildarsamtaka Norðlendinga í framgangi stjómmála bæði á Sauðárkróki og á Norðurlandi vestra hafi m.a. vegna stærðar samtakanna og atfylgis manna úr tveim kjördæmum haft úrslitaáhrif gagnvart öðrum landshlutum, sem höfðu á að skipa minni styrk og veikari samstöðu á úrslitastundu. Áskell Einarsson. Alþingi hefir lyft upp höndum og blessað yfir Blönduvirkjun. Sá óskapnaður er þó ekki kræsilegri en svo, að hart nær tug ára tók að kara nasimar, og leggur enn af pólitiskan ódauninn um land allt. Virkjunarleið I við Blöndu var nauðgað upp á heimamenn, em þeim fádæmum, að taka ætti inn í félagsfræðikennslu skólanna sem lýsandi dæmi um hvemig EKKI á að misnota lýðræði. Sú saga hefir að nokkru gægst í gegn um öll þau blaðaskrif og fjöl- miðlaæsing, sem um málið hefir farið, allan þennan tíma. En ljót- ustu dæmin eru þó ósögð, vegna æru einstakra manna. En eftir orðum Sverris Hermannssonar að dæma, er hann lét falla á þingi, þá þótti víst engum króginn þurðugur, og vildu sverja af sér, jafnvel ófæddan. — Og láir þeim enginn. — En eftir orðum Sverris Her- mannssonar að dæma, er hann lét falla á þingi, þá þótti víst engum króginn burðugur, og vildu sverja af sér, jafnvel ófæddan. — OG láir þeim enginn. — En vegna orða Ragnars Amalds hæstvirts fjármálaráðherra í Feyki 30. apr. s.l. um að: „fengin niður- staða verði að teljast nokkuð ein- stæður sigur hér á landi fyrir sjón- armið náttúruvemdarmanna,“ verð ég að segja að mér er ömögu- legt að hrópa hallelúja. Reyndar er orðalagið óljóst og við nátt- úruvemdarfólk munum halda áf- ram að túlka okkar sjónarmið eins og aðrir. Ljósi punkturinn er að ekki virðist loku skotið fyrir allar flóðgáttir enn. Og vonin er lífseig. Ég til dæmis skil orðalagið svo, að þar sé gefið ráðrúm til rann- sókna við Sandárhöfða og mark- tæks samanburðar á virkjunarleið- um I, II og Ila. Sá samanburður átti reyndar að liggja fyrir áður en náttúruverndun var krossfest á Refstjarnarbungu, því svo segir Orkustofnun sjálf í Þjóðviljanum 28. apr. s.l. „Henni ber að afla þeirrar vitneskju sem þarf, til að unnt sé að bera saman virkjunar- kosti og að velja úr þeim til ákvarðanatöku, undirbúnings undir framkvæmdir.... vera vel á undan þeim, sem ákvarðanir taka og framkvæmdir annast. Aó öðrum kosti er ekki vist að unnt sé að velja bestu kostina. “ tilv. lflcur. Hvers vegna var ekki leið II og Ila rannsökuð til marktæks samanburðar? „Leið II ýtir lóninu í miklum mæli austur yfir ána og útilokar alla möguleika til land- vemdar á Galtarársvæðinu," segir Ragnar Amalds 1 Feyki. Ég nefni aftur leið Ila, sem gefin var upp sem möguleiki. Þar er Galtar- ársvæðið friðað. Með stýflu við Sandárhöfða, leið II, fer 18-20 ferkm. minna af al- grónu landi undir vatn, en við leið I. Það er til mikils að vinna með leið Ila enn meiri ávinningur. Raunverulegir náttúruvemdar- menn gera ekki greinarmun á, hvoru megin Blöndu það land er. — Fjárgróðasjónarmiðin aftur á móti magna upp eigingyrnina, nágrannaerjumar og illgymina sér til fylgilags. Skyldu þær verða þéttbýlisfólkinu opnari gryða- staður til afslöppunar þegar tímar líða fram, en verið hefir íslenzka sveita gestrisnin? — Og búið að sökkva heiðalöndunum. — Því leið IV. Blöndu er opin til allra átta og keðjuvirkjana. Hvemig getur Ragnar Amalds slegið því föstu að „Hreppsnefndir Seylu, Lýtingsstaða og Bólstaðar- hlíðarhrepps hafi verið andvígar leið II.“ Þœr hafa aldrei fengið að velja. Ef þið samþykkið ekki leið I, þá fáið þið enga virkjun. Það var valkosturinn. Það og ekkert annað. Allan tímann. Samningurinn, samráðsnefnd, gerðardómur og yfirmat breyta þar engu til bóta. Sumum þykir meira að segja undarlegt að sniðganga íslenzk lYg, komi til ágreinings. Og enn furðulegra þykir mér ef þau ákvæði eru inn komin í samninginn „að ósk bænda.“ Og áfrm tilv. í grein Ragnars Amalds í Feyki: „Einnig hefir margoft komið fram, að forsvarsmenn Rafmagnsveitna ríkisins, Orkustofnunar og Lands- virkjunar telja útilokað, að nœsta stórvirkjun landsmanna verði byggð við Blöndu, ef leið II yrði valin. Það er þvi tómtmál að tala um leið II og ekkert annað en gegnsce blekking, að allur vandi vceri úr sögunni og málið leyst ef sá kostur yrði valinn. “ Þurfa menn frekari vitna við um málflutninginn? Hvenær var virkjunarleið II val- kostur, Ragnar Amalds? Hefir hún ekki alltaf verið rauða dulan, sem egndi heimamenn til bræðravíga? Þeir kvað nota þennan sið í útlöndunum. Grafa samfélag- ið sundur innan rá, veikja við- námsþróttinn með seigmalandi einhliða áróðri, taka síðan einn og einn, brjóta niður siðferðisþrekið með gylliboðum og bráðin er gefin. En því vil ég lýsa yfir hér og nú, svo taki af öll tvímæli, að ég beini ekki geiri mínum að Ragnari Am- alds, vini mínum og félaga. Harma aðeins að honum skuli bundnar svo hendur, í því samfélagi, sem hann er nú, að hann fær engum vömum við komið. Heldur ræðst ég beint að þeirri ófreskju, sem setur áuð- gyldið ofar manngyldinu og heldur nú innreið sína, fullum fetum, í okkar litla þjóðfélag. Gáfum Ragnars Arnalds treysti ég til að meta af aðstæðum, hverju sinni, hvor liðsmaðurinn er traustari, sá er rennur af hólmi án þess að reyna, eða hinn sem þorir að hugsa sjálf- stætt, taka ábyrgð og mæta afleiðingunum. í umræddri Feykisgrein er talað um: „víðtækt landnýtingarmat og orkubúskap í stað sauðfjárbú- skapar.“ Ég fæ ekki með nokkru móti séð, að orkan frá Blöndulóni yrði kraftminni, þó það stæði á aurunum meðfram Blöndu upp við Sandárhöfða, heldur en á algrónu landi og þeirri dýrmætu gróður- mold sem enn er ófokin af beiti- löndum norðlendinga. Og ekki sé ég vitnað til Ólafs Dýrmundssonar landnýtingarráðunauts um þessi mál, í hinu“ víðtæka landnýtingar- mati“ þessar greinar. Passaði það ekki? Landvemdarfólk og náttúru- vemdarsamtök um land allt, hljóta að fylgjast með framvindu mála af áhuga og grípa inn i þar sem þörf krefur. Eða eigum við aðeins að þakka og hneigja okkur? Skrifað 7. maí 1982. Guðrfður B. Helgadóttir Austurhlfð. Ólafur á i vök að verjast. Þegar Svavar segir margt, sem er fjarri rökum, Ólafur bregst við býsna hart, borinn þungum sökum Þó að brosi geira — grér, geði leyni sínu, ekki lætur ýta sér yfir markalínu. öllu hiki horfinn frá, hefur á svikum gætur, heldur striki sínu sá, sér ei hnika lætur. HJ.V. Féykif v 7

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.