Feykir - 02.07.1982, Síða 7
Samband skagfirskra kvenna
Undirbúningsnefnd aö stofnun menningarsamtaka Noröurlands.
Teikn. Ragnar Lár.
Stofnun Menningarsamtaka
norðlendinga
Menningarsamtök Norðlendinga
voru stofnuð föstudaginn 18. júní
s.l. í Stórutjarnaskóla í
Suður-Þingeyjarsýslu. Til stofn-
fundarins var boðað af sérstakri
undirbúningsnefnd sem skipuð var
af frumkvæði Fjórðungssambands
Norðlendinga en unnið hefur verið
að því að hrinda þessu máli í fram-
kvæmd nokkur síðustu árin af
hálfu félags- og menningarmála-
nefndar sambandsins.
Menningarsamtök Norðlend-
inga eru heildarsamtök
einstaklinga og félaga sem vinna að
menningarmálum á Norðurlandi.
Tilgangur þeirra er að efla menn-
ingarlíf og menningarsamskipti á
Norðurlandi. Til að ná tilgangi
sínum hyggjast samtökin m.a.:
a) safna og miðla upplýsingum
um listastarfsemi og menn-
ingarlíf í Norðlendingafjórð-
ungi svo og annars staðar,
b) liðsinna við ráðningu leið-
beinenda,
c) stuðla að bættri umfjöllun um
listir í fjölmiðlum,
d) beita sér fyrir bættri aðstöðu
og betra skipulagi listkynn-
ingar,
e) halda árlega ráðstefnu um
lista- og menningarlíf í fjórð-
ungnum.
Á fundinum var ákveðið að
undirbúningsnefndin gegndi störf-
um bráðabirgðastjórnar fram að
reglulegum aðalfundi samtakanna
sem haldinn verður eigi síðar en 15.
september n.k. Stjórnin skipa
Kristinn G., Jóhannsson, Einar
Njálsson, Öm Ingi Gíslason og Jón
Hlöðver Áskelsson.
Á stofnfundinum gerðust 40
einstaklingar og félög á norður-
landi stofnendur Menningarsam-
takanna en samkvæmt tillögu sem
samþykkt var teljast þeir stofn-
endur samtakanna sem ganga í þau
í síðasta lagi á fyrsta aðalfundi
þeirra í haust. Þeir sem hafa áhuga
á því að gerast stofnendur geta
snúið sér til einhvers í stjórninni
eða skrifstofu Fjórðungssambands
Norðlendinga.
Afmælishátíð
Framhald af bls. 8.
Gamlir nemendur og aðrir
velunnarar Bændaskólans og
Hólastaðar eru hjartanlega vel-
komnir.
Dagskrá:
Kl. 11.00 Vígsla sundlaugar.
Kl. 13.30 Hátíðadagskrá
1. Helgistund í Hóladómkirkju.
Biskup íslands, Pétur Sigur-
geirsson annast.
2. Gengið úr kirkju á úti-
hátíðarsvæði.
3. Hátíðin sett. Ræða:
Jón Bjarnason, skólastjóri.
4. Ávörp:
Landbúnaðarráðherra,
Pálmi Jónsson
Búnaðarmálastjóri,
Jónas Jónsson.
Stéttarsamband bænda,
Ingi Tryggvason.
Oddviti sýslunefndar Skaga-
fjarðarsýslu, Jóhann Salberg.
Fulltrúi eldri nemenda,
Ásgeir Bjarnason.
Skólastjóri Bændaskólans á
Hvanneyri, Magnús Jónsson
Fyrrverandi skólastjóri,
Guðmundur Jónsson.
5. Afhending sundlaugarinnar.
Formaður skólanefndar og
formaður sundlauganefndar,
Gísli Pálsson, Hofi.
6. Kaffiveitingar. öllum gestum
verður boðið kaffi. Milli
atriða á dagskrá syngur
karlakórinn heimir. Enn-
fremur verður stutt sýn-
ing á nokkrum hrossum bús-
Jón Bjarnason.
Prestar
Framhald af bls. /.
ræðu alla stjórnmálaflokka lands-
ins svo og aðrar þjóðmálahreyfing-
ar og samtök. Þar með sýnir kirkjan
samstöðu sína með því almenn-
ingsáliti sem nú er að skapast f
heiminum gegn vígbúnaði stór-
veldanna.
Hún styður þannig hið þriðja afl
þennan þriðja valkost sem er
hvorki austur eða vestur og neitar
að láta negla sig niður í flokkspói-
tíska bása. Því friðarmálin eru ofar
öllum flokkspólitískum sjónarmið-
um. Við eigum einfaldlega um tvo
kosti að velja að hverfa frá því lífi
sem markast af jafnvægi óttans
milli stórveldanna eða farast.
Ef að kirkjan tekur forystu í
friðarumræðunni losar hún um þá
kreppu sem þær eru í. Því að hing-
að til hafa það mest verið vinstri-
sinnaðir hópar sem hafa fjallað um
þessi mál og menn hafa óspart ver-
ið stimplaðir í þá veru ef þeir haf
tjáð sig um þessi mál af opnum
huga. Það er hryggilegt að þeir sem
telja sig til hægri ístjórnmálum hafa
varla treyst sér til að taka þátt í
þessari lífsnauðsynlegu umræðu.
Ég get tilfært dæmi um þetta frá
samtalsdögum Kirkjuritsins í Skál-
holti þar sem stjómmálamenn og
guðfræðingar fjölluðu um sama
efni og prestastefnan, frið á jörðu.
Þar kom kirkjan beinlínis inn með
nýja vídd í þessa umræðu stjóm-
málamannanna þannig að úr varð
að lokum samtal en ekki þetta
venjulega pex.
Hvað áttu við með nýrri vidd?
1 þessari vídd felst friðarhugtak
kirkjunnar þar sem guð grípur inn í
líf mannsins þannig að maðurinn
nýtur sín og er í jafnvægi. I garg-
andi fuglabjargi er friður sam-
kvæmt biblíunni því að þar ríkir
jafnvægi og fuglarnir eru í sátt við
sjálfa sig og skapara sinn.
Gróskumikið
S.S.K. hélt aðalfund sinn 1. maí s.l.
í Bifröst á Sauðárkróki í hríðar-
veðri og lá við ófærð á vegum þann
dag. Sem betur fór hömluðu þær
aðstæður þó eigi fundarsókn nema
að hluta til úr Fljótum en æfinlega
erfitt að breyta fundardegi þar sem
andlegt og líkamlegt fóður er þegar
undirbúið. Kvenfélagið Framför í
Skarðshreppi og Kvenfélag
Skefilsstaðahrepps höfðu umsjá
fundarins á hendi og voru móttök-
ur þeirra með miklum myndarbrag
og gestrisni rómuð en formenn fé-
laganna eru þær Elísabet Andrés-
dóttir, Tungu, Og Árný Ragnars-
dóttir, Mallandi. Skemmtiatriði
annaðist Kvenfélag Lýtingsstaða-
hrepps og fengu fundarkonur að
líta inn á framboðsfund hjá
ímynduðu kvennaframboði og var
hin besta skemmtun að.
Sýningu á námskeiðsmunum
nokkurra félaga hafði verið komið
fyrir í græna sal og gat þar að líta
forníslenskan saum úr Skarðs-
hreppi, sokkablóm frá Sauðár-
króki, útskorna muni og fl. trémuni
frá Staðarhreppi, prjónavörur úr
Akrahreppi og bótasaum og flos frá
Seyluhreppi. — Auk þessa var
sýning Textilfélags lslands í Safna-
húsinu en hana hafði S.S.K. fengið
senda frá Samb. a-hunv. kvenna og
tók Kvenfélag Sauðárkróks að sér
að koma henni upp með aðstoð
Guðrúnar Auðunsdóttur frá
Textilfélaginu og sjá um vörzlu
dagana sem hún var opin. Voru þar
til sýnis hinir ólíkustu munir úr alls
kyns vefnaði og taui.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
var á dagskrá fundarins erindi
Maríu Pétursdóttur formanns K.í.
sem kom síðdegis frá aðalfundi
Samb. eyf. kvenna og ræddi hún
margt fróðlegt um störf Kven-
félagasambands íslands og stofn-
anir sem það á aðild að, svo sem
Bréfaskólann, Skálholtsskólann,
Leiðbeiningastöð um ísl. þjóðbún-
inga og Öldrunarráð Islands. Urðu
nokkrar umræður um málefni al-
draðra og var eftirfarandi tillaga
samþykkt: „Aðalfundur S.S.K. tel-
ur brýna þörf á að vinna þannig að
málum aldraðra að starfsfúsar
hendur þurfi ekki að hætta vinnu
vegna aldurs ef geta leyfir annað og
skorar á öldrunarráð og aðra þá
sem að málefnum aldraðra starfa
að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að leggja þessu máli lið.“
Þá var fjallað um afmæli S.S.K.
sem verður fertugt að ári. Var
kjörin afmælisnefnd og komu fram
ýmsar uppástungur til nefndar-
innar m.a. var ákveðið að leita eftir
tillögum um fána fyrir sambandið.
- í S.S.K. eru 14 félög, sem starfa í
öllum hreppum sýslunnar og á
Sauðárkróki og er meðal þeirra
elzta kvenfélag á landinu, Kven-
félag Rípurhrepps, og eitt hið
yngsta, Kvenfélagið Framför. Eru
félagskonur um 350 auk margra
heiðursfélaga og starfa þær ötul-
lega að hinum ýmsu baráttumálum
sem er nú einkum bygging íbúða
fyrir eldri Skagfirðinga.
4. júní s.l. hélt sambandið basar á
Sauðárkróki til ágóða fyrir þannig
íbúðir á Sauðárkróki, Hofsósi og í
Varmahlíð. Seldust þar kökur upp
á svipstundu, garðplöntur fóru
mjög gljótt en pottablóm voru seld
lengi enda skiptu þau hundruðum.
Varð ágætur hagnaður af basarn-
um og þakkar stjórn S.S.K. öllum
sem lögðu hönd á plóginn þennan
skemmtilega dag. Félögin þrjú á
Hofsósi og nágrannasveitunum
halda slíkan basar einmitt þessa
dagana, er þetta er ritað, þar á
Hofsósi. — í haust mun Kvenfé-
lagasamband íslands gangast fyrir
starfsvöku um helgina, sem dag
S.Þ. 24. okt. ber upp á, og mun
S.S.K. væntanlega taka þátt í henni
og kvenfélagskonur vaka þá við
vinnu sína á löngumýri og kannski
víðar í héraðinu. En allir munir
sem verða framleiddir þessa helgi
ætir og óætir, verða seldir til fjár-
öflunar fyrir ellimál á hverjum
stað.
Samband norðl. kvenna hélt
ársfund sinn í Hrafnagilsskóla í
Eyjafirði 8-9. júní s.l. Voru þar
mörg þörf málefni rædd sem of
langt yrði hér upp að telja hvað þá
gera nokkur skil en stjórn S.S.K.
vill koma því á framfæri hér að hið
vinsæla garðyrkjunámskeið í
Hveragerði hefst 6. september og
þarf að tilkynna þátttöku til for-
manns sambandsins fyrir 15. ágúst.
Verður námskeiðið með mjög líku
sniði og undanfarin ár. — Nú er i
ráði að stofna Menningarsamtök
Norðlendinga og mun S.S.K. eiga
fulltrúa á stofnfundinum enda tóku
stjórnarkonur þátt í undirbúnings-
fundum þar að lútandi s.l. ár.
Nýlega var á ferð hér í Skagafirði
bandarisk kona, frú Emily Shirem-
an, en hún dvelur hérlendis í boði
kvenfélagasambands síns í Indiana
og K.I. Dvaldi hún hér á vegum
S.S.K. á Mælifelli og í Útvík og
Framhald af bls. 1.
að velja og hafna þegai ijarmagni
er skift. Óhjákvæmilegt hefur verið
að láta endurbætur og uppbygg-
ingu vegarins um Laugadal,
Bændahátíð
í Húnaþingi
Hin árlega bændahátíð B.S.A.H.
var haldin á Blönduósi 19. júní s.l.
Indriði G. Þorsteinsson, rithöf-
undur, spjallaði við samkomugesti.
Kristín Bjarnadóttir leikkona, (frá
Haga í Sveinsst.hr.), og Jón Júlíus-
son leikari sáu um hið andlega
fóður en kvenfélagskonur á
Blönduósi framreiddu hinar ágæt-
ustu kaffiveitingar. Hljómsveitin
„öldin okkar“ frá Siglufirði spilaði
fyrir dansi og er það mál manna að
sjaldan hafi dans verið stiginn af
jafnmiklu og samfelldu fjöri í
Félagsheimilinu á Blönduósi og
gert var þessa sólbjörtu júnínótt.
E.S.
starf
kynntist ýmsu sem varðar störf og
menningu okkar Skagfirðinga.
Hún er bóndakona og vel að sér um
venjuleg sveitastörf og var mjög
áhugasamur og þægilegur gestur.
Kvenfélag Sauðárkróks efndi til
kvöldvöku til að fagna Emily og
fékk hún þar að sjá fagrar litsk-
yggnur Ingólfs Nikódemussonar
frá stöðum utan alfaraleiða í
Skagafirði. Einnig sýndi Emily
hinn ólíka heim sléttlendis og mik-
illar ræktunar í Indíana. Voru
margar konur klæddar upphlut
þetta kvöld og varð samveran afar
ánæguleg, og kunni gesturinn vel
að meta létt og glatt andrúmsloftið
og veglegar veitingar kvenfélags-
kvenna á Sauðárkróki. Biður Emily
fvrir kveðjur til þeirra mörgu sem
hún kynntist á ferðum sínum hérog
þakkar fjölmargar gjafir.
N.K. sunnudag 20. júní er svo
dagur eldra fólksins í Skagafirði
með dagskrá í Miðgarði í umsjá
stjórnar S.S.K. og öldrunarnefndar
Kvenfél. Sauðárkróks en þangað
bjóða kvenfélagskonur eldra fólki
hver á sínum stað og auk þess
kemur dvalarhópurinn á Löngu-
mýri sem Norðlendingar eru að
meiri hluta í að þessu sinni. Er það
ósk okkar og von að sem flestir geti
átt þar saman notalega stund á ári
aldraðra. F.h. stjórnar S.S.K.
Vatnsskarð og Sauðárkróksbraut
ganga þarna fyrir. Um það hafa
þingmenn kjördæmisins verið
sammála. Þótt enn sé mikið óunnið
á þessari þjóðleið eru framkvæmd-
ir komnar vel á veg og verða vænt-
anlega hraðstígar næstu árin. Ég tel
því tímabært að gera nýjar áætlanir
um Þverárfjallsveg sem greina
kostnað við mismunandi gerð veg-
ar allt frá endurbótum á sumarvegi
til uppbyggðs vegar sem ætla má að
unnt yrði að halda greiðfærum allt
árið. Þessa kosti er nauðsynlegt að
hafa fyrir framan sig þegar
ákvarðanir eru teknar um fjár-
magn.
Augljóst er mikilvægi þess að
stytta samgönguleiðina milli þétt-
býlisstaðanna um miðbik kjör-
dæmisins sem kæmi fram í auknum
samskiptum á sviði atvinnu- og
menntamála einnig félags- og
menningarmála. Vegurinn verður
því tvímælalaust bættur á næst-
unni, spurning er aðeins hvemig og
hvenær.
Stjórnarkonur S.S.K. eftir móttöku vinabæjarfulltrúa f Árgarði.
Guðrún L. Ásgeirsdóttir,
formaður
---—1 i
Þverárfjall
Feykir . 7