Vestfirska fréttablaðið - 12.09.1991, Page 8
TOL VUPRENTARAR
STAR LC24 —1024 nála, fjórarinnbyggðarleturgerðir, hraði 180 stafir/sek.
Tekur þrírit. Staðgreiðslu verð aðeins kr. 31.700
ÍJt
BOKAVERSLUN
JÓNASAR TÓMASSONAR
Sími 3123, ísafirði
Kolbrún og Trausti
knattspyrnumenn
ársins hjá BÍ
(lokahófi knattspyrnuvertíöar BÍ sem haldið var i Krús-
inni um helgina voru útnefndir knattspyrnumenn ársins af
báðum kynjum, þau Kolbrún Kristinsdóttir og Trausti
Hrafnsson.
Einnig fékk Ámundi Sigurðsson þjálfari þakklætisvott
fyrir vel unnið starf, en hann skilaði meistaraflokki karla úr
þriðju deildinni og upp í aðra deild, eins og fram kom hér
í blaðinu i síðustu viku. Það breytti engu þar um, þótt liðið
tapaði síðasta leiknum á laugardaginn.
Samband veitinga-
og gistihúsa þingar
á ísafirði
Aðalfundur Sambands veitinga- og gistihúsa var að
þessu sinni haldinn á Hótel (safirði dagana 10.-12. sept-
[ ember (þriðjudag til fimmtudags í þessari viku). Fundinn
[ sátu milli 60 og 70 manns víðs vegar að af landinu. Auk
þess að sinna venjulegum aðalfundarstörfum nutu fundar-
menn ýmissa lífsgæða og annars sem hér er hægt að
bjóða gestum, og má þar nefna veisluföng og tónlist á
Hótel ísafirði, skoðunarferðir um bæinn, bátsferð um Djúp
með viðkomu í Vigur, auk berjatínsluferðar fyrir maka.
Einar Valur og
Arnar Geir unnu
í tvímenningi
Á Vestfjarðamótinu i tvímenningi sem haldið var á (sa-
firði um síðustu helgi sigruðu þeir Einar Valur Kristjánsson
yfirkennari og Arnar Geir Hinriksson lögfræðingur. (öðru
sæti urðu Bolvíkingarnir Jóhann Ævarsson og Júlíus Sig-
urjónsson og í þriðja sæti Súðvíkingarnir Óskar Elíasson
og Esra Esrason. Atján pör tóku þátt í mótinu.
Nýlega var Eiríkur Kristófersson byggingameistari kos-
inn forseti Bridgesambands Vestfjarða.
Aðfínnslur
Vont er ef hvessir
úr veðri kjurru,
en verra ef rignir
uppúr þurru.
(Ólafur Gíslason
í Neðribæ í Selárdal).
Maðurinn með ljáinn heldur sínu striki:
Menntamálaráðuneytið neitar
um öldungadeild á Hólmavík
- þrátt fyrir mjög mikinn áhuga heimamanna og sáralítinn kostnað
NÝLEGA kvað mennta-
málaráðuneytið upp úr með
það, að ekki fengist að hafa
öldungadeiid á Hólmavík í
vetur, eins og búist var við og
að var stefnt. Hólmvíkingar
með Stefán Gíslason sveitar-
stjóra í broddi fylkingar hafa
samt ekki enn gefið upp alla
von um að þessari ákvörðun
verði breytt, í Ijósi þess annars
vegar hversu margir eru
ákveðnir í því að stunda nám
■ deildinni ef af yrði, og hins
vegar í Ijósi þess hversu lítið
rekstur hennar myndi kosta
ríkissjóð, eða aðeins um 200
þúsund krónur í vetur, að því
er Stefán telur.
I fyrrahaust tók öldunga-
deild til starfa á Flateyri og um
síðustu áramót á Patreksfirði.
I umræðunni um hinn nýja
Framhaldsskóla Vestfjarða
hefur alltaf verið gert ráð fyrir
öldungadeild á Hólmavík
líka, og þegar þess var form-
iega var farið á leit við ráðu-
neytið í vor að hún yrði
stofnuð, var talið að það væri
auðsótt mál og nánast aðeins
formsatriði. En nýir siður
koma með nýjum herrum.
Þegar málið var kannað
voru 38 manns sem lýstu
áhuga sínum á því að stunda
nám við væntanlega öldunga-
deild á Hólmavík. Þessa dag-
ana hefur Stefán sveitarstjóri
síðan verið að athuga hversu
margir eru alveg ákveðnir og
er búinn að fá 30 staðfestingar.
Hann sagði í samtali við Vest-
firska, að stofnun öldunga-
deildar skipti Hólmvíkinga
miklu máli, þarna væri ekki
aðeins um námið eitt að ræða,
heldur skipti félagslegi þáttur-
inn verulegu máli. Þess má
geta, að íbúar í Hólmavíkur-
hreppi öllum teljast vera 475.
Stærsti pósturinn í nýjasta
tölublaði Hreppsins á Hólma-
vík (6. sept.) er einmitt um
málefni öldungadeildarinnar,
undir fyrirsögninni Við viljum
ÖLDUNGADEILD. Vest-
firska leyfir sér að taka hér
upp hluta þess sem þar
stendur:
„Um miðjan ágúst hafnaði
menntamálaráðuneytið beiðni
Hólmvíkinga um starfrækslu
öldungadeildar á Hólmavík í
tengslum við Menntaskólann
á ísafirði (MÍ), en ætlunin var
að deildin tæki til starfa með
haustinu. Neikvætt svar ráðu-
neytisins vakti í senn von-
brigði og undrun. Hugmyndin
um öldungadeild hafði verið
rædd mikið í sambandi við
stofnun Framhaldsskóla Vest-
fjarða, og á síðasta skólaári
var sams konar deildum kom-
ið á fót á Flateyri og Patreks-
firði.
Eftir að afstaða ráðuneytis-
ins lá fyrir, var leitað eftir því,
að deildin yrði starfrækt innan
fjárheimilda Ml án sérstakrar
fjárveitingar, enda kostnaður
við deild af þessu tagi óveru-
legur (etv. um kr. 200 þús. á
ári). Ekki virðist hljómgrunn-
ur fyrir þessari hugmynd.
Ekki er þó öll nótt úti enn,
og í næstu viku verður reynt
til þrautar að koma deildinni
á fót með einhverjum ráðum.
í sumar var gerð könnun á
áhuga Hólmvíkinga á námi í
öldungadeild. Undirtektirnar
voru stórgóðar, og bera vott
um mikinn áhuga fólks á námi
af þessu tagi. Alls lýstu 38
manns áhuga sínum á námi í
öldungadeild, auk þess sem 16
höfðu áhuga á að ná sér í 30
tonna skipstjórnarréttindi
(pungapróf) og 9 hugðu á véla-
varðarnám ef þess yrði
kostur.“
Skarphéðinn skólastjóri á Reykhólum
— engin heimavist í vetur til reynslu
Skarphéðinn Olafsson, sem
þar til fyrir fáum árum var
skólastjóri í Reykjanesi við
Djúp, hefur nú tekið við stöðu
skólastjóra á Reykhólum, í
stað Jóns Olafssonar sem
hætti í vor eftir tvo vetur.
Skólinn verður settur á mánu-
daginn, þann 16. september.
Sú nýlunda er nú tekin upp
á Reykhólum, að ekki verður
heimavist í vetur fyrir þá
krakka sem lengst eiga í skól-
ann eins og verið hefur, heldur
verður látið á það reyna
hvernig gengur að aka öllum
á milli daglega. Fimmtíu og
fjórir nemendur eru skráðir í
skólann, í 1 .-10. bekk. Tveir
eru úr Gufudalssveitinni, frá
Fremri-Gufudal, og eiga þcir
lengst að fara. Tveir bæir, sinn
á hvorum enda byggðarinnar,
eru nú komnir í eyði frá því í
fyrra, og styttir það skóla-
aksturinn verulega. Þessir
bæir eru Gilsfjarðarbrekka,
sem á land að Kleifum í Gils-
firði, en Kleifar eru í Dala-
sýslu, og Klettur í Kollafirði í
Múlasveit.
Reykhólaskóli.
Níu kennarar verða í Reyk-
hólaskóla í vetur, að Skarp-
héðni meðtöldum, þar af þrír
í hlutastarfi. Auk skólastjóra
verða í fullu starfi Sveinn
Guðmundsson á Miðhúsum,
Ebenezer Jensson, Steinunn
Rasmus, Eyjólfur Sturlaugs-
son og Eygló Gísladóttir (hún
var í nokkur ár skólastjóri í
Súðavík). 1 hlutastarfi verða
Svanborg Guðbjörnsdóttir
(íþróttakennari í hálfu starfi),
Jóhanna Þórhallsdóttir (í 60%
starfi) og Óskar Gíslason, sem
kennir smíðar en verður
einnig húsvörður og gang-
avörður.
Mötuneytið verður í gangi
þótt engin sé heimavistin, og
fær mannskapurinn þar há-
degismat og miðdegiskaffi.
Þar starfa þær Indíana Ólafs-
dóttir og Ása Stefánsdóttir (
Árbæ. Um ræstingar sjá þær
Guðný Jónsdóttir og Jóhanna
Guðmundsdóttir. Bílstjórar
verða sem fyrr þeir Eiríkur
Snæbjörnsson á Stað og Þórð-
ur Jónsson í Árbæ. Nýr
skólabíll hefur verið pantað-
Við leynum á okkur þó lítil séum
VERSLUNIN
Munið að það er opið Uka iT'1^
á laugardögum
og sunnudögum HNÍFSDAL
...við leynum líka á okkur
og getum prentað heilu bækurnar ef því er skipta
ISPRENTHF.
PRENTSMIÐJA S 94-3223