Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Qupperneq 5

Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Qupperneq 5
VESTFIRSKA FRÉTTAKT Anm | Miðvikudagur 4. maí 1994 5 Við sjávarsíðuna Orri fékk 36 tonn Línubáturinn Orri fékk 35,8 tonn í fimm róðrum í síðustu viku. Nánast allur aflinn var steinbítur. Skipstjóri á Orra er Sveinn Pálsson. Guðbjörg landaði 140 tonnum Togarinn Guðbjörg kom inn til Isafjarðar á föstudags- kvöldið og landaði 140 tonn- um af grálúðu eftir níu daga veiðferð á Hampiðjutorginu vestur af Látrabjargi. Skip- stjóri í þessari veiðiferð var Guðbjartur Asgeirsson. Hafrafellið land- aði ekki - en var meö 17 tonn Rækjufrystiskipið Hafrafell kom inn til Isafjarðar á föstu- dag vegna smávægilegrar bil- unar. Skipið var með 17 tonna afla en landaði ekki. Hafrafell var einungis nokkra daga að veiðum og reyndi fyrir sér á Dohrnbankanum. Ekki varð vart við rækju þar. Skipið kemur inn og landar eftir um það bil tvær vikur. Skipstjóri er Pétur Birgisson. Gyllir með 13 tonn af rækju Rækjuskipið Gyllir kom inn til ísafjarðar á föstudag 122,8 tonn af úthafsrækju sem fékkst í viku veiðiferð djúpt út af Húnaflóa. Skipstjóri á Gylli er Ólafur Halldórsson. Rækjuaflinn í Súðavík Þrír rækjubátar sem stunda veiðar í Isafjarðardjúpi lönduðu 15,2 tonnum af rækju í Súðavík úr tíu sjóferðum í síðustu viku. Hæstur var Fengsæll með 6,1 tonn í fjórum sjóferðum. Ut- hafsrækjubátarnir Haffari og Kofri landa ekki fyrr en í viku- lokin. Bessi með 70 tonn Togarinn Bessi frá Súðavík kom inn til Súðavíkur á þriðju- dag og landaði 70 tonna afla, mest grálúðu, sem fékkst í átta daga veiðiferð. Skipstjóri á Bessa í þessari veiðiferð var Jóhann Símonarson. Dagrún landaði 30 tonnum Togari Ósvarar hf. í Bolung- arvík, Dagrún, landaði 30 tonn- um af grálúðu í Bolungarvík á laugardaginn eftir 4ra daga veiðiferð á Torginu. Aflinn fór að mestu til vinnslu í Bolung- arvík utan að sett var í einn gám á Belgíu. Skipstjóri í þessari veiðiferð var Markús Guð- mundsson. Heiðrún á rækju- veiðar Togskip Ósvarar hf. í Bol- ungarvík, Heiðrún, fór á út- hafsrækjuveiðar á þriðjudags- kvöldið. Skipið mun landa hjá Rit hf. á Isafirði. Skipstjóri á Heiðrúnu f þessum túr er Einar Hálfdánsson. Rækjuafiinn á Isa- firði Tíu rækjubátar sem stunda veiðar í Djúpinu lönduðu 42,4 tonnum af innfjarðarækju á Isafirði í síðustu viku úr 47 sjóferðum. Bára var hæst með 5,7 tonn í fimm sjóferðum, annar var Haukur með 4,8 tonn í fimm sjóferðum og þriðji var Kolbrún með 4,7 tonn í fimm sjóferðum. Þessar upplýsingar fengust á Hafnarvoginni á Isa- firði á þriðjudag. Bolfisk- og rækju- afli í Víkinni Fjórtán línubátar lönduðu 105,5 tonnum úr 37 róðrum í Bolungarvík í síðustu viku. Hæstur var Flosi með 39 tonn í fímm sjóferðum og næstur var Kristján með 13 tonn í tveimur sjóferðum Sjö rækjubátar sem stunda veiðar í Djúpinu lönduðu 28,6 tonnum af innfjarðarrækju úr 30 sjóferðum. Hæstur var Arni Óla með 6,9 tonn í fimm sjó- ferðum og næstur var Hafrún II með 6,1 tonn í fimm sjóferðum. Páll Helgi er á dragnót og fékk 5,6 tonn í þremur róðrum í síðustu viku. Fjórir handfærabátar fengu 4,6 tonn í níu sjóferðum. Hæst var Asdís með 2,2 tonn í fjórum sjóferðum. Gunnbjöm iandaði 10 tonn- um af úthafsrækju í Bolungar- vík í síðustu viku. Þessar upp- lýsingar fengust á Hafnarvoginni í Bolungarvík á þriðjudag. Frí heimsending Pöntunarsíminn er 5267 Munil bjórldúbbinn sem stolnaður var um sióustu helgi á PIZZA 67 FIMM x 12" PIZZUR FIMM x PASTAHLAÐBORÐ Dregnar verða út tíu af þeim auglýsingum sem birtast i Vest- firska í maimánuði (bœði smáauglýsingum og stœrri auglýs- ingum) og hljóta viðkomandi auglýsendur annað hvort 12" pizzu með þremur áleggstegundum að eigin vali eða pasta- hlaðborð á Pizza 67. Auglýsið í Vestfirska og fáið ykkur pizzu ogpastahlaðborð á Pizza 671 Sléttanesió meö 19 millj. kr. afla Frystitogarinn Sléttanes frá Þingeyri landaði 191 tonni af frystum úthafskarfaflökum að verðmæti 18 til 19 milljónir króna á Þingeyri í gær. Þetta er um 340 tonna afli upp úr sjó eftir þriggja vikna veiðiferð suður á Reykjaneshrygg. Skip- stjóri í þessari veiðiferð var Vilhelm Annasson. Hólmadrangur með 31 millj. kr. aflaverðmæti Frystitogarinn Hólmadrang- ur frá Hólmavík landaði í gær 135 tonnum af grálúðuflökum í Reykjavík og eru það um 210 tonn upp úr sjó. Aflaverðmætin úr veiðiferðinni er um 31 milljón króna. Skipið var að veiðum í 22 daga og var mest T0GARAÚTGERD ÍSAFJARÐAR HF. Aðalfundur AðalfundurTogaraútgerðar ísafjarðar hf. fyr- ir árið 1993 verður haldinn miðvikudaginn 11. maí nk. kl. 20.30 á Hótel ísafirði, 1. hæó. Dagskrá: Samkvæmt 15. gr. samþykkta félagsins. Ársreikningur félagsins fyrir árið 1993 liggur frammi, hluthöfum til sýnis, á skrifstofunni, Aðalstræti 26, 2. hæð, frá og með 2. maí nk. ísafirði, 20. apríl 1994. F.h. Togaraútgerðar ísafjarðar hf. Pétur Sigurðsson, formaður. Starfsfólk vantar Fiskverkun Ásgeirs Salómonssonar hf. vantar starfsfólk í snyrtingu og pökkun. Upplýsingar í síma 3033 eða á staðnum í Sindragötu 3b, ísafirði. á Hampiðjutorginu vestur af Látrabjargi og endaði veiði- ferðina fyrir sunnan land og þar var ekkert að hafa, að sögn Þorbergs Kjartanssonar skip- stjóra. Sagði Þorbergur skipið vera að fara í slipp í Reykjavík að löndun lokinni, í botn- hreinsun og málun. Stefnir fékk 65 tonn Togarinn Stefnir kom inn til Isafjarðar á þriðjudag og landaði 65 tonnum af grálúðu sem skipið fékk í sjö daga veiðiferð á Torginu vestur af Látrabjargi. Skipstjóri á Stefni er Grétar Kristjánsson frá Litlabæ í Súðavík. Umsjón með aflasíðu: GHj AdalíunJur KÍ Aðalfundur Kaupfélags ísfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 17. maí 1994 kl. 17.00 að Pólgötu 2, ísafirði. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. STREET WISE Þessi spennutryllir fram- leiðandans Donalds Borcher gerist í Los Angeles, í hverfi þar sem mannslíf eru verslu- narvara og kynlif gjaldmiðill. Lee Teffer er fyrrverandi gö- tudrengur sem gengið hefur í lögregluna og þekkir kerfið eins og handabarkaið á sér. Síðar kynnist hann Kyle, sautján ára stúlku, sem er í leit að systur sinni. Leit hen- nar kemur róti á glæpaheim borgarinnar og ekki síður á til-finningalíf Lees. HARD TARGET Fyrrverandi Víetnamher- maður í Bandaríkj-unum tý- nist. Dóttir hans fer að leita og fær til liðs við sig Chance Boudreaux (Jean Claude Van Damme). Þegar þau fara að rannsaka málið komast þau að skelfi-legum hlutum. Hópur kaupsýslu- manna leitar uppi heimilislau- sa fyrr-verandi hermenn, sem hafa farið illa út úr lífinu, og nota þá sem lifandi agn í vis- sum tilgangi. Sá sem tapar týnir lífinu... IR 4299 Opið alla daga frá 16 til 19 20 til 23:30. HVÍTASUNNUKIRKJAN SALEM Fjölskyldudagur Laugardaginn 7. maí býöur Hvítasunnukirkjan til fjölskyldudags sem samanstendur af nám- skeiðum um málefni fjöl- skyldunnar. Dagskráin, sem hefst kl. 14.00 og stendur til kl. 18.00, er ætluð allri fjölskyldunni. Innifaldar eru kaffi- veitingar. Ókeypis að- gangur. Kennarar verða Steingrímur Á. Jónsson og Þóranna Sigurbergs- dóttir frá Vestmanna- eyjum. Steingrímur og Þóranna predika jafn- framt á vakningarsam- komu á laugardagskvöld kl. 20.30 og sunnudag kl. 17.00. Komiö og njótið góðrar helgar meö okkur. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan ísafirði

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.